Morgunblaðið - 04.01.1996, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
••
Samkomulag milli erfingja Þorsteins O. Stephensen
og Magnúsar Kjartanssonar hljómlistarmanns
Greiðir miskabætur og
lætur eyðileggja hljóðrit
„Hún er alveg
frábær“
ús Kjartansson harmi umrætt brot
í garð Þorsteins Ö. Stephensen og
erfmgja hans og í því augnamiði að
bæta fyrir brotið skuldbindi sig til
að gera nýja upptöku af kvæðinu
„Jólasveinar heilsa" með texta Þor-
steins óbreyttum og taka þá upptöku
upp á nýjan „master" af hljóðritinu
„Göngum við í kringum", en hljóðrit-
ið verði gefið út eigi síðar en í októb-
ermánuði 1996. Þá verði skipt um
öll eintök af hljóðritinu sem útvarps-
stöðvar hafa undir höndum fyrir 1.
nóvember næstkomandi þannig að
tryggt verði að kvæðið verði flutt í
útvarpi með texta Þorsteins óbreytt-
um í framtíðinni.
Útgáfufyrirtækið og Magnús
skuldbinda sig til að afhenda Sam-
bandi tónskálda og eigenda flutn-
ingsréttar þegar í stað þau eintök
af hljóðritinu sem enn eru til á lager
hjá útgáfufyrirtækinu svo og þau
eintök sem skilað kann að verða frá
smásöluverslunum. Útgáfufyrirtæk-
ið og Magnús Kjartansson eru því
samþykk að STEF sjái um að eyði-
leggja þau eintök sem því verða af-
hent og jafnframt að STEF leggi
bann við því að kvæðið „Jólasveinar
heilsa" verði flutt í útvarpi af hljóð-
ritinu „Göngum við í kringum" þar
til ný eintök af hljóðritinu liggja
fyrir.
STEF beitir sér framvegis
á skipulegan hátt
í yfirlýsingu frá STEF segir að
samtökin harmi að það hafi nú gerst
æ ofan í æ að bundnum textum við
lög, sem gefin hafa verið út á hljóm-
piötum, hafí verið breytt án heimild-
ar hlutaðeigandi rétthafa. Af þessu
tilefni muni STEF beita sér framveg-
is á skipulegan hátt gegn heimildar-
lausum breytingum á höfundarverk-
um sem að áliti samtakanna feli í
sér skýlaust brot á sæmdarrétti hlut-
aðeigandi höfunda samanber 4.
grein höfundalaga nr. 73/1972.
„ VIÐ GETUM ekki farið með
hana heim fyrr en hún hefur
losnað við guluna. Annars er
ekkert að henni. Hún er alveg
frábær," segir Sóley Svein-
björnsdóttir, 18 ára úr Keflavík,
um frumburðinn og fyrsta barn
ársins 1996. Sóleyju og Gunnari
Adami Ingvarssyni, 20 ára, fædd-
ist stúlkubarn tvær mínútur í
eitt aðfaranótt mánudags.
Litlu stúlkunni lá heldur betur
á að komast í heiminn þvi Sóley
byijaði að fá hríðir fyrir þremur
vikum eða um átta vikum fyrir
áætlaðan fæðingardag 2. febr-
úar. Henni voru gefnar töflur til
að seinka fæðingunni en verkirn-
ir komu aftur rétt fyrir áramótin
og stúlkan kom eðlilega í heim-
inn tvær mínútur í eitt aðfara-
nótt mánudags eða fimm vikum
fyrir tímann. Engu að síður er
stúlkan braggleg. Hún vó 10,5
merkur og var um 45 sm að lengd
við fæðingu.
Margar heimsóknir
Sóley sagði að fjöldi vina og
ættingja hefði gert sér ferð frá
Keflavík til Reykjavíkur til að
bjóða litlu stúlkuna velkomna en
gaman yrði að fara með hana
heim.
Stórsýning um Bítla-
árin á Hótel íslandi
STÓRSÝNINGIN Bítlaárin 1960-
1970, „Áratugur æskunnar“, verður
frumsýnd á Hótel íslandi 10. febrúar
næstkomandi. Á sýningunni verður
flutt tónlist Bítlanna og bítlaárin rifj-
uð upp í máli og myndum, en fjöldi
hljómlistarmanna, dansara og fleiri
taka þátt í sýningunni.
Að sögn Ólafs Laufdals veitinga-
manns mun tíu manna hljómsveit
undir stjórn Gunnars Þórðarsonar
annast tónlistarflutning á. sýning-
unni, en meðal söngvara sem fram
koma eru Pálmi Gunnarsson, Björg-
vin Halldórsson, Ari Jónsson og
Bjarni Arason. Þá koma ýmsar söng-
konur fram en meðal þeirra eru fimm
stúlkur sem kalla sig Söngsystur.
Ekki verður einungis um flutning á
lögum Bítlanna að ræða, því einnig
verða flutt lög annarra erlendra
hljómsveita frá þessum árum og lög
íslenskra hljómsveita.
Ólafur segir að vel verði vandað
til sýningarinnar í alla staði og hún
eigi að geta höfðað til fólks allt frá
sextugu og niður úr. Hann segir að
verið sé að setja upp svipaðar sýn-
ingar um allan heim þar sem vin-
sældir Bítlanna séu miklar um þess-
ar mundir. Nýtt lag þeirra með söng
Johns Lennons sé víða í efsta sæti
á vinsældarlistum og von sé á öðru
nýju lagi með söng hans í byijun
febrúar.
Gunnar Þórðarson annast hijóm-
sveitarstjórn og aliar útsetningar á
þeim lögum sem flutt verða á sýning-
unni. Kynnir verður Þorgeir Ást-
valdsson, en höfundur handrits, út-
lits og leikstjóri verður Björn G.
Björnsson.
TtLLEIQU
MÚRKIN 4
Nú er tækifæri að taka ákvörðun til framtíðar!
í þessu glæsilega húsi er enn til leigu 2. hæðin, samtals
576 fm. Húsið er með sérinngangi, möguleika á
lyftu og skiptanlegt niður í smærri einingar.
Aðilum sem áhuga hafa á að leigja umrætt
húsnæði er bent á að hafa samband við
's.Byggingafélag Gylfa og Gunnars hf.
Morgunblaðið/Ásdís
SÓLEY með litlu nýársstelpuna sína.
Fyrsta barn ársins Keflvíkingnr
SAMKOMULAG hefur tekist milli
erfingja Þorsteins Ö. Stephensen
annars vegar og útgáfufélagsins
Leppalúða og Magnúsar Kjartans-
sonar hljómlistarmanns hins vegar
í kjölfar þess að útgáfufyrirtækið
breytti án heimildar kvæði Þor-
steins, „Jólasveinar heilsa", og gaf
kvæðið út svo breytt á hljóðritinu
„Göngum við í kringum“.
Viðurkennir Magnús, sem einn
ber ábyrgð á breytingunni, að með
henni hafi útgáfufyrirtækið og hann
gerst sek um brot á 4. grein höf-
undalaga nr. 73/1972. Samkomu-
lagið felur í sér að eintök af hljóðrit-
inu sem enn eru til á lager verði
eyðilögð og Magnús greiði 50.000
kr. í Leiklistarsjóð Þorsteins Ö.
Stephensen sem miskabætur fyrir
umrætt brot.
Ný upptaka verði gefin út
í samkomulaginu er m.a. kveðið
á um að útgáfufyrirtækið og Magn-
Mál apótekarans í
Siglufirði í biðstöðu
Séekki
önnur
ráöen
að hætta
„MÁLIÐ er í biðstöðu. Ég legg
ekki inn lyfsöluleyfi mitt strax,
þar sem gildistöku nýrra lyfja-
laga var frestað, en ég sé ekki
önnur ráð en að hætta rekstri
apóteks hér,“ sagði Ásta Júlía
Kristjánsdóttir, lyfjafræðingur
og lyfsali á Siglufirði.
Ásta Júlía sendi í lok síðasta
árs fyrirspurn til heilbrigðis-
ráðuneytisins um hvort ríkið
myndi kaupa þær eignir, sem
fylgja lyfsöluleyfi hennar, ef
hún legði inn leyfíð, en áður
keypti lyfsölusjóður þær eignir
sem fylgdu óseljanlegum lyf-
söluleyfum.
Síðustu greinar nýrra lyfja-
laga taka gildi 15. mars næst-
komandi. Með þeim má auka
frelsi til að opna lyfjabúðir,
m.a. til að skapa aukna sam-
keppni og þar með lækka lyfja-
verð. I samtali við Morgunblað-
ið í nóvember sl. sagði Ásta
Júlía, að hún sæi sér ekki ann-
að fært en að leggja inn lyfsölu-
leyfið til að sitja ekki uppi með
verðlausar eignir í framtíðinni.
Ef lyfjaverð lækkaði mikið á
Reykjavíkursvæðinu með auk-
inni samkeppni myndu íbúar á
landsbyggðinni kaupa lyfin sín
þar, þar sem lítil apótek á
landsbyggðinni hefðu augljós-
lega ekki sama svigrúm til að
lækka lyfjaverð hjá sér.
Eignir metnar
á 20 milljónir
Ásta Júlía fékk lyfsöluleyfi
í Siglufirði fyrir rúmu ári og
þvi fylgdu fasteignir og búnað-
ur upp á u.þ.b. 20 milljónir. „Ég
fékk óljóst svarbréf frá ráðu-
neytinu, en þó mátti ráða úr
því að ráðuneytið teldi ríkissjóð
ekki skuldbundinn til að kaupa
þessar eignir af mér. Ég á hins
vegar eftir að ræða þetta mál
nánar við lögfræðing minn og
ætla jafnframt að halda áfram
viðræðum við ráðuneytið."
Tvær toppeignir íTjarnarmýri
Til sölu nýjar sériega góðar 2ja og 3ja herb. íbúðir ásamt
stæðum í innbyggðu bílskýli. Vandaðar innréttingar og
góð tæki. íbúðirnar eru til afhendingar nú þegar.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu.
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA F
Borgartúni 31,105 Rvík, s. 562 4250.
Lögfr.: Pétur Þór Sigurðsson, hdl.
I
)
i
I
>
l
l
i
I
i
I
É
:
i
s
i
f
1
fi