Morgunblaðið - 04.01.1996, Page 42
42 FIMMTUDAGUR 4. JANÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Ókeypis lögfræðiaðstoð
í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00
ísíma 551 1012.
Orator,
félag laganema.
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ
£□ Viltu auka afköst í starfi um alla framtíð?
£□ Viltu margfalda afköst í námi?
£□ Viltu lesa góðar bækur með meiri ánægju?
Ef svar þitt er jákvætt, skaltu skrá þig strax á næsta hrað-
lestramámskeið sem hefst fimmtudaginn 25. janúar n.k.
Skráning er í símum 564-2100 og 564-1091
I IRAJÐIJESnrRARSKÓL.INrsl
Utsala -
50% afsl. alltaf í vesturkjallaranum.
Mikið af: Bútasaumsefnum frá 296,-, jólaefnum frá 365,-,
fataefnum frá 150,- gardínuefnum o.fl.
V/RHA
Mörkin 3 við Suðurlandsbraut.
Sími 568-7477
Opið mán.-föst.
kl. I0- 18
og laugard.
kl. 10- 14.
Skrifstofutækni
Markmið námsins er að þjálfa nemendur til starfa á skrif-
stofum og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu.
Námið er mjög hagnýtt og byggist að verulegu leyti á
verklegum æfingum. Námið eykur samkeppnishæfni
nemenda og býr þá undir krefjandi störf á vinnumarkaði.
Helstu námsgreinar eru:
H Handfært bókhald
Rf Tölvugrunnur
H Ritvinnsla
S Töflureiknir
18 Verslunarreikningur
Gagnagrunnur
■ Mannleg samskipti
■ Tölvubókhald
■ Lokaverkefni
STARFSMENNTUN
fjárfesting til framtíðar
„Ég hafði samband við Tölvuskóla
Islands og ætlaði að fá undirstöðu
i bókhaldi og var mér bent á skrif-
stofutækninámið. Eftir að hafa
setið þetta nám þá tel ég mig mun
hæfari starfskraft en áður og nú
get ég nýtt mér þá kosti, sem
tölvuvinnslan hefur upþ á að
bjóða. Ég mæli eindregið með
þessu námi. “
Ólafur Benecííktsson,
starfsmaður Glófaxa.
Öll námsgögn innifalin
Tölvuskóli íslands
Höfðabakka 9 • Sími 567 14 66
I DAG
ÞESSI duglegn börn sem eru í 6. bekk E.B. í Selja-
skóla stóðu fyrir fjársöfnun á dögunum. Söfnuðu þau
5.050 krónum sem þau gáfu í söfnun Rauða kross ís-
iands fyrir börn í Júgóslavíu.
Með morgunkaffinu
Ást er ...
að njóta sólar, en gæta
þess að hún brenni ekki.
TM Rog. U.S. Pat Off. — all rights rosorved
(c) 1995 Los Angoles Tlmes Syndicato
ÞETTA byrjaði þannig að
ég rétti höndina út til að
athuga hvort hann rigndi.
Þá lét vegfarandi 50 kall
í lófa mér og síðan varð
ekki aftur snúið.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pctursson
HVITUR leikur
og vinnur
Staðan kom upp á Guð-
mundar Arasonar mótinu í
Hafnarfirði í desember.
Færeyjameistarinn Eyðun
Nolsoe (2.111 dönsk stig)
var með hvítt og átti leik,
en Bandaríkjamaðurinn
James Burden (2.160)
hafði svart.
29. Hxe5! — dxe5 (Eftir
29. — Hxe5 30. Df6+ fellur
svarti hrókurinn á h8) 30.
Bg4! og svartur gafst upp
því hann á ekki viðunandi
vörn við hótuninni
Hfl-dl+
Eyðun Nolsoe er
kunnur tónlistarmað-
ur í Færeyjum, en býr
í Kaupmannahöfn.
Hann fór heim til
Þórshafnar í haust til
að leika á styrkt-
artónleikum vegna
náttúruhamfara á ís-
landi. Þrátt fyrir að
hafa nóg á sinni
könnu kom hann á
óvart á Guðmundar
Arasonar mótinu með
ágætri frammistöðu en þó
ekki síður með mikilli bók-
legri þekkingu.
Hann var ekki á stiga-
listanum fyrir mótið, en
kemst nú inn með 2.170
stig og var að vonum
ánægður með það. Árang-
urinn hefði þó getað orðið
ennþá betri, hefði hann
ekki tapað fjórum skákum
í röð um miðbik mótsins.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Til
umhugsunar
í UPPHAFI var Orðið og
Orðið var frá Guði. Til-
vitnun. Vissulega er
þetta sannieikur. Orðið
hefur bara því miður ver-
ið misnotað gegnum ald-
irnar, af milliliðum, sem
enn þann dag í dag túlka
Orðið hver með sínum
hætti. Allir vilja þeir til-
einka sér Guð og þykjast
vita allt um hans vilja
og sökum þess berast
menn á banaspjótum.
Listin, tónlist, söng-
list, málaralist, sú ágæta
þrenning, hefur aldrei
sundrað. Hún hefur sam-
einað þakklæti okkar
mannanna til Skaparans,
sem gaf okkur lífið.
Að mínu viti er listin
Guði til dýrðar, driffjöðr-
in í starfi kirkjunnar.
Með ósk um einingu í
einum söfnuði landsins,
Langholtssöfnuði.
Guðrún Jacobsen,
Bergstaðastræti 34,
Reykjavík.
Tapað/fundið
' Selskinnshúfa
tapaðist
BRÚN selskinnsderhúfa
tapaðist rétt fyrir jól,
mögulega einhvers stað-
ar í Kringlunni eða í mið-
bænum nálægt Hótel
Borg. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma
568-1724.
Göngustafur
fannst
GÖNGUSTAFUR með
silfurhandfangi fannst
fýrir utan gæsluleikvöll-
inn við Tunguveg. Vitja
má stafsins þar eða
hringja í síma 553-2007.
Jakki, peysa og
trefill töpuðust
DÖKKGRÁR ullaijakki
af gerðinni French Con-
netion var tekinn í mis-
gripum á Hótel íslandi á
gamlárskvöld. Á sama
snaga var líka ljósgrá,
þykk peysa og ljósgrár
trefill. Kannist einhver
við að hafa þessi föt í
fórum sínum er hann
beðinn um að hringja í
síma 565-6405. Fundar-
laun.
Eyrnalokkur
fannst
GULLEYRNALOKKUR
fannst á Kirkjubraut,
Seltjarnarnesi, á nýárs-
dag. Upplýsingar í síma
561-2006.
Páfagaukur
fannst
LÍTILL páfagaukur
flaug inn um glugga í
Eskihlíð um hádegi á
gamlársdag. Upplýs-
ingar í síma 552-3889.
HÖGNIHREKKVÍSI
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI var að blaða í til-
boðshefti, sem sent var inn á
öll heimili í Reykjavík. Þar
er m.a. að finna allmörg tilboð um
pizzur eða flatbökur eins og ein-
hver stakk upp á sem nýyrði yfir
þennan ítalska rétt, sem svo mjög
hefur orðið vinsæil hér á landi á
síðustu árum.
í þessum litla pésa var tilboð frá
einum flatbökuframleiðandanum,
sem auglýsti „fría heimsendingar-
þjónustu" á flatböku, sem var lýst
með þessum hætti: Hún átti að
vera 16 þumlungar í þvermál og
henni fylgdi 12 þumlunga langt
hvítlauksbrauð og 2 lítrar af Coca
Cola. Verðið var 1.595 krónur fyrir
þennan skammt og sem sagt frí
heimsendingarþjónusta.
Í sömu auglýsingu var síðan aug-
lýst önnur baka, sem var lýst þann-
ig: Hún átti að vera 16 þumlungar
í þvermál og henni fylgdi 12 þuml-
unga langt hvítlauksbrauð og 2 lítr-
ar af Coca Cola, en tilboðsverðið
var 1.290 krónur eða 305 krónum
lægra en á flatbökunni sem send
var heim. Ekki kom fram hver
munurinn væri á bökunum, en hann
hlýtur að hafa verið talsverður úr
því að tekið var fram í fyrra tilboð-
inu, að heimsendingarþjónustan
væri „frí“.
XXX
ANNARS eru tilboð í kapp-
hlaupinu um athygli neytenda
oft spaugileg í jólaamstrinu. Vík-
veiji frétti af því að fyrirtæki hér
í borg hefði boðið sælgætið M&M,
sem eru skærlitar litlar súkkulaði-
pillur, „ókeypis" með einu skilyrði
þó: að menn keyptu lítinn plast-
karl, sem merktur var framleiðanda
súkkulaðipillnanna, M&M. Keyptu
menn karlinn fylgdu 800 g af pillun-
um með.
Skýringin á þessu mun vera sú
að heilbrigðiseftirlitið mun hafa
bannað sölu á þessum M&M súkku-
laðitöflum, þar sem það sá eitthvað
athugavert við litarefnin, sem notuð
eru í sykurhúðunina á töflunum.
Ríkið heldur þó áfram að selja þess-
ar litlu súkkulaðitöflur í fríhöfninni
í Leifsstöð og blæs á öll fyrirmæli
heilbrigðiseftirlitsins, sem sjálfsagt
hefur ekki lögsögu í Leifsstöð - eða
hvað? Hvers vegna er leyfilegt að
selja þessar töflur þar syðra en
ekki á almennum innlendum mark-
aði?