Morgunblaðið - 08.02.1996, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 47
I DAG
Arnað heilla
prr|ÁRA afmæli. í dag,
t)fímmtudaginn 8.
febrúar, er fimmtugur
Kristinn Eyjólfsson,
Greniiundi 5, Ákureyri.
Eiginkona hans er Vai-
gerður Hrólfsdóttir. Þau
hjónin verða að heiman á
afmælisdaginn.
Ljósm. Nýmynd, Keflavík.
BRÚÐKAUP. Gefín voru
saman 2. september sl. í
Keflavíkurkirkju af sr. Ólafi
Oddi Jónssyni Júlíana G.
Júlíusdóttir og Arni Jens
Einarsson. Heimili þeirra
er 'á Mávabraut 3B, Kefla-
vík.
Ljósm. Nýmynd, Keflavík.
BRÚÐKAUP. Gefm voru
saman 2. september sl. í
Keflavíkurkirkju af sr. Sigf-
úsi Ingvasyni Guðbjörg S.
Óskarsdóttir og Svanur
G. Gunnarsson. Heimili
þeirra er að Heiðarholti 44,
Keflavík.
BBIPS
llinsjón Guðmundur Páll
Arnarson
MAKKER opnar á einu
laufí, þú svarar með einu
hjarta og makker hækkar
í tvö. Hvað þarf góð spil til
að reyna við geim eftir
þessa byijun?
Norður gefur; AV á
hættu.
Norður
♦ 73
♦ ÁKG8
♦ D54
♦ DG73
Vestur Austur
♦ KG1092 ♦ D84
IIIIH f 10953
♦ 10872 111111 ♦ KG3
♦ 10864 ♦ ÁK5
Suður
♦ Á65
♦ D7642
♦ Á96
♦ 92
Vestur Norður Austur Suður
- 1 lauf Pass 1 hjarta
Pass 2 hjörtu Pass 2 spaðar*
Dobl 3 hjörtu Allir pass
geimáskorun.
í Standard-kerfinu sýn-
ir norður lágmarksopnun,
12-14 punkta, og fjórlit
með hækkun í tvö hjörtu.
Á suður nóg til að reyna
við geim? Bretinn Tony
Forrester hefur kenningu
um þessa stöðu. Hann seg-
ir að svarhönd geti haldið
áfram ef samanlagður
fjöldi punkta og tveggja
lengstu lita er 19 eða
meira. Samkvæmt þessari
reglu ætti suður að passa
tvö hjörtu. Suður er með
10 punkta og aðeins 8
spil í tveimur lengstu lit-
um.
Bandaríkjamaðurinn
Robert Levin hélt á spilum
suðurs. Kannski hefur
hann ekki trúað kenningu
Bretans eða einfaldlega
haft mikla trú á eigin
spilatækni. í ljósi úr-
vinnslu Levins á þessum
viðkvæma samningi sýnist
síðari tilgátan líklegri
skýring. Útspilið var tígul-
átta. Levin lét lítið úr borði
og drap gosa austurs með
ás. Spilaði síðan laufi á
drottningu og kóng aust-
urs.
Austur trompaði út. Le-
vin tók slaginn í borði og
spilaði litlu laufi, sem
austur dúkkaði og vestur
átti slaginn á tíuna. Aftur
kom lauf, lítið úr borði og
ás austur trompaður. Nú
voru trompin tekin:
Norður
♦ 73
♦ -
♦ D5
♦ G
Vestur
$ KG10
í 107
Austur
♦ D84
f -
♦ K3
♦ -
Suður
♦ Á65
▼ -
♦ 96
♦ -
Laufgosinn þvingaði báða
mótheija á óvenjuigean
hátt. Hvorugur mátti missa
tígul, svo báðir hentu spaða.
Þá spilaði Levin spaðaás og
spaða og hlaut að fá síðasta
slaginn á tígul.
SKAK
Umsjón Margeir
Pctursson
Svartur leikur
og vinnur
STAÐAN kom upp á
stóra opna mótinu í Linar-
es á Spáni í janúar. Skák-
konan Kadimova (2.305)
frá Aserbadsjan var með
hvítt, en alþjóðlegi
meistarinn Lexy Or-
tega (2.440), Kúbu,
var með svart og átti
leik. Svarta drottning-
in er óvölduð á b6, en
svartur lék samt sem
áður:
26. Hd2! og Kad-
imova gafst upp. Hún
er mát í þriðja leik
eftir 27. Dxb6 með 27.
Hgxg2+ 28. Khl
Hxh2+ 29. Kgl
" Hdg2. Mótið var
bæði fjölmennt og öflugt
en þeir Jóhann Hjartarson
og Hannes Hlífar Stefáns-
son náðu engu að síður
mjög góðum árangri. Við
skulum rifja upp lokastöð-
una:
1-2. Dimitrov, Búlgaríu og
Kozul, Króatíu 8 v. af 10
3-6. Jóhann, Hannes,
Malanjúk, Úkraínu og
Akopjan, Armeníu 772 v.
7-17. Glek, Rússlandi,
Gi. Hernandez, Mexíkó,
Kornejev, Rússlandi, Bisc-
hoff, Þýskalandi, Asejev,
Rússlandi, Ubilava og Kac-
heisvíli, Georgíu, Noguei-
ras, Kúbu, Marin, Rúmen-
íu, Hodgson, Englandi og
Sulava, Króatíu 7 v.
Á meðal þeirra sem
hlutu 6 72 vinning voru
stórméistararnir Romanis-
hin, Lobron, Kurajica og
Spraggett.
TUTTUGU og tveggja ára
finnsk stúlka með áhuga á
bréfaskriftum, bókmennt-
um, ljóismyndun og köttum:
Eeva Leinonen,
Olavinkatu 32 c 36,
57130 Savonlinna,
Finland.
SEXTÁN ára Ghanapiltur
með áhuga á íþróttum, tón-
list, sjónvarpi, söng o.fl.:
Benardy Ocloo,
Post Office Box 99,
Akwatia E/R,
Ghana.
Pennavinir
SVISSNESK kona, 55 ára,
sem skrifað getur á ís-
lensku, með áhuga á tungu-
málum, menningu, bók-
menntum o.'fl.:
Ingrid Cesa,
BaumgSrtli 4,
CH-6467 Schattdorf,
Switzerland.
NÍTJÁN ára japönsk stúlka
með áhuga á tónlist, dýrum,
sjóböðum o.fl.:
Mikiko Sato,
1-20-11 Nakano,
Morioka-shi,
Iwate-ken,
020 Japan.
FJÓRTÁN ára japösnk
stúlka með margvísleg
áhugamál;
Mako Kawamura,
4-4 Yukinogosho-cho,
Hyogo-ku,
Kobe-shi,
Hyogo-ken,
652 Japan.
Krullukollur á
Indlandi
VEGNA mistaka féll út
hluti af fyrirsögn í kvik-
myndadómi Sæbjörns
Valdimarssonar í blaðinu
miðvikudaginn 7. febrúar.
Fyrirsögnin átti að vera
LEIÐRÉTT
Krullukollur á Indlandi og
er beðist vejvirðingar á
þessum mistökum.
Rangur myndatexti
Með frétt um ársfund
Úrvalsfólks í blaðinu í gær
birtist mynd af Úrvalsfólki,
en í myndatexta stóð rang-
lega að á myndinni væri
starfsfólk Úrvals-Útsýnar.
Einnig var sagt að um árs-
fund Úrvals-Utsýnar hefði
verið að ræða, en að sjálf-
sögðu var þetta ársfundur
Úrvalsfólks. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
STJÖRNUSPA
cftir Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert vel pennafær og
átt auðveit með að tjá
skoðanir þínar.
Hrútur (21. mars - 19. apríl) Þú þarft að leysa smá vanda- mál heima árdegis, en síðar gefst tími til að blanda geði við aðra á góðra vina fundi.
Naut (20. aprfl - 20. maí) tffá Þér líkar ekki beinlínis við verkefni, sem þér er falið í vinnunni, em tekst þó vel að leysa það. Þú færð óvænta gesti.
Tvíburar (21. maí - 20.júní) Einhver er að reyna að mis- nota sér góðlyndi þitt. Þótt hægt gangi í samniongum um fjármálin, miðar þeim þó í rétta átt.
Krabbi (21. júní - 22. júlí) HSB Þú færð frábæra hugmynd árdegis, sem hlýtur strax mikinn stuðning í vinnunni. í kvöld gefst tækifæri til að sinna fjölskyldunni.
Ljón (23. júlí — 22. ágúst) Þú átt erfitt með að skilja hvers vegna fjölskyldan er svo andvíg einum vina þinna. En ástæðan á eftir að koma í ljós.
Meyja (23. ágúst - 22. september) Þú ert með hugann við stöðu þína í vinnunni, og hvernig unnt væri að bæta hana. Varastu deilur við ástvin um fjármálin.
Vog (23. sept. - 22. október) Þú þarft að leysa áríðandi fjölskyldumál í dag, og þér tekst það með ágætum. í kvöld ættir þú að bjóða heim góðum vinum.
Sporðdreki (23.okt. - 21. nóvember) Þótt hugmynd þín sé góð, skilja ekki allir hvað þú átt við. Eftir nánari útskýringar hlýtur hugmyndin góðar við- tökur.
Bogmaður (22. nóv. - 21.desember) $0 Peningamálin eru í nokkrum ólestri hjá þér. Þú ert ýmist mesta eyðslukló, eða algjör nánös. Reyndu að rata milli- veginn.
Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú ert að íhuga aðgerðir á fjármálasviðinu, en ættir ekki að trúa öðrum fyrir fyr- irætlunum þínum. Það gæti spillt málinu.
Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) Einbeittu þér að því að afla peninga, ekki eyða þeim. Réðgjafi segir þér frá góðri hugmynd, sem þú ættir að hlusta veí á.
Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Þú hefur mörgu að sinna vinnunni árdegis, en síðdegis getur þú einbeitt þér ac áhugasömu verkefni. Taktu enga óþarfa áhættu.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Auglýsing
Rannsóknarráð íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
Bygginga- og tækjasjóði og er umsóknarfrestur til 1. mars nk.
Veittir eru styrkir til nýbygginga og nýinnréttinga eldra
húsnæðis fyrir vísinda- og rannsóknastarfsemi. Þá eru veittir
styrkir til kaupa á dýrum tækjum og búnaði.
Umsækjendur um styrki úr Bygginga- og tækjasjóði geta
aðeins verið opinberar vísinda- og rannsóknastofnanir og er
æskilegt að um samvinnuverkefni þeirra í milli sé að ræða.
Einkaaðilar, fyrirtæki eða samtök geta þó verið aðilar að slíku
samstarfi.
Umsóknum Skulu fylgja greinargerðir um hlutverk
viðkomandi framkvæmdar eða tækjakaupa og samhengi við
áform umsækjendanna um uppbyggingu rannsóknaaðstöðu.
Koma þarf fram hvaða aðilar standa að fjárfestingum og
hvemig heildarfjárrriögnun verður háttað.
RANNÍS
RANNSOKNARRAÐ ISLANDS
LAUGAVEGI 13 • SÍMl 552 1320 • BRÉFSÍMI 552 9814
30-70% afsláttur
Gourmet hnífapör.
Hnífar, gafflar,
Hitamælar fyrir bilinn
með hálkuvara.
Áður 1.750,
skeiðarog teskeiðar.
Áður 240 hvert stykki.
Excenter slípivél 200 wött.
10.000 þús. snúningar á mín.
Áður 5.630,
Dömurakvél fyrir
bæði blautt og þurrt.
- Adak Áður 3.998,
nm*1
aupi
Lágmúla B. sími 568-4910.
Borgarkringlunni. sími 568-4905.
Óseyri 4. Akureyri. sími 462-4964.