Morgunblaðið - 15.09.1995, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995 2i
Fimm Islenskir
listamenn sýna
Kyoto
í GÆR hófst sýning á verkum fimm
íslenskra listamanna í Studio-COM
Tachikichi, sem er þekkt skúlptúr-
gallerí í Kyoto í Japan.
Fimmmenningarnir sem kalla sig
KOM-sýningarhópinn eru: Kristín
ísleifsdóttir, Magnús Tómasson,
Örn Þorsteinsson, Sigrún Ó. Einars-
dóttir og Sören S. Larsen.
Þau verða öll viðstödd við opnun
sýningarinnar, auk þess sem þau
munu ferðast um Japan og halda
fyrirlestra um íslenska list.
KOM-hópurinn hefur gert kynn-
ingarbækling á japönsku vegna
Japan
sýningarinnar og hefur forseti ís-
lands frú Vigdís Finnbogadóttir rit-
að ávarp í hann um menningar-
tengsl íslands og Japans. Verkefni
þetta hefur hlotið styrk frá Sas-
akawa sjóðnum, menntamálaráðu-
neytinu o.fl.
Framhald verkefnisins verður
það að fímm japanskir listamenn
munu, ásamt KÓM-hópnum, sýna
verk sín í Norræna húsinu á haust-
dögum 1996 og mun þá á sama
tíma verða þemasýning í for-
gangi/kaffisölu um þemað Skand-
inavía-Japan í hönnun og listum.
SONGSVEITIN Fílharmónía
V V V 'I
|j§ : 8^
Vetrarstarf Filhar-
móníu að hefjast
UM þessar mundir er að hefjast
vetrarstarf Söngsveitarinnar Fíl-
harmóníu, sem er einn af elstu
blönduðu kórum landsins. Starfið
hefst með félagsfundi og söngæf-
ingu mánudaginn 18. september
kl. 20.00 í Melaskóla. Starfsemi
Söngsveitarinar Fílharmóníu á
komandi starfsári verður mjög fjöl-
breytt og fyrirhugaðir eru tónleikar
í desember, janúar og byijun maí,
eins og fram kemur í frétt frá söng-
sveitinni.
Síðan haustið 1988 hefur stjórn-
andi kórsins verið Úlrik Ólason og
raddþjálfari undanfarin ár Elísabet
Erlingsdóttir söngkona.
Söngsveitin hefur haldið að-
ventutónleika síðan 1989 og verður
það einnig gert í vetur. Aðventutón-
leikar kórsins eru orðnir fastur liður
í tónlistarlífi höfuðborgarsvæðisins
í desember og hefur skapast sú
hefð að hafa þessa tónleika um og
„Þetta get
„ÞETTA get ég nú gert“ er heiti
á myndlistarsýningu sem sex
myndlistarmenn opna í sýningar-
sölum Norræna hússins á morgun,
laugardag, kl. 16.
Myndlistarmennirnir eru Anna
Þóra Karlsdóttir, Asa Ólafsdóttir,
Birna Kristjánsdóttir, Guðrún
Gunnarsdóttir, ína Salóme og Ólöf
Einarsdóttir.
Á sýningunni verða nýtjahlutir
unnir í margvísleg efni og endur-
spegla verkin sýn myndlistar-
mannsins á nytjahluti.
Sýningin stendur til 1. október
og er opin alla daga nema mánu-
daga frá kl. 14-19.
eftir aðra helgi desembermanaðar.
Aðventutónleikar söngsveitarinnar
hafa verið haldnir í Kristskirkju í
Landakoti.
Annað verkefni söngsveitarinn-
ar í vetur verða tónleikar í Borgar-
leikhúsinu þriðjudaginn 23. janúar.
Þessir tónleikar verða í tónleikaröð
þeirri sem Borgarleikhúsið gengst
fyrir í vetur og eru nýjung í tónlist-
arlífinu hér. Á þessum tónleikum
er ætlunin að flytja íslenska leik-
hústónlist. íslensk leikhústónlist
hefur að geyma marga þekkta
söngva eftir tónskáld eins og t.d.
Pál Isólfsson, Jón Ásgeirsson, Atla
Heimi Sveinsson og Jón Nordal.
Viðamestu tónleikar vetrarins
verða síðan næsta vor, þar sem
ætlunin er að flytja Sköpunina eftir
Haydn.
Söngsveitin Fílharmónía er nokk-
urn veginn fullskipuð, en þó er
hægt að bæta við góðum röddum.
ég nú gert“
MYNDLISTARMENNIRNIR
sem standa að sýningunni.
Bergmál
NÚ fer hver að verða síðastur
til að sjá sýninguna Ljós úr
norðri, norræn aldamótalist,
sem stendur yfir í Listasafni
íslands.
Syningin hefur farið víða um
lönd og síðasti viðkomustaður
hennar verður í Stokkhólmi, en
eftir það verður listaverkunum
skilað á ríkislistasöfn Norður-
landanna og til annarra eig-
enda listaverkanna.
Sýningunni lýkur sunnudag-
inn 24. september og verður
hún ekki framlengd.
Myndin Bergmál er eftir El-
len Thesleff og var máluð 1891.
Renning-
ar við
Hamarinn
SIGRÍÐUR Júlía Bjarnadóttir
opnar sýningu á verkum sínum
í sýningarsalnum Við Hamar-
inn, Strandgötu 50 í Hafnar-
firði, á morgun, laugardag.
Yfirskrift sýningarinnar er
Renningar. Sigríður Júlía út-
skrifaðist úr _ Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1988 og
stundaði nám í San Francisco
Art institute 1989-90.
Sýningin stendur til 1. októ-
ber. Opið er alla daga frá kl.
14-18.
itta
ÍSLENSKUR
LANDBÚNAÐUR
Til móts við framtíðina
Alþjóðleg ráðstejna haldin á Hótel Sögufimmtudaginn 21. september kl. 8.30 árdegis.
I tilefni stjórnarfundar IFOAM, Alþjódasamtaka hfrœnna bœnda ogframleiðenda hér á landi,
hefur verið ákveðið að efna til opins fundarfyrir allt áhugafólk, þar sem fjallað verður um:
Lífrænan landbúnað
og þýðingu hans fyrir Island
og heimsbyggðina.
Meðal fyrirlesara eru margir af helstu sérfræðingum veraldar á þessu sviði og því gefst
Islendingum hér einstakt tækifæri til að kynnast lífrænum landbúnaði í alþjólegu umhverfi.
Dagskrá:
Kl. 8.30 f.h. Skráning.
Ráðstefnan sett - ávörp.
Guðmundur Bjarnason, landbúnaðar- og umhverfisráðherra.
Hervé La Prairie, forseti Alþjóðsamtaka lífrænna landbúnaðarhreyfinga - IFOAM Frakkalndi.
Hlutverk IFOAM og starfsemi samtakanna fyrir lífrænu hreyfinguna í heiminum.
Linda Bullard, Belgíu/Bandaríkjunum.
Heimur lífræns landbúnaðar (myndasýning).
Bernward Geier Þýskalandi.
Kaffihlé
Lífrænn landbúnaður - byrjað á jarðveginum.
Gcrald Herrmann, Þýskalandi.
Lífrænn landbúnaður í heiminum,j[ýrri hluti.
Afríka: John Njoroge, Kenýu.
Evrópa: Troels Ostergaard, Danmörku, Ursula Soltysiak, Póllandi.
Hádegisverður.
Lífrænn landbúnaður í heiminum, seinni hluti.
Asia: Ranjith De Silva, Sri Lanka.
Ástralia, Nýja Sjáland og önnur lönd við sunnanvert Kyrrahaf: Bob Crowder, Nýja Sjálandi.
Suður- og Mið-Ameríka; Miguel Nunez, Venezuela.
Norður-Ameríka: Roni Brunner, Bandaríkjunum.
Hagfræði lífræns landbúnaðar og hlutverk hans í sanngjörnum viðskiptum. Coen van Beuningen,
Hollandi og Hanspeter Schmit, Þýskalandi.
Kaffihlé.
Abyrgð á uppruna og gæðum lífrænna afurða;framleiðslureglur, löggjóf, vottun og eftirlit.
Rainer Báchi, Sviss og Ken Commins, Bandaríkjunum.
Staða lífrænna afurða á heimsmarkaðnum.
Carl Haest, Belgiu.
Umrœður.
Ráðstefnustjóri: Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Bændasamtaka íslands.
Þátttökugjald er kr. 2.300. Innifalið er kaffi og ljúffengur hádegisverður.
Erindin verða flutt á ensku og þýdd jafnóóum fyrir þá sem þess óska.
Skráning þátttöku cr hafin hjá Bændasamtökum Islands í síma 563 0300.
Landbúnaðarráðuneytið — Bændasamtök Islands — Náttúruverndarár Evrópu 1995 Áform-átaksverkefni.