Morgunblaðið - 08.02.1996, Síða 29
28 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 29
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
BYLTINGAR-
KENNDAR
UMBÆTUR
GERBREYTING verður um næstu áramót á gerð fjárlaga
og reikningsskilum ríkissjóðs samkvæmt frumvarpi, sem
Friðrik Sophusson, íjármálaráðherra, hefur lagt fram á Al-
þingi. Allar fjárreiður ríkisins verða miklu aðgengilegri fyrir
þá, sem þurfa að fjalla um opinber fjármál, svo og fyrir almenn-
ing. Fjármálaráðherra segir, að frumvarpið færi okkur í
fremstu röð þjóða um uppsetningu fjárlaga og ríkisreiknings
og framkvæmd ríkisfjármála.
Frumvarpið gerir ráð fyrir, að reikningsskil ríkisins miðist
við bókhalds- og reikningsskilaaðferðir atvinnufyrirtækja. Það
felur m.a í sér gerð rekstrarreiknings, efnahagsreiknings og
yfirlit um sjóðsstreymi. Breytingarnar ná jafnframt til fram-
setningar fjárlaga. Þau ná yfir fleiri aðila en fyrr og upplýs-
ingar verða miklu fyllri. Fjárlögin verða í fimm hlutum; ríkis-
sjóður og ríkisstofnanir (A), ríkisfyrirtæki (B), Lánastofnanir
ríkisins (C), fjármálastofnanir ríkisins (D), og sameignar- og
hlutafélög í meirihlutaeign ríkisins (E). Þetta þýðir m.a., að
gerð verður grein fyrir reikningum lánasjóða, ríkisbanka og
félaga með meirihlutaaðild ríkisins. Mikil framför verður í
opinberum reikningsskilum með því, að yfirlit verða birt um
lántökur, skuldbindandi samninga og ábyrgðir utan efnahags-
reiknings ríkissjóðs. Lánsfjárlög verða felld inn í fjárlög, enda
verða ákvarðanir um lántökur og ábyrgðir teknar við af-
greiðslu þeirra á Alþingi.
Breytingarnar fela í sér mánaðarlegt greiðsluuppgjör og
tvívegis á ári verður lagður fram árshlutareikningur. Þetta
auðveldar eftirlit með ríkisrekstrinum og hvort ákvæðum fjár-
laga sé framfylgt. Fyrr verður því unnt að grípa til aðgerða
en áður.
Eitt mikilvægasta nýmælið í frumvarpinu er ákvæði þess
efnis, að því fylgi áætlun um ríkisbúskapinn næstu þrjú árin.
Þar verður gerð grein fyrir horfum, svo og stefnu ríkisstjórnar
í ríkisfjármálum. Slík áætlun auðveldar alla stefnumörkun og
vitræna stjórnun í meðferð opinbers fjár, jafnt hjá ríkissjóði
og ríkisstofnunum. Atvinnufyrirtækin og heimili geta og betur
skipulagt fjármál sín fram í tímann, þegar ljóst er við hveiju
má búast í stjórn ríkisfjármála.
Hér eru á ferðinni byltingarkenndar umbætur í meðferð ríkis-
^fjármála, sem marka tímamót. Friðrik Sophusson, fjármálaráð-
herra, og samstarfsmenn hans í fjármálaráðuneytinu hafa
unnið merkilegt starf með framlagningu þessa frumvarps.
RÉTT ÁKVÖRÐUN Á
AKUREYRI
BÆJARSTJÓRN Akureyrar gerði rétt í að samþykkja fjár-
hagsáætlun Framkvæmdasjóðs Akureyrarbæjar, þar sem
gert er ráð fyrir sölu á öllum hlutabréfum Akureyrarbæjar á
þessu ári. Þyngst vegur að sjálfsögðu ákvörðun bæjarstjórnar-
innar um að selja 53% eignarhlut Akureyrarbæjar í Utgerðarfé-
lagi Akureyringa. Sá hlutur er að nafnvirði tæpar 410 milljón-
ir króna, en markaðsverð bréfanna er a.m.k. um 1.300 milljón-
ir króna og líklega mun hærra, sérstaklega ef meirihlutaeign
bæjarins verður seld í einu lagi.
Nú verður það verkefni bæjaryfirvalda að koma hlutabréfa-
eign sinni í verð og reyna að fá sem best verð fyrir eign sína.
Slík sala kemur skattgreiðendum Akureyrar til góða. Það er
auðvitað mikilvægt fyrir hagsmuni heimamanna, eins og Jakob
Björnsson bæjarstjóri á Akureyri hefur sagt, að burðarás í
atvinnulífi Akureyringa eins og Útgerðarfélag Akureyringa,
verði áfram til staðar á Akureyri.
Á hinn bóginn ætti ekki að vera ástæða til þess að óttast
að nýir eigendur hefðu í hyggju að flytja fyrirtækið frá Akur-
eyri. Þar liggja rætur þess, þar eru vinnutækin, vinnsluaðstað-
an, húsakosturinn og starfsfólkið.
Markmið bæjarstjórnar með fyrirhugaðri hlutabréfasölu er
að greiða niður skuldir framkvæmdasjóðs og bæjarsjóðs og
auka þannig svigrúm til framkvæmda og atvinnuþróunar. Slík
markmið eru að sjálfsögðu góðra gjalda verð, en kjarni máls-
ins hlýtur engu að síður að vera sá, að bæjarfélög eiga ekki
að standa í sjálfstæðum atvinnurekstri sem er í beinni sam-
keppni við einkarekin atvinnufyrirtæki. Tími bæjarútgerða er
löngu liðinn og nú þegar vel árar hjá Útgerðarfélagi Akur-
eyringa er rétti tíminn hjá bæjarfélaginu að losa sig út úr
þeim rekstri.
Meginverkefni stjórnvalda, bæjar- og sveitarstjórna, á sviði
atvinnulífsins á auðvitað að vera að skapa atvinnulífinu heil-
brigð rekstrarskilyrði, þannig að frjáls samkeppni fyrirtækja
geti blómstrað, án þess að til beinnar þátttöku ríkisvalds eða
bæjarfélaga komi í rekstrinum.
SVÆÐISBUNDNAR BYGGÐAÁÆTLANIR
AUSTFJARÐAÞOKAN læðist inn Reyðarfjörð. Mjóeyri í Eskifirði í forgrunni.
Morgunblaðið/Sverrir
T<: í
A
VEGUM Byggðastofnunar
og sveitarfélaga er verið
að vinna að svæðisbundn-
um byggðaáætlunum í
fjórum héruðum, á Miðfjörðum Aust-
§arða, í Norður-Þingeyjarsýslu, Vest-
ur-Húnavatnssýslu og Skaftárhreppi.
Vinna við áætlanagerðina er mislangt
á veg komin, lengst í Skaftárhreppi.
Þá fer það eftir aðstæðum á hvetjum
stað á hvaða þætti er lögð áhersla.
Sigurður Guðmundsson, forstöðu-
maður þróunarsviðs Byggðastofnun-
ar, segir að í byggðaáætlun eigi að
skipuleggja opinbera þjónustu fyrir
allt svæðið og fjalla um helstu mark-
mið í atvinnuþróun. Tekið sé jafnt á
aðgerðum ríkisvalds og heimamanna
og megi líta á niðurstöðuna sem
rammasamning milli ríkisvaldsins og
viðkomandi sveitarstjórna um þessa
þætti.
Til þess að varpa ljósi á þessi verk-
efni er hér á eftir sagt frá vinnu við
áætlun fyrir Skaftárhrepp í Vestur-
Skaftafellssýslu annars vegar og Nes-
kaupstað, Eskifjörð og Reyðarfjörð
hins vegar.
Uppbygging opinberrar
þjónustu
Vinna við svæðisbundna byggða-
áætlun fyrir Skaftárhrepp fyrir árin
1996 til 1999 er langt komin enda
er það verk væntanlega einfaldast þar
sem svæðið hefur áður sameinast í
eitt sveitarfélag og landbúnaður er
aðalatvinnugreinin í hreppnum. Fyrir
liggja drög að skýrslu þar sem gerð
er grein fyrir ástandi og horfum í
þróun byggðar, aðgerðum ríkisvalds
og sveitarstjórnar og atvinnuþróunar-
starfi. __________
Vegna samdráttar í bú-
skap hefur íbúum Skaftár-
hrepps fækkað stöðugt á
undanförnum árum og ára-
tugum. Á síðustu árum
hefur uppbygging þjón- ______
ustu, ekki síst þjónustu við
aldraða og ferðaþjónustu á Kirkju-
bæjarklaustri, komið verulega á móti
samdrættinum þótt ekki hafi hún dug-
að til að snúa þróuninni við.
í svæðisbundinni byggðaáætlun
eiga að koma fram áform um upp-
byggingu og rekstur opinberrar þjón-
ustu fyrir íbúa sveitarfélagsins næstu
fjögur árin. í Skaftárhreppi er gert
ráð fyrir framlagi ríkisins til uppbygg-
ingar hjúkrunarheimilisins Klaustur-
hóla, Fiskeldisbrautar Fjölbrautaskóla
Suðurlands, vegaframkvæmda, Iand-
græðsluátaks, náttúrufræðiseturs,
umhverfismála og fráveitufram-
kvæmda. Gert er ráð fyrir framlagi
Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til upp-
Náin samvinna
á Miðfj örðum
Unnið er að skipulagi opinberrar þjónustu og
atvinnuþróun með svæðisbundnum byggða-
áætlunum í fjórum héruðum. Útlit er fyrir að
þessi vinna leiði til víðtækrar samvinnu Neskaup-
staðar, Eskifjarðar og Reyðarfjarðar og hugsan-
lega sameiningar sveitarfélaganna. í grein
Helga Bjamasonar kemur fram að þörf er á
markvissari stefnumótun opinberra stofnana
enda er það forsenda fyrir gerð þjónustuáætlun-
ar fyrir einstaka landshluta.
Sameiginleg
félagsmála-
skrifstofa og
tæknistofnun
byggingar íþróttamannvirkja og áætl-
uðu framlagi Skaftárhrepps sjálfs til
þessarra verkaefna og annarra.
Vantar stefnumörkun
Byggðastofnun hefur nú skrifað
________ viðkomandi ráðuneytum og
ýmsum opinberum stofnun-
um til að leita álits þeirra á
þeim hugmyndum sem fram
koma í fyrirliggjandi drög-
um að byggðaáætlun. Sig-
_____ urður Guðmundsson segir
að svör séu byijuð að berast
en þau séu misjafnlega góð. í sumum
atriðum sé vitnað til fyrirliggjandi
áætlana, öðrum hugmyndum hafnað
en sumu sé einfaldlega svarað með
því að segja að það verði ákveðið í
fjárlögum hveiju sinni.
í þessu sambandi segir Sigurður
að í mörgum málaflokkum vanti
heildaryfirsýn yfir það sem verið er
að gera. Áætlanir séu reyndar gerðar
til nokkurra ára í samgöngumálum
en í þær vanti þó betri stefnumörkun.
Engar heildaráætlanir séu til í mála-
flokkun sem skipti miklu máli um
byggðaþróun, til dæmis í uppbygg-
ingu og rekstri framhaldsskóla og
heilbrigðismála. Svæðisbundnar
byggðaáætlanir nái ekki tilgangi sín-
um nema ráðuneytin marki heildar-
stefnu sem síðan sé hægt að taka
mið af við áætlanagerð fyrir einstök
landsvæði.
Þegar hugað er að atvinnuþróun í
Skaftárhreppi staðnæmast menn
einkum við uppbyggingu ferðaþjón-
ustu og störf sem fallið geta að hefð-
bundnum landbúnaði. Mikið hefur
verið unnið að ferðamálum í hreppn-
um, meðal annars með byggingu hót-
els á Kirkjubæjarklaustri, og er áhugi
á enn frekari vinnu á því sviði. Einn-
ig hafa heimamenn áhuga á að byggja
upp bleikjueldi, gera átak í land-
græðslu og fá ráðunaut til að vinna
að annarri uppbyggingu í vaxtar-
greinum landbúnaðar. Ekki liggur
endanlega fyrir hvaða undirtekir
þessar hugmyndir fá hjá viðkomandi
ráðuneytum.
Náin samvinna þriggja
þéttbýlissveitarfélaga
Vinna við gerð byggðaáætlunar
fyrir Miðfirði Austfjarða, það er Nes-
kaupstað, Eskifjörð og Reyðarfjörð,
hefur það sem af er þróast með öðrum
hætti. Þar er um að ræða þijú sjálf-
stæð sveitarfélög. Bæjar- og sveitar-
stjórarnir hafa í samvinnu við
Byggðastofnun unnið að tillögum um
þjónustuskipulag fyrir svæðið. Hug-
myndin er að stofnuð verði byggða-
samlög um nokkra málaflokka, komið
á sameiginlegum stofnunum og hvatt
til breytinga og samvinnu í öðrum
málaflokkum. Líta má á þessa stór-
auknu samvinnu sem undanfara sam-
einingar sveitarfélaganna. Allar
sveitarstjórnirnar hafa nú samþykkt
að ganga til viðræðna um samvinnu
og hugsanlega sameiningu og verður
byggt á þeim grunni sem til er að
verða í tillögum að þjónustuskipulagi.
Sigurður Guðmundsson telur að
ná megi hagkvæmni í rekstri og auka
þjónustu við íbúana með þeirri sam-
vinnu eða samruna sem gert er ráð
fyrir í þjónustuskipulaginu.
Tillögur eru um að komið verði upp
byggðasamlögum um hafnir allra
staðanna, brunavarnir, sjúkraflutn-
inga, garðyrkjustjóra og skipulags-
stjóra. Komið verði á fót sameigin-
legri tækni- og umhverfisstofnun fyr-
ir staðina þijá svo og félagsmálaskrif-
stofu. Hvatt er til breytinga
á skipulagi heilsugæslu og
samvinnu verkalýðsfélag-
anna.
Nái þessar tillögur fram
að ganga án sameiningar
er þetta væntanlega víð- _
tækasta samvinna svo
stórra sveitarfélaga sem efnt
verið til.
Félagsleg þjónusta aukin
Hafnasamlagið verður umfangs-
mesta byggðasamlagið sem sveitarfé-
lögin efna til. Við stofnun þess verður
hlutverk hverrar hafnar skilgreint en
eins og komið hefur fram deildu sveit-
arstjórnirnar um það hvar skip Eim-
skips ætti að hafa viðkomu við Evr-
ópusiglingar. Eimskip valdi Eskifjörð
þótt nýlega væri búið að byggja upp
hafskipahöfn á Reyðarfirði. Yfir höfn-
unum verður ein stjórn í stað þriggja
og einn hafnarstjóri.
011 tækni- og byggingamál í bæjun-
Heildaryfir-
sýn vantar í
fjölmörgum
málaflokkum
hefur
um þremur, meðal annars bygginga-
fulltrúi, munu heyra undir sameigin-
lega stofnun, Tækni- og umhverfis-
stofnun. Þar á hafnarstjóri að hafa
aðstetur, svo og garðyrkjustjóri og
slökkviliðsstjóri.
Ætlunin er að auka félagslega þjón-
ustu. Liður í því er að samræma eftir-
farandi mál og setja í eina stofnun,
Félagsmálaskrifstofu, undir stjóm fé-
lagsmálastjóra: Málefni aldraðra, mál-
efni bama- og unglinga, heimilisaðstoð,
félagsleg aðstoð, málefni fatlaðra, yfír-
stjóm vinnumiðlunar, félagsleg hús-
næðismál og málefni bamavemdar- og
jafnréttismála. Þá er fyrirhugað að
auka þjónustuna með því að ráða sál-
fræðing til starfa á skrifstofunni.
Jarðgöng forsenda sameiningar
Vegna þessarar vinnu hefur
Byggðastofnun leitað eftir viðbrögð-
um ráðuneytanna við ýmsum hug-
myndum. Sýslumaður er bæði á Eski-
firði og Neskaupstað og hefur dóms-
málaráðuneytið verið spurt að því
hvernig þeim málum verði háttað ef
sveitarfélögin sameinast. Mennta-
málaráðuneytið hefur verið spurt um
skipulag framhaldsskólans en verk-
menntaskóli er í Neskaupstað og
menntaskóli á Egilsstöðum eins og
kunnugt er.
Samgöngumálin geta ráðið úrslit-
um um sameiningu því yfir fjallveg
er að fara milli Neskaupstaðar og
Eskifjarðar. Rætt hefur verið um að
hefjast handa við gerð jarðganga á
Austurlandi þegar V estfj arð agöngum
lýkur, þótt ekki hafí verið samstaða
um það eystra hvar ætti að byija.
Byggðastofnun spyr samgönguráðu-
neytið hvort gera megi ráð
fyrir framkvæmdum við ný
jarðgöng í 300 metra hæð
í Oddsskarði og hvort fyr-
irhugað sé að ráðast í jarð
göng milli Fáskrúðsfjarðar
_____ og Reyðarfjarðar en þau
myndi tengja Fáskrúðsfjörð
beint við þetta þjónustusvæði.
Þegar hugmyndir um gerð svæðis-
bundinna byggðaáætlana voru fyrst
lagðar fram var um það rætt að áætl-
anagerðin myndi leiða til skipulegrar
uppbyggingar, koma í veg fyrir tví-
verknað og hafa sparnað í för með
sér. Sigurður Guðmundsson segist
ekki viss um að vinna við einstakar
áætlanir leiði til mikils sparnaðar í
upphafi. Hins vegar sé unnt að spara
verulega fjármuni með heildarskipu
lagningu opinberrar þjónustu fyrir
allt landið. Vonast hann til að unnið
verði að því verkefni í tengslum við
endurskoðun byggðaáætlunar si
hefst á þessu ári.
Arkitektar óánægðir með að embætti húsameistara
ríkisins verður lagt niður um næstu áramót
Byggingamál ríkisins
ruglingsleg og óskýr
Óánægja er meðal arkitekta með þá ákvörðun
forsætisráðherra að leggja embætti húsameist-
ara ríkisins niður frá og með næstu áramót-
*
um. I yfírlýsingu starfsmanna stofnunarinnar
er talað um stórt skref aftur á bak. Ráðuneyt-
isstjóri forsætisráðuneytisins segir að ríkið
muni áfram tryggja að faglegum kröfum verði
fullnægt við opinberar framkvæmdir.
STARFSMENN húsameistara
ríkisins hafa sent frá sér
yfirlýsingu í kjölfar ákvörð-
unar forsætisráðherra um
að leggja embættið niður frá og með
næstu áramótum. Þeir telja að það
virðist rökrétt afleiðing að með höfn-
un forsætisráðuneytisins á söfnun
sérþekkingar og þjónustu arkitekta á
einn stað hjá ríkinu, t.d. hjá húsa-
meistara, muni einstök ráðuneyti ráða
til sín viðeigandi fagkrafta til að sinna
þessu hlutverki. Að öðrum kosti telji
þeir ástæðu til að ætla að ekki verði
staðið faglega að undirbúningi bygg-
ingaframkvæmda hjá hinu opinbera.
„Með því að fækka starfandi arki-
tektum hjá ríkinu um nærri helming
og dreifa þeim á margar hugsanlega
„ófaglærðar" hendur væri stigið stórt
skref aftur á bak í menntun og mætti
þjóðarinnar með forgöngu hins opin-
bera,“ segir m.a. í yfirlýsingu starfs-
mannanna.
Andrés Narfi Andrésson, arkitekt
hjá embætti húsameistara, sagði í
samtali við Morgunblaðið að starfs-
fólk embættisins teldi ákvörðun for-
sætisráðherra ranga og það væri
mjög ósátt við hana. Hann sagði
byggingarframkvæmdir á vegum hins
opinbera vera það kostnaðarsamar
og miklar að það væri í raun og veru
ábyrgðarleysi að reyna ekki að halda
ákveðinni yfirsýn á einum og sama
stað.
„Þetta var á stefnuskrá forsætis-
ráðuneytisins og verið að vinna að
ákveðnu frumvarpi þar fram í miðjan
desember, en upp úr því er eins og
verði einhver stefnubreyting. Þá virð-
ist andstaða við þessa hugmynd mót-
ast og í kjölfarið á því er okkur til-
kynnt þessi ákvörðun.
Við óttumst að með þessari ákvörð-
un muni ákveðin störf, sem annars
hefðu farið hérna fram, færast inn á
ráðuneytin, t.d. í þessar sérstöku
byggingadeildir sem væru þá við
hvert ráðuneyti fyrir sig, í stað þess
að vera með þjónustuaðila á einum
stað fyrir þau öll sem hlýtur að vera
hagkvæmara. Það munu verða fleiri
starfsmenn sem munu þurfa að sinna
þessu þar sem samskonar vinna fer
fram á mörgum stöðum samtímis og
með því móti mun yfirsýnin væntan-
lega verða lakari. Það er ekki hægt
að sjá að það fáist neinn sparnaður
með því að leggja niður þessi 16 störf
hérna, en það er ljóst að þessi vinna
þarf að fara fram,“ sagði Andrés
Narfi.
Umsetningin 50-60
milljónir á ári
Starfssvið embættis húsameistara
byggir á reglugerð forsætisráðuneyt-
isins frá 16. ágúst 1973, en sam-
kvæmt henni er verksvið embættisins
tvíþætt. í fyrsta lagi er því ætlað að
hafa umsjá, þ.e. viðhald og breyting-
ar, með embættisbústað forseta Is-
lands, gestahúsnæði ríkisins, Alþing-
ishúsi og Hæstarétti, skrifstofuhús-
næði stjórnarráðsins, Safnahúsinu í
Reykjavík og Þjóðleikhúsinu. í öðru
lagi er verksvið embættisins að ann-
ast frumathugun og áætlanagerð
varðandi opinberar byggingar eftir
því sem um semst milli embættis
húsameistara ríkisins og eignaraðila.
Umsetning embættis húsameistara
hefur síðastliðin ár verið 50-60 millj-
ónir króna á ári. Hjá Ríkisendurskoð-
un fengust þær upplýsingar að árið
1990 hafi embættið skilað 6.462.000
krónum í hagnað, árið 1991 982.000
krónum, en 1992 var 1.323.000 króna
halli á rekstri embættisins. Árið 1993
skilaði embættið 458.000 króna
hagnaði, en 1994 var hallinn
3.398.000 krónur. Tölur fyrir 1995
liggja ekki fyrir. Árið 1994 voru lau-
nagjöld embættisins 43.542.000
krónur og önnur gjöld 9.138.000
krónur, en sértekjur 49.282.000 krón-
ur. Á þessu tímabili voru sértekjurnar
hæstar árið 1990 en þá voru þær
65.804.000 krónur.
Arkitektar telja fulla
þörf fyrir embættið
Sigurður Harðarson, fram-
kvæmdastjóri Arkitektafélags ís-
lands, sagði í samtali við Morgunblað-
ið að ákvörðun forsætisráðherra væri
ekki framfaraspor. Hjá ríkinu skorti
allt skipulag á byggingamálum og
með ákvörðun forsætisráðherra sé
ekki gerð nein tilraun til að taka til
í þeim villigróðri heldur einungis
fálmað í einn stað.
Hann sagði viðhorf Arkitektafé-
lagsins til embættis húsameistara rík-
isins hafa verið nokkuð skýr á undan-
förnum árum. Fyrst og fremst hefðu
arkitektar viljað að inntaki stofnunar-
innar yrði breytt og þar yrði beinni
hönnun á byggingum hætt. „Hins
vegar höfum við lagst gegn því að
stofnunin verði lögð niður, en við
höfum talið hana hafa fullt gildi sem
slíka með breyttum verkefnum. Þá
höfum við gjarnan vísað í aðra stofn-
un sem svipað var ástatt um fyrir
nokkrum árum, en hefur síðan verið
breytt í samræmi við þetta. Það er
embætti skipulagsstjóra ríkisins þar
sem unnið var hörðum höndum við
skipulagningu og vinnu sem nú hefur
verið hætt, en stofnunin hefur síðan
tekið að sér ýmsa þætti er snúa meira
að undirbúningi, upplýsingum og
fleiru þess háttar sem nauðsynlegt
er að hafa yfirlit yfir. Við teljum fulla
þörf fyrir embætti húsameistara til
að hafa yfirstjórn hönnunarmála rík-
isins með höndum og teljum það hið
versta mál að taka skrefið þetta
langt," sagði Sigurður.
Engin heildarsýn yfir
byggingamál ríkisins
Hann sagði að það hefði talsvert
verið til umræðu meðal arkitekta hve
öll uppbygging byggingamála ríkisins
væri ruglingsleg og óskýr, og það
virtist ekki ætla að batna við það að
embætti húsameistara yrði lagt nið-
ur. Hann sagði enga eina stofnun
hafa heildarsýn yfir og fylgjast með
bygginga- og hönnunarmálum ríkis-
ins heldur væri sú starfsemi dreifð
út um allan bæ.
„Okkur er heldur engin launung á
því að við erum ekki ánægð með það
hvernig þessar deildir, sem kallaðar
eru byggingadeildir við ráðuneytin,
eru mannaðar. Við teljum að hlutur
arkitekta sé þar mjög fyrir borð bor-
inn og það sem nú mun gerast er að
hlutur arkitekta í undirbúningi og
umfjöllun byggingamála hjá ríkinu
verði ennþá minni en áður. Staðreynd-
in er sú að með þessu verða bókstaf-
lega engir arkitektar í þjónustu ríkis-
ins sem sjá um byggingamál ríkisins,
heldur verða þau í höndum einhverra
tæknimanna eða jafnvel manna með
ennþá minni menntun en það.
Við teljum þetta vera alveg afleitt
ástand og teljum að mikið af vitleys-
um sem eru gerðar í byggingamálum
ríkisins megi rekja til þess að hvorki
við stjórnun né umfjöllun bygginga-
mála hjá ríkinu eru hafðir fagmenn
úr okkar hópi við hönd. Það er leitað
til þeirra um hönnunina sjálfa en það
er bara helmingurinn af málinu. Hin-
um megin við borðið þarf líka að
vera fyrir hendi fagkunnátta," sagði
Sigurður.
Faglegum kröfum fullnægt
Ólafur Davíðsson, ráðuneytisstjóri
í forsætisráðuneytinu, segir að við
endurmat á hlutverki embættis húsa-
meistara hafí það komið skýrt fram
að yfírstjórn hönnunar hafi þróast
með ýmsum hætti hjá ráðuneytum
og stofnunum ríkisins. Sum ráðuneyt-
in hafi viljað taka þessi mál meira í
eigin hendur. Ekki hafi verið talið
fært né hagkvæmt að færa þetta
undir eitt embætti, eins og til greina
hefði komið, það er til að skapa nýjan
grundvöll fyrir embætti húsameist-
ara. Menn væru frekar þeirrar skoð-
unar að þróunin væri frá miðstýringu.
Ráðuneytisstjórinn segir að ríkið
muni ávallt leitast við að tryggja að
faglegum kröfum við opinberar fram-
kvæmdir verði fullnægt. Ekki sé þó
hægt að fullyrða á þessari stundu að
það verði gert með því að ráða arki-
tekta í byggingadeildir allra ráðu-
neytanna, en ekki sé útilokað að það
verði gert í einhverjum tilvikum.
Ólafur fullyrðir að þó hluti af starf-
seminni færist til einstakra ráðuneyta
og stofnana, til dæmis í nýja deild
forsætisráðuneytisins, leiði ákvörðun
um að leggja niður embætti húsa-
meistara ríkisins til verulegs sparnað-
ar fyrir ríkið.