Morgunblaðið - 15.09.1995, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Morgunblaðið/Kristinn
BÉ tveir fjallar um lítinn geimstrák sem kemur niður til jarðarinnar til að leita
að hlut sem er ekki til á stjörnunni hans.
Animato
Síðustu
sýningar á
Lindindin
LEIKFÉLAGIÐ Theater frum-
sýndi á dögunum nýja íslenska
rokkóperu, Lindindin eftir
Ingimar Oddsson, í húsnæði
íslensku óperunnar.
Nú er svo komið að Lindind-
in þarf að rýma til fyrir starf-
semi Óperunnar. Síðustu sýn-
ingar verða því í kvöld kl. 20
og laugardag kl. 20.
Asgerður í
Borgar-
kringlunni
SÝNING á verkum Ásgerðar
Kristjánsdóttur stendur nú yfír
í Borgarkringlunni.
Verkin á sýningunni eru flest
unnin á þessu ári og eru um
50 vatnslitamyndir. Þetta er
fjórða einkasýning Ásgerðar.
Sýningin er opin frá kl.
13-18.30 virka daga og kl.
10-16 laugardaga um óákveð-
inn tíma.
Síðasta sýn-
ingarhelgi
SÝNINGU Sigurbjörns Eldon
Logasonar á vatnslitamynd-
um, sem nú stendur yfír á
kaffihúsinu Við Fjöruborðið á
Stokkseyri, lýkur 22. septem-
ber næstkomandi.
Sýningin er opin alla daga
frá kl. 13-23.
French Sensations
Nýja haustlínan
frá Warner's
Skálastærðir A, B, C, D, DD - 32-40.
Buxun háar og lágan S, M, L, XL.
Litír: Svart, kampavíns, rautt.
Vorum að taka upp nýja sendingu
af leikfimifatnaði frá Pineapple.
§ Kringlunni 8-12, sími 553-7355.
Geimvera
á íslandi
FURÐULEIKHÚSIÐ hefur ver-
ið starfrækt í rúmlega eitt ár
og er Bé tveir eftir Sigrúnu
Eldjárn þriðja verkefni þess.
Bé tveir fjallar um litinn geim-
strák sem kemur niður til jarð-
arinnar til að leita að hlut sem
er ekki til á stjörnunni hans.
Hann hittir lítinn strák sem
heitir Áki og tvö eldri systkini
hans sem heita Lóa og Búi. í
sameiningu reyna þau að hjálp-
ast að við að leita að þessum
hlut.
Stofnendur Furðuleikhússins
eru leikararnir Gunnar Gunn-
steinsson, Margrét Kr. Péturs-
dóttir, Ólöf Sverrisdóttir og
Eggert Kaaber. Gestaleikari í
Bé tveimur er Katrín Þorkels-
dóttir og leikstjóri Jón St. Krist-
jánsson. Þetta er fyrsta skiptið
sem Furðuleikhúsið hefur fast
aðsetur og verður frumsýnt hjá
Leikfélagi Akureyrar 16. sept-
ember en í Reykjavík verða sýn-
ingar í Tjarnarbíói og hefjast
þær 22. október.
Ætlunin er að hafa sýningar
fyrir leiksjóla í Tjarnarbíói og
verður boðið upp á ókeypis
rútuferðir á staðinn. Almennar
sýningar verða á sunnudögum
kl. 15.
KULDA-
SKOR
m/ríílás
Verð frá kr. 2.990
OpiS laugardag kl. 10—14
SKÓVERSLUN |
KÓPAVOGS j
Hamraborg 3, sími 554-1754 CL
TONLIST
Illjómdiskar
CAPUT LEIKUR f SLENSK
KAMMERVERK
Rímnadansar eftir Jón Leifs í út-
setningu Atla Heimis Sveinssonar,
Elja eftir Áskel Másson, Tales from
a Forlom Fortress eftir Lárus H.
Grímsson, Strengjakvartett eftir
Snorra Sigfús Birgisson, Trio Ani-
mato eftir Hauk Tómasson, Vink
II eftir Atla Ingólfsson, Romanza
eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Út-
gefandi: íslensk Tónverkamiðstöð
ITM 8-08.
HVORT fyrsta verkið (Rímna-
dansar) sé fremur eftir Jón Leifs
en Atla Heimi er tilefni í
þrætulist, en útsetning
Atla Heimis er skemmtileg
og hugmyndarík, svo sem
vænta má. Elja (ákafí og
barátta í nýrri merkingu)
eftir Áskel Másson er sam-
in fyrir 10 hljóðfæri og ber
nafn með rentu með tilliti
til innihalds, þrátt fyrir
rólegan miðkafla og stillt-
an endi. Guðmundur Oli
Gunnarsson stjómar þessu
sterka og rismikla tónverki
af innblásnum eldmóði —
orð sem má nota um þátt
þeirra CAPUT-félaga á
þessum hljómdiski yfir-
leitt.
Tales from a Forlom Fortress
eftir Láms H. Grímsson byijar á
fallegri sellóinnkomu, sem undir-
strikar dulúð. Að öðra leyti er verk-
ið ek. konsertþáttur fyrir fagott
og strengi — enda geta áheyrendur
„leikið sér að því að líta á fagottið
sem rödd sögumanns".
Fyrsti kaflinn í strengjakvartetti
Snorra Sigfúsar Birgissonar er
saminn úr margbreytilegu efni,
sem þó stefnir í eina átt, annar
kafiinn fábreytilegur í eðli sínu en
stefnir í margar áttir samtímis,
síðasti kaflinn „kinkar þrisvar kolli
til hinna tveggja", svo vitnað sé í
orð tónskáidsins. Flókin og fín tón-
smíð — sem skilar eðli kvartettsins
(sem tónlistarform) á sannfærandi
hátt.
Trio Animato eftir Hauk Tómas-
son er skrifað fyrir klarínettu, selló
og kontrabassa — „þar sem hljóð-
færin leikast á um að skapa sér
sína eigin rödd í tónvef sem bygg-
ist á mismikilli samröddun og fjöl-
röddun“. Haukur hefur alltaf eitt-
hvað ferskt að segja manni í sínum
ómstriða þéttleika. Vink II eftir
Atla Ingólfsson er samið fyrir fiðlu,
selló, pikkólóflautu, klarínettu og
píanó. Hér ríkir léttleiki og sköpun-
argleði.
Romanza Hjálmars H. Ragnars-
sonar (fyrir flautu, klarínettu og
píanó) er innblásið tónverk. Orðið
„romanza" er í æpandi mótsögn
„við þann skilning sem viðtekið er
að Ieggja í orðið og þann tónheim
sem áheyranda er boðið inn í“ —
þar sem teflt er fram andstæðum,
sem em skerptar jafnvel á milli
hlóðfæranna sjálfra. Stundum
finnst mér Hjálmar, sem hefur
reyndar mikla breidd sem tón-
skáld, nálgist eitthvað sem kalla
mætti „nútíma expressionisma“
þegar hann gerist djarfastur og
magnaðastur (og naktastur) í tón-
sköpun. Verk hans er flottur endir
á fínum hljómdiski, bæði hvað
varðar tónsmíðar og flutning.
CAPUT-hópurinn, sem varð til
á skyndibitastað í Reykjavík árið
1987, er löngu viðurkenndur,
heima og erlendis, fyrir frábæran
flutning á nútímatónlist — og hef-
ur nú enn einu sinni sannað ágæti
sitt. Allt eru þetta topp-hlóðfæra-
leikarar og framúrskarandi tónlist-
armenn — og einsog segir í bækl-
ingi má heyra í flutningi allra verk-
anna glöggan vitnisburð um
áhuga, eldmóð, leiktækni og vand-
aða túlkun þeirra fjölda listamanna
sem starfa með CAPUT. Þeir eru
að þessu sinni ekki færri en sext-
án. Flest tónverkin á hljómdiskin-
um eru samin fyrir CAPUT, sem
segir sína sögu.
Hlóðritun er fyrsta flokks, en
upptökur fóra fram í Fella- og
Hólakirkju og Digraneskirkju
(1995) undir stjórn Sigurðar Rún-
ars Jónssonar og Víðidalskirkju
(1994) undir stjórn Bjarna Rúnars
Bjarnasonar.
Oddur Björnsson
Mokka
Stóri bróðir
FJÓRIR ungir myndlistar-
menn opna sýningu á Mokka
við Skólavörðustíg á morgun,
laugardag.
Listamennimir fjórir sem
eru Hekla Dögg, Hildur Jóns-
dóttir, Erling Klingenberg og
Valborg Salóme (Valka),
ásamt Erlu Franklíns sem bú-
sett er í Hollandi, standa að
sýningunni. Þau útskrifuðust
öll frá Myndlista- og handíða-
skóla íslands vorið 1994, héldu
þá til frekara náms og hafa
unnið að myndlist síðan ásamt
öðrum störfum.
Gerðar hafa verið breyting-
ar á innviðum þessa gamal-
gróna kaffíseturs, en auk þess
verða til sýnis myndir á veggj-
um og hljóð munu berast gest-
um til eyma.
„Loftkastalar
á ísafirði“
SILLA, Sigurlaug Jóhannes-
dóttir, opnar sýningu í Slunka-
ríki á ísafírði á morgun, laug-
ardag. Á sýningunni er gler-
innsetning sem ber heitið
„Loftkastalar" en Silla hefur
unnið með gler undanfarið, þó
hún sé e.t.v. þekktust fyrir
vinnu sína við hrosshár.
Silla stundaði nám í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
og einnig í Mexíkó. Hún hefur
tekið þátt í fjölda sýninga hér
heima og erlendis. Þessi sýn-
ing Sillu er 12. einkasýning
hennar.
Slunkaríki er opið frá kl.
16-18 frá fimmtudegi til
sunnudags og eru allir vel-
komnir.
Allra síðasta
sýning á
Sápu tvö
ALLRA síðasta sýning á Sápu
tvö; sex við sama borð í Kaffi-
leikhúsinu í Hlaðvarpanum
verður í kvöld.
Æfíngar eru hafnar á næstu
Sápu, Sápu þijú, en höfundur
hennar er Edda Björgvinsdótt-
ir. Leikarar auk hennar eru
Ólafía Hrönn Jónsdóttir,
Helga Braga Jónsdóttir, Erl-
ingur Gíslason og Hjálmar
Hjálmarsson.
Sápa þijú verður frumsýnd
á ársafmæli Kaffileikhússins
7. október.
Eygló sýnir
í Galleríi
Sævars Karls
EYGLÓ Harðardóttir opnar
sýningu í dag í Galleríi Sævars
Karls, Bankastræti 9.
Eygló sýnir innsetningu og
má þar sjá tvö ólík búsvæði
sem skarast, hálendið og borg-
ina og hvernig náin snerting
við umhverfíð raknar upp og
tekur á sig aðra mynd.
Hún stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla
íslands 1983-1987 og fram-
haldsnám við listaakademíuna
AKI í Hollandi frá 1987-1990.
Þetta er hennar þriðja
einkasýning.
Síðasta sýn-
ingarhelgi
SÝNINGU á textílverkum
norsku iistakonunnar Grete
Borgersrud í Listasafni Sigur-
jóns Ólafssonar lýkur sunnu-
daginn 17. september.