Morgunblaðið - 26.03.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996 11
FRÉTTIR
Þingmenn Þjóðvaka hafa lagt fram frumvarp til breytinga á stjómarskránni
Þriðjungur kjósenda geti
krafizt þjóðaratkvæðis
FORMAÐUR og varaformaður Þjóð-
vaka, þær Jóhanna Sigurðardóttir
og Svanfríður Jónasdóttir, hafa lagt
fram á Alþingi frumvarp til breyt-
ingar á stjórnarskránni. Þingmenn-
irnir leggja til að skylt verði að halda
þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja lög-
gjöf, krefjist þriðjungur kjósenda
þess skriflega.
I 26. grein stjórnarskrárinnar seg-
ir m.a.: „Nú synjar forseti lagafrum-
varpi staðfestingar, og fær það þó
engu að síður lagagildi, en leggja
skal það þá svo fljótt sem kostur
er undir atkvæði allra kosningar-
bærra manna í landinu til samþykkt-
ar eða synjunar með leynilegri at-
kvæðagreiðslu. Lögin falla úr gildi,
ef samþykkis er synjað, en ella halda
þau gildi sínu.“
Forysta Þjóðvaka leggur til að við
26. greinina verði bætt svohljóðandi
ákvæði: „Sama á við ef forseta berst
áskorun um það frá þriðjungi kosn-
ingabærra manna í landinu.“
Lýðræðinu takmörk sett.
í greinargerð með frumvarpinu
segir að þótt oft hafi komið fram
krafa um að auka rétt fólks til þjóð-
aratkvæðagreiðslu hafi ekkert orðið
úr því. Samkvæmt íslenzkri stjórn-
skipun geti fólk einungis haft áhrif
með atkvæði sínu í kosningum til
þings og sveitarstjórna, svo og í for-
setakosningum. „Telja verður að lýð-
ræðinu séu þannig nokkur takmörk
sett, ekki sízt þar sem samsteypu-
stjórnir virðast mun algengari hér
en t.d. annars staðar á Norðurlönd-
um. Þannig veit fólk hér á landi
sjaldnast hvaða ríkisstjómir það er
að kjósa yfir sig með atkvæði sínu,
auk þess sem auðveldara er fyrir
samsteypustjórnir að semja sig frá
loforðum og kosningastefnuskrám,"
segir í greinargerðinni.
Þar segir jafnframt að með auknu
alþjóðlegu samstarfi sé enn brýnna
að fólk hafi möguleika á þjóðarat-
kvæðagreiðslu, ekki sízt þar sem mik-
ilvægir alþjóðlegir samningar geti
haft úrslitaáhrif á framtíð þjóðarinnar.
Forysta Þjóðvaka segir að forseti
hafi aldrei knúið fram þjóðarat-
kvæðagreiðslu og megi af fram-
kvæmdinni ráða, að vald forsetans
til að færa valdið frá þinginu til þjóð-
arinnar sé í raun marklaust. Færa
megi að því gild rök að frumvarp
til laga um aðild íslands að Evr-
ópska efnahagssvæðinu sé einmitt
mál, sem bera hefði átt undir þjóðina
með þessum hætti. „Þegnar landsins
geta átt réttmæta kröfu á því að fá
að taka á þennan hátt þátt í ákvörð-
un um mikilvæg atriði," segir í grein-
argerðinni. „Því er nauðsynlegt að
inn í stjórnarskrána verði tekið
ákvæði sem veitir þeim þennan rétt
án þess að til atbeina forseta lýðveld-
isins þurfi að koma.“
Hugmynd
Vilmundar
í stjómar-
fmmvarpi
ÁGÚST Einarsson þingmaður Þjóð-
vaka lýsti á Alþingi í síðustu viku
stuðningi við ákvæði um vinnustaða-
stéttarfélög í frumvarpi félagsmála-
ráðherra um stéttarfélög og vinnu-
deijur.
I frumvarpinu er gert ráð fyrir að
á vinnustöðum með a.m.k. 250
starfsmenn sé heimilt að stofna stétt-
arfélag, enda séu að lágmarki 8/4
þeirra félagsmenn.
Ágúst sagði merkilegt að 16 árum
eftir að Vilmundur Gylfason heitinn
hefði flutt þetta mál innan þingsala
væri það nú flutt aftur í stjórnar-
frumvarpi.
Hann sagði að með vinnustaðafé-
lögum væri ekki verið að rústa neinu
og hann væri sannfærður um að þau
myndu leiða til betri kjara launa-
fólks, þar sem m.a. væri hægt að
nýta betri stöðu einstakra fyrirtækja.
Einnig leiddi þetta til meira jafnrétt-
is í launum því eins og fyrirtækja-
samningar tíðkuðust nú væru þeir
helst gerðir við þá sem betur mættu
sín. Ágúst sagðist einnig vilja sjá
fyrirtækin sjálf koma að samnings-
gerðinni en ekki miðstýrt Garða-
strætisvald eins og hann orðaði það.
Ágúst mælti þó að öðru leyti gegn
frumvarpi félagsmálaráðherra og
hvatti félagsmálaráðherra til að
draga það til baka og reyna að nýta
tímann til að ná samstöðu um leik-
reglur á vinnumarkaði.
Samtök Lauga-
vegs og ná-
grennis stofnuð
formlega
UNDANFARIN ár hafa nokkrir
sjálfboðaliðar úr hópi verslunareig-
| enda við Laugaveg og Bankastræti
I barist fyrir hagsmunum sínum og
bryddað upp á ýmsum uppákomum
á Laugaveginum og nágrenni hans.
Tilgangurinn hefur verið sá að vekja
athygli á þessu aðalverslunarhverfi
borgarinnar og skapa notalega
stemmningu í kringum verslunar-
ferðir borgarbúa. Þessi athafnasemi
hefur aukið umferð fólks niður
Laugaveginn og skapað marga góða
I verslunardaga.
: Nú hefur verið ákveðið að stofna
formleg samtök sem eiga að vinna
' að enn frekari uppbyggingu og hags-
munamálum þessa elsta og stærsta
verslunarsvæðis landsins. Stofnfund-
ur Samtaka Laugavegs og nágrennis,
. SLON, verður haldinn í Kornhlöðunni
við Bankastræti jjriðjudaginn 26.
mars nk. kl. 18.30.1 fréttatilkynningu
frá undirbúningsaðilum segir að allir
sem eiga fasteignir eða hafa þar með
| höndum rekstur, jafnt einstaklingar,
fyrirtæki og stofnanir, séu hvattir til
að mæta. Sameiginleg hagsmunamál
í eru ijölmörg og mikilvægt að sem
flestir taki þátt í stofnun samtakanna.
Við gerðum miklar kröfur
og Ármannsfell uppfyllti þær
Hörður Felix Harðarson, 26 ára lögfræðingur, Guðrún
Valdimarsdóttir, 25 ára skrifstofumaður og Daníel litli 4
ára, fluttu inn í Permaform íbúð frá Ármannsfelli þann 15.
desember 1995
• Ibúð afhent fullbúin
# Einbýli í fjölbýli - sérinngangur
# Þvottahús í íbúð
„Við höfðum mjög ákveðnar hugmyndir um hvernig okkar
húsnæði ætti að vera. Við vorum orðin þreytt á fjölbýli og
vildum fá íbúð með sérinngangi. Fjárfestingin varð að vera
hagkvæm, húsið fallegt og frágangur snyrtilegur. Við
vildum ennfremur traustan og öruggan frágang sem
viðurkenndur væri af réttum aðilum. Ármannsfell stóðst
þessar kröfur og meira til.
Þótt við værum að kaupa tilbúið húsnæði gátum við ráðið
öllu sem okkur fannst skipta máli. Við völdum okkur
annað gólfefni, breyttum milliveggjum, völdum okkur
innréttingar á bað og í eldhús og fataskáparnir voru einnig
eftir okkar smekk en ekki annarra. Þegar við fluttum inn var
tilfinningin góð. Þetta var okkar íbúð í hólf og gólf með
lágmarks fyrirhöfn og á ákaflega hagstæðum kjörum."
# Fjölbreytt útfærsla eftir eigin höfði
Armannsfell hf.
Funahöfða 19 - simi 587 3599
http://nm.is/armfall
Opið sunnudaga frá kl. 12.00 til 15.00