Morgunblaðið - 26.03.1996, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 26.03.1996, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Morgunblaðið/Jónas Baldursson Slösuð eftir veltu Grýtubakkahreppi. UNG kona, ökumaður jeppabifreið- ar, var flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri eftir að jeppinn valt skammt sunnan Gljúfurár í Grýtu- bakkahreppi á sunnudagsmorgun. Bundið slitlag er á veginum þar sem slysið átti sér stað og hafði lít- ilsháttar hálka myndast um nóttina. Kallað var eftir lögreglu og sjúkrabifreið, en önnur bifreið kom að skömmu eftir að slysið átti sér stað. Konan var ein í bílnum og var flutt á sjúkrahús á Akureyri. Tölu- verðan tíma tók að ná henni út úr bílflakinu þar sem talið var að hún væri með áverka á hálsi. Bifreiðin er mikið skemmd og var fjarlægð af slysstað með kranabíl. Múlafoss nærri búinn að sigla á Hrís- eyjarferjuna Sævar Sveigðu frá á síðustu stundu „í MÍNUM huga var þetta spuming um örfáar sekúndur, annars værum við ekki hér til frásagnar,“ sagði Smári Thorarensen skipstjóri á Hríseyjarfeijunni Sævari en nærri lá að Múlafoss sigldi á feijuna síð- astliðið föstudagskvöld. Smári sagði að um borð í feij- unni hefðu verið 8-10 manns, far- þegar og áhöfn, og var verið að sigla frá Árskógssandi yfir í Hrís- ey. „Það var myljandi snjókoma og ekkert skyggni," sagði Smári „en við sigldum okkar réttu leið, eins og við höfum gert mörg þúsund sinnum áður.“ Leist ekkert á blikuna Múlafoss var á leið frá Dalvík til Akureyrar þegar atvikið varð. „Ég var búinn að sjá skipið lengi í rad- arnum. Ég var í 100% rétti, Múla- foss átti skilyrðislaust að víkja þannig að ég hélt minni stefnu en leist satt að segja ekkert á blikuna því skipið var komið svo nálægt okkur. Þegar um 200 metrar voru á milli okkar sá ég aðeins grilla í skipið og það virtist ætla að stefna beint á okkur. Það þýddi ekkert fyrir mig að stoppa fetjuna og ég varð því að treysta því að þeir gerðu eitthvað. Ég var svo að búa mig undir að beygja beint undan honum þegar þeir loksins beygðu á síðustu stundu,“ sagði Smári. „Þetta var bara spurning um nokkrar sekúnd- ur að skipið sigldi á okkur. Ég veit ekki hvað þeir voru að hugsa. Ann- að hvort hafa þeir ætlað að svína fyrir okkur, því þeim gengur oft illa að bera virðingu fyrir okkur þessum litlu, eða þá að þeir hafa ekki séð okkur.“ Hríseyjarfeijan Sævar er 30 tonn að stærð og sagði Smári að hún sæist vel í radar og í svo slæmu veðri hlytu menn að fylgjast með radarnum. Smári sagðist hafa kallað í Múla- foss á eftir til að fá skýringar en sér ekki verið svarað. „Ég get ekki annað en litið þetta atvik alvarlegum augum. Þetta er í rauninni fáheyrt,“ sagði Smári sem kvaðst aldrei hafa komist í hann jafn krappan. Hönnun bygginga og lóðar Háskólans Ellefu tillögur bárust í samkeppni ELLEFU tillögur bárust í sam- keppni um hönnun nýbygginga á lóð Háskólans á Akureyri á Sól- borgarsvæðinu og heildarskipu- lags alls háskólasvæðisins. Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, sagði að dómnefnd myndi fara yfir tillög- urnar og nota til þess næsta mán- uð. Seinni hluta aprílmánaðar yrði síðan opnuð sýning á tillögunum og tilkynnt um úrslit. Um er að ræða hönnun nýbygg- inga og aðlögun eldra húsnæðis þar, en húsrýmisáætlun gerir ráð fyrir að húsnæðisþörf sé rúmlega 4.800 fermetrar. Heildarskipulag alls háskólasvæðisins þ.e. núver- andi Sólborgarlóð og framtíðar- byggingarsvæði háskólans er sam: tals um 10 hektarar að stærð. í samkeppninni var miðað við að allt svæðið rúmi háskóla með allt að 2.000 nemendum. LAIMDIÐ 19,7 milljóna fram- lag sveitarfélaga til Flateyrar afhent Morgunblaðið/Egill Egilsson FORMAÐUR og framkvæmdastjóri Sambands ísl. sveitarfélaga skoðuðu m.a. framtíðardrög Flateyrarhepps sem enn eru þó ósamþykkt. Flateyri - Stjórn Sambands ís- lenskra sveitarfélaga afhenti Flat- eyrarhreppi nýlega 19,7 milljóna króna framlag annarra sveitarfé- laga á landinu vegna hörmung- anna á Flateyuri í fyrrahaust. 29. október 1995 sendi stjórn Sambands ísl. sveitarfélaga hreppsnefnd Flateyrarhrepps sam- úðarkveðjur vegna hinna átakan- legu atburða er urðu í sveitarfélag- inu í snjóflóðinu 26. október á því ári. Jafnframt kom fram í bréfinu að sambandið myndi beita sér fyr- ir samvinnu allra sveitarfélaga í landinu um aðstoð við Flateyrar- hrepp vegna þeirra erfiðleika sem hann stæði frammi fyrir vegna snjóflóðsins. Eftir að hafa fundað með hrepps- nefndinni var undirbúin og fram- kvæmd skipuleg aðstoð allra sveit- arfélaganna 169 (170 ef Flateyri er talin með). Nú liggur niðurstaða þessarar aðstoðar fyrir. Hingað vest- ur á Flateyri komu formaður og framkvæmdastjóri SÍS og afhentu við látlausa athöfn hreppsnefnd Flateyrarhrepps 19.703.000 kr. Fram kom í ræðu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, formanns SIS, að hver íbúi á landinu hefði greitt sem næmi 75 kr. í söfnunina. Sveitarfé- lögin hefðu brugðist vel við þegar leitað var til þeirra, þannig að söfn- unin hefði gengið vonum framar. Sér væri því ljúft og skylt að af- henda féð sem safnast hefði. Við ávísuninni tók Steinþór Bjarni Kristjánsson, fulltrúi hreppsins. Vilhjálmur lýsti að lokum aðdáun sinni á því starfi sem unnið hefði verið frá því atburðurinn átti sér stað og einnig frá stjórn sambands- ins á frammistöðu hreppsins. Steinþór hélt stutta ræðu og þakkaði fyrir þann stuðning sem SÍS hefði sýnt eftir hörmungarnar í haust. Þetta hefði verið mikil blóðtaka fyrir svona lítið sveitarfé- lag og án aðstoðar SÍS hefði hrepp- urinn ekki komist í gegnum þessar hörmungar sem yfir hann dundu. Kristján Jóhannesson sveitar- stjóri hélt einnig stutta ræðu. Hann færði stjórnarmönnum SIS þakkir fyrir þetta rausnarlega framlag sem sveitarfélögin í landinu hefðu sameinast um að gefa hreppnum. Kristján þakkaði einnig fyrir skjóta aðstoð SÍS sl. haust, bæði hvað varðaði framlag úr bjargráðasjóði og flýtiafgreiðslu á framlagi til íþróttahúss. Það kom fram í ræðu Kristjáns að þessi aðstoð hefði bjargað því til dagsins í dag í þeim verkefnum sem hreppurinn hefði staðið í, því að þrátt fyrir mjög mikilvæga og mikla aðstoð ríkisvaldsins þá voru þeir peningar afmarkaðir til upp- byggingarstarfa. Einnig kom fram hjá Kristjáni að fyrsti kennsludag- urinn í nýja íþróttahúsinu verður á mánudaginn og húsið verður vígt eftir u.þ.b. tvær vikur. Að lokinni stuttri tölu Ólafs Kristjánssonar, bæjarstjóra í Bol- ungarvík, og þakkarorðum hrepps- nefndarmanna var fundi slitið. Að loknum fundi var formanni og framkvæmdastjóra sýnt íþrótta- húsið og kom þá í ljós að þeim er margt fleira til lista lagt en að vera í forsvari fyrir Samband ís- lenskra sveitarfélaga. 40 ára afmæli Rótarýklúbbs Stykkishólms' Stykkishólmi - Félagar í Rótarý- klúbbi Stykkishólms ásamt gest- um fögnuðu 40 ára afmæli klúbbsins í Hótel Stykkishólmi laugardaginn 9. mars sl. Klúbburinn var stofnaður 26. maí 1956, í klúbbnum eru nú 22 félagar og meðal þeirra eru 2 af stofnfélögunum, þeir Bjarni Lárusson og Lárus Krist- inn Jónsson, sem voru mættir í afmælishófinu. Afmælishófið var jafnframt fundur nr. 2000 frá upphafi í klúbbnum. Við þetta tækifæri var Jóni Magn- ússyni afhent orða og heiðurs- skjal þar sem hann var tilnefnd- ur Paul Harris félagi fyrir langa og dygga þjónustu í klúbbnum. í ræðu forseta klúbbsins, Kjartans Páls Einarssonar, þar sem hann rakti stuttlega sögu klúbbsins, kom m.a. fram að klúbburinn hefur látið ýmislegt gott af sér leiða. Nefndi hann þar m.a. þátttöku í skógrækt í Vatnsdal undir stjórn Christians Zimsens, fyrrum apótekara, sem nú er látinn. Þá sá klúbburinn um það á sínum tíma að koma upp útsýnisskífu á Helgafelli, skemmtanir eru haldnir árlega fyrir eldri borgara, nemendum grunnskólans sem bestum náms- árangri hafa náð hafa verið veitt verðlaun af klúbbnum. Einnig unnu klúbbfélagar í sjálfboða- Morgunblaðið/Árni Helgason KJARTAN Páll Einarsson af- henti Jóni Magnússyni Paul Harris orðuna fyrir langa og dygga þjónustu í Rótarý- klúbbi Stykkishólms. vinnu við félagsheimili og vatns- veitu á sínum tíma. Þá er ekki nokkur vafi á því að umræða um ýmis málefni og tillögur sem fram hafa komið innan klúbbsins hafa um árarað- ir haft góð áhrif á bæjarlífið í Stykkishólmi. í stjórn klúbbsins eru nú Kjartan Páll Einarsson, forseti, Hallur Viggósson, ritari og Lár- us F. Hallfreðsson, gjaldkeri. Fundaröð um atvinnumál í Hveragerði Hveragerði - Fundur um garð- yrkju- og umhverfismál verður haldinn á Hótel Hveragerði í kvöld, þriðjudagskvöld Frummælendur á fundinum verða þau Guðmundur Bjarnason umhverfis- og landbúnaðarráð- herra, Margrét Frímannsdóttir alþingismaður, Helena Guttorms- dóttir, framkvæmdastjóri Grænu smiðjunnar í Hveragerði, og Magnús Ágústsson garðyrkju- ráðunautur. Fundurinn í kvöld er annar fundurinn í fundaröð sem H-listinn í Hveragerði stendur fyrir um atvinnumál. Fyrsti fundurinn var síðastlið- inn þriðjudag, þar var fjallað um iðnaðar- og orkumál. Húsfyllir var á fundinum og góður rómur gerður að máli frummælenda sem voru Finnur Ingólfsson iðnaðar- ráðherra, Valdimar Hafsteinsson, forstjóri Kjöríss, Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri SASS, Þórður Ólafsson, formaður Verkalýðsfélagsins Boðans, Dav- íð Sch. Thorsteinsson, iðnráðgjafi Hveragerðisbæjar, og Jón Ingi- marsson, skrifstofustjóri í iðnað- arráðuneytinu. Þriðji fundurinn í fundaröðinni er fyrirhugaður fljótlega þar verð- ur fjallað um heilbrigðismál og mun Ingibjörg Pálmadóttir, heil- brigðis- og tryggingaráðherra, verður gestur fundarins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.