Morgunblaðið - 04.01.1996, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
MINIMINGAR
FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996 33
BJORG SIGURROS
JÓHANNESDÓTTIR
+ Björg Sigurrós
Jóhannesdóttir
fæddist á Holta-
stöðum í Langadal,
Austur-Húna-
vatnssýslu, 6. ág-
úst 1899. Hún lést
á Hjúkrunarheim-
ilinu Skjóli 28. des-
ember síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Jóhannes
Halldórsson bóndi
á Móbergi í Engi-
hlíðarhreppi, A-
Hún. (1868-1937),
og kona hans, El-
ísabet Þorleifsdóttir (1874-
1961) frá Stóra-Búrfelli í Svína-
vatnshreppi, A-Hún. Björg var
önnur í röð níu systkina. Þau
hétu Óskar, Björg, Ingiríður,
Halldór, Guðmundur, Jón,
Kristín, Svavar og Axel. Af
þeim eru nú sex látin en eftir
lifa Ingiríður, Svavar og Axel.
Björg var ógift og barnlaus.
Útför Bjargar fer fram frá
Áskirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
ÉG KYNNTIST ekki Björgu vin-
konu minni fyrr en veturinn 1955
þegar ég kom að Löngumýri sem
forfallakennari. Þó ætla ég að stikla
á stóru á æviferli hennar og styðst
þar við frásagnir hennar og skrifað-
ar heimildir frá Halldóri bróður
hennar.
Foreldrar Bjargar voru vinnuhjú
á Holtastöðum þegar hún fæddist
og gátu ekki haft nema eitt barn
hjá sér og urðu því að láta hana í
fóstur. Svo var um samið að Hall-
dór Konráðsson föðurafi hennar
sem þá var bóndi á Móbergi tæki
Björgu litlu til sín. Hann var þá
búinn að missa konu sína en bjó
með bústýru sem hét Þorbjörg
Magnúsdóttir (1842-1922), mestu
ágætiskonu sem var fús til að taka
þetta nýfædda barn að sér þó að
hún stjórnaði stóru heimili og orðin
56 ára gömul. Hún hafði óbilandi
kjark og fórnarlund og er skemmst
frá því að segja að hún varð Björgu
sem besta móðir og efndi þar vel
loforð sitt við móðurina ungu sem
komið hafði gangandi milli bæja
með dóttur sína aðeins tveggja
vikna gamla í fanginu. Björg var 7
ára þegar afi hennar dó en þær
Þorbjörg voru áfram í húsmennsku
á Móbergi í 16 ár. Björg var orðin
22 ára þegar Þorbjörg lést og höfðu
þær fósturmæðgur þá alltaf verið
saman.
Björg hafði góðar gáfur og var
mjög hög. Hugur hennar stóð jafnt
til hjúkrunar og hagnýtra handíða.
Ofaná urðu handíðirnar. Hún fór
suður til Reykjavíkur og lærði karl-
mannafatasaum, kjólasaum og
fleiri hannyrðir á árunum 1924-
1936. Kenndi hún hjá Sambandi
norðlenskra kvenna á Blönduósi á
árunum 1937-39. Árið 1940 má
segja að straumhvörf hafi orðið í
lífi Bjargar. Þá réðst hún sem
handavinnukennari að Húsmæðra-
skólanum á Staðarfelli. Þar kynnt-
ist hún Ingibjörgu Jóhannsdóttur
frá Löngumýri í Skagafirði sem þá
var þar forstöðukona og lágu leiðir
þeirra saman upp frá því. Þegar
Ingibjörg stofnaði Hússtjórnarskóla
á föðurleifð sinni Löngumýri flutti
Björg með henni þangað og studdi
hana með ráðum og dáð næstu 23
árin eða þar til þær létu báðar af
störfum og fluttu til Reykjavíkur
7. september 1967. Þar bjuggu þær
þangað til þær fluttu að Hjúkrunar-
heimilinu Skjóli í september 1989.
Á Skjóli leið þeim eins vel og hægt
var í herbergjum hlið við hlið. Þó
ellin sækti að báðum með blindu
og ýmsum lasleika höfðu þær hvor
aðra að uppörva og styðja sem fyrr.
Ingibjörg lést rúmri viku eftir 90
ára afmælið sitt 9. júní síðastliðinn.
Björg var áfram æðrulaus sem fyrr
en hún hafði mikið misst og lífsvilj-
inn smáþvarr. Hún
kvartaði aldrei og hélt
fullri andlegri reisn til
hinstu stundar. Hún
fylgdist vel með öllu og
öllum og var sátt við
lífið.
Björg var fórnfús og
góður kennari, mikill
uppalandi og félagi.
Hún var virt jafnt af
nemendum sem sam-
starfsfólki. Nemendur
hennar leituðu til henn-
ar með stórt og smátt
bæði í tíma og ótíma.
Hún var trygg
heimahögunum og þó hún væri
skráð til heimilis að Móbergi allt
til þess að hún fluttist til Reykjavík-
ur þá var líf hennar í 27 ár líf heima-
vistarskólakennarans sem var að
búa nemendur undir hússtjórn og
heimilishald. Þar var lifað í leik og
starfi allan sólarhringinn líkt og í
stórfjölskyldum.
Tryggð nemenda Bjargar ber því
best vitni hve góð kona hún var. Á
löngu ævikvöldi hefur hún fengið
margan pakkann, bréfið og heim-
sóknina frá þeim. Sama er að segja
um starfsfóikið á Skjóli, allir sem
einn hafa fundið mannvirðingu
hennar og góðvild og í staðinn naut
hún kærleika þeirra. Ég veit að
þetta vill hún þakka eins og við
viljum þakka henni.
I lífshlaupi þessarar einstöku
konu sannast orð skáldsins „þar
sem góðir menn fara þar eru Guðs
vegir“.
Við sendum systkinum hennar
og öðrum ættingjum og vinum
bestu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hennar.
Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir
og fjölsk.
Ég minnist þín Björg mín besta
á blaðið vil ég festa
örlítið af okkar kynning
þá ágætu ljúfu minning.
Þú vaktir hjá öllum vilja
vinnunnar gleði að skilja
þá íþrótt íþróttanna
er eykur virðingu manna.
Viðbúin hvetjum vanda
við loforð skyldi standa
öðrum hjálp ætið veita
er til þín vildu leita.
Hafðu þökk okkar allra
við ávallt þig munum kalla
hetju í starfsins stríði,
störfin vannstu með prýði.
Karlotta Jóhannesdóttir.
Það var árið 1989 sem þær vin-
konur Björg Jóhannesdóttir og Ingi-
björg Jóhannsdóttir komu til dvalar
á Hjúkrunarheimilið Skjól. Ára-
tugalangur kennaraferill var að
baki nokkru áður, en þær vinkon-
urnar höfðu fylgst að og bjuggu
nú hlið við hlið á Skjóli.
Það er erfitt fyrir þá sem þekkja
að nefna aðra þeirra án þess að hin
komi einnig í hugann, svo samrýnd-
ar sem þær voru alla tíð. Báðar
voru þær orðnar blindar og ýmsir
sjúkdómar herjuðu á líkamann, en
andlega þrekið óbugað og hugurinn
skýr.
Þær létu sig báðar mjög annt
um hag Skjóls og létu af hendi
rakna fjármuni til þess m.a. að búa
vel að kapellunni í Skjóli. Þá gaf
Björg mikið magn skyggnumynda
af fögrum stöðum víðsvegar frá
sem oft hafa glatt þá sem skoðað
hafa.
Því miður kynntist ég ekki
Björgu fyrr en hún fluttist að Skjóli,
en mér hefur verið tjáð af náms-
meyjum hennar hversu afburða
traust hún var og vildi hvers manns
vanda leysa. Samstarf þeirra Bjarg-
ar og Ingibjargar spannaði yfir
rúmlega hálfa öld og það sagði Ingi-
björg mér að þar hefði aldrei fallið
skuggi á.
Þegar Ingibjörg gerðist skóla-
stjóri á Staðarfelli var Björg henni
þar til halds og trausts á árunum
1940-44 og síðan þegar Ingibjörg
stofnaði húsmæðraskólann að
Löngumýri taldi hún það miklu
gæfu fyrir sig og skólann að Björg
fylgdi henni þangað. Þar miðlaði
Björg þekkingu sinni og reynslu þar
til að þær hurfu báðar frá skólanum
1967. Svo samrýndar voru þær vin-
konur að fram hefur komið hjá
ýmsum námsmeyjum hennar að oft
var svo sem forstöðukonur við skól-
ann hefðu þær báðar verið. Voru
þær þó mjög ólíkar að ýmsu leyti,
en hjá þeim báðum var manngæsk-
an og háleitar hugsjónir það sem
tengdi þær óijúfandi böndum. Björg
var hinn sterki bakhjarl sem alltaf
var hægt að treysta á.
Þegar þær komu í Skjól var heils-
an farin að þverra og oft virtist
komið að kveðjustund hjá Björgu.
En það var eins og hún hefði ákveð-
ið að skilja vinkonu sína ekki eftir
og þegar Ingibjörg lést fyrr á þessu
ári hafði Björg þau orð að nú gæti
hún einnig kvatt þessa jarðvist. Hún
hélt sínu andlega atgervi allt fram
á andlátsstund og kvaddi með þeirri
reisn sem ávallt fylgdi henni.
Björg var ein þeirra sem sannar-
lega hafði mannbætandi áhrif á
alla þá sem í nærveru hennar
dvöldu. Við kveðjum hana með
söknuði en gleðjumst yfir þeim góðu
endurfundum sem nú hafa orðið.
Aðstandendum hennar öllum
sendum við samúðarkveðjur.
Rúnar Brynjólfsson.
t
Innilegt þakklæti sendi ég öllum fyrir
hluttekningu og samúð vegna fráfalls
eiginmanns míns,
RAGNARS F. GUÐMUNDSSONAR,
Sogavegi 86.
Sérstaklega þakka ég Baldvini Tryggva-
syni, sparisjóðsstjóra, og hans góða
starfsfólki fyrir vináttu og virðingu við
hinn látna.
Guð blessi ykkur öll.
Bergljót Sveinsdóttir.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HANNES GAMALÍELSSON,
elli- og hjúkrunarheimilinu Grund,
áður til heimilis á Barónsstig 41,
sem andaðist þann 25. desember sl., verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni föstudaginn 5. janúar og hefst athöfnin kl. 15.00.
Blóm afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er vinsamleg-
ast bent á að láta elli- og hjúkrunarheimilið Grund njóta þess.
Sólveig Hannesdóttir, Friðbjörn G. Jónsson,
Guðlaug Rún, Hanna Dís, Soffía Huld
og Hannes Heimir,
Jón Þór Hannesson, Valgerður Lárusdóttir,
Hannes Lárus og Árni Þór.
t
Ástkær fóstra, systir og frænka,
ÞORBJÖRG JÓNÍNA GESTSDÓTTIR
frá Þórshöfn,
lést á dvalarheimilinu Nausti á Þórshöfn miðvikudaginn 27. des-
ember.
Útförin ferfram frá Svalbarðskirkju laugardaginn 6. janúar kl. 14.00
Fyrir hönd aðstandenda,
Þorfinnur Jóhannsson,
Rósa Lilja Sigmundsdóttir,
Sigmundur Gestsson,
Þorsteinn Gestsson
og frændsystkini.
+
Útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
HREFNU HALLGRÍMSDÓTTUR,
Hringbraut 37,
Hafnarfirði,
fer fram frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði
föstudaginn 5. janúar kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á heimahlynningu Krabbameins-
félagsins.
Þórður Þórðarson,
Vilfrfður Þórðardóttir, Guðmundur Pálsson,
Þórður Þórðarson, Guðrún Friðjónsdóttir,
Steingrfmur Þórðarson, Þorgerður Jónsdóttir,
Hrafn Þórðarson, Ingibjörg Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÁRNA ÁRNASONAR,
Hraunbæ 103,
Reykjavík,
sem andaðist í Landspítalanum 27. desember sl., fer fram frá
Fossvogskapellu föstudaginn 5. janúar kl. 15.00.
. Hulda Guðmundsdóttir,
Gfgja Árnadóttir, Rúnar Sveinsson,
Þórunn Árnadóttir, Þórir Lárusson,
Árni Þór Árnason, Lísbet Sveinsdóttir,
Guðmundur Árnason, Margrét Jónsdóttir,
barnabörn og barnbarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem
sýndu okkur hlýhug og vináttu við and-
lát og útför
RÓSU ÓLAFSDÓTTUR
frá Stóra-Bóli,
Hornafirði.
Ólafur Halldórsson, Lára María Theódórsdóttir,
Anna Halldórsdóttir, Vffill Karlsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út-
för eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
VALGERÐAR GUÐRÚNAR VIGFÚSDÓTTUR,
Klukkufelli,
Reykhólasveit.
Jón Sveinsson,
Vignir Jónsson, Svanhildur Adda Jónsdóttir,
Kristín Edda Jónsdóttir, Ásdís Jónsdóttir,
Drffa Jónsdóttir, Sesselja Jónsdóttir,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður og afa,
BJARNA BÆRINGSSONAR,
Hraunbæ 146,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til Heimahlynningar
Krabbameinsfélagsins, Sigurðar Björns-
sonar, læknis og starfsmönnum Landa-
kotsspitala.
Kristbjörg Guðbjörnsdóttir,
Elfn Anna Bjarnadóttir, Erlendur Kristjánsson,
Sigrfður Bjarnadóttir, Logi Vilberg Gunnarsson,
Bæring Árni, Bjarni Þór
og Páll Ingvi Logasynir.