Morgunblaðið - 08.02.1996, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 08.02.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 23 _______ FJÖLMIÐLAR_____ CBS sendir út viðtal í tóbaksmáli New York. Reuter. CBS-sjónvarpið sendi nýverið út við- tal við fyrrverandi starfsmann tób- aksfyrirtækis, tæpum fjórum mánuð- um eftir að ákveðið var að sjónvarpa því ekki af ótta við málsókn. Kaflar úr viðtaii sjónvarpsþáttarins „60 Minutes" við fyrrum starfsmann Brown & Williamson Corp, Jeffrey Wigand, voru sýndir í kvöldfréttum CBS 26. janúar þegar frétt hafði birzt í Wall Street Journal um ásakanir Wigands á hendur fyrrverandi vinnu- veitanda sínum. Journal sagði að Wigand sakaði fyrrum stjórnarformann B&W, Thomas Sandefur, um að hafa sagt ósatt um þá skoðun sína að nikótín sé vanabindandi þrátt fyrir eiðsvarið loforð um að segja sannleikann. Wigand kom fram með þessa og fleiri ásakanir þegar hann bar vitni í máli, sem ríkið Mississippi höfðaði gegn tóbaksiðnaðinum til að bæta sér upp kostnað af meðferð reyking- armanna. Journal birti hluta endur- rits úr þingbók, þótt dómstóll hefði bannað slíkt. Yfirmaður CBS News, Andrew Heyward sagði: „ Við höfum beðið eftir tækifæri til að deila fréttinni um þetta alvarlega mál með banda- rískum almenningi." „Þar sem sagt hefur verið frá eiðs- vörðum vitnisburði Wigands,“ sagði Hauward í yfirlýsingu, „gafst okkur slíkt tækifæri." B&W neitaði að ræða við „60 Min- utes“ vegna fréttarinnar 26. janúar og segir fréttamaður „60 Minutes," Mike Wallace, að ástæðan sé sú að fyrirtækið hafi stefnt honum og öðr- um starfsmönnum CBS í málinu gegn Wigand fyrir að ijúfa samning um trúnað við fyrirtækið, Wigand er nú framhaldsskólakenn- ari í Louisville, Kentucky, og varð landskunnur í nóvember þegar„60 Minutes" sleppti viðtali við hann af ótta við lögsókn af hálfu B&W. Lög- fræðingar CBS óttuðust að ef samtal- ið yrði birt yrði það brot á trúnaðar- samningi þeim sem hann hafði gert viðfyrirtækið. Ákvörðunin um að sjónvarpa ekki viðtaiinu vakti almenna gagnrýni, einkum blaðamanna. Aðalgreinin í síðasta eintaki Columbia Journalism Review nefnist „Það sem læra má af uppgjöf 60 Minutes." Ákvörðunin vakti uppnám starfs- manna „60 Minutes". Fréttamaður- inn Morley Safer gagnrýndi Wallace fyrir að hafa ekki sagt sér allan sann- leikann um ákvörðunina um að sleppa viðtalinu áður en Safer kom fram í rabbþætti í opinberu sjónvarp til að verja hana. Fréttaskýrandi „60 Minutes", Andy Rooney, kvaðst hafa fengið skipun frá stjórnanda þáttarins, Don Hewitt, um að þynna út gagnrýni á málið. B&W heldur því fram að fyrirtæk- ið og starfsmenn þess hafi ekkert gert af sér. Gordon Smith, einn lög- fræðinga B&W í Atlanta, sagði Reut- er að Wigand væri lygari. Hins vegar sagði Wigand CBS í fréttinni 26. janúar að fyrirtækið reyndi að sverta hann með því að kalla hann meinsærismann og þjóf. Hann sagði líka að hann hefði fengið nokkrar morðhótanir síðan 1994. Pearson býður í SelecTV London. Reuter. PEARSON fjölmiðlafyrirtækið í Bretlandi hefur boðið 46 milljónir punda í sjónvarpsfyrirtækið SelecTV samkvæmt samkomulagi- og hyggst þar með auka dagskrár- gerð sína. Pearson ætlar aðeins að taka við dagskrárgerðar- og dreifingardeild- um SelecTV, sem hefur framleitt vinsæla þætti eins og „Auf Wied- ersehen Pet,“ „Lovejoy" og „Birds of a Feather.“ Fjarskiptafyrirtækið Carlton Com- munications mun kaupa kaplasjón- varpsrás SelecTV og fjölmiðlafyrir- tækið MAI tekur við 15% hlut SelecTV í einkasjónvarpinu Meridian. Allan McKeown, eiginmaður gam- anleikkonunnar Tracey Ullman stofn- aði SelecTV 1979. Pearson á Financ- iaJ Times og Penguin forlagið og deild- imar Thames og Grundy Worldwide hafa annazt dagskrárgerð. Hlutabréf í SelecTV hækkuðu um 25 pens í 28. Þau höfðu lækkað í 25 pens þegar SelecTV hafði skýrt frá 2.09 milljóna punda tapi á sex mánuðum til septemberloka 1995. Pearson hefur samþykkt að selja MAI hlut SelecTV í Meridian á Suð- austur-Englandi fyrir um 30 milljón- ir punda. MAI á fyrir 61% í Meri- dian og á einnig Ánglia sjónvarpið á Austur-Englandi. Pearson og MAI hafa samþykkt að hafa á hendi forystu í fyrirtækja- samtökum, sem munu hleypa af stokkunum fimmtu sjónvarpsrásinni (Channel 5) á næsta ári. SelecTV hafði áður selt Carlton kaplasjónvarpsrás sína. Carlton hyggst auka umsvif sín á vettvangi kapla- og gervihnattasjónvarps. Stöð SelecTV nær til 900.000 heimila í Bretlandi. Þættir frá SelecTV eru einnig meðal efnis sem áskrifendasjónvarpið Multichoice dreifir í suðurhluta Afríku. ------♦ ♦ ♦------ Skotárás á rit- stjóra í Nígeríu Lagos. Reuter. ÚTGEFANDI helzta óháða blaðsins í Nígeríu, Alex Ibru, hefur verið fluttur með flugvél til Englands vegna alvarlegra skotsára, sem hann hlaut þegar ókunnir menn reyndu að ráða hann af dögum. Að sögn The Guardian á Ibru á hættu að missa vinstra auga. Fimmt- án hafa verið handteknir vegna lög- reglurannsóknar á árásinni. Ástæður árásarinnar eru ókunn- ar, en sagt er að 60% líkur séu á að um misheppnað rán hafi verið að ræða. Hafi um pólitískt tilræði verið að ræða kveðst lögregla viðbú- in að mæta nýrri morðtilraun. Ibru er fyrrverandi innanríkisráð- herra í stjórn Sani Abacha hershöfð- ingja. Blöð og blaðamenn í Nígeríu búa við erfið starfsskilyrði vegna ókyrrðar í landinu. Árgerð 1 996 er komin - Full búð of nýjum glæsilegum fækjum 46" RISASKJAR 146" sjónvarpstæki • Innbýggður skjávarpi • 40W Nicam Stereo-macjnari • Surround-umhverfishljomur • Hraðtextavarp m/ísl. stöfum • 59 stöva minni • CTI/PSI-skerpustilling • Aðgerðastýringar á skjá • 2 Scart-tengi • Barnalæsing • °-A- • 37" sjónvarpstæki • Svartur FST-myndlampí Idsmóttak. RISASKJÁR 18.230,- ó mán. í 24 mánuði Me&ltobgieiislo m.v. Vbo-roSgrelklor, meS öllum kostooSi 056.500,- • 16:9 breiðtjaldsmóttaka • 40W Nicam Stereo-magnari • Surround-umhverfishljómur • Hraðtextavarp m/ísl. stöfum • CTI/PSI-skerpustilling |ðastýnngar á skjá ,-tenai (S-VHS) 277.900,= SKJAR Heimabíó-pokki Telefunken F 551 NDPL • 28" sjónvarpstæki • Svartur FST-myndlampi • 16:9 breiðtjalasmóttaka • 40W Nicam Stereo-magnari • Dolby Pro Logic Surround • 4 auka-hátalarar fylgja • Textavarp • CTI/PSI-skerpustilling • Aögerðastýringar á skjá • 2 Scart-tengi og S-VHS • 59 stöðva minni • Tímarofi, barnalæsing o.fl. Telefunken S-5400 • 29" sjónvarpstæki • Svartur D.I.V.A.-myndlampi • 16:9 breiðtjaldsmóttaka • 40W Nicam Stereo-magnari • Surround-umhverfishljomur 2.933,- ó mon. í 24 monuði Meöaltakgreiöslo m.v. Viso-ro&grei&slur, meö öllum kostnoöl I 1 Hraðtextavarp m/ísl. stöfum 1 CTI/PSI-skerpustillinq • Aðgerðastýrmgar á slcjá • 2 Scart-tengi og S-VHS • 59 stöðva minni • Cinema Zoom-aödráttur o.fl. 54.900 ¥ stgr. ~ ? ] T.l _ r 1 _ __ mm 1 1 AP/l • 6 hausa myndbandstæki • Show View meb PDC og VPS • Lonq Play • Foff^úpq fjarstýrinq • Jog-rofan'ljí|jtyringu • 2 Scart-tengi • Lengsta afspilun: lÓTtm^r • 9 hægmyndahrabar o.fl. TIL. MÁWAÐA Skipholti 1 9 Sími: 552 9800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.