Morgunblaðið - 26.03.1996, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 26.03.1996, Qupperneq 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sjávarútvegsráðherra Rússlands í opinberri heimsókn í Noregi Kröfur Islendinga um síld- arkvóta ekki raunhæfar Osló. Morgunblaðið. Víkinga- sveitin að- stoðaði við handtöku MENN úr Víkingasveit lögreglunnar aðstoðuðu RLR við handtöku manna í Reykjavík í gær, en að sögn Harð- ar Jóhannessonar, yfirlögregluþjóns hjá RLR, var talið hugsanlegt að mennirnir væru vopnaðir. „Við vorum að svipast um eftir mönnum og höfðum ástæðu til að gæta alls öryggis. Þess vegna var þetta gert svona,“ sagði Hörður, sem að öðru leyti vildi ekki tjá sig um þetta mál. Hann sagði að það hefði áður komið fyrir að RLR hefði leitað aðstoðar Víkingasveitarinnar. VLADIMIR Korelskí, sjávarútvegs- ráðherra Rússlands, veittist harka- lega að kröfu íslendinga um síldar- kvóta eftir að hafa átt fund með Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegsráð- herra Noregs, í gær. „Krafan um 245 þúsunda tonna kvóta af norsk-íslenska síldarstofn- inum er óraunhæf," sagði Korelskí. Korelskí skoraði á Þorstein Páls- son, sjávarútvegsráðherra íslands, að sýna meira raunsæi og meðalhóf þegar sjávarútvegsráðherrar ríkja Fiskveiðiráðs Norðvestur-Atlants- hafs koma saman til fundar í Reykja- vík í lok maí til að ræða skiptingu síldarkvóta. „Ég get ekki samþykkt að íslend- ingar fái stærri kvóta en Rússar, sem hafa 150 þúsund tonna kvóta,“ sagði Korelskí. Hann sagði einnig ljóst að það væri ótímabært að veita Evrópusam- bandinu stærri kvóta en Rússum. Áður en fundurinn verður haldinn í Reykjavík er ráðgert að haldin verði flórða umferð kvótaviðræðna milli færeyskra, íslenskra, norskra og rússneskra embættismanna. Rússar verða gestgjafar og verða viðræðurnar að öllum líkindum haldnar í Moskvu 10. til 12. apríl. Ýmsar efasemdir eru þó uppi um að af fjórðu umferðinni verði. Rúss- ar og Norðmenn hafa farið fram á skýrar vísbendingar frá íslendingum um aukinn sveigjanleika. Þar sem slíkra vísbendinga hefur ekki orðið vart telja ýmsir að ekki sé ástæða til að efna til viðræðna um síldark- vóta. Korelskí er í för með Borís Jelts- ín, forseta Rússlands, sem er í opin- berri heimsókn í Noregi. 45 þúsund tonn af úthafskarfa Aætlað verðmæti tveir millj- arðar kr. ÁÆTLAÐ er að úthafskarfakvóti íslendinga á þessu ári geti skilað aflaverðmæti upp á um tvo milljarða íslenskra króna, að mati Þjóðhags- stofnunar. Kvóti íslendinga verður 45 þúsund tonn, eða sem samsvarar 52.200 tonnum upp úr sjó. Sam- kvæmt tölum frá Fiskifélaginu má áætla að um 50 kr. fáist fyrir kílóið af úthafskarfa. Uthafskarfaveiðar íslendinga eiga sér ekki langa sögu. Tilraunaveiðar hófust árið 1989 þegar um 1.000 tonn veiddust en ári síðar var aflinn kominn upp í 4 þúsund tonn. Síðan má segja að hann hafi því sem næst tvöfaldast á ári. Árið 1991 veiddu íslendingar 7.500 tonn af úthafs- karfa, 14.000 tonn árið 1992 að verð- mæti um 678 milljónir króna, 20.000 tonn 1993 að verðmæti 932 milljónir króna og 47.000 tonn árið 1994 að verðmæti 2.037 milljónir króna. Á síðasta ári varð aflinn aðeins um 28.000 tonn en á veiðitímabilinu stóð yfir sjómannaverkfall sem dró mjög úr sókninni. NOKKRIR tugir barna úr leik- skólum á Seltjarnarnesi tóku í gær fyrstu skóflustungurnar að nýjum leikskóla á homi Nesvegar og Suðurstrandar. Börnin vora eins og nærri má geta stolt yfir því að fá að taka þátt í framkvæmdum við nýja skólann. Eftir að hvert þeirra hafði grafið holu tóku stór- virkar vinnuvélar við. Böm grafa fyrir leikskóla Fjórar deildir verða í leik- skólanum fyrir samtals 80 börn. Með breytilegum vistun- artíma er gert ráð fyrir að hann geti þjónað allt að 130 börnum. Þegar skólinn verður kominn í notkun verða leik- skólamál komin í gott horf á Seltjarnarnesi. Aætlaður kostnaður við byggingu leik- skólans er 49,3 milljónir. Bygg- ingin á að verða tilbúin 15. október nk. Andlát GUÐLAUGUR ÞORVALDSSON GUÐLAUGUR Þor- valdsson, fyrrverandi háskólarektor og rík- issáttasemjari, er lát- inn á sjötugasta og öðru aldursári. Hann hafði átt við veikindi að stríða um nokkurt skeið. Guðlaugur fæddist í Grindavík 13. októ- ber 1924. Foreldrar hans voru Stefanía Tómasdóttir húsmóðir og Þorvaldur Klem- ensson útvegsbóndi. Guðlaugur varð stúd- ent frá MA 1944 og lauk viðskipta- prófi frá Háskóla íslands árið 1950. Guðlaugur starfaði hjá Hag- stofu íslands 1950-1966. Hann var ráðuneytisstjóri í fjármála- ráðuneytinu 1966-67 og prófessor við við- skiptadeild Háskóla íslands 1967-1979. Guðlaugur gegndi starfi háskólarektors 1973-1979. Árið 1979 tók hann við starfi rík- issáttasemjara og gegndi bví til starfs- ioka árið 1994. Guðlaugur gegndi mörgum trúnaðar- störfum. Hann sat í stúdentaráði Hl 1946-47, var formað- ur Félags viðskipta- fræðinema 1946-47, formaður Félags viðskiptafræðinga 1951-56, formaður Starfsmanna- félags Stjórnarráðsins 1959-60, stjórnarformaður Happdrættis HÍ 1969-79, stjórnarformaður Líf- eyrissjóðs bænda 197U78, stjórn- arformaður Stofnunar Árna Magnússonar 1973-79, sat í stjórn Vísindasjóðs 1975-78 og í stjórn Norræna hússins 1978-90 þar af í átta ár sem formaður. Hann sat ennfremur í mörgum nefndum á vegum stjórnvalda, Háskóla íslands og Norræna fé- lagsins. Guðlaugur bauð sig fram til embættis forseta íslands árið 1980 og hlaut næstflest atkvæði á eftir Vigdísi Finnbogadóttur. Guðlaugur hlaut riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu árið 1975 og stórriddarakross árið 1979. Guðlaugur var kvæntur Krist- ínu Kristinsdóttur og eignuðust þau fjóra syni. Þingmenn Reykjaneskjördæmis vilja lýsingu Reykjanesbrautar í forgang Aætlaður kostnað- ur 160 milljónir kr. ÞINGMENN Reykjaneskjördæmis hafa á fundi með Vegamálastjóra samþykkt að ráðist verði í lýsingu Reykjanesbrautar frá Hafnarfirði að Leifsstöð og er stefnt að því 'að verk- inu verði lokið fyrir næsta vetur. Áætlaður kostnaður við lýsinguna er um 160 milljónir króna, en að sögn Kristjáns Pálssonar alþingismanns er talið að með lýsingunni eigi slysa- hætta á Reykjanesbraut að minnka um 30% frá því sem nú er. Kristján sagði í samtali við Morg- unblaðið að þingmenn Reykjanes- kjördæmis hefðu ákveðið að lýsing Reykjanesbrautar yrði forgangsverk- efni í vegamálum í kjördæminu á þessu ári. „Samkvæmt erlendum stöðlum um hættumat er hættustuðullinn 0,37 fyrir Reykjanesbraut en með lýsingu næst hann niður í 0,26 og því er nokk- um veginn verið að minnka siysahætt- una um 30%. Framkvæmdin kostar lítið miðað við aðrar framkvæmdir sem myndu minnka þennan stuðul meira. Þetta er talið kosta tæpar 160 milljónir en með útboðum eru menn sammála um að þetta eigi að geta farið verulega niður fyrir það,“ sagði Kristján. Tvær milljónir bíla árlega Hann sagði að ef þriðju akreininni yrði bætt við Reykjanesbraut næðist hættustuðullinn niður í 0,20, en sú framkvæmd með gatnamótum og öðru myndi kosta yfir 600 milljónir króna. Ef brautin yrði tvöfölduð frá því sem nú er yrði kostnaðurinn um 1,3 milljarða króna, en þá myndi hættustuðullinn lækka niður í 0,10. „Með lýsingu Reykjanesbrautar næst þama verulegur árangur í fyrir- byggjandi aðgerðum á mjög skömm- um tíma fyrir tiltölulega litla fjár- muni. Tvöföldun Reykjanesbrautar hefur verið ofarlega á blaði hjá Suður- nesjamönnum, en ég held að þeir séu almennt ánægðir með að sjá þetta sem fyrsta áfanga. Um þessa braut fara á hveiju ári um 5 milljónir manna eða um 2 milljónir bila, og okkur fínnst mjög margt styðja þá ákvörðun að þetta verði gert að forgangsverkefni,“ sagði Kristján. I ft ft i ft ft I : ft i i i i ( i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.