Morgunblaðið - 04.01.1996, Side 40
40 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
-"WsÞess/fz s/rth-FLÓÞHesTARefzo s/ce/ymr
Le&//e .*er/þ&SAR T/c c.eNGR.i tíma e/s. umo..\
þh fcýs ás Hei PUR þÆG/ND/ MOPELS IFUL Lfi/)
V -y---------------—v STÆF^’
Tommi og Jenni
Ljóska
Ferdinand
Hinn víðfrægi hermaður grefur Heyrðu, Kalli Bjarna, hund-
gryfju ... urinn þinn er að grafa í bak-
garðinum okkar!
BREF
TDL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Hverra er
himnaríkí?
Frá Ómari Óskarssyni:
ÞANN 26. desember síðastliðinn,
annan í jólum, var sonur minn skírð-
ur. Vatni ausinn og nafn hans fært
í kirkjubækur. Hvort það var vegna
þess að hann hafði þurft að þo!a
hálft annað ár í heiðni, eða bara
vegna þess að skildi ekki hvað um
var að vera, þá sýndi hann þessari
helgiathöfn takmarkaða virðingu.
Það er að segja; hann orgaði og
braust um á hæl og hnakka meðan
á henni stóð. Ekki virtist hann heldur
bera neitt skynbragð á hvenær honum
bæri að sitja kyrr og þegja, eða hve-
nær standa skyldi á fætur, samkvæmt
nákvæmlega niðumjörfuðu ritmáli.
Hann tók sig einfaldlega til og fór
að kanna altarið. Eða öllu heldur þrep
þess. Hann er tiltölulega nýbyijaður
að ganga og veit fátt skemmtilegra,
sérstaklega ef hann sér sér færi á
að spreita sig á þrepum.
Þessi brútal framkoma hins ný-
vígða fór svo hrikalega fyrir brjóstið
á prestinum, að hann gerði sér lítið
fyrir og gerði foreldrunum ljóst á
skýru táknmáli að nærveru litla
mannsins væri ekki lengur óskað í
helgidóminum. Tekinn inn og vísað
út aftur á innan við fimm mínútum.
Þetta hlýtur að vera met. í Matteus-
arguðspjalli, 19. kafla, 14. versi
stendur: En Jesús sagði: „Leyfið
bömunum að koma til mín, varnið
þeim eigi, því að slíkra er himnaríki."
Orðið var við ósk prestsins og frið-
arspillirinn fjarlægður, en tekið skal
fram að meðan á brölti hans stóð
heyrðist ekki í honum. Þetta atvik
minnir mig óneitanlega á sögu sem
ég heyrði, og segir frá blökkumanni
sem villtist inn í kirkju hvítra.
Honum var umsvifalaust vísað á
dyr, en þar sem hann sat á kirkju-
tröppunum í djúpum harmi, heyrði
hann rödd segja: „Taktu þessu ekki
svona þungt, þeir hentu mér út líka.“
Hann leit við og við hlið hans sat
sjálfur Drottinn. Minnugur þessa hef
ég engar áhyggjur af syni sínum.
Nærvem Drottins er alls ekki ein-
skorðuð við einhveija fokdýra skin-
helgidóma.
En það sem ég hef meiri áhyggjur
af er sjáif kirkjan. Þegar hirðarnir,
sem ég veit ekki betur en að beri
að hafa meiri áhyggjur af týndu
sauðunum en hinum hópnu, eru farn-
ir að stunda það að splundra hjörð-
inni í stað þess að gæta hennar, get
ég ekki fengið annað séð en að trúar-
lífið hljóti að bíða alvarlegan hnekki.
Og að kærleikurinn, sem víða er því
miður grunnt á, víki á endanum fyr-
ir fólskunni.
Ofangreint atvik átti sér stað hér
í Reykjavík, en hvorki ætla ég mér
að segja hvar, né nefna nein nöfn
nema mitt eigið. Nafnlaus óhróður
er ekki af hinu góða, en ég tel mig
færan um að gera greinarmun á
óhróðri og vel meintri áminningu.
Megi sem flestir ganga á Guðs
vegum, ekki bara á jólunum, heldur
allt árið um kring.
ÓMAR ÓSKARSSON,
Möðrufelli 7, Reykjavík.
Upplýsingar um
Internettengingu
við Morgunblaðið
Tenging við heimasíðu
Morgunblaðsins
Til þess að tengjast heimasíðu
Morgunblaðsins, sláið inn slóðina
http://www.centrum.is/mbl/
Hér liggja ýmsar almennar upplýs-
ingar um blaðið, s.s netföng starfs-
manna, upplýsingar um hvernig
skila á greinum til blaðsins og
helstu símanúmer.
Morgunblaðið
á Internetinu
Hægt er að nálgast Morgunblað-
ið á Internetinu á tvo vegu. Ann-
ars vegar með því að tengjast
heimasíðu Strengs hf. beint með
því að slá inn slóðina
http://www.strengur.is eða með
því að tengjast heimasíðu blaðsins
og velja Morgunblaðið þaðan.
Strengur hf. annast áskriftar-
sölu Morgunblaðsins á Internetinu
og kostar hún 1.000 krónur.
Sending efnis
Þeir sem óska eftir að senda
efni til blaðsins um Internetið noti
netfangið: mbl@centrum.is.
Mikilvægt er að lesa vandlega upp-
lýsingar um frágang sem má finna
á heimasíðu blaðsins. Það tryggir
öruggar sendingar og einnig að
efnið rati rétta leið í blaðið. Senda
má greinar, fréttir og myndir eins
og fram kemur á heimasíðu blaðsins.
Mismunandi tengingar
við Internet
Þeir sem hafa Netscape/Mosaic-
tengingu eiga hægt um vik að
tengjást blaðinu. Einungis þarf að
slá inn þá slóð sem gefin er upp
hér að framan.
Þeir sem ekki hafa Netscape/
Mosaic-tengingu geta nálgast
þessar upplýsingar með Gopher-
forritinu. Slóðin er einfaldlega
slegin inn eftir að forritið hefur
verið ræst.
Mótöld
Heppilegast er að nota a.m.k.
14.400 baud-mótald fyrir
Netscape/Mosaic tengingar. Hægt
er að nota afkastaminni mótöld
með Gopher-forritinu.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók vérður framvegis varðveitt i
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.