Morgunblaðið - 08.02.1996, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 19
Guðmundur Þór Kárason brúðugerðarmaður
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
GUÐMUNDUR Þór Kárason brúðugerðarmaður ásamt
„skapvondu kanínunni'* Héðni.
Boðið í prufu hjá
Henson-fyrirtækinu
GUÐMUNDI Þór Kárasyni
brúðugerðarmanni hefur verið
boðið að taka þátt í prufu fyrir
brúðustjórnendur í höfuðvígi
Henson-fyrirtækisins í New York
dagana 17.-19. febrúar næstkom-
andi. Verður hann meðal 27 þátt-
takenda sem valdir voru úr hópi
hundruða brúðustjórnenda víðs-
vegar um heim.
„ Ahugi þessa virta fyrirtækis
er mikil viðurkenning fyrir mig
en þeir þjá Henson gera miklar
gæðakröfur. Ég geri mér engar
sérstakar vonir en ef vel gengur
er hugsanlegt að mér verði boðin
vinna hjá fyrirtækinu," segir
Guðmundur Þór.
Guðmundur Þór er 21 árs að
aldri og hefur starfað við brúðu-
gerð í hálft annað ár. Hefur hann
aðallega starfað fyrir sjónvarp
og gerði meðal annars stjórn-
málamannabrúðurnar sem voru
í sviðsljósinu í kosningasjónvarpi
Ríkissjónvarpsins í fyrra.
Á liðnu ári útbjó Guðmundur
Þór kynningarefni um sig og
störf sín og sendi á ýmsa staði í
Englandi og Bandaríkjunum.
Segir hann viðbrögð hafa verið
góð og meðal annars sé hægt að
nálgast þetta efni í Puppet Cent-
er í London.
Mikill heiður
„Síðan hringdu þeir í mig frá
Henson í New York um daginn
og sögðust vera mjög hrifnir af
þessu kynningarefni. Mér skilst
að efni af þessu tagi berist fyrir-
tækinu í viku hverri, þannig að
ég álft það ákaflega mikinn heið-
ur að vera boðið utan,“ segir
Guðmundur Þór og bætir við að
sér sé ekki kunnugt um að ís-
lenskir brúðugerðarmenn hafi
spreytt sig á vettvangi Henson-
fyrirtækisins áður.
Henson-fyrirtækið er kennt
við brúðugerðarmanninn Jim
Henson, sem meðal annars átti
heiðurinn af Prúðuleikurunum
góðkunnu. Hann er nú Iátinn en
sonur hans, Brian, mun hafa tek-
ið við stjórnartaumunum eftir
hans dag. Guðmundur Þór segir
að sér sé ekki kunnugt um hvort
hann sé enn í forsvari fyrir fyrir-
tækið.
Brúður Guðmundar Þórs
verða að líkindum ekki með í för
til New York en fyrirtækið vill
sjá þátttakendur vinna með Hen-
son-brúður. „Meira veit ég ekki,“
segir Guðmundur Þór, „en það
væri vissulega gaman að fá að
stjórna Prúðuleikurunum.“
Blásið í lúðra
TÓNLIST
í FÍII salnum
SAMSPILSTÓNLEIKAR
Flytjendur Eiríkur Óm Pálsson
trompet, Einar St Jónsson trompet,
Emil Friðfinnsson hom, Sigurður S.
Þorbergsson básúna og Sigurður
Smári Gylfason túba. Fimmtudagur
1. febrúar.
ÞESSIR fimm ágætu hljóðfæra-
leikarar hafa myndað með sér sam-
spilshóp og kynntu hann með sínum
fyrstu tónleikum sl. Iaugardag. Upp-
hafsverk tónleikanna var Canzona
eftir Gabrieli, stutt en fallegt verk.
Hafi Gabrieli, sem á sínum tíma (f.
1557) var snillingur í meðferð hljóð-
færa, skrifað Canzonuna fyrir blást-
urshljóðfæri hafa þau hljóðfæri verið
mjög ólík málmblásturhljóðfærunum
sem við notum í dag. Þetta hefur
bæði sína galla og kosti, auðveldara
er að skila leikninni á hljóðfærin í
dag en upprunalegi liturinn og áferð-
in næst ekki. Hljóðfærin í dag eru
einnig tónsterkari sem freistar hljóð-
færaleikarans til að spila of sterkt
og það varð einmitt tilfellið í þetta
skiptið, munurinn á veiku og sterku
spili var alltof mikill, spilið kom út
fyrir ramma stílsins. Þessi ágalli var
einnig í Madrigalanum eftir Monte-
verdi. Intrada und Allegri eftir Pál
Pampichler Pálsson gerði sig vel,
dálítið poppað, ekki sérlega frumlegt
né tískulegt en vel skrifað fyrir hljóð-
færin og fimmmenningarnir höfu
áreiðanlega gaman af að spila það.
Kvintett nr. 3 eftir Victor Evald var
miðjuverk tónleikanna, afar lítið
merkileg smíð, ekki merkilegri en
léleg karlakórslagasyrpa, Kvintett-
inn tók 17 langar mínútur. Scherzo
eftir óþekktan John Cheetham er
stutt verk sem þeir félagar spiluðu
ágætlega. Fisher Tull er einnig
finnanlegur í uppflettiritum, en verk
sem hann kallar Exhibition var
næstsíðast á efnisskránni, sex stutt-
ir þættir sem höfðu að markmiði að
kynna hvert hljóðfæri fyrir sig, góð
hugmynd en lítið meir. Síðast spiluðu
þeir svo þekktan spænskan dans
með kannske meira íslensku en
spánsku sexi.
Sem fyrr sagði, er hér um ágæta
hljóðfæraleikara að ræða, sem von-
andi ná að halda nópinn inn í fram-
tíðina og þróa sitt spil. Enn fmnst
mér stundum vanta svolítið á ná-
kvæman innri ryþma, og fyrir lítinn
sal FÍH spiluðu þeir of sterkt, p-spil
var yfirleitt of lítið með í spilinu.
Spilamátinn fer þó eftir því hvers
konar efnisskrá félagarnir ætla að
bjóða áheyrendum í framtíðinni.
Ragnar Björnsson
A vængjum söngsins
NATALIA Chow og Helgi Pétursson.
TONLIST
Hátcigskirkja
SÖNGUR OG ORGEL
Flytjendur Natalia Chow sópran-
söngkona og Helgi Pétursson orgel-
leikari. Sunnudagur 4. febrúar.
ÞAU hjón stárfa bæði við tónlist-
arkennslu á Húsavík og í Mývatns-
sveit og bæði eru þau organistar við
Húsavíkurkirkju og kenna við Tón-
listarskólana á báðum þessum stöð-
um. Natalia hefur það þó fram yfir
Helga að hún er góð söngkona og
lét sér nægja að koma fram sem slík
á tónleikunum í Háteigskirkju. Helgi
hóf annars tónleikana með Tokkötu
og fúgu í F-dúr eftir Buxtehude og
skilaði hann þessu upphafsverki tón-
leikanna skýru og vel mótuðu. Natal-
ia söng Bist du bei mir, eftir Bach.
Hún söng úr kórnum og því staðsett
langt frá orgelinu og má það vera
ástæðan fyrir nokkrum óróa í takti.
Natalia hefur annars mikið skólaða
rödd, sem þó er enn svolítið erfitt
að átta sig á. Nokkuð fékk undirrit-
aður á tilfinninguna að röddin hafi
verið þanin um of í námi og opnuð
um of á stuttum tíma. Röddin þarf
að fá að vaxa með eigandanum og
ekki borgar sig að reyna að taka
sæluna út fyrirfram, það getur kom-
ið niður á manni síðar. Lascia ch’io
pianga eftir Handel fékk meiri ró
yfir sig, en heimatilbúna kadensan í
lokin var ekki í stíl Handels. Helgi
lék því næst tvo sálmforleiki eftir
Bach, Herzlich tut mich verlangen,
sem ekki er einfalt að spila, þrátt
fyrir sitt hæga tempo. Erfitt getur
reyndar verið að fá jafnvægi í bæði
nótnaborðin á litla orgelið í kirkj-
unni, en hægri höndin var hér of
sterk auk þess að nokkurs óróleika
gætti hér í leik. Síðari forleikurinn,
Nun komm’ der Heiden Heiland,
upphafsforleikur Litlu orgelbókar-
innar og merkir stig Krists niður til
vor manna, hefði á þetta orgel betur
verið leikinn með grunnröddum ein-
um saman og kannske af meiri til-
fínningu fyrir þessum þætti Guðs-
sonar. En þetta sannar enn einu sinni
hversu þessir litlu forleikir eru krefj-
andi ef rétt er á haldið. 0 divine
Redeemer reynir mjög á flytjandann
og skilaði Natalia því vel, en fjar-
lægðin við orgelið hlýtur að hafa
gert henni erfitt fyrir. Röddina hafði
Natalia í Agnus Dei eftir Bizet, en
einhvem veginn vantaði dýpt í túlk-
unina. Aftur komu tveir forleikir úr
Litlu orgelbókinni, Gelobet sei’st du,
Jesu Christ, og Wenn wir in höchsten
Nöten sein, og enn sannar Bach yfir-
burði sína, en orgelið gefur að vísu
takmarkaða möguleika. Forvitnilegt
var að heyra sungið á mandarínsku
í 23 Davíðssálmi og virtist tungumál-
ið fara vel í söng við fyrstu heym.
í Ave Maríu Kaldalóns kom Natalia
á óvart með skýrum framburði text-
ans. Kannske ekki rétt að segja á
óvart, því skýran framburð ættu all-
ir söngvarar að temja sér, en hér
hefðu íslenskir söngvarar getað lært
af Nataliu. Enn kom forleikur úr
orgelbókinni, Liebster Jesu, og nú
gengu hlutimir upp. Lítið merkileg
tónsmíð, A dream of Paradise, eftir
H. Grey var næstsíðust á efnis-
skránni, vafalaust heppileg fyrir
röddina, en gjaman hefði ég viljað
heyra Nataliu halda út síðasta tón-
inn. Buxtehude Prelúdían og fúgan
í g-moll á vel við leikmáta Helga og
var góður endir á forvitnilegum tón-
leikum.
Ragnar Björnsson
MIÐALDRA?
ENGAN
VEGINN
Álag. Stress. Ofþreyta.
Meira og minna hluti af daglegu lífi.
Þess vegna Gericomplex.
Sérstaklega samansett til að halda þér í
líkamlegu og andlegu toppformi fram eftir
öllum aldri. Gericomplex inniheldur
yfir 20 vítamín og steinefni
og hið frábæra Ginseng
þykkni Ginseng G115.
Áhrifin?
Aukin líkamleg og
andleg vellíðan.
Bætt úthald.
Árangurinn?
Þú lítur vel út.
Þér líður vel.
GLÆDDU
Þú glæðir líf þitt lífi.
Éh
eilsuhúsið
Skólavörðustig & Kringlunni