Morgunblaðið - 04.01.1996, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
______________________________ FIMMTUDAGUR 4. JANÍJÁR 1996
MINNINGAR
SIGMAR ADAM
JÓHANNSSON
+ Sigmar Adam
Jóhannsson var
fæddur í Neskaup-
stað 17. júní 1927.
Hann lést á heimili
sínu í Reykjavík 25.
desember síðastlið-
inn og fór útför hans
fram frá Fossvogs-
kirkju 2. janúar.
MIG LANGAR til að
minnast Adams, móð-
urbróður míns, með
nokkrum orðum.
Adam átti sín
bernskuár á Norðfirði
en flutti með foreldrum sínum til
Reykjavíkur og lauk þar sinni skóla-
göngu. Hann lærði bókband, en
starfaði lítið við þá iðngrein, en var
lengst af leigubílstjóri. Hann hafði
snemma mikinn áhuga á bílum og
eignaðist ungur bíl. Mér er minnis-
stætt frá því að ég var stelpa, þeg-
ar hann og afi og amma voru að
koma austur í sumarfrí. Það var
alltaf mikill viðburður. Þá var Norð-
fjörður ekki kominn í vegasamband,
enginn vegur kominn um Odds-
skarð. Þjóðvegurinn lá út með
Reyðarfirði að norðanverðu og yfir
í Viðfjörð, en þaðan var fólk feijað
með báti yfir á Norðfjörð. Einu sinni
man ég eftir að bíllinn var líka ferj-
aður yfir og settur upp á BP-bryggj-
una, sem var ansi mjó, gott ef dekk-
in stóðu ekki út af henni að hluta
til. En það tókst að koma bílnum
upp á götu og þá var nú hægt að
leggja upp í Fannardalsferð, já og
fá sér rúnt um bæinn. Mikið fannst
mér, stelpukrakkanum, til þess
koma þegar hann frændi minn tók
mig með sér „á rúntinn". Oft átti
ég svo seinna ógleymanlegar ferðir
með honum og fjölskyldunni víðs
vegar um landið. Ekki skemmdi það
svo fyrir að þegar heim var komið
dró hann upp harmoníkuna og tók
lagið fyrir mannskapinn. Hann var
músíkalskur og söng líka ágætlega.
Adam fór ungur að spila fót-
bolta, var í Fram, var markmaður
í meistaraflokki á árunum 1947-
ur, frá 4. flokki til
meistaraflokks og var
einn okkar best þekkti
markvörður á þeim
árum.
Ungur að árum
lærði Adam bókband,
en 1951 fór hann að
vinna á Keflavíkur-
flugvelli sem bifreiða-
stjóri hjá Medcalf
Hamilton Smith Beck
co., bandarískum
verktaka.
Adam gekk vegna
verðleika sinna fljótt
upp í það að verða
vaktstjóri á strætisvögnum fyrir-
tækisins og starfaði þar til ársins
1955 er fyrirtækið hætti rekstri þar.
Adam hóf þá störf hjá leigubíla-
stöð Steindórs og var fljótlega sett-
ur á nýjustu bíla fyrirtækisins, en
ók þó lengst bifreiðinni R1440 sem
Sigurður sonur Steindórs átti. Slíks
trausts naut Adam hjá Steindóri,
að eitt sinn er við fórum í sum-
arfrí, lánaði Steindór honum bíl í
fríið, sem var einsdæmi í þá daga.
Eftir nokkurra ára starf hjá
Steindóri, fékk Adam atvinnuleyfi
til aksturs leigubifreiðar í Reykjavík
og fór þá að aka eigin bíl á BSR.
Adam talaði mjög góða ensku
og var um tíma mikið í akstri með
erlenda ferðamenn og fórum við
margar ánægjulegar ferðir saman
um landið, þar til hann missti heils-
una, en síðustu árin gerði hann bíl
sinn út vegna veikinda.
Adam var hvers manns hugljúfi
og í þá hálfa öld sem okkar vinskap-
ur stóð, heyrði ég hann aldrei hall-
mæla neinum og hafði hann það
ljúfasta skap sem ég hef kynnst og
var gott skap og glens á vör hvort
sem var mótlæti eða meðbyr í hans
veikindum.
Aðdáunarvert er hvað Sigurlína
og börnin studdu Adam vel í hans
hörðu baráttu við veikindin.
Ég þakka Adam þá góðu við-
kynningu og vináttu í 50 ár sem
aldrei bar skugga á.
Við hjónin vottum Sigurlínu og
börnunum samúð okkar og biðjum
guð að blessa þau.
Bjarni Pálmarsson.
t
Faðir okkar,
MARTIN JENSEN,
lést í Borgarspítalanum 2. janúar 1996.
Egill Marteinsson,
Karl Marteinsson.
t
Ástkær eiginkona, móðir okkar og amma,
ERICA PÉTURSSON PUTNEY,
New Mexico,
Bandarikjunum,
lést á heimili sínu þann 27. desember 1995.
Jarðarförin hefur farið fram.
George Putney,
börn og barnabörn,
Renate S. Ólafsson og fjölskylda,
Helga Hjálmtýsdóttir og fjölskylda.
1951, en á því tímabili urðu þeir
Islandsmeistarar og þá var hann
líka í landsliðinu. Ég man hvað við
pabbi og mamma sátum spennt við
útvarpið þegar verið var að lýsa
knattspyrnuleikjum sem hann tók
þátt í og a.m.k. einu sinni man ég
eftir að pabbi hljóp út á símstöð,
að leik loknum, til að senda honum
heillaóskaskeyti. Mikið var ég stolt
af frænda mínum þá.
Adam, móðurbróðir minn, var
einstaklega mildur og geðgóður
maður og aldrei heyrði ég hann
segja hnjóðsyrði um nokkurn mann.
Hann varð frekar snemma heilsulít-
ill, barðist lengst af við kransæða-
stíflu og var tvívegis skorinn vegna
hennar, en bar sig alltaf vel og lét
vel af sér.
Nú stuttu fyrir jólin kom ég á
heimili þeirra, þá var búið að fá
sjúkrarúm handa frænda mínum
og þann útbúnað sem til þurfti til
heimahjúkrunar. Það var líka búið
að skreyta jólatréð og Ijölskyldan
tilbúin að annast hann og halda
með honum síðustu jólin.
Didda mín, ég votta þér og börn-
unum samúð mína og dáist að ykk-
ur fyrir ykkar kærleiksríku sam-
stöðu.
Jóh. Ólína Hlífarsdóttir.
Ég ætla ekki að rita neina ævi-
sögu um vin minn Sigmar Adam
Jóhannsson, sem er látinn eftir
langvarandi veikindi, en vil þó
minnast hans með fáeinum orðum.
Adam fluttist með foreldrum sín-
um, Jóhanni Sigurðssyni, seinna
tollverði á Neskaupstað, og Ólínu
Þorsteinsdóttur, frá Neskaupstað
til Reykjavíkur fímm ára gamall
ásamt tveim systrum sínum.
Fljótlega fékk hann áhuga á
knattspyrnu og gekk til liðs við
Fram og lék alla tíð sem markmað-
t
Ástkær móðir okkar,
SIGRÍÐUR EIRÍKSDÓTTIR
frá Túnsbergi,
lést í Sjúkrahúsi Suðurlands 3. janúar.
Jóhanna M. Þorgeirsdóttir,
Eiríkur Þorgeirsson,
Sigríður Ó. Þorgeirsdóttir,
Siggeir Þorgeirsson,
Kjartan J. Þorgeirsson.
t
Elskulegur faðir minn og tengdafaðir,
KARL M. EINARSSON,
áðurtil heimilis
á Nýlendugötu 18,
lést á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
3. janúar.
Jón Ó. Karlsson, Guðrún Dam.
t
ÓLÍNA MARGRÉT MAGNÚSDÓTTIR
kennari,
Kinnarstöðum,
sem lést 30. desember sl., verður kvödd frá Reykhólakirkju laugar-
daginn 6. janúar kl. 14.00.
Jarðsett verður í Staðarkirkjugarði.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á dvalarheimilið
Barmahlíð, Reykhhólum.
Sætaferð verður frá Umferðarmiðstöðinni kl. 8 sama dag.
Fyrir hönd vina og vandamanna,
Steinunn Erla Magnúsdóttir.
t
Faðir okkar,
ÓLAFUR PÁLSSON
fyrrv. mælingafulltrúi,
andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 3. janúar.
Jón Ólafsson,
Jóhanna Ólafsdóttir,
Helga Ólafsdóttir.
t
Móðir okkar,
GUÐRÚN INGIBJÖRG ÓLAFSDÓTTIR,
Ljósheimum 12,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 5. janúar
kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Sólrún Jónsdóttir,
Ólafur Þór Jónsson,
Þröstur Hlöðversson.
t
Elsku hjartans drengurinn okkar,
KRISTJÁN BENEDIKTSSON,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju
föstudaginn 5. janúar kl. 10.30.
Ingibjörg Tómasdóttir,
Benedikt Sigurður Kristjánsson,
systkini og ætl
t
Dr. ANNA SIGURÐARDÓTTIR
forstöðumaður
Kvennasögusafns íslands,
Hjarðarhaga 26,
Reykjavík,
lést að morgni 3. janúar.
Þorsteinn Skúlason,
Anna Skúladóttir,
Eirný Ósk Sigurðardóttir,
Áslaug Dröfn Sigurðardóttir,
Karen Emilía Barrysdóttir.
Ásdis Skúladóttir,
Sigurður Karlsson,
Móeiður Anna Sigurðardóttir,
Skúli Á. Sigurðsson,
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ÞORBERGUR GUÐLAUGSSON
veggfóðrarameistari,
Frakkastíg 5,
Reykjavík,
andaðist 2. janúar.
Ólöf Guðmundsdóttir,
Guðlaugur Þorbergsson,
Helgi Þorbergsson, Ebba Þóra Hvannberg,
Guðmundur Ingi Þorbergsson, Jutta Thorbergsson,
Ágústa Þorbergsdóttir, Rúnar Halldórsson
og barnabörn.
Eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
ÁGÚSTA JÓNSDÓTTIR,
Vogatungu 87,
Kópavogi,
andaðist á heimili sínu 2. janúar.
Bergur Lárusson,
Kristin J. Harðardóttir, Sigurður Konráðsson,
Hörður Á. Harðarson,
Elín Bergsdóttir,
Brynja Bergsdóttir
og barnabörn.