Morgunblaðið - 26.03.1996, Síða 22

Morgunblaðið - 26.03.1996, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Þórhildur Þorleifsdóttir ráðin leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur til ársins 2000 Eger í ræktun- arhug Morgunblaðið/Kristinn LEIKFÉLAGSFÓLK samgleðst Þórhildi Þorleifsdóttur á félagsfundinum í gær en hún var jafnframt afmælisbarn dagsins ásamt Sigurði Karlssyni formanni LR. LEIKHÚSRÁÐ Leikfélags Reykjavíkur sam- þykkti í gær að ráða Þórhildi Þorleifsdóttur í starf leikhússtjóra til 31. ágúst árið 2000. Hlaut hún þrjú atkvæði stjórnar Leikfélagsins en fulltrúi borgarstjóra í ráðinu sat hjá. Sigurður Karlsson, formaður LR, sem gerði grein fyrir ráðningu Þórhildar á félagsfundi í gær, sagði meðal annars að niðurstaða ieikhús- ráðs hefði, að vel athuguðu máli, verið sú að auglýsa stöðuna ekki að þessu sinni, heldur leita í þann hóp sem sótti um hana síðastliðið haust. Að sögn Sigurðar var ákvörðunin að bjóða Þór- hildi starfið byggð á vinnunni sem þá var unnin. „Við teljum að þessi niðurstaða sé bæði góð og skynsamleg og verði Leikfélagi Reykjavíkur til farsældar." „Þetta er stór stund í mínu lífi,“ sagði Þórhild- ur í fyrsta ávarpi sínu til félagsmanna í LR. Kvaðst hún líta fram á veginn með tilhlökkun í huga en auðvitað líka með kvíða. Ráðninguna hefði borið«að með bráðum hætti og því mætti hún ekki jafnvel undirbúin til leiks og hún hefði kosið. „En auðvitað koma fjörutíu ár í leikhúsi til með að nýtast mér.“ Þórhildur hefur aldrei verið félagi í Leikfélagi Reykjavíkur og ekki starfað innan vébanda þess í áratug. Sagðist hún þó vonandi eiga eftir að læra fljótt að rata í Borgarleikhúsinu — bæði í eiginlegum og óeiginlegum skilningi — og bætti við að aðstoð félagsmanna yrði vel þegin. „Fyrsta skylda mín er að kanna hug allra starfsmanna til starfsemi Leikfélags Reykjavíkur og læra að þekkja drauma þeirra og vonir.“ Mun endurskoða uppsagnir í samtali við Morgunblaðið sagðist Þórhildur vera í ræktunarhug, þótt ekki yrði framhjá því horft að erfíðleikar hefðu steðjað að Leikfélaginu. Fólk væri hins vegar sjaldan tilbúnara til átaka og samstöðu, heldur en einmitt að undangengnum erfiðleikum og umróti. Stefna og starfsmannamál eru málefni sem Þórhildur kvaðst ekki vera í stakk búin til að ræða til hlítar að svo stöddu en sem kunnugt er hugðist Viðar Eggertsson, sem leikhúsráð vék úr starfí leikhússtjóra á dögunum, gera breyting- ar á leikarahópi LR fyrir næsta vetur. Sagði Þórhildur að sér væri ekki enn kunnugt um lög- formlega stöðu þeirra mála. „Ég þarf að kynna mér vel hvernig gengið hefur verið frá uppsögnum og ráðningum. Ég reikna hins vegar með að endurskoða uppsagnir enda er algjört gru'ndvall- aratriði að reyna að styrkja og stækka þennan leikhóp eins og hægt er. Þá hlýtur það alltaf að vera skylda hvers leikhússtjóra að halda í eða laða að þá starfskrafta sem honum þykja girnileg- astir hveiju sinni.“ Þórhildur dró enga dul á að vinna þyrfti kapp- samlega að verkefnavali á næstunni enda hefði hún þegar tapað hálfu ári til þeirra starfa. „Ég mun auðvitað fyrst líta til þeirrar vinnu sem þeg- ar hefur verið unnin — annað myndi flokkast undir heimskulegt stolt — og sjá hvað mér líst á þar. Okkur liggur á og ég verð því eftir föngum að stytta mér leiðir." Að sögn Þórhildar gegnir sama máli um afmæl- issýningu í tilefni af hundrað ára afmæli Leikfé- lagsins í janúar 1997. „Mér hefur ekki gefíst ráð- rúm til að lesa verkin sem þegar hafa verið borin undir leikhúsráð og þótt ég þekki til grísku harm- leikjanna verður að skoða þessi mál í samhengi." Ornólfur Thorsson, fulltrúi borgarstjóra í leik- húsráði, bókaði þá afstöðu sína á fundi ráðsins 15. mars síðastliðinn að hann sæi ekki ástæðu til að koma að ráðningu nýs leikhússtjóra að sinni. I bókun við atkvæðagreiðslu á fundinum í gær tekur Örnólfur fram að sú afstaða hafi ekki breyst. Það megi því líta svo á að stjórn LR hafi verið að ráða félaginu leikhússtjóra, ekki leikhúsráðið. Því sitji hann hjá í atkvæðagreiðslunni. Óvissa Ennfremur segir í bókun Örnólfs: „Óvissa ríkir nú um framtíðarskipan þess starfs sem fram hefur farið i Borgarleikhúsinu með tilstyrk Reykjavíkurborgar. Um það starf gilda tveir samningar milli borgarinnar og LR, stofnskrá frá 1975 og samkomulag frá 1992. Samkomulagið fellur úr gildi um næstu áramót og ber að ljúka endurskoðun þess fyrir þann tíma. Þar þarf m.a. að kveða á um skipan og starfssvið leikhúsráðs- ins, ráðningu leikhússtjórans og styrkveitingar borgarinnar til LR en engin ákvæði eru um þau efni í gildandi samningum heldur hafa styrkir verið háðir ákvörðun borgarstjórnar við af- greiðslu fjárhagsáætlunar hvetju sinni. Þá hefur hlutdeild annarrar starfsemi en leiklistarstarfs á vegum LR vaxið mjög undanfarið leikár, raunar svo að gestafjöldi í Borgarleikhúsi mun tvöfald- ast milli leikára einvörðungu vegna þessara ný- mæla í húsinu. Ég hlýt að efast um að leikhús- stjóri, sem einvörðungu starfar í skjóli félagsfund- ar LR, hafi umboð og stöðu til að tryggja fram- tíð þessa starfs í Borgarleikhúsi." Og Örnólfur heldur áfram: „Ég lagði það til í leikhúsráði að leikhússtjórinn yrði einungis ráðinn til eins árs og taldi það ekki meiri frávik frá lög- um og venjum en að ráða Imnn án auglýsingar. Á það féllst stjórn LR ekki. Ég hlýt því að undir- strika þann fyrirvara sem orðaður er í starfslýs- ingu leikhússtjórans um hugsanlegar breytingar í kjölfar nýs samkomulags Reykjavíkurborgar og LR um rekstur Borgarleikhúss. Ekki er unnt að ábyrgjast að starfsvettvangur, umboð, valdsvið og ábyrgð leikhússtjóra haldist óbreytt frá því sem verið hefur.“ í samtali við Morgunblaðið sagði Ömólfur að þessi afstaða snerist ekki á nokkurn hátt um per- sónu Þórhildar Þorleifsdóttur, sem væri að hans mati mjög hæfur leikhúsmaður. „Ég hefði hins vegar óskað að þessa ráðningu hefði borið að með öðrum hætti, þótt ég fagni því að tekist hafí að binda enda á óvissuna sem ríkt hefur í húsinu." V orlaukar í Þjóðleikhúsinu LISTDANS Þ jóðlcikhúsið NEMENDASÝNING Nemendur Listdansskóla íslands. Þriðjudagurinn 19 marz. ÞAÐ ER vor í lofti og svo sannarlega var vorstemmning í Þjóðleikhúsinu þegar ungviðið í Listdansskóla íslands brá á leik - eða öllu heldur dans á sviði þess síðastliðinn þriðjudag. Þarna voru á ferðinni vorlaukar íslenskrar danslistar - nemendasýning List- dansskóla íslands. Sýningar af þessu tagi eru nauðsynlegur þáttur í starfí skólans. Bæði nemendur og kennarar uppskera eftir erfiði vetrarins, átta sig á stöðunni og kennurunum gefst kostur á að skoða nemendur í öðru ljósi en því venjulega í æfingasalnum. Hér sleppir æfingunum, hinni daglegu „rútínu“ og við tekur dansinn, hið eiginlega takmark kennslunnar. Listdans er list leikhússins - sviðs- ins - og því ómetanlegt fyrir nem- endur að komast á svið og máta kunnáttu sína og getu við leikhús- ið og ekki spillir að sjálft Þjóðleik- húsið skuli lagt undir. Það er best að að segja strax, áður en lengra er haldið, að það var mjög gaman í Þjóðleikhúsinu þetta kvöld en jafnframt verður að taka það með í reikninginn að þeir sem á sviðinu stóðu höfðu heilmikið í forgjöf, sem sagt það að vera ungir! Hver hrífst ekki af stórum hópi barna og unglinga, sem með von í augum og hreinleika hins óskrifaða blaðs fyllir sviðið og dans- ar af hjartans Iyst. Sá sem ekki hrifist með hlyti að hafa hjarta úr steini. Með þessum orðum er ekki á nokkurn hátt verið að draga úr því að sýningin var sérstaklega vel og skemmtilega unnin og mikill metnaður lagður í að allt mætti fara sem best fram. Fyrri hluti sýningarinnar bar heitið „Afmælisgjöfin“ og þar komu yngstu nemendurnir talsvert við sögu. Hugmyndin er sótt í Hnotu- brjótinn og fleiri sígilda balletta, þar sem veisluhöid af einhveiju til- efni gefa höfundum tækifæri til að útbúa dansveislu á sviðinu í formi skemmtiatriða til að hafa ofan af fyrir veislugestum. En ekki er hug- myndin verri fyrir það, að hún eigi sér fyrirmyndir - þvert á móti - góðar hugmyndir á að nota ef færi gefst. Enda nýttu danshöfundarnir Ingibjörg Björnsdóttir, skólastjóri Listdansskólans, David Greenall og Margrét Gísladóttir afmælisveisl- una vel og leiddu saman á sviðinu nemendur á öllum aldri. Þarna gaf að líta afmælisgesti, náttúruöfl og höfuðskepnur og inn á milli komu svo þjóðdansar frá ýmsum löndum, listilega æfðir af Tom Bosma. Allt þetta gaf nemendum tækifæri til að dansa mikið og vel, kröfum stillt í samræmi við getu hvers hóps svo allir nutu sín vel, auk þess - sem ekki er minnst um vert - að skemmta sér og okkur sem í salnum sátu hið besta. Seinni hlutinn var svo eingöngu helgaður eldri nemendum og settur saman úr stuttum atriðum úr sígild- um ballettum og frumsömdum fyrir þetta tækifæri. Þarna gat að líta eitt atriði eftir Hany Hadaya og gaman að vita til þess að hann skuli ekki alveg hafa sagt skilið við danslistina, _ þótt hans njóti ekki lengur við í íslenska dansflokknum, þar sem hans hlýtur að vera sárt saknað. Ekki er að orðlengja það að auðvitað voru hnökrar hér og þar - skárra væri það nú - hér eru nemendur á ferð, en ekki full- mótaðir atvinnudansarar, en flest bar þó kennurunum fagurt vitni og greinilegt að vel er á málum haldið í skólanum og skilar árangri. Sumt var reyndar svo vel gert að undrum sætti. Ekki skulu nein nöfn nefnd, enda kynni undirrituð ekki einu sinni að nefna þau, en þarna eru ýmis góð dansaraefni á ferðinni sem gaman verður að fylgjast með í framtíðinni. Karlmannsskorturinn leynir sér ekki frekar en fyrri dag- inn, en í þeim fámenna hópi drengja og ungra manna sem þarna var, má innan um og saman við greina augljósan efnivið. Vona að þeir haldi sig við leistann - en ástæða til að varpa fram þeirri spurningu hvort verði ekki að leggja upp ein- hveija áætlun, til að laða karlkynið að þessu listformi. Áð lokum. Ánægjulegt var að sjá hvað vandað var til allra verka, til að ljá sýningunni fagmannlegt yfir- bragð. Faliegir og fjölbreyttir bún- ingar, gervi einföld en vel útfærð þar sem þar átti við og allt streymdi snurðulaust fram, þrátt fyrir íjölda þátttakenda og atriða. Sérstakt lof eiga ljósahönnuðirnir Páll Ragnars- son og Björn B. Guðmundsson skil- ið fyrir þá alúð sem þeir lögðu í sitt verk. Ingibjörg Björnsdóttir, skóla- stjóri, og allt hennar lið eiga heiður skilinn fyrir sitt starf og uppskera svo sannarlega eins og þau hafa sáð til. Þórhildur Þorleifsdóttir Umræður eftir Am- lóða sögu EFTIR sýningu Bandamanna á Amlóða sögu á litla sviði Borgar- leikhússins í kvöld, þriðjudagskvöld, verður efnt til umræðu. Þar situr leikhópurinn ásamt höfundi, leik- stjóra og tónskáldi fyrir svörum um tilurð sýningarinnar, þær vinnuað- ferðir, sem Bandamenn hafa tamið sér, svo og merkingarlega innviðu leiksins. Amlóða saga var frumsýnd í Dan- mörku í byijun mánaðarins, en. hef- ur að undanförnu verið sýnd á litla sviði Borgarleikhússins, enda er sýn- ingin eitt af samvinnuverkefnum Leikfélags Reykjavíkur í ár. Hefur sýningin fengið afburða góðar við- tökur gagnrýnenda bæði hér og í Danmörku og Svíþjóð, enda þykir hún bæði skemmtileg og nýstárleg. Soffía Auður Birgisdóttir orðar þetta svona í Morgunblaðinu: „Banda- menn bjóða upp á fyrsta flokks leik- hússkemmtun, sýningu sem er ólík öllu öðru, sem íslenskt leikhús hefur á boðstólum í dag. Áhugamenn um leiklist ættu ekki að missa af þess- ari sýningu," segir í kynningu. Á meðan á Danmerkurdvöl Bandamanna stóð, var tekinn upp útvarpsþáttur um sýninguna og fer- il hennar. Guðni Rúnar Agnarsson útvarpsmaður, sem starfar í Svíþjóð og Danmörku, hafði umsjón með þeim þætti, sem verður útvarpað í dymbilvikunni, eftir að sýningum hér heima lýkur. Sýningum á Amlóða sögu lýkur um næstu helgi, þar sem einn leik- arinn, Borgar Garðarsson, er bú- settur í Finnlandi og getur ekki dvalist hér heima lengur að sinni vegna annarra skyldustarfa. Voru því aðeins fyrirhugaðar 10 sýningar og eru fimm eftir með sýningunni í kvöld, á fimmtudags- og laugar- dagskvöld og síðdegis á laugardag og sunnudag. ------------- Vortónleikar Skólahljóm- sveitar Kópavogs HINIR árlegu vortónleikar Skóla- hljómsveitar Kópavogs verða haldn- ir í Digraneskirkju í kvöld, 26. mars kl. 20.00. Þar koma fram lið- lega 100 ungir hljóðfæraleikarar í þremur hljómsveitum og flytja lög úr ýmsum áttum eftir höfunda á borð við George Gershwin, Andrew Lloyd-Webber og Georges Bizet. Einnig kemur fram á tónleikunum Þröstur Þorbjörnsson, fulltrúi eldri félaga hljómsveitarinnar og leikur einleik á gítar. Skólahljómsveit Kópavogs hefur starfað af miklum krafti í vetur og má til marks um það nefna tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur fyrr í þessum mánuði, æfingabúðir og tónleika í Njarðvík, sameiginlega tónleika með Skólalúðrasveit Selfoss og æf- ingabúðir á Akranesi um síðustu helgi. Stjórnandi á tónleikunum er Öss- ur Geirsson, og aðgangseyrir er 300 krónur. ----♦ ♦ ♦---- Djasstónleikar í Borgarnesi TÓNLISTARFÉLAG Borgarfjarðar heldur djasstónleika í Hótel Borgar- nesi miðvikudaginn 27. mars kl. 21. Flytjendur eru: Tríó Tómasar R. Einarssonar ásamt Olafíu Hrönn. Á tónleikunum verða flutt lög af plöt- unni Koss og fleiri djasslög. Að- gangseyrir fyrir utanfélagsmenn er 1.000 kr. Frítt fyrir börn innan 12 ára. Félagsgjald, 3.500 kr., er hægt að greiða við innganginn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.