Morgunblaðið - 04.01.1996, Qupperneq 26
26 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996 27
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
AÐHALD AÐ UTAN
TALIÐ er að um fimmtíu íslenzk fiskvinnslufyrirtæki
uppfylli ekki heilbrigðiskröfur Evrópusambandsins,
sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu og tóku gildi hér
á landi um áramótin. Án þess að uppfylla skilyrði um hrein-
læti fá þessi fyrirtæki ekki að flytja út fisk til ríkja EES.
Reglur þessar hafa ekki komið fiskvinnslufyrirtækjum á
óvart, heldur hafa þau haft tveggja ára aðlögunartíma frá
því að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið tók
gildi, til að koma málum sínum í lag.
Hjá miklum meirihluta fiskvinnslufyrirtækja, eða um
900 handhöfum vinnsluleyfis, eru málin í stakasta lagi og
hafa verið það lengi. Hins vegar hafa fyrirtækin sum hver
verið önnum kafin við það síðastliðin tvö ár að uppfylla
hina evrópsku staðla. Það skýtur í rauninni skökku við.
Hvernig stendur á því að fiskveiði- og matvælaframleiðslu-
ríkið ísland hefur ekki haft reglur, sem samsvara þeim,
sem verið hafa í gildi um allnokkurt skeið í Evrópusam-
bandinu?
Þess eru auðvitað dæmi að fyrirtæki hafa að eigin frum-
kvæði lagað sig að kröfum Evrópusambandsins, sem um
leið hafa oft verið kröfur kaupenda á meginlandinu. Sömu-
leiðis eru fordæmi þess að atburðir erlendis hafi ýtt við
mönnum í þessu efni. Fyrir um það bil aldarfjórðungi gerðu
fiskvinnslufyrirtæki mikið átak í heilbrigðismálum vegna
frumvarps, sem lá þá fyrir Bandaríkjaþingi og kvað á um
að ekki mættu önnur fyrirtæki flytja fisk inn á Ameríku-
markað en þau, sem uppfylltu opinberar heilbrigðiskröfur.
Frumvarpið varð reyndar ekki að lögum, en gerði sitt gagn.
Stór hluti af ímynd íslands á erlendum mörkuðum er
að héðan komi hreinar afurðir úr óspilltri náttúru. Eins
og Morgunblaðið hefur bent á er sú náttúra ekki alltaf
eins óspjölluð og látið er að liggja í auglýsingum. Stefnu-
mótun og aðgerðir í umhverfismálum eru því nauðsynlegar
til að koma í veg fyrir að ljótur veruleiki gægist fram
undan fallegri framhlið og geri ímyndina að engu. Með
sama hætti er brýnt að íslenzk fyrirtæki og stjórnvöld
gangi á undan með góðu fordæmi hvað varðar setningu
heilbrigðisstaðla í matvælaframleiðslufyrirtækjum, en
bregðist ekki einvörðungu við aðhaldi að utan. Við verðum
að standa undir þeirri ímynd, sem við gefum gjarnan af
sjálfum okkur.
SAMEINING í SJÁVAR-
ÚTVEGI
GENGIÐ var frá sameiningu Fiskiðjunnar Skagfirðings
og Hraðfrystihúss Grundarfjarðar á gamlársdag en
þá voru þrjú ár liðin frá því skagfirzku sjávarútvegsfyrir-
tækin, er þá voru tvö, keyptu 30% hlut í HG. í lok síðasta
árs var sá hlutur orðinn 85%. Nýja fyrirtækið verður með
fjórða mesta heildarkvóta íslenzkra sjávarútvegsfyrirtækja
og er áætlað að velta þess muni nema allt að þremur og
hálfum milljarði á ári.
Fyrirtækið verður staðsett í þremur sveitarfélögum,
Sauðárkróki, Hofsósi og Grundarfirði, og fjöldi starfs-
manna verður um fjögur hundruð.
Einar Svansson framkvæmdastjóri segir í samtali við
Morgunblaðið í gær að sameiningin auki hagkvæmni við
rekstur fyrirtækisins, en hún hafi minnkað við kvótaskerð-
ingu á þorski. Þá verði auðveldara að nýta kvótann á sem
hagkvæmastan hátt þegar hann er allur kominn í einn pott.
Mörg dæmi eru um velheppnaða sameiningu fyrirtækja
í sjávarútvegi á síðasta áratug eða svo. Ber þar hæst sam-
einingu Bæjarútgerðarinnar og ísbjarnarins í Granda og
síðar sameiningu Granda og Hraðfrystistöðvarinnar. Einn-
ig má nefna sameiningu Hraðfrystistöðvar Stokkseyrar
og Glettings í Þorlákshöfn og sameiningu nokkurra fyrir-
tækja i Vestmannaeyjum í tvær stórar einingar.
Yfirleitt hefur sameining skotið styrkari stoðum undir
rekstur fyrirtækjanna. Stærri rekstrareiningar bjóða upp
á mun meiri hagkvæmni varðandi til dæmis húsa- og skipa-
kost og yfirbyggingu. Fyrirtækin eiga auðveldara með að
vinna að markaðsöflun og vöruþróun og eru betur búin
undir tímabundin áföll, t.d. vegna kvótaskerðingar.
Auðvitað er sameining fyrirtækja engin allsheijarlausn
í sjávarútvegi. í Ijósi reynslunnar bendir þó flest til að
samkomulag Skagfirðings og HG um sameiningu muni
geta af sér öflugt fyrirtæki sem eigi eftir að setja sterkan
svip á íslenzkan sjávarútveg.
I *
Félagsdómur kveður upp dóma í máli fjögurra verkalýðsfélaga
UPPSAGNIR KJARA-
SAMNINGA ÓGILDAR
FÉLAGSDÓMUR dæmdi í gær ógild-
ar uppsagnir kjarasamninga Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar, Verka-
lýðs- og sjómannafélags Keflavíkur,
Verkalýðsfélagsins Einingar og
Verkamannafélagsins Hlífar. Máls-
kostnaður í máli Vinnuveitendasam-
bands íslands og Dagsbrúnar var
felldur niður en Hlíf, Eining og Verka-
lýðsfélag Keflavíkur voru hvert um
sig dæmd til að greiða VSÍ 100 þús.
kr. í málskostnað.
Rökstuðningur Félagsdóms fyrir
niðurstöðu sinni í máli Dagsbrúnar
er annar en j málum annarra verka-
lýðsfélaga. í niðurstöðu dómsins í
máli Dagsbrúnar segir að í kjara-
samningi félagsins sé enga tilvísun
að finna til samnings VSI/VMS og
Verkamannasambandsins frá 21.
febrúar. I niðurstöðu sinni í málum
annarra félaga vitnar dómurinn hins
vegar til kjarasamnings vinnuveitenda
og Verkamannasambandsins sem
gerðir voru fyrir hönd aðildarfélag-
anna.
„Þegar litið er til orðalags 15. gr.
samningsins þykir stefnandi, gegn
mótmælum stefnda, ekki hafa sýnt
fram á að launanefnd hafí haft heim-
ild til að meta hvort forsendur samn-
ingsins væru brostnar þannig að bind-
andi væri fyrir stefnda,“ segir í niður-
stöðum dómsins í máli Dagsbrúnar.
Félagsdómur vitnar einnig í Dags-
brúnardóminum til 14. gr. kjarasamn-
ings félagsins um að forsendur hans
séu yfirlýsing ríkisstjórnarinnar og
að verðlagsþróun á samningstímanum
verði áþekk því sem gerist í helstu
samkeppnislöndum. Félagsdómur
styðst einnig við umdeilda 16. grein
samningsins um forsendur hans, þar
sem vísað er til launa- og verðlagsþró-
unar á samningstímanum. Sambæri-
legt ákvæði er ekki að finna í samn-
ingum annarra félaga eða landssam-
banda og hafa talsmenn vinnuveit-
enda haldið því fram að þetta ákvæði
hafi bæst við samning Dagsbrúnar
fyrir mistök við ritvinnslu.
Tilvísun til launaþróunar í samningi
Dagsbrúnar breytir þó ekki dómsnið-
urstöðu Félagsdóms sem segir að
Dagsbrún hafi ekki sýnt fram á að
þau frávik hafi orðið á samningsfor-
sendum skv. 14. og 16. gr. kjarasamn-
ingsins að félagið gæti gripið til upp-
sagnar hans. Loks er gagnkröfu fé-
lagsins vísað frá dómi en þar var
þess krafist að niðurstaða launanefnd-
ar yrði dæmd ógild og að viðurkennt
yrði fyrir dómi að launanefnd hafi
farið út fyrir umboð sitt og ekki gætt
réttra aðferða í störfum sínum.
Meintir annmarkar ómerkja
ekki niðurstöðu launanefndar
Rökstuðningur Félagsdóms fyrir
dómsniðurstöðu sinni í máli Hlífar,
Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla-
víkur og Einingar er að mestu sam-
hljóða. í niðurstöðu dómsins segir
m.a. að með kjarasamningum VSÍ,
VMS og Verkamannasambandsins
hafi allir síðast gildandi samningar
aðila verið framlengdir til ársloka
1996. „Ljóst er að ágreiningur er með
málsaðilum um störf launanefndar.
Meintir annmarkar á störfum
nefndarinnar þykja þó ekki þess eðlis
að telja verði niðurstöðu nefndarinnar
um samningsforsendur markleysu.
Ráða má af gögnum málsins að það
hafi verið hlutverk launanefndar að
meta forsendur fyrir uppsögn kjara-
samningsins sbr. 16. og 17. gr. hans.
Því þykir ekki unnt að fallast á það
með stefnda, að hann geti á sitt ein-
dæmi metið, hvort samningsforsendur
hafi staðist. Þá hefur stefndi ekki
sýnt fram á að forsendur kjarasamn-
ingsins hafi brostið. Með vísan til
þessa er krafa stefnanda tekin til
greina," segir í niðurstöðu Félags-
dóms í máli Einingar.
Friður á
vinnumark-
„Þetta endar bara
með allsherjarbáli“
„ÉG SÉ ekki í dag að við eigum margra kosta völ
en hins vegar er eins gott fyrir Vinnuveitendasam-
bandið að gera sér grein fyrir því að það hefur
kannski unnið einhvern sigur en orrustan sjálf er
eftir. Þegar samningarnir eru lausir verður þetta
ekki til að liðka fyrir samningum. Svona samskipti
ganga ekki á milli viðsemjenda, að vaðið sé fyrir
dóm með allt eins og Vinnuveitendasambandið virð-
ist gera í dag. Þetta endar bara með allsheijar-
báli,“ sagði Halldór Björnsson, varaformaður Dags-
brúnar, þegar dómur Félagsdóms lá fyrir í gær.
Talsmenn verkalýðsfélaganna sem stefnt var
fyrir Félagsdóm eru mjög óánægðir og vonsviknir
vegna niðurstöðu dómsins og telja-að samskipti á
vinnumarkaði verði til muna stirðari í framhaldinu.
„Við erum löghlýðnir, Einingarfélagar“
„Við erum löghlýðnir, Einingarfélagar," sagði
Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar, aðspurður
um viðbrögð félagsins í framhaldi af dómsniður-
stöðu Félagsdóms í gær.
Dómurinn kom Bimi ekki mjög á óvart og vís-
aði hann í því sambandi til dómsniðurstöðu Félags-
dóms fyrir jól í máli vinnuveitenda gegn Baldri á
Isafirði. Bjöm sagðist þó vera mjög ósáttur við
þessa niðurstöðu.
„Nú verðum við að fara að búa okkur vel undir
að ná öllum þessum launahækkunum sem menn
hafa verið að fá að undanfömu um næstu áramót
ef ekki tekst að ná því fyrr,“ sagði Björn.
Hann sagði að verkalýðsfélagið hefði enga stöðu
til að ná fram launahækkunum fyrr en samningar
rynnu út að ári. „Við notum árið til þess. Þetta
hlýtur að verða til þess að menn verða ennþá harð-
ari ef atvinnurekendur halda uppteknum hætti að
leita til dómstóla til að fá menn dæmda. Það getur
varla þýtt einhveija hlýju í þeirra garð þegar menn
setjast að samningaborði," sagði Björn.
Félögin eiga ekki marga leiki í stöðunni
Aðspurður um framhaldið sagðist Halldór Bjöms-
son líta svo á að verkalýðsfélögin ættu ekki marga
leiki í stöðunni. Ef efna ætti til átaka þyrfti að
höfða til sérhvers félagsmanns og það útheimti
mikinn styrk. Fordæmið væri þó fyrir hendi. „Það
hefur svo sem komið fyrir áður að verkamenn hafi
brotið niður lög, síðast árið 1975 þegar Verksmiðju-
lögin voru brotin á sínum tíma. Þá stóðu menn
hlið við hlið og brutu það niður og gerðu mjög
góðan samning í framhaldi af því,“ sagði Halldór.
„Niðurstaðan er mjög dapurleg í ljósi þess að allt
í kringum okkur er verið að dæma embættismönn-
um og fyrirmönnum þjóðarinnar tugþúsunda launa-
hækkanir á sama tíma og þetta réttlæti er að störf-
um, þar sem dæmt er að okkar samningsforsendur
séu ekki brostnar. Ef þetta er jafnlaunastefnan sem
fól í sér að lægstu laun skyldu hækka sérstaklega,
kemur það ekki heim og saman í mínum huga. Það
verður enginn friður og engin sátt um þessa niður-
stöðu,“ sagði Kristján Gunnarsson, formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur.
Kristján sagði of snemmt að gefa yfirlýsingar
um næstu skref. „Við tökum eitt skref í einu og
ræðum þetta í stjórn og trúnaðarmannaraáði og
okkar félagi. Síðan munum við sjálfsagt bera okk-
ur saman við félaga okkar í hinum félögunum.
Góðærið er ekki komið í launaumslag minna félags-
manna, það er alveg greinilegt, en það er komið í
vasa prestanna,“ sagði Kristján og vísaði til nýlegs
úrskurðar kjaranefndar.
Rétt að bíða ef ekki er
bolmagn til aðgerða
„Mér finnst þetta ömurlegt. Öll þjóðin veit að
þeir lægst launuðu fá minnst. Það er öfugt við
þann anda sem hvíldi yfir vötnunum þegar skrifað
var undir kjarasamninga. Þá töldu stjórnmálamenn
og þar á meðal forsætisráðherra, að nú yrði þjóðin
að standa saman um að hinir lægst launuðu fengju
mest og fólk yrði að gæta sín til að raska ekki
efnahagslífinu. Það liðu ekki nema nokkrir dagar
þar til farið var að semja um allt annað. Allt til
dagsins í dag er það varðað misjafnlega háum
launahækkunum sem eru þó allar í prósentum,“
segir Sigurður T. Sigurðsson, formaður Hlífar.
„Láglaunafólkið er bara skilið eftir eins og indíána-
þjóðflokkarnir gerðu í gamla daga, þegar gamla
fólkið var skilið eftir á hjaminu og það vissi að
það var skilið eftir til að deyja,“ sagði hann.
Hann sagði að verkalýðsfélögin hlytu nú að bera
saman bækur sínar. „Ég ætla að hlusta á þeirra
sjónarmið en mín hugmynd er sú að ef við teljum
okkur hafa bolmagn til að fara út í aðgerðir, þá
verði það gert. Ég legg megináherslu á að leiki
einhver minnsti vafi á að við höfum bolmagn til
aðgerða, þá bíðum við heldur," sagði Sigurður.
aði út árið
„ÞETTA fór eins og við áttum von á. Dóm-
urinn staðfestir annars vegar að það hafi
verið ótvírætt að samningar þeirra félaga sem
voru í landssamböndunum ættu með skýrum
hætti undir launanefndina og svo staðfestir
dómurinn í Dagsbrúnarmálinu það mat launa-
nefndar að forsendur samninganna hafa hald-
ið. Þetta er því mjög skýr niðurstaða bæði
um efni og form,“ segir Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri VSI.
Þórarinn kvaðst eiga von á að friður héld-
ist nú á vinnumarkaði út þetta ár. „Það hvarfl-
ar ekki að mér að forystumenn þessara félaga
muni ætlast til þess af félagsmönnum sínum,
að þeir geri eitthvað sem félögin geri ekki
og standi að ólöglegum aðgerðum, sem félög-
in axli ekki ábyrgð á. Þaðan af síður hvarflar
að mér að einstakir félagsmenn myndu verða
við slíkum tilmælum," segir Þórarinn.
Frágangur snmningu mun
framvegis taka lengri tíma
Þórarinn var spurður um þá niðurstöðu
Félagsdóms, í máli Dagsbrúnar, að launanefnd
hafi ekki getað metið forsendur samningsins
þannig að bindandi væri fyrir verkalýðsfélag-
ið og um þýðingu þess að dómurinn styðst
við umdeilda grein samningsins, þar sem vísað
er til launaþróunar, en vinnuveitendur hafa
haldið því fram að hún hafi fylgt með samn-
ingnum fyrir slysni.
„Þeir eru í raun og veru að senda okkur
pillu um að það hafi ekki verið gengið tryggi-
lega frá orðalagi," sagði Þórarinn. „Þetta má
vera okkur mjög alvarleg áminning um að
það þarf að vanda orðalag mjög vel, sérstak-
lega þegar sú staða kemur upp að lögfræðing-
ar bera fyrir sig ritvillur og slíka hluti. Þetta
þýðir óhjákvæmilega að samningsfrágangur
mun taka lengri tíma næst þegar samið verð-
ur. Við munum ekki ganga frá samningstext-
um ósofnir á öðrum eða þriðja sólarhring, ef
það á fyrir okkur að liggja að minnstu ritvillu-
mistök verði tilefni til málaferla síðar,“ sagði
hann.
-------------------------------------------------------------1
Úrskurðir kjaranefndar um laun presta og fieiri embættismanna
Svipuð hækkun
og hjá öðrum
ríkisstarfsmönnum
GUÐRÚN Zoéga, formaður
kjaranefndar, segir að við
úrskurð sinn um laun
presta og fleiri embættis-
manna ríkisins, sem kveðinn var upp
rétt fyrir áramót, hafi nefndin horft,
lögum samkvæmt, til niðurstöðu
Kjaradóms í september síðastliðnum
og til launaþróunar annarra opin-
berra starfsmanna að undanförnu.
Sú launahækkun, sem nefndin úr-
skurðaði viðkomandi embættismönn-
um, er ekki meiri en aðrir ríkisstarfs-
menn hafa fengið, að sögn Guðrúnar.
Með lögum um Kjaradóm og
kjaranefnd, sem sett voru árið
1992, úrskurðar Kjaradómur
um laun þingmanna, ráð-
herra, dómara og nokkurra
annarra æðstu embættis-
manna ríkisins. Kjaranefnd
úrskurðar hins vegar um laun
ýmissa annarra embættis-
manna ríkisins og forstjóra
ríkisstofnana. Prestar eru þar
fjölmennasti starfshópurinn,
en einnig er úrskurðað um
laun sýslumanna, skattstjóra,
lögreglustjóra, ráðuneytis-
stjóra og sendiherra svo dæmi
séu nefnd.
Tekið tillit til Kjaradóms
og kjarasamninga
í 11. grein laganna segir:
„Við ákvörðun launakjara
skal kjaranefnd gæta innbyrð-
is samræmis í starfskjörum
hjá þeim sem hún fjallar um,
að þau séu á hverjum tíma í
samræmi við laun í þjóðfélag-
inu hjá þeim sem sambærileg-
ir geta talizt með tilliti til
starfa og ábyrgðar og að sam-
ræmi sé á milli þeirra og
þeirra launa hjá ríkinu sem
greidd eru á grundvelli kjara-
samninga eða Kjaradóms.“
I lögunum segir jafnframt
að Kjaradómur og kjaranefnd
skuli meta það eigi sjaldnar
en árlega hvort tilefni sé til
að breyta þeim starfskjörum,
sem þessar stofnanir ákveða.
Kjaranefnd úrskurðaði
fyrst samkvæmt lögunum í
nóvember 1993, um starfskjör
presta. Launakerfi þeirra var
þá stokkað talsvert upp og
prestum skipt í þijá launa-
flokka eftir fjölda sóknar-
barna, sem þeir þjóna. Með
úrskurðinum voru dagvinnu-
laun hækkuð, aukavinnu-
greiðslur ákvarðaðar og
starfsaldurshækkanir og
menntunarálag afnumið.
Kjaranefnd hefur síðan
kveðið upp marga úrskurði,
en yfírleitt er úrskurðað um
starfskjör hvers embættismanns sér-
staklega. í mörgum tilfellum hefur
launakerfi viðkomandi embættis-
manns verið breytt, til dæmis með
því að fella aukagreiðslur ______
inn í föst laun.
Tilgangur laganna um
kjaranefnd er meðal ann-
ars uppstokkun launa-
kerfis embættismanna í
upphafi, en síðan gegni _.___
nefndin því hlutverki að
endurskoða kjör embættismanna
miðað við þróun launa annarra ríkis-
starfsmanna. Úrskurður nefndarinn-
ar gildir í raun ótímabundið, þar til
næst þykir ástæða til endurskoðun-
ar, en ákvörðun um slíkt er tekin
árlega eins og áður segir.
Formaður kjaranefndar segir að launahækkun
presta og fleiri embættismanna ríkisins sam-
kvæmt úrskurði nefndarinnar sé ekki meiri
en aðrir ríkisstarfsmenn hafí fengið og sé
svipuð og á almennum vinnumarkaði. Kjara-
nefnd á enn eftir að úrskurða um kjör 30
embættismanna.
Yfirleitt
úrskurðað
um kjör hvers
og eins
Guðrún Zoéga segir að ástæðan
fyrir því að úrskurður um laun
presta, sem ekki hafa fengið launa-
hækkun í rúm tvö ár, hafi ekki ver-
ið kveðinn upp fyrr, sé sú
að laun viðmiðunarhópa
hafi verið að þróast á ár-
inu og mikil vinna sé fólg-
in í hveijum úrskurði.
Kjaranefndinni beri að
meta árlega hvort ástæða
sé til að breyta launum,
og hafi ástæða til að hækka laun
presta ekki verið fyrir hendi fyrr en
á árinu, sem er nýliðið.
Guðrún segir að hluti af launa-
breytingum presta felist í frekari
uppstokkun á launakerfinu, og séu
prestar nú aðeins í tveimur launa-
flokkum, annars vegar þeir, sem
þjóni færri en 2.000 sóknarbörnum,
og hins vegar þeir sem sinni fjöl-
mennara prestakalli. Launahækkun
til presta sé á bilinu 6% ________
til 11% og meðalhækkun
sé um 9,5%. Auk þess úr-
skurðaði kjaranefndin nú
um laun 70 embættis-
manna annarra og er
hækkunin til þeirra um ______
8%, að sögn Guðrúnar.
Hún segir að við ákvörðun þessa
hafi annars vegar verið miðað við
úrskurð Kjaradóms frá í september
um 9,5% hækkun á grunnlaunum
þingmanna. Ekki hafi verið horft til
annarra ákvarðana Kjaradóms um
breytingar á kjörum þeirra, sem
undir hann heyra. Hins vegar hafi
verið miðað við kjarasamninga opin-
berra starfsmanna.
Guðrún bendir á að í svari Frið-
riks Sophussonar fjármálaráðherra
við fyrirspurn á þingi fyrir skömmu
hafi komið fram að meðalhækkun
Alþýðusambandsfélaga í störfum hjá
ríkinu sé 13,2% á samningstíma nú-
gildandi kjarasamnings. Hækkun
BHMR sé 10,8% og BSRB 10,3%.
Hækkun hjá félögum í Farmanna-
og fiskimannasambandinu sé 11,5%
og hjá félögum í Kennarasamband-
inu 19,84%. Hækkun til starfsmanna
ríkisins, sem séu utan stéttar-
félaga, sé 12,11%. Alls geri
þetta 12,7% meðalhækkun.
Sé ekki horft til launahækk-
unar kennara sé meðalhækk-
unin 10,5%.
Guðrún segir að íjóðhags-
stofnun hafi metið hækkun á
almennum vinnumarkaði tæp
8% á samningstímanum.
I lægri kantinum
á hækkun
r íkisstarf smanna
„Hækkun samkvæmt úr--*
skurði okkar er í lægri kantin-
um á því, sem ríkissamning-
amir voru, og svipað og al-
mennu samningarnir í pró-
sentum," segir Guðrún. Hún
segir fráleitt að leggja málið
þannig upp að útvalinn hópur
sé að skammta sjálfum sér
launahækkanir umfram það,
sem aðrir hafi fengið, heldur
sé óhlutdræg nefnd að taka
ákvörðun um laun út frá
ákveðnum forsendum. „Sumir
segja að við séum að skammta
þeim heldur naumt og það er
óhætt að segja að þessi hækk--
un skeri sig ekki úr,“ segir
Guðrún.
Kjaranefnd á eftir að úr-
skurða um iaun um 30 emb-
ættismanna. Þeirra á meðal
eru sýslumenn, ráðuneytis-
stjórar og sendiherrar. Guð-
rún segir að stefnt sé að því
að úrskurður um laun þeirra
liggi fyrir síðar í mánuðinum.
Með því hafi kjaranefnd úr-
skurðað um kjör allra þeirra
embættismanna, sem undir
hana heyra samkvæmt lögum.
Að svo búnu sé möguleiki að
birt verði heildaryfirlit um
úrskurði nefndarinnar. Guð-
rún segir nefndina hins vegar
ekki reiðubúna á þessu stigi
máls að birta úrskurði um
laun einstakra embætt-
Sýslumenn óánægðir
Ólafur K. Ólafsson; varaformaður
Sýslumannafélags Islands, segir
óánægju meðal sýslumanna með það
hversu lengi endurskoðun á launum
________þeirra hafi dregizt. Sýslu-
menn hafa áður gagnrýnt
kjaranefnd, meðal annars
fyrir það að réttur emb-
ættismanna, sem fjallað
er um, til að gera greiií*'
fyrir máli sínu fyrir nefnd-
inni og fá aðgang að úr-
Ekki útvalinn
hópur
að skammta
sér laun
skurðum hennar, sé ekki tryggður.
Félagsmaður í Sýslumannafélaginu
hefur kvartað undan þessu og fleiri
atriðum í störfum Kjaranefndar til
umboðsmanns Alþingis, en að sögn
Ólafs liggur álit umboðsmanns enn
ekki fyrir. •