Morgunblaðið - 04.01.1996, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996 21
KRISTINN Sigmundsson fær góða dóma í frönsku pressunni.
Bohéme í Bastillu-
óperunni
fær einróma hrós
UPPSETNING Bastilluóper-
unnar í París á óperunni La
Bohéme eftir Puccini hefur
fengið mikið lof gagnrýn-
enda í Frakklandi. Kristinn
Sigmundsson fer með eitt
aðalhlutverkanna í uppsetn-
ingunni en hann syngur hlut-
verk Colline.
Blaðið International Her-
ald Tribune segir að sá hóp-
ur söngvara er hafi farið
með helstu hlutverkin í óper-
unni fyrstu dagana eftir að
hún var frumsýnd hafi verið
nær fullkominn. „Gwynne
Geyer er lífleg og raddtær
Musetta, og Jean-Luc Chaig-
naud (Marcello), Frank
Leguérinel (Schaunard) og
Kristinn Sigmundsson (Coll-
ine) mynda afbragðs bó-
hemskan kvartett."
Sagan hefur í uppsetningu
leikstjórans Jonathans Mill-
ers verið færð fram á fjórða
áratug þessarar aldar, en
upphaflega var La Bohéme
frumsýnd í Tórínó þann 1.
febrúar 1896. Þetta tíma-
stökk segir gagnrýnandi Int-
ernational Herald Tribune
að valdi nokkrum vandkvæð-
um. Nefnir hann m.a. aríuna
er Colline kveður hina kæru
kápu sína. Það atriði segir
gagnrýnandinn David Stev-
ens að væri mun trúverðug-
ara ef kápan væri ekki jafn-
hversdagsleg og raun ber
vitni.
Gagnrýnandi franska
blaðsins InfoMatin lætur
hins vegar ekki útlit kápunn-
ar á sig fá og segir söng
Kristins í þessari aríu vera
meðal hápunkta sýningar-
innar. „Þijár mínútur af
ógleymanlegum söng.“
Jacques Doucelin, gagn-
rýnandi Le Figaro, segir
uppsetninguna á La Bohéme
vera veislu líkasta og ekki
standa fyrri uppsetningum
að baki. Hann segir þijá af
söngvurunum í aðalhlut-
verkunum, hlutverkum Ro-
dolphe, Mimi og Marcel,
geisla af æskuþrótti. Söngur
þeirra sé óaðfinnanlegur og
leikur sömuleiðis.
„Það væri hins vegar
óréttlátt að geta ekki einnig
Kristins Sigmundssonar í
hlutverki Colline, hins ómót-
stæðilega Jules Bastin í hlut-
verki Benoit og Francks
Leguérinel í hluverki
Schaunards. Því miður urð-
um við fyrir vonbrigðum
með Gwynne Geyer í hlut-
verki Musette vegna ofleiks
sem verður nær fáránlegur.
Jonathan Miller á hins vegar
sína sök á því.“
Blaðið Libération segir
Bohéme vera óperu þar sem
söngvurum gefst færi á að
njóta sín. Segir gagnrýnandi
val söngvara hafa tekist ein-
staklega vel og hrósar þeim
fyrir frammistöðu sína.
Gagnrýnandi Le Monde er
á sömu skoðun og segir sýn-
inguna vel upp byggða og
óperuna einstaklega vel
sungna. Lokaatriði óperunn-
ar hafi einkennst af þvílíkri
reisn og fegurð að einungis
hávaðinn í loftræstingu
Bastilluóperunnar hafi trufl-
að hana. Um Kristin segir
gagnrýnandinn Alain
Lompech að hann hafi í loka-
aríu sinni veitt áheyrendum
kennslustund í fögrum söng.
Kaupmannahöfn
menningarborg
Evrópu 1996
Opnunar-
hátíð með
mikilli
viðhöfn
MARGRÉT II Danadrottning,
menningar- og menntamálaráð-
herrar allra Evrópuþjóða og 650
opinberir gestir verða viðstaddir
mikla opnunarhátíð, í Kaupmanna-
höfn þann 12. þessa mánaðar, þeg-
ar Kaupmannahöfn tekur formlega
við af Lúxemborg sem Menningar-
borg Evrópu 1996.
Tónlistarhátíð Evrópu verður
sett deginum á undan, eða næst-
komandi fimmtudag, og verða tón-
listarviðburðir í fjórum risavöxnum
speglatjöldum á torgum miðborgar
Kaupmannahafnar. Sextán hljóm-
sveitir munu daglangt flytja tónlist
hvaðanæva úr Evrópu og er kvölda
tekur, tekur við popptónlistarflutn-
ingur um borð í M/S Kronborg,
sem nefnd er „Hin fljótandi menn-
ingarmiðstöð Kaupmannahafnar
1996“.
Opnunarkonsert sígildrar tón-
listarhátíðar verður svo þann 13.
janúar, þegar Fílharmoníuhljóm-
sveit Kaupmannahafnar flytur
Fiðlukonsert Bruchs og Sinfóníu
no. 3 eftir danska tónskáldið Carl
Nielsen. Af öðrum viðburðum við
opnunarhátíðarhöldin má nefna
ljósmyndasýningar, listasýningar
og skartgripasýningar um gjör-
valla Kaupmannahöfn.
HÖGGMYND eftir Örn Þorsteinsson.
Orka +
steinn =
mynd
SÝNING á höggmyndum Arnar
Þorsteinssonar myndlistarmanns
verður opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur
laugardaginn 6. janúar kl. 15. Sýn-
ingin sem nefnist „Orka + Steinn
= Mynd“, verður opin kl. 8-19 virka
daga og kl. 12-18 um helgar.
Orn á að baki feril sem listmál-
ari, grafíklistamaður og mynd-
höggvari. í þetta sinn sýnir hann
úrval nýrra verka, aðallega úr ís-
lenskum grásteini, en einnig úr
marmara og grænlensku graníti.
Áður hefur Óm unnið höggmyndir
úr viði, bronsi og áli, bæði smærri
verk og stór verkefni fyrir opinbera
aðila. Höggmyndir og lágmyndir
eftir Örn er meðal annars að finna
við Foldaskóla, við Bjarkarás í Foss-
vogi, á skrifstofu Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga, við Grensás-
laug Borgarspítalans, í Æfingastöð
Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
og í Qaqortoq á Grænlandi.
í nýjustu höggmyndum sínum
leitast listamaðurinn við að laða
fram það sem hann kallar „innra
líf steinsins", það líf sem eldri kyn-
slóðir Islendinga kenndu stundum
við álfa og huldufólk. Um vinnu-
brögð sín segir hann: „Með inn-
byggðri orku sinni kveikir sérhver
steinn hjá mér séstakar tilfinningar
sem ég nota mér til leiðbeiningar
við mótun hans.“
Sýningin stendur til 21. janúar.
Oldungadeild
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS
Innritað verður í öldungadeild Verzlunarskóla íslands
5.-11. janúar 1996
Öldungadeildin gefur kost á námi í einstökum áföngum sem jafnframt
gefa einingar sem safna má saman og láta mynda eftirtalin prófstig:
Próf af bókhaldsbraut (25 einingar)
Próf af skrifstofubraut (26 einingar)
Verslunarpróf (71 eining)
Stúdentspróf (140 einingar)
Ekki er nauðsynlegt að miða að ákveðnu prófi og algengt er að fólk
leggi stund á einstakar námsgreinar til að auka atvinnumöguleika
sína eða sér til ánægju. Við bjóðum m.a.:
104 tíma tölvunámskeið og
104 tíma bókfærslu- og tölvunámskeið
Eftirtaldar námsgreinar verða í boði
Bókfærsla Líffræði
Danska Ritvinnsla
Enska Saga
Franska Stærðfræði
Hagræn landafræði Skattabókhald
íslenska
Kennsla í öldungadeild fer fram kl. 17.30-22.00 mánudaga til fimmtudaga
á vorönn:
Tölvubókhald
Tölvunotkun
Vélritun á tölvur
Þjóðhagfræði
Þýska