Morgunblaðið - 26.03.1996, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 26.03.1996, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996 23 e Morgunblaðið/Jón Svavarsson Fyrir og eftir hlé Lög við ljóð skólaskáldsins Á HÁSKÓLATÓN- LEIKUM í Norræna húsinu miðvikudag- inn 27. mars kemur Háskólakórinn fram undir stjórn Egils Gunnarssonar. Á efn- isskrá eru lög ýmissa tónskálda við ljóð eft- ir Guðmund Guð- mundsson skólaskáld. Flutt verða lög bæði við stök ljóð Guð- mundar og^eins við brot úr kvæðabálkum hans, en á því sviði var hann afkastamik- ilt. Tónleikarnir eru um hálftími að lengd og hefjast kl. 12.30. Guðmundur Guðmundsson skólaskáld (1874-1919) átti einkar létt með að yrkja. Um ljóðagerð sína sagði hann sjálfur: „Ég flýg eins og lóan mót sól í söng, / þeg- ar sál mín er ljóðaþyrst.“ Hann vakti ungur á sér athygii eins og viðurnefnið „skóla- skáld“ ber með sér. Hann sótti yrkisefni sín mjög gjarnan til náttúrunnar, og ást hans til föðurlandsins leyndi sér aldrei. Eftir hann liggja margar ljóðabækur og margar ljóðaþýðingar auk þess sem hann fékkst við leikritun. Fjölmörg sönglög eru til við ljóð Guðmundar, þekktust eru Vorgyðjan kemur og Kirkjuhvoll. Egill Gunnarsson, sem stjórnað hefur Háskólakórnum í vetur, lauk prófi frá tónfræðadeild Tónlistarskólans í Reykjavík vorið 1992 og hefur síðan stundað söngnám við sama skóla auk þess að sinna tónlistar- kennslu í Reykjavík. Handhöfum stúdentaskírteina er boðinn ókeypis aðgangur, en aðgangseyrir fyrir aðra er 300 kr. Guðmundur Guðmundsson Föstutónleikar Kórs Vídalínskirkju í Garðabæ LEIKLIST Kjallaralcikhúsid ÞRJÁR KONUR STÓRAR Höfundur: Edward Albee. Þýðing: Hallgrímur Helgi Helgason. Leik- stjórn: Helgi Skúlason. Lýsing: Bjöm Bergsteinn Guðmundsson. Leikmynd og búningar: Elín Edda Árnadóttir. Hár: Guðmn Erla Sigurbjarnadóttir. Förðun: Sigga Rósa. Leikarar: Edda Þórarinsdóttir, Halla Margrét Jó- hannesdóttir og Helga Bachmann auk Þorsteins M. Jónssonar. Suimudagur 24. mars. ÞAÐ var sérstaklega ánægjulegt á sunnudagskvöldið að sjá hve gott leikhús Tjarnarbíó reynist ef hug- myndaflugið er notað til að sjá út möguleikana sem húsið býr yfir. Þótt sviðið sé lítið má með útsjónar- semi koma þar fyrir fámennum sýningum sem kreljast sérstakrar nálægðar áhorfenda og geta borið sig þótt áhorfendarými sé takmark- að. Þrjár konur stórar er einmitt slík sýning. Edward Albee hefur löng- um skrifað innhverf verk sem fjalla um náin samskipti fárra einstakl- inga. í þessu verki beinir hann sjón- um sínum að kjörmóður sinni og samskiptum sínum við hana. Hún og hennar líf og viðhorf eru í brenni- punkti, hvort sonurinn finnur fyrir sektartilfinningu eða hvort hann hrjáir skortur á sektarkennd eru spurningar sem áhorfendur fá alls ekki svarað, því hlutverk sonarins í verkinu er þögult. Lýsing var vel unnin og förðun til fyrirmyndar. Leikmyndin var hæfilega skrautleg og sviðið nýtt til hins ýtrasta. Húsmunir í anddyri voru valdir í stíl og gaf það öllu húsinu skemmtilegan samræmdan svip. Búningar voru prýðilegir og litasamsetningin gaf til kynna að gamla konan væri þarna heima hjá sér en yngri persónurnar gestir. Það eina sem setja má út á var að und- ir stílhreinni skrifstofudragt var Halla Margrét í fyrri hlutanum klædd einhverju sem virtist vera bómullarbolur, sem átti á engan hátt við, og sama á við um stutt- erma peysu sem hún klæðist eftir hlé. Verkið er undarlega tvískipt. Fyrri þátturinn er hefðbundin raunsæ kynning á þremur persón- um þar sem þungamiðjan er líf gömlu konunnar sem er að íjara út. I seinni þættinum er hver kvenn- anna þriggja orðin fulltrúi sinnar kynslóðar en jafnframt og fremur aðalpersónan hver á sínu æviskeiði. Seinni hlutinn ber af frá hendi höf- undar. Hann er mun áhugaverðari og efnistökin fagmannlegri en í fyrri hlutanum. Skilin eru jafnvel skarpari í upp- setningu verksins en í textanum sjálfum. Aðstandendur sýningar- innar hafa að sjálfsögðu gert sér grein fyrir meira vægi seinni þáttar- ins en það skýrir ekki þann mun sem sést á þessum tveimur hlutum. Hvort sem kenna má um frumsýn- ingarskjálfta eða ekki var leikurinn í fyrri hlutanum í molum. Engin leikkvennanna þriggja virtist finna sig í hlutverki sínu. Var þetta sér- staklega áberándi í samleik Eddu og Höllu Margrétar. Helst var að Halla Margrét Jóhannesdóttir sýndi tilþrif á stundum en persóna hennar er svo óburðug frá höfundarins hendi að persónusköpunin rann óhjákvæmilega út í sandinn. Texti fyrri hlutans byggir mikið á að setningum sé ekki lokið og sömu atriðin tuggin upp æ ofan í æ þannig að samræðurnar virðast fara í hring. Þetta byggir annars vegar á minnisleysi gömlu konunn- ar og hins vegar á því að hún er miðpunkturinn og ræður um hvað er rætt. Þess vegna kom sér afar illa að Helga Bachmann var óörugg með textann sem hafði þær afleið- ingar að hrynjandi sýningarinnar raskaðist og oft fyndinn texti höf- undar fór forgörðum i flutningi. Hins vegar var Helga trúverðug í látæði auk þess sem búningur og förðun gáfu sannfærandi mynd af háaldraðri konu. í seinni hlutanum tók annað og betra við. Helgu og Eddu jókst ás- megin í hlutverkum sínum, enda þau svo annars eðlis að í raun má segja að þær hafi orðið að skapa persónur sínar að nýju. Öll elliglöp voru af gömlu konunni og Helga lék hana af meira öryggi, enda flóknar einræður úr sögunni. Edda fór á kostum og lýsti af henni glæsi- leiki og þokki. Halla Margrét var aftur á móti á brauðfótum í per- sónusköpun sinni og má hiklaust skrifa það og ýmsa vankanta aðra á uppfærslunni á leikstjórans reikn- ing. Staðsetningar og hreyfingar á sviði voru t.d. á stundum mjög vandræðalegar. Þtjár konur stórar er ekkert tímamótaverk en kannski góður efniviður fyrir aðsópsmiklar leik- konur í leit að bitastæðum kven- hlutverkum eins og reyndin hefur orðið erlendis. Seinni hlutinn varpar samt upp ýmsum skemmtilegum spurningum um sjálfsímynd aðal- persónunnar á mismunandi ævi- skeiðum í bland við vangaveltur um samskipti og væntumþykju/hatur innan fjölskyldunnar. 1 byggingu verksins er hins vegar brotalöm sem erfitt er að horfa framhjá auk þess sem smáatriði úr ævi höfundar sem bætt var inn í höfðu oft enga sér- staka merkingu eða tilvísun í verk- inu sjálfu. Þýðing verksins á íslensku var undir sterkum áhrifum frummáls- ins, auk þess sem vildi brenna við að orðaval væri vandræðalega upp- hafið. Gildi sýningarinnar felst í seinni hlutanum og því sem vel er gert þar en það er spurning hvort áhorfendur leggja á sig að sitja undir fyrri þættinum til að hreppa hnossið. Sveinn Haraldsson KÓR Vídalínskirkju í Garðabæ, undir stjórn Gunnsteins Ólafsson- ar, gengst fyrir föstutónleikum í Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysu- strönd í kvöld kl. 21.00 og í Garða- kirkju á Álftanesi miðvikudaginn 27. mars kl. 21.30. Tilefni tónleik- anna er 30 ára afmæli endurreisn- ar Garðakirkju. Á efnisskrá eru verk sem lúta að föstunni og ber þar fyrst að nefna kantötuna „í dauðans böndum Drottinn lá“ eftir Jóhann Sebastian Bach. Þá verður flutt átta radda mótetta eftir frænda hans að langfeðgatali, Jó- hann Christoph Bach og mun hún ekki hafa heyrst áður hér á landi. „Tunga mín af hjarta hljóði“ eða „Pange lingua“ eftir ungverska tónskáldið Zoltán Kodály verður sungið í íslenskri þýðingu séra Stefáns Thorarensens, sálma- skálds og fyrrum prests á Kálfa- tjörn. Þá verður leikinn sálmfor- leikurinn „Adams barn, synd þín svo var stór“ eftir Jóhann Sebast- ian Bach. Flytjendur auk Kórs Vídalíns- kirkju verða Marta Halldórsdóttir, sópran, Guðrún Edda Gunnars- dóttir, mezzósópran, Einar Clau- sen, tenór, Eiríkur Hreinn Helga- son, bassi, Lenka Mátéova, organ- leikari og Kammersveit Vídalíns- kirkju, skipuð barokkhljóðfærum. Stjórnandinn, Gunnsteinn Ólafsson, tók við starfi organista og kórstjóra við Vídalínskirkju sið- astliðið haust. Hann hefur stjórnað Sinfóníuhljómsveit íslands og starfað við Þjóðleikhúsið og ís- lensku óperuna. Þá hefur hann unnið til norrænna verðlauna fyrir hljómsveitarstjórn. MRTOX-VIÍISLl Gildir 26/3-3/4 TILltOÐ: Kaupir þú innrömmun færðu kartonið frítt ÍSLENSK MYNMJST Gott úrval RAMMA SPEGLAR:j m/grá-tónuðu, im/brún-tónuðu spegilgleri Súper-gler Gler sem ekki glampar á INNROMMUN MIÐSTOÐIN TILlíOlf Kaupir þú tilbúna rammí færðu kartonið frítt PLAGGÖT eftir John Lennon 20% afsláttur Opið 08-18, lau. 10-16 Scetir sófar á óviðjafnanlegu verði HÚSGAGNALAGERINN Smiðjuvegi 9 (gul gata) - Kópavogi - simi 564 1475 Opið mán.-fös. 13-18, lau. 11-14.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.