Morgunblaðið - 08.02.1996, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 08.02.1996, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 5 FRETTIR I bígerð að kaupa lyf án milligöngu umboðsmanna Skipin á Kanaríeyj- um of dýr ísafirði. Morgunblaðið. FULLTRÚAR nokkurra íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja fóru til Kan- aríeyja fyrir skömmu í þeim til- gangi að skoða frystitogara sem til sölu eru á eyjunum. Básafell hf. á ísafírði var á meðal þeirra fyrir- tækja sem áttu fulltrúa í ferðinni. Að sögn Pálma Stefánssonar hjá Básafelli bendir allt til þess að ekk- ert verði af skipakaupum frá eyjun- um suðrænu. „Okkur leist mjög vel á skipin sem slík en það þarf að gera töluvert við þau. Málið er að þegar menn fara að skoða skip sem þessi, halda allir skipasalar íslands að þeir geti selt skipin á helmingi hærra verði en menn eru að tala um og fá síðan engan til að kaupa,“ sagði Pálmi. Verð skipanna, sem eru um 400 brúttótonn, er um 120 milljónir króna, að viðbættum kostnaði við breytingar er verð þeirra komið í um 180 milljónir króna, sem þykir of hátt að sögn Pálma. Básafell leitar því enn að nýju skipi, en til stendur að selja skip fyrirtækisins, Hafrafell. -----» ♦ ------ Ekki brotið gegnjafn- réttislögum KÆRUNEFND jafnréttismála álít- ur að ekki hafi verið brotið gegn ákvæðum jafnréttislaga þegar kona var ráðin í starf umsjónarmanns við Langholtsskóla. Meðal umsækj- enda um starfið var karlmaður sem kærði ráðningu konunnar og taldi að með henni hefði verið brotið gegn ákvæðum jafnréttislaga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna ogkarla. í niðurstöðu kærunefndarinnar segir m.a. að ekki hafi verið gerðar neinar menntunarkröfur í auglýs- ingu um starfíð. Með menntun og starfsreynslu í huga verði að telja að báðir umsækjendur uppfylli þær kröfur sem gerðar voru. „Samkvæmt fyrirliggjandi gögn- um hallar verulega á konur í um- sjónarmannsstörfum hjá Reykjavík- urborg, en þær eru 8 af 29 umsjón- armönnum," segir m.a. í niðurstöð- unni. Að öllu þessu virtu var það mat kærunefndarinnar að ekki hafi verið brotið gegn ákvæðum jafn- réttislaga. -----» ♦ ♦----- Formanns- kjör í SFR í mars SIGRÍÐUR Kristinsdóttir lætur af starfi formanns Starfsmannafé- lags ríkisstofnana (SFR) á aðal- fundi félagsins 28. mars næstkom- andi eftir sex ára formennsku. Samkvæmt reglum SFR má enginn sitja lengur í stjórn en þrjú kjör- tímabil eða sex ár. Auk Sigríðar falla þrír aðrir stjómarmenn út vegna sömu reglu. Tillögur um nýjan formann og stjómarmenn skulu liggja fyrir 25 dögum fyrir aðalfundinn. Trúnaðar- mannaráð SFR hefur kosið uppstill- inganefnd til að undirbúa tillögu að stjóm og er stefnt að því að hún skili tillögu til trúnaðarmannaráðs 13. febrúar næstkomandi. Trúnað- armannaráð mun síðan afgreiða til- lögu sína að nýrri stjórn tveimur dögum síðar. í ATHUGUN er hjá Ríkisspítölum að byija að starfa eftir nýrri reglu- gerð um lyfjakaup sem gerir m.a. ráð fyrir að heimila möguleika á svokölluðum samhliða innkaupum, en þau fela í sér að stofnanir á borð við Ríkisspítalana eru ekki bundnar af því að kaupa tiltekin lyf af umboðsmönnum þeirra hérlendis, heldur geta leitað eftir þeim á ódýr- ari mörkuðum ytra. Opið útboð í fyrsta skipti Breytingar á reglum eiga að auka möguleika á að ná fram hag- kvæmni í lyfjainnkaupum að sögn Ingólfs Þórissonar, aðstoðarfor- stjóra Ríkisspítala. „Þessi möguleiki er að opnast og þessi þróun er byrj- uð að einhveiju leyti í nágranna- löndum okkar. Hugsanlega er þetta framtíðin í þessum efnum,“ segir hann. Hluti af sparnaðaráformum Rík- isspítala í ár er að efna. til opins útboðs um lyfjainnkaup og er það Útboðið er sameiginlegt með Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Fram- kvæmdin fer í gegnum Ríkiskaup og er stefnt að því að útboðið verði eftir um mánaðartíma. í framhaldi af því fara öll innkaup á lyfjum í gegnum Ríkiskaup með útboðum, nema þeim lyfjum sem aðeins einn aðili selur. Spara á tæpar 20 milljónir króna á Ríkisspítölum í lyfjainnkaupum á þessu ári, en þeir kaupa lyf fyrir 400-500 milljónir á ári. Auk þess sem útboð eiga að skila árangri leiðir samdráttur í rekstri til minni lyfjanotkunar, að sögn Ingólfs og aukið aðhald verður tekið upp inn- anhúss með lyfjanotkun. Verðkannanir og lokuð útboð hafa verið við lýði i fimm ár hjá Ríkisspítölum og segir Ingólfur að lyfjamarkaðurinn hafi verið að opn- ast stöðugt seinni ár hvað varðar möguleika á verðsamkeppni, auk þess sem aukin áhersla hafí verið lögð á aðhald í lyfjainnkaupum. fyrsta skipti sem það er gert. VHtulækka útgjöldin? Bókaðu þig á í] ármálanámskeið Búnaðarbankans! Það er hægt að ná miklum árangri í að lækka útgjöldin án þess að neita sér um alia ánægjulega hluti, ef fólk lætur skynsemina ráða í fjármálunum. Búnaðarbankinn mun standa fyrir röð af námskeiðum um fjármál fyrir alla aldurshópa. Þátttakendur fá vandaðar fjár- málahandbækur sem hafa verið samdar sérstaklega fyrir hvern aldurshóp. ttA>'Sr.4XlltitíS*J<ySUitA m .‘Ws&r... JPOL l!EIM»MSI.ÍN/\N Fjármál heimilisins :l Fjármál unga fólksins f J ARM AL AttA NO b Ö K (^JHINAIIAKBANKINN éíL 1 S - f NÁMS» m> LÍNAN .« (jt) BDNADAKHANKINN V~y -hvmiurtmHki Fjármál heimilisins Þar er fjallaö um ýmis atriði sem tengj- ast heimilisrekstri. Hvernig spara má í útgjöldum, lánamöguleika, ávöxtunarleiö- ir, heimilisbókhald, áætlanagerö, skatta- mál, húsnæöislán, kaup á íbúð o.fl. Verö 2000 kr. (3000 kr. fyrir hjón). Innifalin er vegleg fjármálahandbók og veitingar. Næstu námskeiö: Fjármál unga fólksins Nýtt námskeiö sem er sérstaklega ætlaö fólki á aldrinum 16 - 26 ára. Tekiö er á flestum þáttum fjármála sem geta komið upp hjá ungu fólki í námi og starfi. Verö 1000 kr. Innifalin er Fjármáiahandbók fyrir ungt fólk óg veitingar. Fjármál unglinga Fjármálanámskeiðiö er fyrir unglinga á aldrinum 12 -15 ára. Þar er leiðbeint um hvernig hægt er aö láta peningana endast betur, hvaö hlutirnir kosta og ýmislegt varöandi fjármál sem ungling- ar hafa áhuga á aö vita. Þátttakendur fá vandaða fjármálahandbók. Ath! Ekkert þátttökugjald. Veitingar. Mánudag 12. febrúar FJármál unglinga kl. 15 18 Þriöjudag 13. febrúar Fjármál heimilisins kl. 18 22 Miövikudag 14. febrúar Fjármál unglinga kl. 15 18 Fimmtudag 15. febrúar Fjármál heimilisins kl. 18 22 Þriðjudag 20. febrúar Fjármál unga fólksins kl. 18 22 BÚNAÐARBANKINN Nánari upplýsingar um námskelöin og skráning er í síma 525 6343 -traustur banki!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.