Morgunblaðið - 08.02.1996, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 11
FRÉTTIR
Formaður
heilbrigðisnef ndar
Óeðlileg
leið til
aðafla
sértekna
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður
heilbrigðisnefndar Alþingis, kveðst
hallur undir sjónarmið lyfsala, sem
hafa kært Ríkisspítalana til Sam-
keppnisstofnunar vegna lyfsölu apó-
teka_ spítalanna.
„Ég held að það hafi ekki verið
ætlunin að apótek sjúkrahúsanna
væru sett upp til þess að standa í
samkeppni við apótekin í bænum.
Mér sýnist þróunin þó vera á þann
veg og sé fram á að apótek spítal-
anna gætu verið farin að standa í
verulegri samkeppni við almenna lyf-
sala þegar fram líða stundir," sagði
Össur.
„Mér finnst þetta ekki vera eðlileg
leið fyrir sjúkrahúsin til þess að afla
sértekja. Ég bendi líka á að verulegar
breytingar taka gildi innan tíðar í
lyfsölu og ófyrirséð er hvaða áhrif
þær hafa á apótekin. Mér fyndist
ekki rétt að sækja mjög harkalega
að apótekunum úr mörgum áttum í
einu ef niðurstaðan verður t.d. sú að
engar fjarlægðartakmarkanir þurfí
að vera milli apóteka," sagði Össur.
Sjúkrahús Reykjavíkur hefur
áform um að hefja lyfsölu á slysa-
deild. Einungis sparnaðurinn af því
nemur fimm milljónum kr. á ári, en
hann felst í því að hætt verður að
gefa sjúklingum á slysadeild litla
lyfjaskammta með sér heim sem tíðk-
ast hefur fram til þessa.
-----*—♦—«-----
Mótmæla
leikskóla í
Hæðargarði
ÍBÚUM í Hæðargarði í Reykjavík
var kynnt á fundi með Dagvist barna
á þriðjudag áform um byggingu leik-
skóli á svæðinu. Þeir hafa mótmælt
byggingu leikskólans og sagt að
umferð um hverfið muni aukast veru-
lega. Bergur Felixson, framkvæmda-
stjóri Dagvistar barna, segir að íbúar
hafí bent á annað byggingarsvæði,
í svokölluðum Grundargarði, sem er
gamall og gróinn skemmtigarður í
hverfínu. Bergur sagði að það hefði
verið skoðað en í ljós komið að það
hefði einnig valdið óánægju meðal
íbúa þar í grennd.
Borgarráð hafði frestað því að
taka ákvörðun um byggingu leikskól-
ans vegna mótmæla frá íbúunum.
Vinnuhópur um leikskólamál í Bú-
staða- og Smáíbúðahverfí sendi í gær
út tilkynningu, þar sem leiksskóla-
byggingunni er mótmælt og þess ósk-
( að, að „tekið verði tillit til þeirra
hundruða íbúa í Bústaða- og Smá-
íbúðahverfí sem hafa á öllum fundum
og með undirkriftum lýst sig andvíga
byggingu leikskóla við Hæðargarð"
og að íbúum hverfísins verði hjálpað
„að skipuleggja hverfið okkar þannig
að ekki verði aukin umferð í grennd
við skólana." Þá er vísað til sam-
þykkta Foreldrafélags og Kennarar-
áðs Breiðagerðisskóla gegn leikskóla-
byggingu við Hæðargarð.
Fyrir borgarráð á þriðjudag
rennur
Leiðbeiningabæklingur með skattframtali
hefur að geyma nauðsynlegar upplýsingar
varðandi framtalsgerðina. Kynntu þér
bæklinginn vel - og útfylling framtalsins
verður auðveldari en þig grunar.
Rétt útfyllt skattframtal tryggir þér rétta
skattlagningu.
Þá er minnt á mikilvægi þess að
varðveita launaseðla. Ef þörf
krefur eru þeir sönnun fyrir því
að staðgreiðsla hafi verið dregin
af launum.
Eyðublöð liggja frammi hjá skattstjórum
og umboðsmönnum þeirra, og í Reykjavík
í bönkum, bankaútibúum og sparisjóðum.
Skattframtalinu á að skila til skattstjóra í
viðkomandi umdæmi og mundu að taka
afrit af framtalinu áður en því er skilað.
Skilaðu tímanlega
og forðastu álag!
RIKISSKATTSTJORI
Búist er við að borgarráð fjalli um
þetta mál næstkomandi þriðjudag.
Bergur segir að þarna hafí verið fyr-
irhugað að reisa fjögurra deilda leik-
skóla fyrir rúmlega 100 börn. Hann
segir að töluverður hiti sé í íbúum
vegna þessa máls en hann geti það
eitt sagt að það vanti leikskóla í
þetta hverfí.
íbúar í Réttarholti, íbúðum aldr-
aðra, vilja að Reykjavíkurborg reisi
á svæðinu hjúkrunarheimili fyrir
aldraða en engin áform hafa verið
uppi um það.
- kjarni málsins!