Morgunblaðið - 29.10.1995, Side 4
4 D SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1995
HEIMILI
MORGUNBLAÐIÐ
ÞAU sáu svona vegg hjá aðalræðismanni íslands í Grikklandi og heilluðust.
Magnús smíðaði vegginn og síðan eru hólfin lýst upp.
Smíðaði vegg með
hólfum fyrir lista-
verkin hennar
ÆJA, Magnús og Kristín Heiða við borðstofuborðið sem Æja sá í
blaði og bað vin sinn um að smiða fyrir sig. Dóttirin
Ingibjörg var ekki heima.
ÞAÐ fer ekki á milli mála að
hér býr listafólk. í innkeyrsl-
unni við Sogaveg 190 bjóða gesti
velkomna tvær tígulegar konur,
önnur situr makindalega á grind-
verkinu en hin, sem er nakin, vís-
ar veginn upp tröppumar. Konurn-
ar era reyndar skúlptúrar eftir
myndlistarkonuna Æju sem heitir
Þórey Magnúsdóttir en ætlunin er
einmitt að heimsækja hana, eigin-
manninn Magnús Haraldsson
byggingaverktaka og dótturina
Kristínu Heiðu sem er þriggja ára.
Húsið keyptu þau fyrir fímm
áram og heimilið endurspeglar að
þar býr listamaður. Verk Æju ber
víða fyrir augu, bæði í skúlptúram,
málverkum og jafnvel nytjahlutum
eins og kertastjökum, mynd-
arömmum og veggljósum.
Smiðaði veggístofuna
Þau hafa síðastliðin fímm ár
smám saman verið að dytta að
heimilinu. Magnús smíðaði vegg í
stofuna sem í eru hólf fyrir list-
verk Æju, vegg sem þau fengu
upprunalega hugmyndina að hjá
aðalræðismanni íslands í Grikk-
landi. Hólfin í veggnum þar voru
fyllt fommunum. Þau hafa líka,
eins og gengur og gerist, verið að
parketleggja, lagfæra gamla eld-
húsinnréttingu og mála. Fyrst eft-
ir að þau fluttu inn var buddan
létt og þá tók Æja upp á því að
handmála léreft og hengja fyrir
gluggana. Hún hefur smám saman
verið að taka léreftið niður og
kaupa sér eins og hún segir „al-
vöra gardínuefni" og vinir og
kunningjar hafa verið duglegir að
falast eftir handmálaða léreftinu
hennar fyrir sína glugga.
Borðstofusett
úr smíðajárni
„Við áttum engin húsgögn í
allt þetta rými fyrstu árin en höf-
um verið að bæta úr því. Mér
fannst betra að bíða þangað til
við gætum fjárfest í einhveiju sem
okkur langaði virkilega í,“ segir
Æja. Hún sá mynd af borðstofu-
setti úr smíðajámi í erlendu blaði
og fékk vin sinn ti! að smíða það.
Hann sá líka um að útfæra hug-
myndir hennar um stofuborð úr
smíðajárni og stoðir undir blóma-
potta. Einar Erlingsson er annar
vinur þeirra sem hefur líka brugð-
ist vel við beiðni þeirra um að yfír-
dekkja eða smíða fyrir þau hús-
gögn, hann sá um seturnar á borð-
stofusettinu, yfírdekkti sófasettið
wM
fe ~-r mf/ ■&-
J wÉT -ávkí/jrí
sem hún gróf upp í antíkverlsun
á Akureyri í fyrra, smíðaði kolla
í stíl við það og notalegan leður-
sófa í sjónvarpsherbergið.
Niðri hafa Æja og Magnús
komið upp vinnustofu og þar vinn-
ur Æja á morgnana og hefur lítið
gallerí. Ekki fengum við að
mynda þar að ráði, hún sagði að
alít væri í drasli því að í mörg
horn væri að líta þessa dagana,
hún er listamaður nóvembermán-
aðar hjá Gallerí List, er að vinna
verkefni fyrir Bústaðakirkju og
nú stendur til að hún opni sýningu
í byijun næsta árs í EFTA-húsinu
í Brussel.
Besta innanlulssiiiáliii
á eldhúsió
LADY
á stofuna
ábaöherbergið áimiréttíngaioghásgögn ískraut
á panel
þúsund litatóna
auðveld í notkun
áferðarfalleg
slitþolin og auðþrifin
akrílmákiing og lakk
a íilutKia og humii