Morgunblaðið - 26.03.1996, Síða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Tilmæli í úrskurði séra Bolla vegna sóknarnefndarmanna og starfsmanna
Tveir yrðu að víkja úr sókn-
amefnd Langholtskirkju
TVEIR sóknarnefndarmenn í Lang-
holtskirkju eru óhæfir til að sitja í
nefndinni ef tekið er mið af tilmæl-
um séra Bolla Gústavssonar vígslu-
biskups í úrskurði hans í deilunum
í Langholtskirkju. Um er að ræða
Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur,
gjaldkera sóknarnefndar og eigin-
konu Jóns Stefánssonar organista,
og Margréti Leósdóttur, sóknar-
nefndarmann og kirkjuvörð. Baldur
Kristjánsson biskupsritari segir að
tilmælin eigi fyrst og fremst við í
stærri sóknum með launaða starfs-
menn.
í úrskurðinum er tekið fram að
mikilvægt sé að stjórnsýslunefndir
gæti hlutlægni í störfum sínum og
því hafi verið litið svo á að óæski-
legt sé að þeir einstaklingar eigi
sæti í þeim nefndum sem fyrirsjáan-
legt sé að muni oft verða vanhæfir
til meðferðar einstakra mála á
grundvelli hinna sérstöku hæfis-
reglna í 3. gr. stjórnsýslulaga. Það
sjónarmið eigi tvímælalaust við
sóknarnefnd í svo ijölmennri sókn
sem Langholtssókn sé.
„Með vísun til þess,“ segir í úr-
skurðinum, „er rétt að þeir einstakl-
ingar víki úr sóknarnefnd Lang-
holtssóknar sem annaðhvort eru
sjálfir starfsmenn sóknarinnar eða
eru venslaðir sóknarpresti eða ein-
hveijum starfsmönnum sóknarinn-
ar með þeim hætti sem greinar í
2. tl. 3. gr. stjórnsýsluaga," segir
ennfremur og tekið er fram að eðli-
legt sé að það gerist á næsta aðal-
safnaðarfundi."
„Mér sýnist að í úrskurðinum sé
mælt með því að launaðir starfs-
menn sókna og/eða makar þeirra
séu ekki í sóknarnefndum vegna
hugsanlegs hagsmunaágreinings,“
sagði Baldur Kristjánsson biskups-
ritari í þessu samandi og tók fram
að ekki væri um eindregin fyrir-
mæli að ræða heldur gæti starfs-
maður verið í nefndinni og vikið
sæti þegar um hans mál væri fjall-
að. „Tilmælin gilda fyrst og fremst
í stærri sóknum sem eru með laun-
Morgunblaðið/Kristinn
FJÖLMENNI var við messu í Langholtskirkju á sunnudaginn. Eftir langt hlé lék Jón Stefánsson
organisti á orgelið á meðan séra Flóki Kristinsson sóknarprestur messaði. Kór Langholtskirkju
söng af fremstu sætaröðum kirkjunnar.
aða starfsmenn. í minni sóknum
er kirkjustarfið borið uppi af um-
hyggju og eldmóði án nokkurra
launa. Almennt séð í dreifbýli ætti
úrskurðurinn því ekki að hafa áhrif
einfaldlega vegna þess að þar er
presturinn iðulega eina manneskjan
á launum, þótt hann sé ekki á laun-
um hjá söfnuðinum, er hann starfs-
maður kirkjunnar," sagði hann.
Hann taldi ólíklegt að margir mak-
ar sóknarpresta væru í sóknar-
nefndum.
Mörk um
vinnuframlag
Hann taldi eðlilegt að sett væru
ákveðin mörk vegna vinnuframlags.
„Þótt einhver sóknarnefndarmaður
sé í lítilsháttar starfi, t.d. þiggi ein-
hver lítiisháttar laun fyrir að vera
með sunndagaskóla eða eitthvað
slíkt, er ekki þar með sagt að hann
SÉRA Bolli Gústavsson
vígslubiskup þakkar séra
Flóka Kristinssyni sóknar-
presti fyrir messuna að
henni lokinni.
sé vanhæfur. Að mínu viti er þetta
orðið umhugsunarefni þegar um er
að ræða hálft starf eða meira.“
Hjá Guðmundi E. Pálssyni, for-
manni sóknarnefndar Langholts-
sóknar, kom fram að tilmælin ættu
við um tvo sóknarnefndarmenn.
Hann sagðist hins vegar ekki vita
hvort eða hvernig tilmælin hefðu
áhrif á setu þeirra í nefndinni. Ólöf
Kolbrún Harðardóttir, annar um-
ræddra sóknarnefndarmanna,
sagðist vera að velta því fyrir sér
hvort hún myndi bregðast við til-
mælunum og yrði búin að gera upp
hug sinn fyrir aðalsóknarnefndar-
fundi á vordögum. Hins vegar tók
hún fram að víða úti á landi væru
sóknarnefndarmenn skyldir starfs-
mönnum kirkjunnar og því væri
hætt við því að margir þyrftu að
víkja ef tilmælin ættu að eiga við
í öllum sóknum.
Eldur í
söluturn-
inum
Pinnanum
Vestmannaeyjum. Morgunblaðid.
TALSVERÐAR skemmdir
urðu á söluturninum Pinnan-
um í Vestmannaeyjum er eldur
kom þar upp seint á sunnu-
dagskvöld. Að sögn lögregl-
unnar í Eyjum var slökkviliðið
ræst út laust fyrir miðnætti.
Sprenging hafði þá orðið í
Pinnanum og er talið að ga-
skútur hafi sprungið, en rann-
sókn eldsupptaka er ekki lokið.
Elías Baldvinsson, slökkvil-
iðsstjóri, sagði að mikill reykur
og eldur hefði verið á lager
söluturnsins er slökkviliðið
kom að en greiðlega hefði
gengið að ráða niðurlögum
eldsins. Hann sagði að greini-
legt hefði verið að talsverð
sprenging hefði átt sér stað
því rúður hefðu sprungið úr
og einnig hefði hurðarkarmur
söluturnsins sprungið af. Elías
sagði að miklar skemmdir
hefui orðið í söluturninum,
bæði á tækjum og myndbönd-
um sem þar voru til leigu og
öðru innanstokks.
Eigandi Pinnans var í sölut-
uminum er sprengingin varð
og brenndist hann á eyra en
slapp að öðru leyti við meiðsl
að sögn lögreglunnar.
Brottfluttir
126 fieiri
en aðfluttir
FYRSTU tvo mánuði ársins
fluttust 512 manns til landsins
en 638 af landi brott, eða 126
fleiri en aðfluttir. Á sama tíma-
bili í fyrra fluttust 410 til
landsins og 506 frá landinu,
og fyrstu tvo mánuði ársins
1994 fluttust 355 til landsins
og 338 frá landinu.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofu íslands fluttu flestir
brottfluttra á þessu ári til ein-
hvers hinna Norðurlandanna.
Flestir fluttust til Danmerkur,
eða 392, til Noregs fluttu 89
og til Svíþjóðar 76.
Biskup segist ekki hafa ráðlagt sóknarnefnd að veita Jóni Stefánssyni leyfi
Skipulagning' og veit-
ing leyfa alfarið á
valdi sóknarnefndar
HERRA ÓLAFUR Skúlason, biskup
íslands, segist ekki hafa ráðlagt
sóknarnefnd Langholtssóknar að
veita Jóni Stefánssyni umbeðið leyfi
yfir jólahátíðina eins og fram hefur
komið í tengslum við úrskurð séra
Bolla Gústavssonar vígslubiskups í
deilunum í sókninni. Hann segist
hins vegar hafa sagt Guðmundi E.
Pálssyni, formanni sóknarnefndar,
að skipulagning og veiting leyfa
væri alfarið á valdi sóknarnefndar.
Guðmundur leggur áherslu á að
ákvörðun um að veita Jóni leyfi hafi
verið sjálfstæð ákvörðun sókn-
arnefndarinnar.
Herra Ólafur segir að Guðmundur
hafi hringt heim til hans fyrir jólin.
„Mér komu fréttir hans um að Jón
væri að fara fram á frí algjörlega í
opna skjöldu. Ég spurði hvort hann
ætti inni leyfi hjá söfnuðinum og
hann svaraði því til að á því væri
ekki nokkur vafí. í framhaldinu tók
ég svo fram að skipulagning og veit-
ing leyfa starfsmanna safnaðanna
væri alfarið á valdi sóknarnefnd-
anna. Sjálfur hef ég ekki komið
nærri því að ijalla um leyfi organ-
ista síðan við Guðni Þ. Guðmundsson
vorum í góðu samstarfi í Bústaða-
kirkju," sagði herra Ólafur og lagði
áherslu á að eðlilegt væri að prestur
og organisti töluðu saman um hve-
nær leyfi væru tekin, „en að biskup
fari að skipta sér af leyfum starfs-
manna safnaðanna er náttúrulega
alveg út í hött. Jafnvei þótt söfnuð-
urinn sé hinn frægi Langholtssöfn-
uður í Reykjavík."
Herrá Ólafur sagðist ekki vita
hvaðan sú hugmynd, að hann hefði
ráðlagt sóknarnefndinni að veita
Jóni Stefánssyni leyfið, væri komin.
Atburðarásin væri raunar farin að
minna sig á furðuleikrit. „Úrskurð-
urinn er kveðinn upp af séra Bolla
Gústavssyni af því að ég taldi víst
að mín persóna yrði aðalatriðið en
ekki úrskurðurinn sjálfur ef ég
kvæði hann upp. En í staðinn fyrir
að fjalla um úrskurðinn er allt í einu
farið að leita uppi eitthvað sem
hægt er að klína á mig. Að ég hafi
átt þátt í því að Jón Stefánsson fór
frí. Ég hafði ekki hugmynd um að
honum hefði dottið þetta í hug.“
Séra Flóki aðstoðaður
Herra Ólafur segist hafa fregnað
að séra Flóki hafi haldið því fram
að hann ætti sök á því að messur
hafi ekki verið með eðlilegum hætti
í Langholtskirkju. „Séra Flóki
hringdi í mig eftir að samstarfíð við
Ragnar Jónsson varaorganista var
runnið út í sandinn og sagði skyldu
mína að sjá til þess að hann gæti
messað með eðlilegum hætti í Lang-
holtskirkju. Næsta morgun talaði ég
því við Kjartan Sigurjónsson, for-
mann Félags íslenskra orgelleikara,
og fékk vilyrði hans fyrir því að
engin afskipti yrðu af því að annar
orgelleikari kæmi að orgelinu í
Langholtskirkju. Síðan ræddi ég við
Guðmund Pálsson og Jón Stefánsson
og fékk sömu svör. Flóki hafði hringt
í Eirík Tómasson lögmann, sem var
að vinna með mér að úrskurðinum,
sama kvöld og hann hringdi í mig
og Eiríkur hafði talað við formann
Félags íslenskra hljóðfæraleikara og
fengið sömu svör. Ekki yrði lagður
steinn í götu orgelleikara í Lang-
holtskirkju þótt Jón væri í fríi,“ sagði
hann og tók fram að um hádegið
hefði séra Flóki hins vegar tilkynnt
honum að hann væri hættur við að
hafa orgel. „Hann ætli að messa án
hljóðfæraleiks."
Herra Ólafur lagði áherslu á að
hann hefði ekkert vitað um að Jón
Stefánsson ætlaði í frí. „Ég lagði
mig allan fram, eftir að séra Flóki
og Ragnar Jónsson skildu, til að fá
leyfi fyrir því að annar organisti
mætti vera í kirkjunni og ég lagði
alla áherslu á og lagði mig allan
fram um að fá Jón og séra Flóka
til að slíðra sverðin yfir hátíð jól-
anna, friðar og fagnaðar og þakk-
lætis yfir fæðingu frelsarans. Áð ég
hafi reynt að trufla eðlilegt helgi-
hald í Langholtskirkju er eins fjarri
sannleikanum og svo margt annað
sem borið er á borð fyrir fólk í þess-
ari vitleysu."
Óheppilega stuttur fyrirvari
og tímasetning á leyfi
Guðmundur E. Pálsson, formaður
sóknarnefndar Langholtskirkju, hef-
ur sent frá sér yfirlýsingu vegna
þeirrar fullyrðingar að biskup ís-
lands hefði haft áhrif á ákvörðun
sóknarnefndarinnar um að veita Jóni
Stefánssyni leyfþ frá 24. desember
til 15. janúar sl. í henni kemur fram
að persónulegt símtal Guðmundar
við biskup uppúr miðjum desember
hafi ekki verið lagt fyrir sóknarnefnd
sem grundvöllur að ákvörðun sókn-
arnefndar um að veita Jóni Stefáns-
syni umbeðið leyfi og reyndar ekki
nefnt á þeim fundi.
„Þannig að það var sjálfstæð
ákvörðun sóknarnefndar að veita
Jóni Stefánssyni leyfið og var sam-
þykkt á sóknarnefndarfundi
20.12.95 með öllum greiddum at-
kvæðum, 1 sat hjá,“ segir í yfírlýs-
ingunni. í meðfylgjandi svarbréfi til
Jóns vegna leyfisbeiðni er tekið fram
að sú leið að biðja um leyfi með sex
daga fyrirvara og á þessum tíma
árs sé ákaflega óheppilegt. En með
tilliti til þess sem á undan sé gengið
og með skírskotun til viðtala og
bréfa sem farið hafi milli hlutaðeig-
andi sjái sóknarnefndin sér ekki
annað fært en að veita umbeðið leyfí.