Morgunblaðið - 29.10.1995, Page 20

Morgunblaðið - 29.10.1995, Page 20
20 D SUNNUDAGUR 29. OKTÓBER 1995 HEIMILI MORGUNBLAÐIÐ Slysagildrur á heimilinu Þá má minna á að ekki er ráð- legt að vera með lítil börn í fang- inu þegar verið er að drekka heita drykki. Minnið einnig ættingja og vini á þessa reglu. 6 mánaða til 2 ára Börnum á þessum aldri er hættast við slysum af völdum falls, bruna og eitrunar. Verið við öllu búin og gerið heimilið eins öruggt og hægt er. Stigar eru spennandi í augum bama og til að hindra að bamið detti í tröppum er nauðsynlegt að setja hlið fyrir stigann, bæði uppi og niðri. Hliðgrindin þarf að vera minnst 70 sm á hæð og ekki mega vera nema 7,5 sm milli rimla. Kennið bami að skríða afturábak niður tröppur en látið það ekki vera einsamalt í stiga. Stigar með opnum þrepum geta verið slysa- gildrur fyrir lítil böm. Þá hafa alvarleg slys orðið þegar böm hafa dottið út um glugga. Hafíð barnalæsingu á gluggum eða annars konar öryggislæsingu. Sum börn reyna að nota bóka- hillur sem klifurgrindur og lág borð og húsgögn með hvössum hornum þarf að gera hættulaus. Mörg brunaslys verða í tengsl- um við matargerð og allt sem fer fram á eldavél er freistandi. Setjið hlíf fyrir hellurnar og á bakaraofn- um á að vera barnalæsing. Skiljið barnið aldrei eftir í eldhúsinu þeg- ar heitir pottar eru á eldavélinni. Að ýmsu öðru verður að huga með þennan aldur, vatnskranar geta verið slysagildra, innstungur, ofn- ar, rafmagnstæki, lyf, hnífar, skæri, leikföng, hreingerningaleg- ir, eitraðar jurtir og margt fleira. 2ára - 4ára Slys í heimahúsum em algeng- ust hjá þessum aldurshópi en þó fer að bera meira á slysum utan heimilis. Flestar öryggisráðstafanir sem getið var um þegar börn eru frá 6 mánaða til 2 ára eiga líka við um þennan aldurshóp. Bent skal sérstaklega á öll eiturefni, glugga, stiga, handrið og brunaskaða t.d. af völdum veggofna, eldavéla, krana, drykkja eða náttlampa. 4ára- 7ára Þegar börn þroskast og stækka eykst áhugi á að taka þátt í matar- gerð og öðrum húsverkum. Enn er því mikilvægt að aðstæður á heimilinu séu eins ömggar og hægt er og að foreldrar veiti bam- inu stuðning og tilsögn svo koma megi í veg fyrir slys. Slysahættan er þó mest utan heimilis og alvar- legust eru umferðarslys og dmkknanir. Einnig mörg önnur postulínsstell á verði sem kemur á óvart. RAÐGREIÐSLUR SILFURBUÐIN Kringlunni 8-12 - Sími 568-9066 SLYSIN gera ekki boð á undan sér og innan veggja heimilis- ins em ýmsar slysagildmr fyrir lítil böm sem foreldrar þurfa að vita um. Talið er að leitað sé með um 20.000 börn til læknis vegna slysa á ári hveiju. Rauði kross íslands, Barnaheill og Slysavarnafélagið gáfu nýlega út bæklingana Vöm fyrir börn. I fjór- um bæklingum er þar ijallað um slysavarnir fyrir foreldra sem eiga böm frá 0-7 ára. 0-6 mánaða Þegar bam fer að sýna að það geti snúið sér af maga yfir á bak er tímabært að það fái bamarúm. Rúmið þarf að vera stöðugt og rúmbotninn heill. Bil milli rimla má ekki vera meira en 7,5 sm og hliðar og gaflar minnst 60 sm á hæð miðað við botninn. Ekki nota plastdúk til að hlífa dýnunni því það býður heim köfnunarhættu. Notið húðað bómullarefni og festið undir dýnunni. Sængin á að vera létt og hæfilega stór fyrir bamið. Ekki nota kodda. Leggið barnið aldrei í vatnsrúm eða hæginda- stóla sem laga sig að líkamanum. Við val á skiptiborði þarf að huga að stöðugleika þess og hversu mikinn þunga það þolir. Skiljið bamið aldrei eftir á skipti- borðinu. Þegar barn er sett í bað þarf að gæta að því að vatnið sé ekki of heitt og leggið handlegg undir hnakka þess og höfuð og grípið í upphandlegg þess. Túttan á snuði þarf að vera heil og föst. Hlífin á snuðinu á að vera minnst 4 sm í þvermál og túttan ekki lengri en 3 sm. Bam má ekki drekka eftirlits- laust úr pela. Það getur auðveld- lega svelgst á svo það kafni. Lítil leikföng eða smáhlutir úr leikföng- um geta lent í munni smábarna og í versta falli orsakað köfnun. Hljóð frá spiladósum og tístandi gúmmídýrum geta skaðað heym ef þeim er haldið of nærri eyrum. Eitt blað fyrir alla! - kjarni málsins! VINKLAR A TRÉ HVERGI LÆGRI VERÐ ÞÝZKIR GÆÐAVINKLAR OG KAMBSAUMUR ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI ^ EINKAUMBOÐ &Þ.Þ0RGRÍMSS0N&C0 Ármúla 29 - Reykjavik - simi 553 8640 Blab allra landsmanna! |Bnr0imííIaí>Ít> - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.