Morgunblaðið - 08.02.1996, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 08.02.1996, Blaðsíða 56
Afl þegar þörf krefurl RISC System / 6000 CQ> NÝHERJt MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUOCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Þriðja veika ungbarnið sótt til Kulusuk á Grænlandi í gær Vindhviður skóku vélina og varla sá út úr augum FLUGVÉL íslandsflugs sótti í gær þriðja ungbarnið til Kulu- suk í Grænlandi í þessari viku. Til stóð að sækja tvö veik börn en aðeins annað þeirra komst frá Ammassalik til Kulusuk. Óveður hamlaði því að hitt barn- ið kæmist. Börnin þjást af svo- nefndri RSV-sýkingu, sem leggst á öndunarfæri og getur verið verið skaðleg ungbörnum og börnum með t.d. hjarta- og lungnasjúkdóma. Tveir læknar og hjúkrunar- fræðingur frá Landspítala fóru héðan með flugvélinni. Að sögn Þórólfs Magnússonar flugstjóra var lent kl. 13.22 i Kulusuk. Um leið og vélin var lent lagði þyrla af stað frá Ammassalik til Kulu- suk með veika stúlku á fjórða mánuði og móður hennar. Venju- lega tekur 10 mínútur að fljúga á milli þorpanna en vegna óveð- urs var þyrlan 17 mínútur á leið- inni. Þyrluflugmaðurinn sá ekki til fjalla heldur fylgdi ísröndinni sem hann vissi hvemig lá til Kulusuk. Veður versnaði meðan á ferðinni stóð og þegar þyrlan ætlaði eftir hinu barninu, sem er aðeins tveggja vikna, sá ekki orðið á milli húsa í Ammassalik og ófært að lenda þar. Leist ekki á blikuna Þórður Þórkelsson barna- læknir sagði að sér hefði ekki meira en svo litist á blikuna í Kulusuk. Stundum sást varla út úr augum vegna skafrennings og ofankomu og flugvélin hrist- ist á flugvellinum í vindhviðun- um. Beðið var til kl. 17.24 í von um að veður skánaði. Það gerð- ist ekki heldur bætti í vind og úrkomu. Þórólfur Magnússon flug- stjóri sagði að vindur hafi lengstum verið 35-40 hnútar í Kulusuk en staðið beint á braut. Þegar einsýnt var að ekki yrði hægt að sækja yngra barnið var ákveðið að fara heim. „Við bið- um á meðan hryðja gekk yfir, svo var ekkert annað að gera en koma sér í burt,“ sagði Þór- ólfur. Hann fór í loftið kl. 17.24 og var 2 tíma og 15 mínútur heim. Hann sagði að flugveður á leiðinni hefði verið gott. Næstu dagar skera úr Þórður Þórkelsson sagði litlu stúlkunni heilsast þokkalega. Hún væri nokkuð mikið veik en næstu tveir dagar skæm úr um hvemig henni farnaðist. Hann sagði að haft yrði samband við lækna í Ammassalik í kvöld og haft samráð við þá um hvort reynt verður að sækja hitt bam- ið bráðlega. Þetta var þriðja ferð Þórðar til Grænlands í vetur eft- ir veikum böraum. Líðan barnanna tveggja, um eins mánaða drengs og stúlku, sem voru sótt á mánudag, er eftir atvikum góð að sögn Ás- geirs Haraldssonar yfirlæknis. Börnin Iiggja á Bamaspítala Hringsins. Morgunblaðið/Þorkell SJÚKRAFLUTNINGAMENN tóku við litlu grænlensku stúlk- unni, sem var flutt hingað til lands í hitakassa. Þetta var þriðja sjúkraflug Þórðar Þórkelssonar barnalæknis (í ljósblárri úlpu) eftir veikum börnum til Grænlands í vetur. ÞÓRÓLFUR Magnússon var flugsljóri í sjúkraflugi íslandsflugs til Kulusuk í gær. Hugmyndir nefndar um breytingar á vörugjöldum vegna kæru ESA Rætt um að hætta við nú- gildandi vörugialdskerfi Lægra þrep virðisaukaskatts hækki úr 14% í 15% og efra þrepið úr 24,5% í 25% VERULEGAR breytingar verða á -vörusköttum ríkisins ef hugmyndir nefndar, sem falið var að vinna að endurskoðun á vörugjöldum vegna kæru Eftirlitsstofnunar EFTA, ná fram að ganga. Samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins fela hugmynd- irnar meðal annars í sér að horfið verður frá núverandi vörugjaldskerfí og teknir upp magntollar í staðinn, auk þess sem lægra þrep virðisauka- skatts hækkar úr 14% í 15% og hærra þrepið úr 24,5% í 25% til þess að mæta hluta af því tekjutapi sem ríkisjóður verður fyrir vegna þessara breytinga. Ekki er gert ráð fyrir að t?eildartekjur ríkissjóðs breytist vegna þessa. Nefndin, sem skipuð er fulltrúum fjármálaráðuneytis, skattyfírvalda, Félags íslenskra stórkaupmanna og Samtaka iðnaðarins, hefur ekki skil- að af sér endanlegu nefndaráliti, en hugmyndir hennar hafa engu að síð- ur verið til umfjöllunar í ráðuneytinu. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur aðilum vinnumarkað- arins meðal annars verið kynntar þær og hefur verkalýðshreyfíngin eindregið lagst gegn þeim. Nefndin hefur ekki fundað nú um nokkum tíma en gert er ráð fyrir að hún komi saman í næstu viku og þá skýr- ist hvert framhald málsins verður. Verulegur dráttur hefur orðið á starfi nefndarinnar sem var upphaflega skipuð í júní á síðasta ári. Kæra Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), sem fór til EFTA-dómstólsins 20. janúar síðastliðinn, varðar tvö atriði í álagningu og innheimtu vöru- gjalds hér á landi. Annars vegar að það sé brot á EES-samningnum að áætla heildsöluálagningxi innfluttrar vöru við útreikning vörugjalds í stað þess að miða við raunverulegt verð, eins og gert er við innlenda vöru, en við innflutning _er heildsöluálagn- ingin áætluð 25%. I öðru lagi sé ólög- legt að veita innlendum framleiðend- um gjaldfrest á vörugjaldinu, en ekki erlendum. ísland er fyrsta landið sem kært er til EFTA-dómstólsins. Fjögurra miHjarða tekjutap Vörugjöld skila um þriggja millj- arða króna tekjum í ríkissjóð og að auki má gera ráð fyrir að tekjutap af virðisaukaskatti vegna tilfærslu milli þrepa og að hann leggst ofan á vörugjöldin sé um einn milljarður króna í viðbót. Samkvæmt heimildum blaðsins má því gera ráð fyrir að ríkissjóður verði af um fjórum millj- örðum króna í tekjum verði horfíð frá núverandi kerfi mismunandi hárra vörugjalda eftir vörutegundum og gjald á magn vöru tekið upp í staðinn fyrir gjald á verðmæti henn- ar. Þetta myndi þýða talsverðar inn- byrðis breytingar á verði einstakra vörutegunda því vörugjöld eru allt frá 6% og upp í 30% eftir vörutegund- um. Til að bæta upp tekjutap ríkis- sjóðs að hluta til er gert ráð fyrir að lægra þrep virðisaukaskatts, sem matvara er meðal annars í, hækki um eitt prósentustig úr 14% í 15%, en það myndi skapa ríkissjóði um 780 milljónir króna í auknar tekjur, samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins. Hækkun efra þreps virðisauka- skattsins úr 24,5% í 25% myndi þýða rúmlega 700 milljón króna tekjuauka til viðbótar, auk þess sem gert er ráð fyrir einhverri tilfærslu vörutegunda milli efra og neðra þrepsins. Tekjutap vegna afnáms vörugjalds af byggingavörum er talið nema um 850 milljónum króna, en á móti kem- ur að gert er ráð fyrir að hætt verði endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu á byggingastað, en það myndi þýða 1.100 milljón króna sparnað fyrir ríkissjóð, samkvæmt upplýsingum blaðsins. Eins og fyrr sagði er gert ráð fyrir óbreyttum heildartekjum ríkissjóðs þrátt fyrir þessar breytingar. Innheimta rafmagns- og hitareikninga Útboð meðal bankanna NU ER í undirbúningi að bjóða út meðal banka og sparisjóða innheimtu hita- og rafmagnsreikninga fyrir Hitaveitu Reykjavíkur og Rafmagns- veitu Reykjavíkur. Viðræður standa yfír við bankastofnanir þar sem út- boðskilmálar eru yfírfarnir, en að því búnu mun fara fram lokað útboð meðal þeirra, að sögn Alfreðs Þor- steinssonar, formanns stjórnar veitu- stofnana. Hann sagði að stefnt væri að því að innheimta þessi gjöld sameigin- lega í stað þess fyrirkomulags sem nú er, þ.e. að hvort fyrirtækið um sig sjái um sína innheimtu. Ekki væri frágengið hvort gjöldin yrðu innheimt í hveijum mánuði eða á tveggja mánaða fresti, eins og verið hefur, en hvort tveggja væri til um- ræðu. Mánaðarleg innheimta hefði þann kost að vanskil yrðu minni, en fyrirtækin væru nú að afskrifa um 50 milljónir á ári í töpuðum gjöldum. Tekur gildi á haustmánuðum Alfreð sagði að gert væri ráð fyr- ir að þetta nýja fyrirkomulag gæti tekið gildi á haustmánuðum. Talið væri að með því að bjóða innheimt- una út næðist kostnaður við hana niður, því ljóst væri að núverandi fyrirkomulag væri ekki hagkvæmt. -----♦------- Miðfirðir Austfjarða Sameigin- leg félags- mála- skrifstofa ITILLÖGUM að skipulagi opinberrar þjónustu fyrir miðfirði Austfjarða, það er Neskaupstað, Eskiíjörð og Reyðarfjörð, er gert ráð fyrir mjög víðtækri samvinnu við rekstur þess- ara þriggja sveitarfélaga og jafnvel sameiningu. Meðal annars er rætt um stofnun byggðasamlaga um fímm málaflokka og tveggja sameiginlegra stofnana. Á vegum Byggðastofnunar og sveitarfélaga er unnið að gerð svæð- isbundinna byggðaáætlana fyrir fjögur héruð. I þeim á að skipu- leggja opinbera þjónustu fyrir við- komandi svæði og atvinnuþróun. Fimm byggðasamlög Við áætlanagerðina hafa forystu- menn sveitarstjóma í Neskaupstað, á Eskifirði og Reyðarfírði komist að raun um að hægt er að spara fjár- muni með náinni samvinnu um ýmis verkefni og veita íbúunum betri þjón- ustu. Hugmyndir eru um að koma á fót byggðasamlögum um sameigin- lega stjómun og rekstur hafnanna á öllum stöðunum, sömuleiðis um brunavarnir, sjúkraflutninga, garð- yrkjustjóra og skipulagsstjóra. Þá er gert ráð fyrir að koma á fót tveimur sameiginlegum stofnunum, Tækni- og umhverfisstofnun og Félagsmála- skrifstofu. ■ Náin samvinna/28
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.