Morgunblaðið - 08.02.1996, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 39
bært að fá þær fréttir út að nú
væri hún farin. Það er trú mín að
nú sé hún amma á góðum stað þar
sem henni liður vel. Ég kveð þig,
amma, með söknuði og þakklæti
fyrir allt sem þú hefur gefið í þessu
lífi. Samúðarkveðjur sendi ég allri
fjölskyldunni.
Elfa Ýr Gylfadóttir.
ÞEGAR einhver, sem við þekkjum,
kveður þennan jarðneska heim
finnum við til vanmáttar okkar og
smæðar og skiljum að allt er í
heiminum hverfult. Allt nema ást-
in sem býr í hjartanu og stýrir
för. Það er oft sagt að við veljum
okkur vini en ekki fjölskyldu og
bæti ég þá orðinu tengdafjölskyldu
þar við. Ég held að við Ólöf höfum
báðar fengið létt áfall, þegar við
urðum tengdamóðir og tengda-
dóttir hvor annarrar. Ólíkir heimar
mættust og vilji okkar var að fara
hvor sína leið. Og árin liðu. Þegar
velja skyldi nafn á stúlkubarn'
spurði ég Óiöfu í draumi, vegna
þess að ég hefði aldrei gert það í
vöku. Hún svaraði því til, að hún
viidi helst að það yrði nafn úr fjöl-
skyldunni. Nafnið Sólveig Krista
varð fyrir valinu, en Sólveigar-
nafnið var í ætt Aðalsteins og svo
fannst mér allir svo trúaðir, svo
Krista var vel við eigandi. Skírt
var í Helga-magra-stræti í faðmi
fjölskyldunnar og amma í Reykja-
vík heklaði bæði kjól og húfu á
stúlkuna.
Einar Hlér fæddist svo tveimur
árum síðar og notaði ég fjölskyldu-
regluna hennar Ólafar aftur og
virðist mér að hagleikur ömmu
Ólafar hafi erfst vel, því bæði geta
þau teiknað og málað eins og hún
gat.
Þegar Ólöf er horfin af sjónar-
sviðinu skoða ég hug minn og sé
margt fallegt og tært eins og kerta-
stjakinn er, sem hún gaf okkur í
jólagjöf. Eiginlega var hún svolítið
dularfull, hún Ölöf, eins og hún
væri ekki alveg af þessum heimi.
Yfirleitt ljósklædd og allt fært í
stílinn, litir nákvæmlega valdir og
hún hafði yfirbragð heimskonu, bar
jafnan fagra sérstæða skartgripi,
var hæglát en þó tíguleg. Þetta er
sú Ólöf sem ég kynntist, hin síðari
ár, þegar við báðar gengum
ákveðnum skrefum móti þeim
hugðarefnum, sem við völdum okk-
ur. Hennar var guðspekin, í öllum
sínum bestu myndum. Lifði hún
eftir kenningum guðspekinnar,
valdi jurtafæði og var bindindis-
söm. Én „bóheminn“ ég fann samt
velvilja og oft glettni hjá henni.
Bauð ég stundum upp á líkjör,
svona að gamni, þegar hún kom í
mat til okkar, en það gerði hún
næstum í hvert sinn sem hún kom
suður.
Kvöldið, sem hún lést, var ég
stödd á kaffihúsi án þess að vita,
að hveiju dró. Þegar átti %ð sækja
mig vildi ég ekki koma heim. Eldur
logaði úti á götu og vasi fullur af
hvítum liljum stóð á barborðinu.
Lifandi tónlist hljómaði í eyrum og
þarna kvaddi ég fallega gamla konu,
sem farin var á vit drauma sinna.
Ég pantaði mér súkkulaði og romm.
Minna gat það nú ekki verið. Á því
augnabliki er lífi hennar var lokið
gekk ég út í nóttina og hugsaði til
hennar. Minntist hennar.
Það blása engir lúðrar
þótt strengur þinn titri
og vefurinn verði gullinn
sem sólstafur á himinboga.
Er strengurinn slitnar
og fáeinir syrgjendur ganga
auðmjúkum skrefum
mót eigin endalokum
er engan lúðrasöng að heyra
og blóðið rennur rautt í sporin.
En ef til vill
má heyra lágværan lúðraþyt
fyrir handan
og litlir englar
blása blíðlega handan alls sem skiiið verður
í hjartanu brostna
og vefurinn fer aftur að glitra
strengur að titra.
Anna S. Björnsdóttir.
MINNINGAR
ÓLAFUR GEIR
SIG URJÓNSSON
+ Ólafur Geir Siguijónsson
var fæddur í Reykjavík 8.
ágúst 1928. Hann lést á heimili
sínu í Reykjavík 27. janúar síð-
astliðinn og var útförin gerð
frá Árbæjarkirkju 2. febrúar.
HORFINN er góður vinur.
Ég Iít til baka 15-20 ár og riíja
upp tíma þegar ég kynntist Óla á
Geirlandi. Fyrst í fjallferðum, hann
var þá fjallkóngur, síðar hjá Skóg-
ræktarfélagi Reykjavíkur, þar sem
hann var bílstjóri á bláa bensinum
R-755 eða fimm mínútur í átta eins
og Óli sagði stúndum. Alltaf var
stutt í húmorinn, gleðina og söng-
inn. Frásagnarhæfileikar Óla voru
miklir, var stundum setið heilu
kvöldin og skrafað um gamla tím-
ann, baslið, fjöllin og fólkið í sveit-
inni Reykjavík. Þar þekkti hann
hveija einustu þúfu, hól og fjall
með nafni í nágrenninu og svo til
skreytingar fylgdi alltaf ein saga
um aldinn höfðingja. Auðvitað voru
leikrænar tjáningar hafðar með til
að gera allt þetta svo lifandi. Hesta-
mennskan og fjárræktin heilluðu
hann og átti hann alltaf fallegar
skepnur og vel hirtar. Hver man
ekki eftir merunum Moldu og
Freyju og öllum hvítu, kollóttu kind-
unum hans? Unga fólkið dróst að
Óla og hann hjálpaði okkur að vera
með í leiknum og alltaf var nóg að
gera, járna hestana, fara á bak,
heyja, smala kindum og rýja, allir
fengu að vera með. Ófá ráðin gaf
hann, náttúran og dýrin voru hon-
um éins og opin bók.
Elsku Adda og allur ykkar stóri
barnahópur, Guð gefi ykkur styrk
til að halda áfram.
Kveðja,
Anna Lísa Guðmundsdóttir.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu-
sett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld i úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á
heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa
örk A-4 miðað við meðallinubil og hæfilega iínulengd — eða 3600-4000 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÓLAFÍA GUÐRÚN
STEINGRÍMSDÓTTIR,
Hraunbæ 103,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju
mánudaginn 12. febrúar kl. 13.30.
Jón Guðbjartsson,
Sigurlaug Jónsdóttir, Benedikt E. Guðmundsson,
Guðrún Jónsdóttir, Davíð Gislason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ELÍN ÓLADÓTTIR,
Hnífsdalsvegi 10,
(safirði,
verður jarðsungin frá (safjarðarkirkju föstudaginn 9. febrúár
kl. 15.00.
Jens Markússon,
Halldóra Jensdóttir, Jóhann Marinósson,
Guðmunda Jensdóttir, Halldór Halldórsson,
Ásgerður Jensdóttir, Guðmundur Jónsson
og barnabörn.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁSTA M. MARKÚSDÓTTIR,
Aflagranda 40,
áðurtil heimilis
i Meðalholti 19,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju í
dag, fimmtudaginn 8. febrúar, kl. 15.00.
Ingibjörg Ólafsdóttir Busse, Paul Busse,
Benoný M. Ólafsson, Guðfinna Snorradóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐNÝ GUNNHILDUR
GUÐMUNDSDÓTTIR,
Æsufelli 2,
sem lést á vistheimilinu Kumbara-
vogi 4. febrúar, verður jarðsungin frá
Fossvogskapellu föstudaginn 9. febrúar
kl. 15.00.
Ragnhildur lsleifsdóttir, Ólafur Ingjaldsson,
Svanhildur ísleifsdóttir, Þórður Valdimarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
PÁLL ÞÓRHALLSSON
frá Brettingsstöðum
á Flateyjardal,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 5. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 16. febrúar
kl. 15.00.
Frændfólk og vinir.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
ÁSTRÍÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR
frá Ljótshólum,
Drápuhiíð 42,
sem lést 1. febrúar, verður jarðsungin
frá Árbæjarkirkju föstudaginn 9. febrúar
kl. 13.30.
Anna Grímsdóttir, Runólfur Þorláksson,
Eiríkur Grfmssbn
og barnabörn.
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
JÓNA SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR,
Þúfu
i Vestur-Landeyjum,
sem andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands
fimmtudaginn 1. febrúar, verður jarð-
sungin frá Voðmúlastaðakapellu í Áust-
ur-Landeyjum laugardaginn 10. febrúar
kl. 14.00.
Indriði Theodór Ólafsson,
Steinunn Ósk Indriðadóttir, Sigurjón Helgi Gíslason,
Anna Berglind Indriðadóttir, Guðni Þór Guðmundsson,
Guðný Halldóra Indriðadóttir,
Theodóra Jóna Guðnadóttir.
+
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
KATRÍN SVEINSDÓTTIR
fyrrv. talsfmakona,
Fannborg 8,
Kópavogi,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju
föstudaginn 9. febrúar kl. 10.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á Sjálfsbjörgu eða Krabbameins-
félagið.
Þórheiður Einarsdóttir,
Friðrik Guðmundsson,
Katrfn Amni og
Oddný Dögg Friðriksdætur.
+
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför móður okkar og tengdamóður,
SIGURBJARGAR
STEINDÓRSDÓTTUR,
áðurtil heimilis
á Dunhaga13,
Reykjavik.
Sérstakar þakkir flytjum við starfsfólki
á G-2, Hrafnistu DAS í Reykjavík.
Steindór I. Ólafsson, Hulda G. Johansen,
Marfa Ólafsdóttir, Guðmundur Ólafsson,
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
KRISTMUNDAR GEORGSSONAR
trésmíðameistara.
Bjarni Kristmundsson, Birgit Sonnenberger,
Valdfs Kristmundsdóttir, Jens Jónssom
Ásdfs Kristmundsdóttir, Guðbrandur Óli Þorbjörnsson,
Guðleifur M. Kristmundsson, Hildur Baldursdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.