Morgunblaðið - 08.02.1996, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 08.02.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ERLEINIT FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 17 Sendu Irökum og1 Irönum plútóníum Washington. The Daily Telegraph. BANDARIKJAMENN greindu á þriðjudag frá því hve mikið plútó- níum, sem notað er í eldsneyti fyrir kjamakijúfa og í kjarnorkusprengj- ur, þeir hafa flutt út undanfarin 50 ár. Þar á meðal eru sendingar til Irana, Iraka og ísraela. Þeir síðast- nefndu hafa um langt skeið legið undir grun um að hafa þróað full- komin kjarnavopn og fengu sex tí- undu hluta af kílógrammi milli 1960 og 1969. Iranar fengu helmingi meira árið 1967 þegar Mohammed Rheza Phalevi var keisari í íran. ír- akar fengu 100 grömm af plútóníumi árið 1975. Tvö kílógrömm þarf að minnsta kosti til þess að smíða kjarn- ann í kjarnavopni. Ekkert kjarnorkuveldanna fimm, Bandaríkjanna, Bretlands, Kína, Frakka og Rússa, hefur áður birt upplýsingar af þessu tagi. Bill Clinton Bandaríkjaforseti hef- ur lýst yfir því að hann vilji gera aðgang að upplýsingum greiðari þar sem kalda stríðið sé á enda og birt- ing þessara upplýsinga er liður í þeirri viðleitni. Einnig hefur verið leitt að því getum að Rússar muni auka upplýsingastreymi um kjarn- orkuvopnaáætlanir sínar gerist Bandaríkjamenn opnari um þessi mál. Samkvæmt upplýsingum Bandaríkjastjórnar var plútóníum sent til 39 ríkja og átti stjórn Dwights Eisenhowers forseta upp- tökin með áætlun, sem nefndist Atóm fyrir frið og átti að hjálpa ríkjum heims til að nýta kjarnorku í friðsam- legum tilgangi. Reuter Forkosningar repúblikana í Louisiana Buchanan vann óvæntan sisrur Baton Rouge. Reuter. PAT Buchanan, íhaldssamur dálka- höfundur, vann afgerandi sigur í fyrstu glímunni í forkosningabar- áttu bandarískra repúblikana vegna forsetakosninganna í haust. í kjör- fundarkosningum í Louisiana í fyrradag fékk hann 62% atkvæða en Phil Gramm, öldungadeildar- þingmaður frá Texas, 38%. Tóku aðeins þrír frambjóðendanna níu þátt í kosningunni í Louisiana en líklega hafa þessi úrslit gert vonir Gramms að engu en fyrirfram var hann talinn sigurstranglegur í rík- inu. Þriðji frambjóðandinn, útvarps- maðurinn Alan Keyes, virðist ekki hafa komist á blað í Louisiana en Buchanan fékk 13 fulltrúa á lands- fund Repúblikanaflokksins en Gramm átta. Til að hljóta útnefn- ingu sem forsetaframbjóðandi repú- blikana þarf 996 fulltrúa á lands- fundi. Hinir sex frambjóðendurnir, þar á meðal þeir Bob Dole og Steve Forbes, sátu hjá til að halda í þá hefð, að forkosningarnar heflist í Iowa og New Hampshire. Kjörfund- arkosningar verða í Iowa nk. mánu- dag og átta dögum síðar í New Hampshire. Hægrisinnuð verndarstefna „Þetta er sigur hinnar nýju íhaldsstefnu, sem kemur frá hjart- anu, íhaldsstefnu trúrækninnar, fjölskyldunnar og föðurlandsins," sagði Buchanan þegar hann fagn- aði sigrinum en samkvæmt könnun- um getur hann þakkað sigurinn mikilli þátttöku kristinna hægri- manna, þar á meðal kaþólikka eins og hann er sjálfur. Einangrunar- hyggja og verndarstefna voru áber- andi í málflutningi Buchanans og virðist það hafa fallið í góðan jarð- veg hjá þeim, sem hafa minna en meðallaun. Aðeins 30.000 af 486.000 skráðum repúblikönum í Louisiana tóku þátt í kjörfunda- kosningunum. Úrslitin eru mikið áfall fýrir Phil Gramm, sem er úr nágrannaríkinu Texas og.hafði sjálfur spáð því, að hann fengi 21 fulltrúa eða þá alla. Búast nú margir við því, að forkosn- ingarnar muni hér eftir eingöngu snúast um þá þijá, Bob Dole, Steve Forbes og Pat Buchanan. Hundsuðu Louisiana Það er nýtt, að fyrstu forkosning- ar repúblikana séu í Louisiana en repúblikanar þar vona, að það geti orðið til að auka áhrif Suðurríkj- anna á val forsetaframbjóðandans. Flokksbræður þeirra í Iowa og New Hampshire brugðust hins vegar ókvæða við og fengu flesta fram- bjóðendur til að taka ekki þátt í Louisiana-kosningunni. Vill breyt- ingar á stofnskrá WARREN Christopher, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, hvatti i gær Yasser Arafat, leiðtoga Pal- estinu, tii að fella út kafla í stofn- skrá Frelsissamtaka Palestínu (PLO) frá 1964 þar sem hvatt er til tortímingar Israel. Christopher og Arafat áttu tæp- lega klukkustundar langan fund i þorpinu Beit Hanoun á Gaza-svæð- inu í gær. Sagði Arafat á blaða- mannafundi með Christopher að æðsta ráð PLO, sem í sitja 446 fulltrúar, sem og löggjafarsam- kunda Palestínumanna er kjörin var í janúar, myndu ræða um að fella út viðkomandi kafla. Leiðtogar PLO hittust á fundi í Egyptalandi á þriðjudag og sögðu að honum Ioknum að þeir hölluðust að því að heppilegra væri að semja algjörlega nýja stofnskrá í stað þess að breyta hinni gömlu. Israelar krefjast þess að stofn- skránni verði breytt áður en við- ræður hefjast um endanlega stöðu Vesturbakkans, Gaza-svæðisins og Austur-Jerúsalem. Þær viðræð- ur eiga að hefjast í maí. Jeltsín boðar auknar iðnaðarnjósnir Villvinnaupp tækniforskotið Moskvu. Reuter. Varað við áhrifum ofbeldis í sjónvarpi BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, skoraði í gær á háttsetta embættis- menn að vinna upp það forskot, sem vestræn ríki hefðu á Rússa í tækni- legum efnum, meðal annars með því að nýta betur þær upplýsingar, sem fengjust með iðnaðarnjosnum. „Samstarfssamningar hafa farið út um þúfur og samkeppnin á alþjóð- legum tæknimarkaði hefur aukist," sagði Jeltsín í upphafi fundar í örygg- isráðinu og fréttastofurnar Interfax og Itar-Tass höfðu eftir honum, að erlendar leyniþjónustur hefðu aukið mjög iðnaðamjósnir í Rússlandi. Því yrðu Rússar að herða á sínum eigin njósnum og nýta upplýsingarnar bet- ur. Jeltsín sagði einnig, að koma yrði í veg fyrir vaxandi flótta mennt- aðs fólks frá Rússlandi og hvatti til, að hergagnaiðnaðurinn yrði notaður í auknum mæli til borgaralegrar framleiðslu. Meðfylgjandi mynd var tekin á fundinum í gær en ystur til vinstri er Andrei Níkolajev, yfirmaður landamæravarðarins; Míkhaíl Barsúkov, yfirmaður öryggismála- stofnunar alríkisins; Anatolíj Kúlikov innanríkisráðherra; Pavel Gratsjov vamarmálaráðherra og Víktor Tsjemomyrdín forsætisráðherra. NÝ KÖNNUN gefur til kynna að Bandaríkjamenn læri ofbeldisfulla hegðun af því að horfa á sjón- varpsefni þar sem ofbeldisseggjum er yfirleitt ekki refsað og fórn- arlömbin finna ekki til sársauka. Könnunin staðfestir að ofbeldi sé ráðandi á dagskrám bandarí- skra sjónvarpsstöðva og kemur þar fram að í 57% dagskrárliða komi ofbeldi fyrir. Það sé hins vegar ekki eina vandamálið. Al- varlegra sé að ofbeldi sé oft gert sársaukalaust, lofsvert og fyndið, segir í skýrslu um ofbeldi í sjón- varpi, sem gerð var í samvinnu fjögurra bandarískra háskóla. Ofbeldi í 57% dagskrárliða í skýrslunni segir að ekki sé hætta á því að hver einasti sjón- varpsáhorfandi grípi til ofbeldis, en hættan sé fyrir hendi. „Fylgifiskar þess að horfa á algengustu ofbeldisatriði í sjón- varpi geta verið að fólk læri of- beldisfulla hegðun, hætti að skynja skaðlegar afleiðingar ofbeldis og ótti þess við að verða fyrir árás aukist,“ sagði í skýrslunni. Stofnunin Mediascope stóð fyrir rannsókninni og naut styrks frá samtökum bandarískra kapalsjón- varpsstöðva, en mest reyndist of- beldið í dagskrá þeirra. Joel Feder- man, rannsóknastjóri Mediascope, sagði á þriðjudag að ekki mætti rekja allt ofbeldi í bandarísku þjóð- félagi til sjónvarps, en það væri „verulegur hluti vandans". Rannsökuð var dagskrá á 23 stöðvum í 20 vikur 1994 og 1995 auk þess, sem fyrri rannsóknir á áhrifum ofbeldis í sjónvarpi voru teknar saman. í ljós kom að þeir, sem beittu valdi, sluppu við refs- ingu í 73% allra ofbeldisatriða og afleiðingar ofbeldis kæmu sjaldn- ast fram. í 58% tilvika sæist ekki að fórnarlamb fyndi til sársauka. í skýrslunni segir að lítið sé um áróður gegn ofbeldi. Byssur komi fyrir í fjórðungi allra ofbeldisatriða og í 39% tilvika séu þau gerð fynd- in. Viðvararnir um ofbeldi i sjón- varpi hafi oft hvetjandi áhrif, eink: um þegar drengir eigi í hlut. í skýrslunni er mælst til þess að dregið verði úr ofbeldi í sjónvarpi. Vilja Day- ton-lausn á * N-Irlandi ÍRSKA stjórnin hefur lagt til, að Dayton-samningarnir um frið í Bosníu verði hafðir sem fyrirmynd á Norður-írlandi. „Við leggjum til, að fulltrúar deiluaðila verði kvaddir til við- ræðna í tvo daga líkt og í Dayton," sagði Dick Spring, utanríkisráðherra íra, eftir fund með Sir Patrick Mayhew, Irlandsmálaráðherra bresku stjórnarinnar. Spring sagði, að Bretar hefðu enn ekki fall- ist á þessa hugmynd en Sam- ; bandsflokkurinn, flokkur mót- mælenda á Norður-írlandi, hefur hingað til ekki viljað setjast að samningaborði með IRA, írska lýðveldishernum. Ný stjórn í Póllandi ALEKSANDER Kwasniewski, forseti Póllands, féllst í gær á skipan nýrrar ríkisstjórnar undir forsæti Wlodzimierz Cimoszewicz. Er hún skipuð mörgum sömu ráðherrum og síðasta ríkisstjórn og þar á meðal fer Wieslaw Kaczmarek áfram með embætti einkavæð- ingarráðherra. Er mikil óánægja með það í Bænda- flokknum, samstarfsflokki Lýðræðislega vinstrabanda- lagsins í stjórn. Njósnabrigsl í Rússlandi YFIRVÖLD í Rússlandi hafa látið handtaka uppgjafa sjó- liðsforingja, Alexander Níkít- ín, sem safnaði upplýsingum um hættulegan kjarnorkuúr- gang fyrir norsk umhverfis- verndarsamtök. Er hann sak- aður um njósnir og landráð að sögn talsmanns að sögn Bellona-stofnunarinnar. Sagði hann, að stofnunin hefði ráðið lögfræðinga í Pétursborg og Moskvu til að veija hann. Samkvæmt upplýsingum Ník- ítíns stafar miklu meiri hætta af kjamorkuúrgangi á Kola- skaga en af nokkru slysi á borð við Tsjernobyl-slysið. Vilja leita lausna GRÍSKA stjórnin hefur brugð- ist vel við tillögum Bandaríkja- stjórnar um að hún leiti lausna á deilunni við Tyrki um óbyggðar klettaeyjar í Eyja- hafi. Grikkir segjast ráða þeim samkvæmt alþjóðasamningum frá 1923 og 1947 en Tyrkir halda því fram, að í samning- unum hafi ekkert verið kveðið á um þessi sker. Umdeild ósk um náðun MARIO Soares, forseti Port- úgals, hefur beðið þingið að náða félaga í samtökum vinstriöfgamanna, sem dæmd- ir voru fyrir morð og sprengju- tilræði á síðasta áratug. Þykir þessi ósk heldur vandræðaleg fýrir nýja stjórn jafnaðar- manna en Soares, sem er einn- ig jafnaðarmaður, hefur lengi viljað fá mennina lausa. Fyrri stjórn hægrimanna hafði margsinnis hafnað því og lík- lega er lítill stuðningur fyrir því á þingi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.