Morgunblaðið - 15.09.1995, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995 25
LISTIR
Fjórar sýningar á Kjarvalsstöðum
Mótunarár Kjarvals,
Kristín, leirlist
og vídeó
Jóhannes Kjarval
FJÓRAR sýningar
verða formlega opn-
aðar á Kjarvalsstöð-
um á morgun laugar-
dag kl. 16: Sýningin
Kjarval - mótunarár
1885-1930, sýning á
verkum Kristínar
Gunnlaugsdóttur,
sýningarnar Forn
leirlist frá Perú og
Konur og vídeó.
í Austursal verður
sýningin Kjarval -
mótunarár 1895-
1930. Mótunarár
Kjarvals, þ.e.a.s.
tímabilið fram til
1930, var frjósamt og
margbreytilegt skeið á ferli lista-
mannsins. A sýningunni verða
sýnd verk frá þessu tímabili í ævi
listamannsins og reynt að endur-
spegla það sem helst einkenndi
vinnubrögð hans á hverjum tíma,
samkvæmt því sem segir í frétt
frá Kjarvalsstöðum.
Sýnd verða verk frá Reykjavík-
urárum hans áður en hann hélt
utan til náms, verk frá námsárun-
um í London og Kaupmannahöfn,
svo og námsferð hans til Italíu.
Einnig verða sýnd verk frá ís-
landsferðum hans meðan hann bjó
erlendis auk verka frá Islandi og
Frakklandi frá timabilinu
1922-30. „Á sýningunni verður
leitast við að endurspegla þá
breidd í myndmáli, stílbrigðum og
verkefnavali sem einkenndi þetta
mótunarskeið listamannsins," seg-
ir í fréttinni.
Málverkið endurnýjað
í Miðsal verður Kristín Gunn-
laugsdóttir með sýningu. Um þá
sýningu segir: „Á síðastliðnum
áratug fékk málverkið endurnýj-
að vægi í listheiminum. Þessi end-
urvakning málverksins gerðist
samtímis víða um veröldina, en
birtist þó á hveijum stað með sín-
um sérstæðu formerkjum, meira
eða minna njörvuð í myndlistar-
hefð viðkomandi þjóðlanda.
Nýja málverkið kom ennfremur
hingað til lands og náði talsverðri
útbreiðslu meðal yngri myndlist-
armanna, þó svo að erfitt sé að
tala um ákveðna
stefnu, inntakslega
eða formrænt. Kristín
Gunnlaugsdóttir er
einn af þessum lista-
mönnum, sem um ára-
bil hefur stundað _
myndlistarnám á ítal-
íu og tileinkað sér
hugmyndafræði nýja
málverksins. Lista-
konan hefur skapað í
verkum sínum einkar
sérstæða myndgerð
sem byggir á hefð-
bundnum grunni og
ber með sér sterkar
tilvísarnir í forna býs-
anska íkonagerð.
Þetta eru fígúratíf málverk,
afgerandi í lit og formrænni fram-
setningu, þar sem listakonan
kannar virkni málaralistarinnar
og vitnar um sinn eigin veruleika."
Ýmsir menningarhópar
í Vestursal verður sýningin
Leirlist frá Perú. Um er að ræða
sýningu á úrvali leirlistaverka frá
Þjóðminjasafninu í Líma, en þar
hafa lengi verið stundaðar rann-
sóknir á menningar- og listasögu
Perú síðastliðin 6000 ár. Á sýning-
unni eru munir frá ýmsum menn-
ingarhópum sem voru uppi fyrir
tíma inkanna, þar á meðal nokkr-
ir munir frá 5. öld fyrir Krist.
„Hér gefst tækifæri til að fá inn-
sýn í háþróaða menningu hinna
ýmsu þjóðabrota sem byggðu
Perú til forna og kynnast
dularfullri og heillandi þjóð-
menningu, aðallega frá
strandhéruðum Perú, þar
sem fornleifafræðingar
eru sífellt að gera nýjar
uppgötvanir sem vekja
furðu sagnfræðinga og
annarra sérfræð-
inga,“ segir í kynn-
ingu.
VERK eftir Kristínu
Hugmyndir konunnar
Vesturforsalur: Konur og vídeó,
1970-1975. Safnið kynnir hana
svo: „Á 7. áratugnum
leituðu listamenn nýrra
leiða til listsköpunar.
Sjónvarp og vídeó var
í senn nýjung og tæki
sem var að verða
eðlilegur hluti af
hversdagslegu lífi
nútímamannsins.
Sýningin Konur
og vídeó er yfir-
litssýning yfir
vídeólist
kvenna á
Forn leirlist
frá Perú
arunum
1970 til
1975. Þar gefur að líta myndir *
eftir 21 konu víðs vegar að úr
heiminum sem nota þetta listforin
til að koma á framfæri listrænum,
persónulegum og pólitískum hug-
myndum konunnar í nútímasamfé-
lagi.“
Eftirfarandi listakonur eiga
verk á sýningunni: Eleanor Antin,
Lynda Benglis, Barbara Buckner,
Doris Chase, Shirley Clarke,
Hermine Freed, Julie Gustafson,
Nancy Holt, Joan Jonas, Beryl
Korot, Shigeko Kubota, Mary
Lucier, Martha Rosler, Ilene Seg-
alove frá Bandaríkjunum, Lísa
Steele frá Kanada, Anna Bella
Geiger frá Brasilíu, Mako Idem-
itsu og Kyoko Michishita frá Jap-
an, Valie Export og Ulrike Ros-
enbach frá Þýskalandi og Steina
Vasulkas frá íslandi. Sýningunni
fylgir sýningarskrá með greinum
eftir JoAnn Hanley og Ann-Sarg-
ent Woster.
Sýningin á verkum Kjarvals
verður opin frá 16. september
fram í desember en sýningarnar
á verkum Kristínar Gunnlaugs-
dóttur og Leirlist frá Perú verða
hinsvegar opnar daglega frá 16.
september-15. október og frá
10-18.
Síðasti
keppandi
TónVakans
SÍÐASTI keppandinn í úrslita-
keppni TónVakans kemur fram
sunnudaginn 17. september kl.
13. Það er Sig-
urður Mar-
teinsson píanó-
leikari sem
flytur verk eft-
ir Hafliða Hail-
grímsson,
Franz Schu-
bert, Ludwig
van Beethoven
Sigurður og Johann Se-
Marteinsson bastian Bach.
Sunnudag-
inn 24. september kl. 13 verða
úrslit TónVakans kynnt í beinni
útsendingu.
• ,í .VVj
' h T
?**V . oík
/-'TSr. X
Eitt verka Kristjáns.
Kristján
sýnir í
Asmundarsal
KRISTJÁN Davíðsson opnar
málverkasýningu í Ásmundarsal,
húsi Arkitektafélagsins, Freyju-
götu 41, í dag föstudag kl. 18-20.
Á sýningunni eru olíumálverk
unnin á undanförnum árum.
Sýningin er sölusýning og er
opin daglega frá kl. 16-20. Henni
lýkur 1. október.
Sýningum
lýkur í
Gallerí Fold
SYNINGU á verkum kínversku
listakonunnar Lu Hong og kynn-
ingu á verkum Gunnars Á.
Hjaltasonar, sem undanfarið hef-
ur staðið yfir i Gallerí Fold við
Rauðarárstíg, lýkur nú á Sunnu-
dag.
Opið er í Gallerí Fold daglega
frá kl. 10-18 nema sunnudaga
frá kl. 14-18.
Sdmít-dnA !
Skriflegt samband viö stærstu fréttastofu
landsins tryggir þér upplýsingar um allt sem
skíptir þig máli - þegar þú vilt - þar sem þú vilt,
hvort sem þú færö Morgunblaðið inn um
bréfalúguna eöa um Alnetið.
Kjarni málsins, þegar þú vilt - þar sem þú vilt!