Morgunblaðið - 15.09.1995, Síða 44
44 FÖSTUDAGUR 15. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Ljóska
Hvað ef við rekumst á Rauða Hafðu engar áhyggjur ... hann
baróninn á meðan við erum skýtur alltaf lágt...
hérna uppi?
BREF
TEL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Alþjóðleg vináttu-
ráðstefna kvenna
fyrir heimsfriði
Frá Pauline Sch. Thorsteinsson:
HEIMSFRIÐARSAMTÖK kvenna
eru að vinna að mörgum málum er
lúta að uppbyggingu friðsams heims
í löndum kalda stríðsins fyrrverandi,
með sameiginlegu átaki kvenna í
hveiju landi fyrir sig. Á timabilinu
frá október 1993 til nóvember 1994
hafa 160.000 japanskar konur tekið
þátt í athöfnum systrafélaga ásamt
kynsystrum okkar frá Kóreu.
Á bandarísku ráðstefnunni, sem
haldin var í tilefni þess að 50 ár eru
liðin frá því að Bandaríkin og Japan
afléttu stríðinu, lærðu japanskar
konur beint frá ýmsu helsta forystu-
fólki í hinum ýmsu starfsgreinum
innan Bandaríkjanna, og tóku þátt
í sameiginlegri hátíð systrafélaga
Japans og Bandaríkjanna, sem binda
Japan og Bandaríkin kærleiksbönd-
um áður en tími Asíu - Kyrrahafs
hefst á 20. öldinni. Sú staðreynd að
Japan og Bandaríkin, forystuþjóðir
fyrir heimsfriði, eru tengdar böndum
kærleiks og vináttu meðal japanskra
og bandarískra kvenna, gerir það
kleift að líta björtum augum á fram-
tíðina.
Ráðstefna japanskra kvennna
í Bandaríkjunum
Heimsfriðarsamtök kvenna styrktu
ferðir átta hópa japanskra kvenna til
Bandaríkjanna á tímabilinu frá 22.
janúar til 12. mars 1995. Hver ferð
var í sjö nætur og átta daga, og tóku
um það bil 500 konur þátt í hverri
ráðstefnu fyrir sig. Allt í allt fóru um
4.000 japanskar konur í þessar ferðir.
Hápunktur ferðarinnar var fímm
daga ráðstefna, sem var styrkt af
alþjóðlegri vinátturáðstefnu kvenna
fyrír heimsfriði, sem haldin var í höf-
uðborginni Washington D.C. Á þessu
Asíu - Kyrrahafssvæði, með aðeins
fimm ár fram til 20. aldarinnar, var
ætlast til þess af japönskum konum
að þær myndu koma skoðunum sínum
á heiminum á framfæri á ráðstefnun-
um, þar sem margir þekktir forystu-
menn ýmissa svæða innan Bandaríkj-
anna voru viðstaddir. Á fjórða degi
ráðstefnanna var gert hlé á þeim fyr-
ir athöfn systranna, „brúarathöfnina"
svokölluðu. Þar sem um 500 japansk-
ar konur voru sameinaðar jafnmörg-
um amerískum kvenmönnum. Til-
gangur athafnarinnar var aðjapansk-
ar og bandarískar konur gætu mynd-
að einstaklings- og fjölskyldutengsl,
og lagt sitt af mörkum fyrir vináttu
milli Bandaríkjanna og Japans og
fyrir heimsfriði.
Hvert par styrkir fjölskyldutengslin
með t.d. bréfaskrifum og gagnkvæm-
um heimsóknum. Með þessum sam-
skiptum er gert ráð fyrir að tengslin
milli Japan og Bandaríkjanna, sem
hafa verið sögð af Clinton forseta
vera mikilvægasta milliríkjasamband
í heiminum, verði styrkt.
Barbara Bush, fyrrverandi forset-
afrú, og Motoko Sugiyama, forseti
Japansdeildar samtaka kvenna fyrir
heimsfriði, föðmuðust á einni af brú-
arathöfnunum. Þær gengu síðan nið-
ur tröppurnar, hönd í hönd, sem eins-
konar dramatískt tákn fyrir það
hversu mjög sambandið hefur batnað
síðustu 50 árin. „Núna erum við syst-
ur,“ sagði frú Bush. George Bush,
fyrrverandi forseti, sagði að forseti
Bandaríkjanna og forsætisráðherra
Japan ættu einhvern tíma að samein-
ast á brúnni.
Frú Marie Cavill frá Maryland
vinnur á heilbrigðisstofnun Banda-
ríkjanna. Hún var pöruð með frú
Sumiyo Ihara frá Shizuoka sem sagði
að sig hefði dreymt um að eignast
ameríska vinkonu. Frú Cavill var
„mjög ánægð“ með að hafa tekið
þátt í athöfninni. „Að vera tengd jap-
anskri konu á ráðstefnunni er dásam-
legasti hluti allrar dagskrárinnar.
Ungfrú Ihara og ég hittumst í fyrsta
skipti, og við föðmuðumst, aftur og
aftur,“ sagði hún.
Eftir ráðstefnuna, fóru gestimir í
skoðunarferðir um Washington D.C.
og New York. Fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, George Bush, hélt
ræðu á fímm af átta ráðstefnum. Á
þremur þeirra, fylgdi frú Barbara
Bush manni sínum og hélt ræðu á
undan honum. Komu þau bæði inn á
mikilvægi fjölskyldunnar og lögðu
áherslu á, að, „það sem gerist á heim-
ili þínu er mikilvægara en það sem
gerist í Hvíta húsinu."
„I Japan og Bandaríkjunum geta
og gera stjórnvöld margt til hjálpar
öðrum, en einstaklingar og sjálfboða-
liðar gera langtum rneira," sagði
herra Bush. „Og á átta árum sem
varaforseti og fjórum sem forseti
varð ég vitni að bókstaflega þúsund-
um dæma um náungakærleika, en
hann hefur gert þessa þjóð að þeirri
vingjamlegustu og sterkustu í heimin-
um.“
Aðrir ræðumenn ráðstefnunnar
vom til að mynda frú Jeanne Kirk-
patrick, fyrrverandi fulltrúi Banda-
ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum,
Alexander Haig hershöfðingi, fyrrver-
andi innanríkisráðherra, herra Wiil-
iam Bennett, fyrrverandi mennta-
málaráðherra, herra Les Aspin, fyrr-
verandi varnarmálaráðherra. Ýmsir
þekktir meðlimir þingsins, þar með
taldir Richard Lugar öldungardeildar-
þingmaður, herra Christopher Reeve,
stjarna myndarinnar „Superman", dr.
Sally Ride, fyrsti bandaríski kven-
geimfarinn, frú Lynne Cheney,, fyrr-
verandi formaður ríkisstyrktarsjóðs
lista, og þekktir trúarleiðtogar, eins
og t.d. séra Jerry Falwell. Margir
ræðumanna skírskotuðu til gmndvall-
ar kristilegs kærleika Bandaríkjanna.
Þeir lögðu einnig áherslu á mikil-
vægi fjölskyldunnar og siðferðilega
kennslu jafnframt þýðingarmiklu
hlutverki konunnar á þessum sviðum.
Hinir fyrrverandi ráðherrar Haig
og Aspin töluðu um alþjóðleg vanda-
mál eins og til að mynda útbreiðslu
Iq'amavopna og hiyðjuverka. Þeir
lögðu báðir áherslu á að aðeins hreyf-
ing í líkingu við heimsfriðarsamtök
kvenna, sem hefja til vegs vináttu og
kærleika án tillits til kynþáttar eða
þjóðernis, geti yfirstigið slíka ógn og
gert það mögulegt að ná sönnum friði.
PAULINE SCH. THORSTEINSSON,
Kaplaskjólsvegi 53,107 Reykjavik.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta,,ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.