Morgunblaðið - 08.02.1996, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 41
MIIMIMIIMGAR
BORGHILDUR
BENEDIKTSDÓTTIR
THORARENSEN
Borghildur
Benediktsdótt-
ir Thorarensen
fæddist á Smá-
hömrum í Kirkju-
bólshreppi í
Strandasýslu 24.
júlí 1897. Hún and-
aðist á hjúkrun-
arheimilinu Skjóli
23. janúar síðast-
liðinn og fór útför
hennar fram frá
Dómkirkjunni 6.
febrúar.
MEÐ ÞESSUM línum
langar mig að minnast langömmu
minnar sem ég kallaði jafnan
Ömmu á Ljósvallagötunni. Það
kom mér ekki á óvart þegar frétt-
irnar um lát ömmu bárust mér
hingað til Chicago. Ég hafði heim-
sótt hana nokkrum dögum áður á
hjúkrunarheimilið Skjól og vissi þá
að þetta yrði í hinsta sinn sem ég
sæi hana. Hún var tilbúin að kveðja
i þennan heim eftir tæplega aldar
hérvist. Síðustu árin höfðu verið
henni erfið eftir að hafa haft fulla
heilsu fram undir níræðisaldur.
Það er með miklum söknuði sem
ég riíja upp liðna tíð með ömmu.
Minningarnar eru ljóslifandi í huga
mér þar sem ég sé hana m.a. í
ruggustólnum við stofugluggann
hlustandi á kvöldsögu í útvarpinu.
Það sem einkenndi ömmu var
hversu hlý hún var, umhyggjusöm
og gefandi. Hún lét sér
annt um alla í fjöl-
skyldunni. Hjá henni
áttu allir griðastað og
þangað var alltaf gott
að koma. Frá þeim
tíma er ég man eftir
mér og fram til þess
tíma er amma fluttist
af Ljósvallagötunni
var ég reglulegur gest-
ur á heimili hennar
sem var í mínum huga
mitt annað heimili.
Óteljandi eru dagarnir
og næturnar sem ég
dvaldist hjá henni og
naut samveru hennar. Alltaf tók
hún vel á móti mér og öllum þeim
fjölda ættingja sem heimsótti hana
og ævinlega bar hún fram gómsæt-
ar kræsingar hvenær dagsins sem
var. Og þegar ég var yngri var
hún dugleg að lauma að manni
vettlingum og lopasokkum sem
hún hafði prjónað. Amma var list-
feng í höndunum og afar vandvirk
í öllu því sem hún tók sér fyrir
hendur. Hún hafði gott auga fyrir
fallegum hannyrðum og eins og
aðrir af hennar kynslóð var hún
ekki fyrir að sitja auðum höndum.
Um leið og ég kveð góða og
elskulega ömmu langar mig að
þakka henni fyrir allar þær dýr-
mætu stundir sem hún gaf mér,
en þær mun ég ávallt geyma í
huga mínum og hjarta.
Jón Gunnar.
GUÐRÚN
SIG URÐARDÓTTIR
-I- Guðrún Sigurbjörg Sigurð-
' ardóttir fæddist á Miðhúsa-
seli í Fellum á Fljótsdalshéraði
3. maí 1920. Hún lést á Sjúkra-
húsi Suðurlands 29. janúar síð-
astliðinn og fór útför hennar
fram frá Selfosskirkju 3. febr-
úar.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn siðsta blund.
(V. Briem.)
Mig langar með nokkrum orðum
að minnast Guðrúnar Sigurðar-
dóttur.
Ég man vel þegar ég kom fyrst
til Seyðisfjarðar með Valdísi dóttur
hennar. Þar hafði ég fengið vinnu
við afleysingar á sjúkrahúsinu þar
sem hún var vökukona til margra
ára. Þá kynntist ég strax góð-
mennsku hennar og velvild. Hún
var alltaf tilbúin að verja lítilmagn-
ann. Oftar en einu sinni man ég
að hún hvessti sig þegar henni
fannst að mér vegið.
En það var aldrei langt í glens-
ið. Mér er enn minnisstætt hve
gott var að sitja á spjalli í eldhús-
inu hennar, hún var alltaf tilbúin
að hlusta eða hlæja með ökkur
Valdísi. í höndum hennar lék allur
saumáskapur, ég átti til margra
ára slopp sem hún saumaði handa
mér. Éitt af verkum mínum á
sjúkrahúsinu var að leysa matráðs-
konuna af. Ég er hrædd um að
enginn hefði orðið feitur það sum-
arið hefði hennar ekki notið við.
Ekki óraði mig fyrir þegar ég
sat hjá henni á sjúkrahúsinu um
daginn að það mundi verða okkar
síðasti fundur. En enginn veit hve-
nær kallið kemur. Elsku Gunna.
Þá er einn áfanginn liðinn, ég trúi
því að það sé upphafíð að ein-
hveiju miklu betra og ekki efast
ég um að vel verður tekið á móti
þér. Ég bið guð að blessa minningu
Guðrúnar. Valdísi, Reyni, Erni og
Siggu sendi ég mínar dýpstu sam-
úðarkveðjur.
Kristbjörg.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvu-
sett. Sé. handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á
beimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina og hálfa
örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
Skilafrestur vegna
minningargreina
EIGI minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði
ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags-
og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstudag. í
miðvikudags-, fimmtudags-, föstudags- og íaugardagsblað þarf grein-
in að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir biitingardag.
Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför
hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi.
Bridshátíð hefst eftir rúma viku
35 erlend pör koma
BRIPS
Ilótcl Loftlciðir
BRIDSHÁTÍÐ 1996
BHdshátíð Bridssambands íslands,
Bridsfélags Reykavíkur og Flug-
leiða haldin 16.-19. febrúar
ÞÁTTTAKAN á Bridshátíð slær
met á hvetju ári og ef svo heldur
fram sem horfir þarf að fara að
flytja mótið í Laugardalshöllina.
Nýtt keppnisfyrirkomulag gerir
nú kleift að fjölga pörum í tví-
menningsmótinu í 120 og þar af
koma 35 erlendis frá. Þá stefnir
þátttakan í Flugleiðamótinu í
sveitakeppni í yfir 100 sveitir.
Á þriðja tug para kemur á eigin
vegum frá Bandaríkjunum, ein
sveit frá Noregi og par frá Hol-
landi. Þá eru boðsgestirnir alþjóð-
legur hópur að venju þótt mest
beri á Kanadamönnum.
í þeim hópi eru Eric Kokish og
Joe Silver sem nú eru að koma í
fyrsta skipti hingað til lands. Kok-
ish hefur um árabil verið einn
helsti bridsblaðamaður og sagn-
venjusmiður heims og er einnig
eftirsóttur þjálfari. Fyrir heims-
meistaramótið í Kína aðstoðaði
hann til dæmis landslið sex þjóða
við undirbúninginn auk þess að
spila í kanadíska landsliðinu sem
náði öðru sæti á mótinu.
Silver, sem er lögmaður, hefur
dágott hugmyndaflug og er þekkt-
ur fyrir að gefa því lausan taum-
inn við spilaborðið. Saman mynd-
uðu þeir Kokish akkerispar
Kanadamanna í Kína.
Hér er ein slemma sem þeir
sögðu í undanúrslitaleiknum gegn
Svíum:
Vestur
♦ G
V G6432
♦ 965
+ D643
Norður
♦ ÁK843
V Á98
♦ ÁKG2
♦ K
Suður
♦ 972
VK1075
♦ D1083
♦ Á8
Austur
♦ D1065
VD
♦ 74
♦ G109752
Vestur Norður Austur Suður
Silver Kokish
pass 1 spaði pass 2 spaðar
pass 3 lauf pass 3 hjörtu
pass 4 tiglar pass 5 tíglar
pass 6 tíglar///
Það var býsna vel af sér vikið
að finna tromplitinn á 4 sagnstig-
inu eftir að hafa áður samþykkt
annan lit.
Byijunin var eðlileg: 2 spaðar
sýndu nokkuð góða hækkun, en 3
lauf sýndu stuttlit. 3 hjörtu sýndu
a.m.k. 4-lit og 4 tíglar var einnig
eðlileg sögn sem gaf til kynna
slemmuáhuga. 5 tiglar sýndu tíg-
ulstuðning og aukastyrk og Silver
hækkaði í slemmu. 12 slagir voru
auðveldir viðfangs en við hitt borð-
ið spiluðu Svíar 6 spaða sem fóru
tvo niður.
Sveitarfélagar Kokish og Silver
hér eru Boris Baran og Mark
Molson. Þeir eru íslendingum að
góðu kunnir og unnu m.a. tví-
menning Bridgehátíðar fyrir
nokkrum árum. Fimmti Kanada-
maðurinn á Bridshátíð er fasta-
gesturinn Georg Mittelman en
hann spilar við Ritu Shugart, sem
spilaði hér í fyrra. Þau verða í
sveit með Zia Mahmood. Hann
spilar að þessu sinni við Danann
Lars Blakset, sem heldur þarf
ekki að kynna fyrir íslenskum
bridsáhugamönnum.
ítalskur Lalli
Þriðja boðsgestasveitin er ekki
af verri endanum: ítölsku Evrópu-
meistararnir í sveitakeppni.
Sá þekktasti þeirra er sjálfsagt
Laurenzo Lauria, eða Lalli eins og
íslensku landsliðsmennirnir kalla
hann gjarnan.
Lalli var skjólstæðingur Benitos
Garozzos og spilaði fyrst með hon-
um á Evrópumótum fyrir rúmum
20 árum. Lauria hefur þó verið
nokkuð brokkgengur og aldrei náð
sérstökum árangri á alþjóðavett-
vangi fyrr en hann fór að spila
við Alfredo Versace fyrir þremur
árum.
Versace, sem mun ekki vera
tengdur frægum fataframleiðanda
með sama nafni, er aðeins 26 ára
en hefur samt getið sér talsverðrar
frægðar við spilaborðið. Þeir Laur-
ia þóttu óumdeilanlega besta parið
á Evrópumótinu í Vilamoura í
sumar. Þeir spila nokkuð sérkenni-
legt, heimatilbúið kerfi sem bygg-
ir á þeirri gömlu suður-evrópsku
hefð að segja fyrst styttri litina
sína og opnun á 1 tígli er sterk.
Þeir græddu vel á þessu spili
gegn Bretum í Vilamoura:
Norður
♦ 10765
VK6
♦ 10632
♦ DG8
Vestur Austur
♦ DG3 ♦ K842
V 852 V ÁD3
♦ KDG87 ♦ Á954
♦ 65 ♦ 72
Suður
♦ Á9
V G10974
♦ --
♦ ÁK10943
Vestur Norður Austur Suður
Lauria Versace
1 kjarta
pass 1 spaði pass 2 grönd
pass 3 lauf pass 3 grönd
pass 5 lauf///
Versace sýndi báða litiná sína
með grandsögnunum og Lauria
taldi að háspilin í hjarta og laufi
myndu nýtast vel.
Vestur spilaði út tígulás sem
Lauria trompaði og spilaði hjarta
á kóng og ás. Austur varð nú að
finna spaðaútspil til að hnekkja
spilinu en þegar hann spilaði laufi
gat Lauria fríað hjartað og hent
þremur spöðum heima niður í
hjartað í borði.
Hitt ítalska parið, Massimo
Lanzarotti og Andrea Buratti, hef-
ur lengi verið í fremstu röð á ítal-
íu en ekki náð að slá almennilega
í gegn fyrr en í sumar. Þeir spila
svipað kerfi og Lauria og Versace
og allir spila ítalirnir hraðan og
skemmtilegan stíl.
Iljördís í heimsókn
Af öðrum gestum má nefna
Hollendingana Elly Ducheyne og
Jan Swaan, en þau hafa séð um
blaðamannaherbergið á öllum
helstu bridsmótum í Evrópu og
heimsmeistaramótum í mörg ár.
Þá koma hjónin Hjördís Eyþórs-
dóttir og Curtis Cheek frá Banda-
ríkjunum, en það er langt síðan
Hjördís hefur tekið í spil hér á
landi.
Guðm. Sv. Hermannsson
BR.IDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
HP kökugerð
Suðurlandsmeistari
í sveitakeppni
SUÐURLANDSMÓT í sveitakeppni
var haldið að Heimalandi 20.-21. jan-
úar sl. Keppnin var jafnframt undan-
keppni vegna Islandsmóts í sveita-
keppni og komust þrjár efstu sveitir
áfram ! þá keppni.
Suðurlandsmeistari varð sv. HP
kökugerðar (Kristján M. Gunnarsson,
Helgi G. Helgason, Grímur Arnarson
og Bjöm Snorrason) með 202 stig. í
2. sæti varð sv. Sigfúsar Þórðarsonar
(Sigfús, Gunnar Þóiðarson, Guðmund-
ur Gunnarsson og Bergsteinn Arason)
með 199 stig. í 3. sæti varð sv. Auð-
uns Hermannssonar (Auðunn, Guð-
mundur Theódórsson, Gísli Þórarinsson
og Þórður Sigurðsson) með 190 stig.
í 4. sæti: Sv. Sigfinns Snorrasonar
með 177 stig.
í 5. sæti: Sv. Austan 7 með 176 stig.
Jafnframt var reiknuð frammistaða
einstakra para í Butlerútreikningi:
Kjartan Ásmundss. - Karl OlgeirGarðarss. 18,71
Sigfinnur Snorrason - Guðjón Einarsson 17,70
Gunnar Þórðarson - Sigfús Þórðarson 17,66
Óskar Pálsson - Kjartan Aðalbjömsson 17,35
Bikarkcppni Suðurlands 1996
Leikir i 1. umferð
Sigfús Þórðarson, B. Selfóss -
Flatkakan, B. SelfoSs c/o Grimur Amarson
Hermann Guðmundsson, B. Hvolsvallar -
Auðunn Hemiannsson, B. Selfoss
Aðalsteinn Sveinsson, B. Eyfellinga -
Brynjólfur Gestsson, B. Selfoss
Leikir í 2. umferð
Sigfús Þórðarson/Flatkakan -
Hjörleifur Jensson, B. Vestmannaeyja
Hjálmfríður Sveinsdóttir, B. Vestmannaeyja -
Byggingavömr Steinars, B. Selfoss
Kjartan Jóhannsson, B. Hvolsvallar -
Aðalsteinn Sveinsson/Brynjólfur Gestsson
Garðar Garðarsson, B. Selfoss -
Hermann Guðmundsson/Auðunn Hermannsson
Bridsfélag Fljótsdalshéraðs
Staða efstu sveita í KHB sveita-
keppni Bridsfélags Fljótsdalshéraðs
sem er aðalsveitakeppni félagsins
1996 er þessi eftir sex umferðir af 10.
SveitHerðis 119
Sveit Sólningar . 118
Sveit Önnu S. Karlsdóttur 96
Sveit Aðalsteins Jónssonar 94
Sveit Þorsteins Bergssonar 90
Sveit Herðis vann sveit Sólningar
19-11 en þessar sveitir eru langefstar
og koma til með að heyja einvígi um
meistaratitilinn.