Morgunblaðið - 08.02.1996, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 21
Hermikrákur
og goðsögur
MYNPOST
Gallcrí Greip
MÁLVERK
Sigtryggiir Bjami Baldvinsson. Opið
kl. 14-18 alla daga nema mánud. til
18. febr. Aðgangur ókeypis.
MENN njóta listaverka á ýmsa
vegu, en með mikilli einföldun (sem
oft gerir skoðandanum auðveldara
fyrir) má nálgast þau með vissa
skiptingu í huga: þau sem vísa fyrst
og fremst til eigin innri gilda, og
hin sem vísa til ytri þátta, hulinna
eða augljósra. Fyrrnefndu lista-
verkin snúast að mestu um efni og
form, myndbyggingu og ef til vill
samspilið við umhverfið, á meðan
hin síðari segja sögur, flytja boð-
skap eða kveikja tilfinningar með
ábendingum út fyrir sjálf sig.
Sigtryggur Bjami Baldvinsson er
í hópi þeirra yngri listamanna sem
einkum fást við að skapa myndverk
af síðari gerðinni, en verk hans hafa
vakið verðskuldaða eftirtekt undan-
farið ár. Á fyrstu einkasýningu hans
síðasta vor vakti athygli samræða
ýmissa verka hans við listasöguna,
og á þessari litlu sýningu (hér eru
aðeins sex málverk) heldur hann
áfram á sömu braut, þó einnig komi
fleiri þætti til.
Hefðin hefur verið sterk í gegnum
tíðina hvað varðar lögun myndverka;
ferningurinn hefur verið ríkjandi, þó
ýmsir listamenn hafí þar bryddað upp
á öðru í gegnum tíðina. Sigtryggur
Bjami notar oftar en ekki aðra flatar-
gerð, einkum kringlótta og spor-
Stríðsbrúður
KVIKMYNPIR
lláskólabíó
FRÖNSK KONA (Une
Femme Francaise) ★ ★ Vi
Leikstjóri Regis Wargnier. Kvik-
myndatökustjóri Francois Catonne.
Tónlist Patrick Doyle. Aðalleikendur
Emmanuelle Beart, Daniel Auteuil,
Gabriel Barylb, Jean-Claude Brially,
Heinz Bennent. Þýsk/frönsk. UGC
1995. Sænskir skýringartextar.
JEANNE (Emmanuelle Beart) og
atvinnuhermaðurinn Louis (Daniel
Auteuil), ganga í það heilaga þegar
síðari heimsstyijöldin er að skella á
og verður hjónaband þeirra æ síðan
í skugga styijalda. Louis er tekinn
til fanga af Þjóðveijum, er síðan eft-
ir atríðslok sendur til Berlínar. Þegar
Þýskalandsdvölinni lýkur taka við
átökin í Indókína, að síðustu starfar
hann sem hermálaráðunautur á veg-
um stjórnar sinnar í Damaskus.
Jeanne stendur sig ekki sem
stríðsbrúður. Allt frá því hún fær
skilaboð frá manni sínum í fangabúð-
unum, leggur hún lag sitt við aðra
karla - byijar á sendlinum. Áhorf-
andinn leitar einhverra annarra skýr-
inga en leiða og sútar en fátt er um
svör. Beart leikur þessa ótraustu
konu á heldur lágum nótum, starir
gjarnan fögrum augum eitthvað afar
íjarrænt út í buskann og skapar sér
litla samúð áhorfandans. Hann tekur
hinsvegar út fyrir kvöl eiginmanns-
ins, sem Daniel Auteuil leikur af
miklu innsæi.
Leikstjórinn, Wargnier, sem á að
baki a.m.k. eina, ágætismynd./ndó-
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stopp í grannskólum
SÝNINGAR á umferðarleikritinu
Stopp standa yfir um þessar
mundir. Um er að ræða farand-
sýningu fyrir 9-10 ára skólabörn
sem tekur um 40 mínútur í flutn-
ingi.
Það er Stoppleikhópurinn sem
stendur að leiksýningunni í sam-
vinnu við Skólaskrifstofu Reykja-
víkur og Sjóvá/Almennar. Leik-
ritið verður sýnt í flestum grunn-
skólum Reykjavíkur en ætlunin
er síðan að fara með það um land
allt og sýna í grunnskólum.
Öll hlutverk í Stopp eru leikin
af Dofra Hermannssyni, Hinrik
Ólafssyni og Katrínu Þorkelsdótt-
ur, sem eru á meðfylgjandi mynd
sem tekin var á sýningu í Breið-
holtsskóla. Gunnar Gunnsteinsson
skrifaði handritið og leikstjóri er
Eggert Kaaber.
LISTIR
öskjulaga eftir því sem honum finnst
myndefnin bjóða upp á. Hér er að
fínna tvö lítil kringlótt verk sem vísa
með ákveðnum hætti til Op-listarinn-
ar, þar sem fletirnir gera vissa sjón-
villu mögulega og kalla fram hreyf-
ingu, þar sem allt er þó kyrrt.
Önnur málverk listamannsins
vísa með einum eða öðrum hætti
út fyrir sig, og að þessu sinni vinn-
ur hann þau ekki aðeins út frá
listasögunni, heldur einnig út frá
goðsögnum og orðvenjum, sem allir
þekkja til. Litaval Sigtryggs Bjarna
er nokkuð sérstakt, og einkennist
öðru fremur af dokkum blæbrigðum,
einkum grænum og bláum; við skoð-
un verkanna tengist þetta litaspil
öðru fremur öryggi og hlýju, sem
hentar vel þeim viðfangsefnum, sem
hann hefur valið sér.
„Starrar við brunn“ dregur strax
að sér athygli, enda skemmtilegt
verk; umgjörð þess minnir á austur-
lenska sessu, en spegilmyndin í
brunninum vísar mjög sterkt til
ákveðins verks Jóns Stefánssonar,
og þar með listasögunnar í heild. Á
síðasta ári varð nokkur umræða
vegna fijálslegrar meðferðar lista-
manns á verkum gömlu meistaranna,
SIGTRYGGUR Bjarni
Baldvinsson: Starrar við
brunn. 1995.
og hér blandar Sigtryggur Bjarni sér
í hana með sínum hætti; listamenn
eru sem starrar, hermikrákur, sem
sitja við brunn listasögunnar og
nærast á ríkulegum efnivið hennar.
Goðsagan um Narkissos og Ekkó
er meðal fegurstu sagna grískrar
goðafræði, en hér er hún færð í nokk-
uð annan búning en almennast er;
regn afskorinna blóma niður á vatns-
flötinn er ekki síður áminning um
fegurð lífsins en fallvaltleika þess.
Flestir kannast við hugtakið „í
kyrrþey" í samhengi útfara náinna
ættingja, sem ekki vildu láta um-
stang þessa heims fylgja sér til
hinstu hvílu. Þessi tilfínning kemst
vel til skila hér, þar sem egglaga
verkið vísar þó á sama tíma til
endurnýjunar lífsins með forminu
íinu saman.
í Galleríi Greip er örlítill og þröng-
ur rýmisangi til hliðar og niður af
salnum, sem oft hefur að geyma
skemmtileg verk, eins konar viðbót
við það sem sýnt er uppi. Svo er einn-
ig að þessu sinni: „Biðin“ er hin ei-
lífa bið ævintýranna - og lífsins -
eftir tækifærinu sem þarf til að við
náum að mannast. Hvort það kemur
eða hvenær verður tíminn einn að
skera úr um.
Sýning Sigtryggs Bjarna fer vel í
þessu litla rými, og er rétt að hvetja
listunnendur til að líta inn og fylgj-
ast með þróun þessa unga lista-
manns.
Eiríkur Þorláksson
^ Stjórntækniskóli íslands
Höföabakka 9
Sími 567 1466
MARKAÐSFRÆÐI
Stjórntækniskóli Islands
gefur þér kost á beinskeyttu 250 stunda námi í markaðs-
fræðum. Náminu er ætlað að koma til móts við sívaxandi
kröfur atvinnulífsins um hæfari starfskrafta. Námið er ætlað
fólki, sem vill bæta við sig þekkingu og fá innsýn í heim
markaðsfræðanna.
Markmið
námsins er meðal annars að þátttakendur tileinki sér
markaðshugsun í íslensku viðskipta- og athafnalífi og nái
þannig betri árangri.
Námið
er í formi fyrirlestra og verkefnavinnu og tekin eru próf
í einstökum greinum.
Kennarar
eru allir háskólamenntaðir og eiga að baki góða reynslu við
kennslu og í viðskiptalífinu.
Námsgreinar:
Markaðsfræði.
Sölustjórnun og sölutækni.
Vöruþróun.
Vörustjórnun.
Stjórnun og sjálfstyrking.
Auglýsingar.
Tölvunotkun í áætlanagerð.
Viðskiptasiðferði.
kína, tekur hér allt annan pól í hæð-
ina, segir dapurlega hliðarsögu af
stríðsrekstri og löngum ljarvistum
sem laða fram hin óyndislegu við-
brögð konunnar en karlinn fær ekk-
ert að gert. Lítil skýring fæst á nán-
ast ósjálfráðri þörf Jeanne fyrir nýja
bólfélaga og tryggð hennar við hinn
kokkálaða Louis. Öll er þessi saga
einkar vandræðaleg og óþægileg og
leikur Beart ekki til að glæða áhug-
ann á hinni brokkgengu stríðsbrúði.
Það má vera að Frönsk kona gjaldi
fyrir óaðlaðandi söguna, hinsvegar
er Wargnier með flest annað á þurru.
Útlitið er óaðfínnanlegt, en myndin
spannar hartnær tvo áratugi, m.a.
Berlín í stríðslok, tónlistin er seið-
andi og karlmennirnir komast vel frá
sínu. Einkum Auteuil sem kokkálað-
ur, niðurbrotinn eiginmaður og
Gabrriel Barylli í hlutverki þýsks
elskhuga Jeanne. Samskipti hinna
frönsku- og þýskumælandi persóna
myndarinnar eru forvitnileg og tákn-
ræn fyrir samvistir þeirra.
Sæbjörn Valdimarsson
„Ég mæli með
náminu fyrir alla
þá, er starfa við
markaðs- og
sölustörf. Ég
hef verið í sölu-
mennsku í 6 ár
og námskeiðið hefur nýst mér
vel í starfi. Fjölbreytt og
áhugavert námskeið."
Elísabet Ólafsdóttir,
Eggert Kristjánsson hf.
„Ég mæli tví-
mælalaust
með þessu
námi fyrir alla
þá sem eitthvað
eru tengdir
markaðs-, sölu-,
upplýsinga-, skipulags-, og/
eða framleiðslumálum sinna
fyrirtækja."
Hendricus Bjarnason,
Skýrr
Starfsmenntun. Fjárfesting til framtíðar.
Sími 567 1466. Opið til kl. 22.00.
|>ú ert
eiseoSvsTEMS
• CISCO er mest seldi netbúnaður
í heiminum í dag.
• CISCO fyrir Samnetið / ISDN,
Internetið og allar nettengingar.
Hátækni til framfara
Tæknival
Skeifunni 17 • Sfmi 568-1665 • Fax 568-0664