Morgunblaðið - 26.03.1996, Qupperneq 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Dole skor-
ar á Perot
að fara
ekki fram
Yorba Linda. Reuter.
BOB Dole, leiðtogi meirihluta repú-
blikana í öldungadeild Bandaríkja-
þings og væntanlegt forsetaefni,
skoraði á sunnudag á auðkýfmginn
Ross Perot frá
Texas að fara ekki
í óháð framboð
vegna þess að það
myndi hjálpa Bill
Clinton forseta að
tryggja sér endur-
kjör.
Dole sagði að
repúblikanar hefðu
reynt að knýja
fram fiest af stefnumálum Perots,
en Clinton hefði staðið í vegi fyrir
þeim. Hvatti hann Perot til að auð-
velda repúblikönum að fella Clinton.
Perot sagði hins vegar í samtali
á sjónvarpsstöðinni C-Span að bæði
demókratar og repúblikanar væru
„fullkomlega óábyrgir“ og ættu sök
á fjárlagasjálfheidunni. Perot hefur
lagt mikla peninga í stofnun nýs
stjórnmálaafls, Umbótaflokksins.
Flokkurinn hyggst tefla fram for-
setaefni og Perot kveðst ekki munu
skorast undan verði hann valinn.
Dole var á kosningaferð í Kaliforn-
íu, þar sem forkosningar verða haldn-
ar í dag um leið og í Nevada og
Washington. Honum er spáð örugg-
um sigri, sem mun tryggja honum
tilnefningu repúblikana til forseta-
framboðs, en Pat Buchanan sjón-
varpsmaður kvaðst ekki mundu
draga sig í hlé þótt hann tapaði illa.
Buchanan hyggst nýta sér stuðn-
inginn í forkosningunum til að
tryggja að ýmis mál, sem hann berst
fyrir, verði á stefnuskrá repúblikana
í haust og útilokar ekki sérframboð
verði hann og stuðningsmenn hans
hunsaðir á landsfundi flokksins í San
Diego í ágúst.
Dole hélt meðal annars kosninga-
fund í Yorba Linda í Kaliforníu, þar
sem forsetabókasafn Richards M.
Nixons heitins er til húsa, um helg-
ina og sagði að forsetinn fyrrverandi
hefði verið of hófsamur í skoðunum
til að geta tryggt sér tilnefningu
repúblikana á okkar dögum. Nixon
gerði Dole að flokksformanni árið
1971. Dole flutti minningarræðu
þegar Nixon var borinn til grafar
árið 1994 og brast þá í grát.
Hverjir standa að baki
Íljúmzhínov, forseta FIDE?
Dularfullur auðjöfur og einræðisherra
í Kalmykíu, sem spáir því að Saddam
Hussein fái friðarverðlaun Nóbels
KÍRSAN Íljúmzhínov, forseti FIDE, (t.h.) ásamt
Florencio Campomanes, fráfarandi forseta.
KÍRSAN Íljúmzhínov minnir um
margt á Robert heitinn Maxwell
þótt þeir séu ekkert líkir í sjón.
Eins og blaðakóngurinn Maxwell
skýtur hann upp kollinum á hinum
ólíklegustu stöðum, stundum með
stórmennum á borð við Dalai Lama
eða Jóhannes Pál II. páfa og stund-
um með mönnum á borð við Sadd-
am Hussein, forseta íraks. íljúmz-
hínov er rússneskur kaupsýslu-
maður, aðeins 33 ára að aldri, og
með einhveijum dularfullum hætti
er hann orðinn stórauðugur mað-
ur, jafnvel á vestræna vísu. Hann
er líka forseti FIDE, Alþjóðaskák-
sambandsins.
Íljúmzhínov hneykslaði marga í
skákheiminum fyrr í þessum mán-
uði þegar hann lagði til, að heims-
meistaraeinvígið milli þeirra Ana-
tolís Karpovs og Gata Kamskys,
sem er aðeins 21 árs gamall, færi
fram í Bagdad í írak. Myndi Sadd-
am Hussein setja mótið, leika
fyrsta leiknum og reiða fram verð-
launaféð, tvær milljónir dollara,
132 millj. ísl. kr.
Oft hefur pólitíkin blandast inn
í baráttu skákmannanna, einkum
á tímum kalda stríðsins, og íljúmz-
hínov hefur nú tekist að koma
henni þar inn á nýjan leik. í við-
tali, sem blaðamaður The Daily
Telegraph átti við hann uppi á 18.
hæð í skrifstofubyggingu hans í
Moskvu fyrir skemmstu, vísaði
hann á bug óánægju vestrænna
ríkja með Saddam Hussein sem
gestgjafa í væntanlegu heims-
meistaraeinvígi.
Bandaríkjunum
stillt upp við vegg
„Saddam er bara eins og hver
annar forseti, til dæmis eins og
Yasser Arafat, og þess verður ekki
langt að bíða, að hann verði sæmd-
ur friðarverðlaunum Nóbels,“
sagði Íljúmzhínov. Hann kvaðst
ekki óttast hótanir Bandaríkja-
manna um að meina Kamskí þátt-
töku f einvíginu.
„Það er ekkert í ályktunum
Sameinuðu þjóðanna, sem bannar
íþrótta- eða menningarleg sam-
skipti við írak. Þar er aðeins kveð-
ið á um efnahagslegar refsiaðgerð-
ir. Með þessari ákvörðun hef ég
stillt Bandaríkjunum upp við
vegg,“ sagði Íljúmzhínov.
Hann segir, að Bagdad hafi orð-
ið fyrir valinu vegna þess, að Sadd-
am hafi boðið mest fé.
Þessi röksemdafærsla íljúmz-
hínovs hefur mælst vel fyrir í Rúss-
landi og honum hefur vissulega
tekist að vekja athygli á einvígi
þeirra Karpovs og Kamskys. Fyrir
aðeins mánuði var aldrei á það
minnst. I skákheiminum er það þó
fyrst og fremst ein spurning, sem
mepn vilja fá svar við: Fyrir hvetja
er Íljúmzhínov að vinna og hvernig
hefur hann náð jafn langt og raun
ber vitni?
Rekinn úr skóla
Kírsan Íljúmzhínov er Kalmyki,
af mongólsku þjóðarbroti, sem lifir
aðallega á hjarðmennsku við Kasp-
íahaf. Eru Kalmykar búddatrúar
og eina þjóðin í Evrópu, sem játar
þá trú. Hefur alltaf staðið mikill
styr um hann og hann var meðal
annars á sínum tíma rekinn úr
skóla í Moskvu fyrir verðandi
starfsmenn sovésku utanríksþjón-
ustunnar. Var honum gefið ýmis-
legt að sök, til dæmis „brask, eitur-
lyfjaneysla, vændisrekstur og
njósnir í þágu Afgana".
Eftir að Sovétríkin hrundu tók
Íljúmzhínov upp samstarf við Jap-
ani um alls konar viðskipti, allt frá
bílum til veitingastaða. Síðan var
hann kosinn á þing og 1993 var
hann kjörinn fyrsti forseti sjálf-
stjórnarlýðveldisins Kalmykíu.
Íljúmzhínov var endurkjörinn
forseti á síðasta ári til sjö ára og
var enda einn í framboði. Fyrir
kosningarnar var hann ekkert að
skera utan af loforðunum. Hann
lofaði til dæmis hveijum einasta
Qárhirði farsíma og hét að breyta
hinni dapurlegu höfuðborg, Elístu,
í nýtt Las Vegas með alþjóðlegum
flugvelli.
Iljúmzhínov gleymdi heldur ekki
vini sínum Saddam því að honum
hefur hann gefíð 10 ekrur lands í
Elístu og á það að vera hans eign
„um aldur og eilífð“. Hagar hann
sér í flestu eins og gömlu, mong-
ólsku höfðingjarnir, khanamir, og
gerir það, sem honum dettur í hug
hveiju sinni. Þegar að því kom að
velja nýrri olíuhreinsunarstöð stað
lét hann ömmu sína gamla og
blinda ráða staðsetningunni með
því að benda með pijóni á kort.
Málgögn stjórnar-
andstöðu bönnuð
Ríkisstjórn Íljúmzhínovs er aðal-
lega skipuð gömlum skóla- og
bekkjarbræðrum hans og hann er
mikill aðdáandi tónlistarmannsins
Michaels Jacksons, reyndi einu
sinni að bjóða honum í mat þegar
hann var á ferð í Moskvu.
Á Íljúmzhínov em líka aðrar
hliðar og öllu skuggalegri. Hann
Iíður ekki andstöðu við sig I einu
eða neinu og málgögn stjórnarand-
stöðunnar í Kalmykíu hafa verið
bönnuð.
Íljúmzhínov á frama sinn að
þakka peningunum og hann hefur
líka látið peningana tala innan
FIDE. Hans fyrsta verk sem for-
seti sambandsins var að gefa Bobby
Fischer 100.000 dollara, 6,6 millj.
kr., og ljúka þannig málaferlum
um brot gegn höfundarrétti, sem
hann hefur staðið í. Var það vegna
heimildariausrar útkomu bókar eft-
ir Fischer í Sovétríkjunum.
Íljúmzhínov er nú þegar búinn
að tryggja, að Ólympíuskákmótið
1998 verður haldið í höfuðborg
Kalmykíu, Elístu, þótt þar sé að-
eins að finna eitt mjög hrörlegt
hótel. Segir hann, að það skipti
engu máli því hann muni neyða
rússnesk stjórnvöld til að byggja
nýtt.
Fáir efast um, að valið á Bagdad
hafi fallið í góðan jarðveg hjá
rússneskum ráðamönnum. Það
hefur ekki aðeins valdið gremju í
Bandaríkjunum, heldur mælst
ágætlega fyrir í sumum arabaríkj-
um. Og það er ekki víst, að Vestur-
lönd _séu búin að bíta úr nálinni
með Íljúmzhínov því að hann seg-
ist nú ekki útiloka, að næsta
heimsmeistaraeinvígi verði undir
handaijaðri erkiklerkanna í Teher-
an í íran.
Heimild: The Daily Telegraph.
Frakkar vilja evrópsk-
an félagsmálapakka
París. Reuter.
RÍKISSTJÓRN hægrimanna i
Frakklandi hyggst leggja fyrir leið-
togafund Evrópusambandsins, sem
haldinn verður í Tórínó í lok mánað-
arins, tillögur um stóraukið Evrópu-
samstarf í' félags- og atvinnumál-
um. Tillögurnar fela meðal annars
í sér víðtæka samræmingu atvinnu-
réttinda og félagslegra réttinda inn-
an Evrópusambandsins. Tilgangur-
inn er að vinna hugi og hjörtu al-
mennings í ríkjum ESB.
Atvinnusköpun
for gangsverkef ni
Alain Juppé, forsætisráðherra
Frakklands, boðaði á laugardag
skýrslu, sem send yrði til ríkisstjórna
annarra aðildarríkja ESB í þessari
viku. Juppé sagði að í skýrslunni
yrði lögð áherzla á að ríkjaráðstefna
ESB, sem hefst í næstu viku, tæki
á málum, sem vörðuðu daglegt líf
hins venjulega Evrópubúa, þar á
meðal atvinnuleysi, öryggismálum,
málefnum innflytjenda og samskipt-
um á vinnumarkaði.
„Atvinnusköpun verður að vera
*★★★*.
EVRÓPA^
forgangsverkefni hjá ESB og ég
ítreka að ég er reiðubúinn að skoða
allar áþreifanlegar og jákvæðar
uppástungur í atvinnumálum,"
sagði Juppé á fundi í flokki Gaull-
ista, RPR. Forsætisráðherrann
sagðist myndu gera tillögur um að
nýta byggða- og félagsmálasjóði
Evrópusambandsins betur í þágu
atvinnusköpunar.
Juppé sagði að skýrslan í heild
myndi kveða á um „frumlegt verk-
efni í félagsmálum", sem stefnt
væri gegn bandarískri ofur-fijáls-
hyggju og óheftum markaðsöflum.
„Launþegar hafa réttindi og hlut-
verk Frakklands í Evrópu er að
minna á það,“ sagði forsætisráð-
herrann.
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, ritaði í gær grein í blað
vinstrimanna, Libération og hvatti
leiðtoga annarra ESB-ríkja til að
taka þátt í að skapa „evrópska fyr-
irmynd í félagsmálum“, sem myndi
vinna hugi og hjörtu venjulegra
borgara að nýju og sporna gegn
atvinnuleysisvandanum.
Samræma á vinnumála- og
velfer ðarlöggj öf
Chirac segir að samræma eigi
vinnumála- og velferðarlöggjöf að-
ildarríkja ESB, en slíku er t.d.
brezka stjórnin algerlega mótfallin.
Hann lagði jafnframt áherzlu á
hlutverk efnahags- og myntbanda-
lags (EMU) við atvinnusköpun og
ítrekaði að Frakkland myndi upp-
fylla skilyrði til þátttöku í EMU á
réttum tíma.
Chirac segir að Evrópusamband-
ið verði að beita sér meira gegn
atvinnuleysi en verið hafi. Hann
kallar 6.500 milljarða króna fjárlög
ESB „gífurlegt verkfæri í atvinnu-
málum“ og leggur til að útgjöld
sambandsins verði endurskoðuð.
Reuter
Evró til reynslu
VIÐSKIPTAVINUR í verslun í
París heldur á hinni nýju mynt
Evrópusambandsins, evró. Um
16.000 evró, hvert þeirra tæp-
lega hundrað króna virði, verða
notuð til reynslu ásamt frankan-
um næstu tvær vikurnar til að
gefa almenningi forsmekkinn
að nýju Evrópumyntinni.
Stefnt er að því að Efnahags-
og myntbandalag Evrópu
(EMU) taki gildi árið 1999.
Fyrstu þrjú árin mun evró að-
eins verða notað í viðskiptum
banka og fyrirtækja. Á árinu
2002 mun almenningur fá mynt-
ina í hendur og núverandi mynt
þeirra aðildarríkja, sem taka
munu þátt í bandalaginu, mun
falla úr gildi á miðju ári 2002.
Útlit myntarinnar á myndinni
er ekki „opinbert11. Enn á eftir
að ákveða útlit evró-myntar og
seðla og hefur framkvæmda-
sljórn ESB efnt til samkeppni í
því skyni.