Morgunblaðið - 19.11.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAG.UR 19. NÓVEMBER 1995 B 21
I
ATVIN N U A UGL YSINGA R
Svæðisskrifstofa Vesturlands
auglýsir eftir
forstöðumanni
Sambýlisfatlaðra, Borgarnesi
Þroskaþjálfar - uppeldismenntað fólk
Hér er um að ræða áhugavert starf við fag-
lega uppbyggingu á sambýli sem stendur í
dag á tímamótum. Lögð er mikil áhersla á
samstarf fagfólks á svæðinu.
Upplýsingar veitir Magnús Þorgrímsson
framkvæmdastjóri sími 437 1780.
Umsóknarfrestur er til 1. desember og
sendist til Svæðisskrifstofu Vesturlands, 310
Borgar'nes.
Gæðastjórnun
EIMSKIP leitar að áhugasömum starfsmanni
til starfa að gæðastjórnun hjá fyrirtækinu.
EIMSKIP hóf kerfisbundið gæðastarf í árs-
byrjun 1991 og hefur gæðastarfið haft um-
talsverð áhrif á starfsemi fyrirtækisins. Unn-
ið er stöðugt að áframhaldandi uppbyggingu
gæðastarfsins og innleiðingu þess á starfs-
stöðvar félagsins erlendis.
Viðkomandi starfsmaður þarf að hafa eftir-
farandi eiginleika:
• Háskólamenntun eða aðra sambærilega
menntun.
• Geta tekist á við krefjandi verkefni og
verið hugmyndaríkur.
• Unnið sjálfstætt.
• Eiga auðvelt með mannleg samskipti.
• Mjög góða enskukunnáttu, bæði í mæltu
og rituðu formi.
Æskilegt er að viðkomandi hafi starfsreynslu
á sviði gæðastjórnunar. Fyrir réttan starfs-
mann er í boði fjölbreytt og krefjandi starfs-
umhverfi með margvíslegum tækifærum til
faglegs og persónulegs þroska.
Umsóknum skal skilað til Hjördísar Ásberg,
forstöðumanns Starfsþróunardeildar Eim-
skips, Pósthússtræti 2, fyrir 28. nóvember nk.
EIMSKIP
EIMSKIP leggur áherslu á að auka hlut kvenna í ábyrgðarstöðum
hjá félaginu og þar með stuöla að því að jafna stöðu kynjanna á
vinnumarkaði.
Gangsetningar-
stjóri
Kerfisuppsetning
Gangsetningarstjóri óskast í umfangsmikið
og krefjandi skipulagsstarf, tengt viðamiklum
breytingum á Tekjubókhaldskerfi ríkisins.
Starfið
★ Ábyrgð og umsjón með áætlunum um
dreifingu, uppsetningu og gangsetningu
kerfisins hjá notendum. Starfið er á veg-
ur Ríkisbókhalds.
★ Koma á samskiptum við netstjóra hjá
hverjum notanda og við þjónustuaðila
netumhverfisins.
★ Umsjón með dreifingu og uppsetningu á
endurbættum útgáfum.
Menntunar- og hæfniskröfur
★ Tölvunarfræði eða sambærileg mennt-
un/reynsla.
★ Innsýn í uppsetningu biðlara/miðlara kerfa.
★ Skipulagshæfileikar/reynsla.
Nánari upplýsingar veitir Torfi Markússon frá
kl. 9-12.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðgarðs hf. merktar: „Gangsetningarstjóri -
Tekjubókhald ríkisins" fyrir 25. nóvember nk.
RÁÐGARÐURhf
STJÓRNUNAR OG REKSTRARRÁÐGJÖF
FURUGERÐI 5 108 REYKJAVÍK 533 1800
Sölumaður
Óskum eftir að ráða sem fyrst harðduglegan
sölumann eða konu til sölu á aukahlutum
og rekstrarvörum í tölvur. Viðkomandi þarf
að hafa reynslu af sölumennsku, geta unnið
sjálfstætt, vera hugmyndaríkur, hafa góða
aðlögunarhæfni og vera vel skipulagður.
Umsóknum með upplýsingum um menntun
og fyrri störf óskast skilað á afgreiðslu Mbl.
merktar: „Tölvuvörur - 11184“ fyrir 25. nóv-
ember nk.
Leikskólar Reykjavíkur-
borgar
Óskum að ráða eftirtalið starfsfólk á neðan-
greinda leikskóla:
Leikskólakennara í leikskólann Vesturborg
v/Hagamel.
Upplýsingar gefur Árni Garðarsson leikskóla-
stjóri í síma 552 2438.
Tvo leikskólakennara vantar frá næstu ára-
mótum í leikskólann Engjaborg v/Reyrengi.
Upplýsingar gefur Auður Jónsdóttir, leik-
skólastjóri í síma 587 9130.
Þroskaþjálfa vantar í leikskólann Múlaborg
v/Ármúla.
Upplýsingar gefur Ragnheiður G. Hafsteins-
dóttir, íeikskólastjóri í síma 568 5154.
Matráð vantar í leikskólann Drafnarborg
v/Drafnarstíg.
Upplýsingar gefur Sigurhanna Sigurjónsdótt-
ir, leikskólastjóri í síma 552 3727.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 552-7277.
LANDSPITALINN
.../ þágu mannúðar og vísinda...
Handlækningadeild
DEILDARLÆKNAR
Fjórar stöður deildarlækna (reyndra aðstoð-
arlækna) við handlækningadeild Landspítal-
ans eru lausar til umsóknar sem hér segir:
A. frá 1 janúar 1996, B. frá 1. mars 1996,
C. frá 1. júní 1996 og D. frá 1. sept. 1996.
Umsóknir berist fyrir 15. desember nk. til
Jónasar Magnússonar, prófessors, hand-
lækningadeild Landspítalans.
Nánari upplýsingar veita Ragnhildur
Steinbach, Elín Laxdal, Kári Knútsson og Jón
Sen, s. 560 1000 (kalltæki).
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Hjúkrunarfræðingar óskast á eftirtaldar
deildir:
BRÁÐAMÓTTÖKU. Um er að ræða 60% starf
á næturvaktir. Nánari upplýsingar veita Marta
Jónsdóttir og Áshildur Kristjánsdóttir hjúkrun-
arfræðingar í síma 560 1010 og 560 1015.
BARNADEILD. Um er að ræða 100% starf,
allar vaktir deild 13-E, frá 1. janúar 1996.
Nánari upplýsingar veitir Hertha W. Jónsdótt-
ir, hjúkrunarframkvæmdastjóri, sími 560 1033.
LEIKSKÓALAKENNARAR
Óskað er eftir leikskólakennurum f eftir-
talda skóla:
LEIKSKÓLANN SÓLHLÍÐ, Engihlíð 6-8, í
50% starf.
Nánari upplýsingar veitir Elín María Ingólfs-
dóttir leikskólastjóri í síma 560 1594.
LEIKSKÓLANN SUNNUHVOL við Vífilsstaði
í 60% starf.
Nánari Upplýsingar veitir Oddný S. Gests-
dóttir, leikskólastjóri í síma 560 2875.
Skrifstofustjóri
Laus er staða skrifstofustjóra hjá Reyðar-
fjarðarhrepp. Áskilin er bókhaldskunnátta og
víðtæk þekking á öllum skrifstofustörfum.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra
fyrst.
Umsóknarfresturertil og með 24. nóvember
næstkomandi.
Laun eru samkvæmt samningi Reyðarfjarðar-
hrepps við F.O.S.A.
Umsóknir skal senda til Reyðarfjarðarhrepps,
Búðareyri 7, 730 Reyðarfirði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir sveitar-
stjóri í síma 474 1245.
Hér er ein sem skiptir
fólk í auglýsinga-
iðnaðinum máli
Við óskum FLJÓTT FLJÓTT eftir GÓÐU FÓLKI
sem vill starfa í stóru HVÍTU HÚSI við alhliða
og ALMENNA auglýsingahönnun AUK þess að
sinna HÉR og NÚ ýmsum störfum í þágu skrifstofu
okkar sem á þó ekkert skylt við HIÐ 0PINBERA
né að YDDA blýanta.
Starfið krefst því sem NÆST alhliða þekkingar,
hæfni og reynslu í A-Ö auglýsingagerð með
notkun Macintosh og/eða PC við slíka iðju.
Við yrðum í SJÖUNDA HIMNI ef viðkomandi
hefði jafnframt kunnáttu í notkun Excel, Word
o.þ.h. hugbúnaðar við upplýsingavinnslu á PC,
svo ekki sé nú minnst á Internetið, gagnaflutning
um mótald o.fl. sem snýr að hátækni nýrrar aldar.
Við bjóðum vel launað starf á ÍSLENSKRI
auglýsingastofu sem gerir KRAFTAVERK
á hverjum degi fyrir m.a. NONNA, MANNA,
Rúnar, Tryggva og alla hina frábæru
viðskiptavini okkar.
Einyrkjar, smærri
auglýsingastofur og fyrirtæki
í skyldum iðnaði... athugið!
í nýju húsnæði okkar eru miklir möguleikar fyrir
einn eða fleiri sjálfstæða aðila að koma inn og
vera með í "samstæðu" þ.e. í húsnæði sem
er sérhannað fyrir auglýsingafólk sem aðhyllist
nýjustu tækni, vill vera sjálfstætt en starfa
í samvinnu á öllum sviðum auglýsingagerðar og
markaðsmála. Hugmyndin er að hafa allt á einum
stað og líflegt andrúmsloft í góðum félagsskap.
Nú þegar eru í húsinu auglýsingastofa (sem
þarfnast starfskrafts og/eða samstarfsaðila),
kvikmyndagerð, útvarps- og sjónvarpsauglýsinga-
vinnsla, myndbandagerð, Internet-miðlari o.fl.
Áhugi leiðir af sér umsókn...
Látið Ijós ykkar skína. Umsóknum vel tekið í hvaða
mynd sem er. Trúnaði heitið og öllum svarað strax.
Kannski hittir þú í MARK.
Merkið áhugaverða umsókn ykkar:
"Á eftir MÆTTINUM kemur DÝRÐIN - 0789".
Skilist hið fyrsta á auglýsingadeild Morgunblaðsins
og eigi síðar en það tekur ÖRKINA að þorna eftir
blekið... Allra síðasti skilatími erföstudaginn
24. nóvember n.k.