Morgunblaðið - 08.02.1996, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 13
Bergmálsfólk í boði
Leikfélags Selfoss
Selfossi - „Það er stórkostlegt að
leikfélagsfólkið hér á Selfossi
skuli gera þetta fyrir okkur og
sannarlega eftirbreytnivert því
þetta fólk er ekki alltaf í leik-
húsunum," sagði Kolbrún Karls-
dóttir formaður vina- og líknar-
félagsins Bergmáls. Félagið
vinnur með krabbameinssjúkl-
ingum sem stuðnings- og afþrey-
ingarhópur.
Leikfélág Selfoss bauð hópn-
um til sýningar á verkinu Land
míns föður í leikhúsinu við Sig-
tún á Selfossi en síðasta helgi
var næstsíðasta sýningarhelgi
vetrarins á þessu vinsæla verki.
Forsvarsmenn leikfélagsins lýstu
sérstakri ánægju með komu
boðsgestanna og voru þeir boðn-
ir velkomnir við upphaf sýning-
arinnar. Leikfélagið hefur í vet-
ur notið góðs stuðnings frá KA
við uppfærslu verksins.
Höfum mikið að gefa
„Við eigum svo mikla vináttu
að við getum gefið hana öðrum,“
sagði Kolbrún Karlsdóttir um
inntak starfsins í Bergmáli. Fé-
lagið skipuleggur afþreyingu
fyrir fólk sem glímir við krabba-
meinssjúkdóma og er þar um að
ræða 40 manna hóp. Hópurinn
sem fór í leikhús á Selfossi var
einmitt í helgardvöl í Hlíðardals-
skóla um helgina en kjarni þeirra
sem starfa í Bergmáli var þar í
skóla á unglingsárum sinum og
Kolbrún segir að hvati þeirra sé
Jón Hjörleifur Jónsson, skóla-
stjóri og söngstjóri í Hlíðardals-
skóla og víðar.
„Við trúum því að fólki sem
líður vel á sálinni líði líka vel í
líkamanum og við viljum leyfa
fólki að kynnast og koma í veg
fyrir að það einangrist. Innbyrð-
is vinátta hefur mikið að segja
og markmið okkar er að styðja
þau og styrkja í því sjúkdóms-
stríði og gefa því eitthvað annað
að hugsa um og þá sérstaklega
það að þau séu okkur dýrmæt.
Fólk sem gengur í gegnum
svona sjúkdóm hefur mikinn
þroska til að bera og það er
mannbætandi að fá að umgang-
ast það. Bros þessa fólks er mik-
ils virði fyrir okkur og þau eru
sannarlega blóm í brjósti okk-
ar,“ sagði Kolbrún Karlsdóttir
formaður.
Skipulagt félagsstarf
Bergmál hefur skipulagt þijár
ferðir í sumar, í júní, júlí og
ágúst og eru ferðirnar miðaðar
við ástand fólks og getu til ferða-
laga. Árshátíð félagsins er 2.
mars og þangað er öllum boðið.
Félagið starfar án fasts framlags
en hefur fengið stuðning frá
heilbrigðisráðuneytinu og fleiri
aðilum. Kolbrún segir að félagið
leiti til fyrirtækja um stuðning
og segir að þeim sé oftast mjög
vel tekið. Það sé ómetanlegur
stuðningur að eiga stórhuga fólk
að.
Tengjum hjálpandi hendur
Kolbrún segir að fólk sem
glímir við krabbameinssjúkdóma
geti komist í samband við félagið
í gegnum Styrk, félag krabba-
meinssjúklinga og aðstandenda
þeirra, og svo með því að haf
beint samband við félagið.
„Ég upplifi það sem forréttindi
að fá að vinna í þessu verkefni.
Við erum að hjálpast að við þetta
allt saman og tengjum saman
hjálpandi hendur og það er mik-
ið til af góðu fólki á íslandi. Ef
það er til fólk sem stendur við
gluggann heima hjá sér og veit
ekki hvað það á að gera við tím-
ann, getur það haft samband við
okkur því hjá okkur er nóg að
gera,“ sagði Kolbrún Karlsdóttir,
formaður Bergmáls.
Morgunblaðið/Sigurður P. Bjömsson.
MORGUNBIRTA í byijun þorra á Húsavík.
Atvinnuleysis-
clögnm fækkar á
Húsavík
Húsavík - Atvinnumálakönnun,
sem gerð er árlega á Húsavík og
sem sýna á stöðu atvinnumála á
haustmánuðum ár hvert, hefur nú
verið birt og sýnir hún að atvinnu-
leysisdögum hefur fækkað allt frá
árinu 1992, en þá var ljöldinn
mestur, og jafnframt að þjónustu-
störfum fjölgar en framleiðslu-
störfum fækkar.
Atvinnurekendur á Húsavík eru
nú samkvæmt könnuninni 178 en
voru 181 á sama tíma fyrir ári.
Ný fyrirtæki töldust fimm en tíu
féllu út, smábátaútgerðum fjölgaði
um þrjár.
Heildarfjöldi starfsmanna er nú
1230 en var 1168 fyrir ári og
1075 árið 1993. Starfsfólki hefur
fjölgað í öllum starfsgreinum nema
fiskvinnslu, þar fækkaði um fimm.
Mest er fjölgunin í opinberri þjón-
ustu, en í hana bættust 38,5 störf,
í viðskipti bættust 28,5 störf og
fiskveiðar 26.
Við þjónustustörf voru nú um
61% Húsvíkinga en 39% við fram-
leiðslu og atvinnustörf. Fyrir ári var
hlutur þjónustunna1- 58% og fram-
leiðslustarfanna 42%. Þessi þróun
hefur átt sér stað undanfarin ár.
Atvinnuleysisdögum fækkaði
um 1894 á árinu frá fyrra ári og
hefur svo gengið frá árinu 1992
en þá urðu atvinnuleysisdagar
flestir.
Skýrslan hefur að geyma marg-
ar fleiri fróðlegar upplýsingar.
LANDIÐ
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
KOLBRUN Karlsdóttir. í miðið ásamt forsvarsmönnum leikfé-
lags Selfoss, Guðrúnu Höllu Jónsdóttur og Katrínu Karlsdóttur.
ÁNÆGÐIR sýningargestir fylltu áhorfendasalinn í litla leikhús-
inu við Sigtún á Selfossi.
NOKKRIR leikarar leikfélagsins áður en haldið var upp á svið.
Mats á tjóninu í Funa
að vænta í mars
Beðið með all-
ar ákvarðanir
ísafirði. - Viðlagatrygging íslands
hefur enn ekki lagt fram mat á tjón-
inu sem varð á sorpeyðingarstöðinni
Funa á ísafirði er snjóflóð féll á
stöðina í október á síðasta ári. „Það
er ekki búið að meta tjónið enn og
við bíðum því aðeins eftir tölum,“
sagði Kristján Þór Júlíussonar,
bæjarstjóri á ísafirði, í samtali við
blaðið.
Kristján Þór sagði ekki ljóst hvert
tjón bæjarins yrði og beðið yrði með
allar ákvarðanir um hvernig því
yrði mætt þar til endalegar tjónatöl-
ur liggja fyrir. „Þetta mál er þarf
að samræma. Málið er í fullum
gangi og unnið í fullu samráði við
bæjaryfirvöld á ísafirði, þau vita
nákvæmelga hvernig staðan er,“
sagði Geir Zoéga, framkvæmda-
stjóri Viðlagatryggingar íslands, í
samtali við blaðið.
-----» ♦ ♦-----
Hreint og* gott
vatn úr
göngunum
Isafirði. - Heilbrigðiseftirlit Vest-
fjarða hefur framkvæmd eina sýna-
töku á neysluvatni ísfirðinga eftir
að vatnið úr jarðgöngunum fór að
renna um kaldavatnskrana bæj-
arbúa og reyndist það mjög hreint
og gott, að sögn Antons Helgason-
ar, heilbrigðisfulltrúa.
Á síðasta ári voru tekin neyslu-
vatnssýni mánaðarlega og reyndist
þá um helmingur sýnanna neyslu-
hæfur. Fylgst verður með neyslu-
vatni ísfirðinga á sama hátt í fram-
tíðinni og sagðist heilbrigðisfulltrúi
eiga von á að vatnið héldist gott til
frambúðar. „Það eina sem getur
gerst er að vatnið mengist við við-
gerðir eða eitthvað slíkt, en vatnið
úr göngunum í dag er mjög gott,“
sagði Anton.
Nær snjólaust hefur verið á skíðasvæðum ísfirðinga
■swm
t
r
.JK53P-
Morgunblaðið/Siguijón J. Sigurðsson
EINS og sjá má á meðfylgjandi mynd sem tekin var í Tungudal
á sunnudag er lítill snjór þar til skíðaiðkana.
Undir-
búningur
hafinn að
skíðaviku
ísafirði - Nær snjólaust hefur verið
á skíðasvæðum ísfirðinga í Tungud-
al og á Seljalandsdal það sem af
er vetri. Tungudalur hefur enn ekki
verið opnaður og á Seljalandsdal
hefur einungis efri hluti svæðisins
verið opinn fyrir þá sem stunda
skíðaæfingar að staðaldri.
Að sögn Eyjólfs Bjarnasonar,
forstöðumanns tæknideildar ísa-
fjarðarkaupstaðar, sem hefur um-
sjón með skíðasvæðinu, vonast
menn þar á bæ að snjórinn fari að
koma, að minnsta kosti til fjalla,
svo skíðaáhugamenn geti farið að
taka fram búnað sinn.
„Snjóleysið hefur enn ekki haft
mikil áhrif á fjárhag skíðasvæðisins
en það er ljóst að úr verður að
rætast svo að um algjöran tekju-
missi verði ekki að ræða. Við gátum
opnað svæðið um jólaleytið 1994
og var þá opið fram á vor en á
þessum vetri höfum við ekki getað
auglýst svæðin opin fyrir almenn-
ing. Það hefur ekkert verið hægt.
að skíða í Tungudalnum í vetur og
á Seljalandsdal hefur efri hluti dals-
ins verið opinn fyrir þá sem stunda
skíðaæfingar,“ sagði Eyjólfur.
Eyjólfur sagði að árin 1987 og
1991 hefði skíðavertíðin ekki hafist
fyrr en um miðjan febrúar og því
væri ekki öll nótt úti enn hvað varð-
ar opnun skíðasvæðanna. „Tekjurn-
ar af svæðunum hafa verið um 5
milljónir ár hvert en á það skal bent
að janúar hefur alltaf verið tekjum-
innsti mánuðurinn vegna veðurfai’s-
ins og því er kannski ekki um svo
mikla tekjuminnkun að ræða, að
minnsta kosti ekki enn sem komið
er. Ef snjórinn fer að láta sjá sig
kemst allt í samt lag en ef ekki
verður eflaust um mikla tekjuminnk-
un að ræða,“ sagði Eyjólfur.
Eyjólfur sagði ennfremur að und-
irbúningur væri hafinn að hinni
árlegu skíðaviku ísfirðinga sem að
þessu sinni verður í byijun apríl og
væri sú vinna í höndum ferðamála-
nefndar kaupstaðarins.