Morgunblaðið - 08.02.1996, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.02.1996, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 7 FRÉTTIR Námskynning 1996 í næsta mánuði „ Morgunblaðið/Árni Sæberg ASTA Kr. Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Námskynningar 1996, Markús H. Guðmundsson, aðstoðarforstöðumaður Hins hússins, og Anna Margrét Guðjónsdóttir, ferðamálafulltrúi Reykjavíkurborgar, bera saman bækur sínar. Ahersla lögð á blómlegt starf meðal ungs fólks „OKKUR langar að fara nýjar leið- ir og sýna fram á hvað ungmennin okkareru að vinna blómlegt starf,“ segir Asta Kr. Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Námskynning- ar 1996. Efnt verður til menningar- dagskrár í tengslum við námskynn- inguna í byijun mars. Asta segir að gert sé ráð fyrir að dagskrá námskynningarinnar standi yfir frá 8.-10. mars nk. Hún segir að reynt verði að höfða til áhugasamra frá efstu bekkjum grunnskóla og uppúr. Framhalds- skólamir hafi verið beðnir um framlag til kynningarinnar og kynning á námsmöguleikum eftir framhaldsskóla og símenntun fari fram í húsi listaskólanna i Laugar- nesinu, Sjómannaskólanum og á lóð Háskóla íslands milli kl. 13 og 18 á sunnudeginum. Hina dagana verður boðið upp á fjölbreytta menningardagskrá við hæfi ungs fólks, t.d. verða aukasýningar á leiksýningum framhaldsskólanna. Asta sagði mat manna að mikil- vægt væri að vekja athygli á því jákvæða sem í boði væri fyrir ungt fólk í samfélaginu þótt það tengd- ist ekki skólanámi nema með óbeinum hætti. Sem mótvægi við umræðuna um tilgangsleysi og óf- arir ungmenna verði athyglinni beint að hinum fjölmörgu verkefn- um sem ungt fólk fengist við. Hitt húsið sér um að skipuleggja menningardagskrána og Atvinnu- og menningarmálastofa Reykja- víkurborgar vinnur að því að auð- velda landsbyggðarfólki að sækja námskynninguna. Hópferðir verða frá skólum úti á landi til höfðu- borgarinnar í tilefni kynningarinn- ar. Upplýsingamiðstöð verður í Hinu húsinu við Aðalstræti. Viðræður í gangi við Ger GmbH. um gangagerð í Stuttgart Verkefni fyrir 150 milljómr GER GmbH., dótturfyrirtæki Ár- mannsfells hf. og íslenskra aðal- verktaka í Þýskalandi, hefur að und- anförnu staðið í samningaviðræðum við þýska stórfyrirtækið Hochtief AG um að íslenska fyrirtækið verði undirverktaki við gerð lestarganga í Stuttgart. Um 35 þúsund manns starfa hjá Hochtief AG, sem er eitt stærsta byggingarfyrirtæki Þýska- lands og starfar um allan heim. Að sögn Karls Þráinssonar verk- efnisstjóra hjá Ger í Þýskalandi mun niðurstaða fást í viðræður við fyrir- tækið á næstu tveimur vikum. Náist samkomulag geri hann ráð fyrir að 20-30 íslenskir iðnaðarmenn fái störf við gangagerðina, sem taka á um tvö ár, og væri um að ræða verk- efni fyrir um 150 milljónir fyrir Ger. Helmingslíkur á samkomulagi Um er að ræða jarðgangagerð í Stuttgart og er rætt um að Ger taki að sér steypuvinnu við þau. „Við höfum að undanförnu unnið að því að koma á tengslum við bygg- ingafyrirtæki í Þýskalandi til að komast að sem undirverktakar og þessar viðræður eru liður í þeirri vinnu. Málið er ekki í höfn en ég tel helmingslíkur á að allt fari eins og best verður á kosið,“ segir Karl. „Fari svo, styrkir það stöðu okkar á markaðinum og gerir okkur kleift að vera stöðugt með íslenska iðnað- armenn á svæðinu og ákveðna veltu í gangi, sern er mikilvægt meðan við erum að hasla okkur völl.“ Hann segir að Ger hafi m.a. notið þess í viðræðunum að geta sýnt full- trúum þýska fyrirtækisins fram á að móðurfyrirtækin, Ármannsfell og íslenskir aðalverktakar, séu vön stórum verkefnum og í stakk búin til að axla umrædda ábyrgð. Karl segir fleiri verkefni í burðar- liðnum ytra en þau séu of skammt á veg komin til að hægt sé að segja frá þeim enn sem komið er. Átta íbúðir seldar Ger byggði 20 íbúðir á sjö mán- uðum í Stuttgart í fyrra og er nú búið að selja átta þeirra. Þegar mest var tók á þriðja tug íslenskra iðnaðarmanna þátt í byggingu þeirra. Fyrirtækið auglýsti íbúðirn- ar um seinustu helgi og fékk góð viðbrögð. „Ástandið var mjög gott þegar við hófumst handa í mars á seinasta ári en markaðurinn hefur verið að breytast og við höfum goldið þess. Salan hefur orðið þyngri en við átt- um von á vegna þessara breytinga sem stafa af samdrætti í einka- neyslu og fjárfestingum almennings og þó að eftirspurn eftir húsnæði sé mikil, beinist hún aðallega að ódýrum íbúðum í félagslega kerfínu. Við teljum okkur hins vegar geta beðið og ráðgerðum byggingu átta íbúða í viðbót annars staðar í Stuttg- art,“ segir Karl. Umboðsmaður um lausar stöður hjá ríki Auglýsa ber í Lögbirtingablaðinu Dæmi um að auglýst sé í búðarglugga eða á götu UMBOÐSMAÐUR Alþingis segir að hin veigameiri störf og embætti ríkis- starfsmanna séu oftast auglýst í Lög- birtingablaðinu, eins og iög um rétt- indi og skyldur starfsmanna ríkisins kveði á um, auk þess sem þau séu auglýst í einu dagblaði eða fleirum. AÍiur gangur virðist hins vegar á hvernig aðrar stöður séu auglýstar. Algengast sé að þær séu auglýstar í Morgunblaðinu og í sumum tilvikum jafnframt í öðrum fjölmiðlum. Stund- um séu lausar stöður hins vegar aug- lýstar í héraðsblöðum, fjórðungsrit- um eða fagtímaritum og loks séu dæmi um að auglýsing hafi einungis verið sett upp í búðarglugga, á aug- iýsingatöflu í viðkomandi sveitarfé- lagi eða auglýst með götuauglýsingu. Umboðsmaður tók mál þetta til athugunar að eigin frumkvæði, enda hafði það vakið athygli hans að svo virtist sem mismunandi væri, hvort og þá í hvaða tilvikum lausar stöður ríkisstarfsmanna væru auglýstar. Umboðsmaður bendir á að sam- kvæmt skýrum lagaákvæðum eigi ávallt að auglýsa lausa stöðu í Lög- birtingablaði, en ekkert sé því til fyrirstöðu að staða sé jafnframt auglýst með öðrum hætti. Auglýsing í öðrum fjölmiðlum leysi stjórnvald hins vegar ekki und- an þeirri skyldu að auglýsa stöðuna í Lögbirtingablaðinu og með birtingu þar væri hægt að fá yfirsýn yfir öll laus störf hjá ríki, um leið og auð- velt væri að ganga úr skugga um hvort stjórnvald hafi sinnt þeirri skyldu sinni að auglýsa starf. Umboðsmaður mælist til þess við ráðherra í Stjórnarráði íslands, að séð verði til þess, að farið verði að réttarreglum, þar til þeim hafi verið breytt að lögum. Svefnherbergisdagar IKEA standa nú yfir. Að því tilefni bjóðum við landsmönnum í bíó. Fyrstu 200 sængurverasettunum fylgja tveir miðar í Stjörnubíó kl. 9:00, miðvikudaginn 14. febrúar á hina stórskemmtilegu fjölskyldumynd Jumanji með Robin Williams. fyrir fólkið í landinu Holtagöröum viö Holtaveg / Póstkröfusími 800 6850
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.