Morgunblaðið - 26.03.1996, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MENNTUN
Aðsókn eykst í
myndlistarnám
Stefnt er að því að Fjölbrautaskól-
inn í Breiðholti verði kjamaskóli
meðal annars á listasviði, enda
er þar um metnaðarfulla starfsemi
að ræða. Hildur Friðriksdóttir
ræddi við Sigríði Candi deildar-
stjóra, sem hefur verið starfandi
við skólann nánast frá upphafí og
tekið þátt í mótun deildarinnar.
Morgunblaðið/Kristinn
SIGRÍÐUR Candi segir að nafngiftinni „kjarna-
skóli“ hafi ekki fylgt nein skilgreining en skólinn
hljóti þó að verða öðrum fyrirmynd á því sviði.
MYNDLISTADEILD Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti (FB) var sett á
laggimar strax og skólastarf hófst
haustið 1975. Frá upphafí var lagð-
ur metnaður í að gera námið vel
úr garði. Hefur aðsóknin farið vax-
andi ár frá ári og eru nemendur
nú um 230, þar af um 50 í kvöld-
skóla. Sigríður Candi deildarstjóri
listasviðs segir að svo undarlega
sem það kunni að hljóma hafi að-
sóknin á undanförnum árum aukist
í hlutfalli við vaxandi atvinnuleysi.
Nemar af öllu landinu
Sambærilegt nám er hvergi að
finna í skólakerfinu nema í Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands
(MHÍ) og Verkmenntaskólanum á
Akureyri (VMA), enda hafa nem-
endur víðs vegar að af landinu sótt
námið í FB. Fjölbrautaskólinn og
Verkmenntaskólinn hafa gert
samning við MHÍ um að með þessu
fornámi komist nemendur, sem
hafa lokið prófum, inn á annað ár
skólans án inrrtökuprófs. Að sögn
Sigríðar er þó alltaf eitthvað um
að nemendur fari í erlenda lista-
skóla eftir að hafa brautskráðst frá
skólanum eða fara í Kennarahá-
skóla íslands og þá oftast í handa-
vinnudeildir.
Af listasviði FB hafa á undan-
förnum árum útskrifast 15-20 nem-
endur. Fyrstu árin voru þeir mun
færri eða 6-8 og síðan um það bil
tíu nemendur til fjölda ára. Er nú
orðið þröngt um starfsemi lista-
deildarinnar og einkum um þá nem-
endur sem eru á síðasta ári, að
sögn Sigríðar. „Á næsta ári verða
nemendur í lokaáfanga 35 og því
verður einhver breyting að fara
fram nú í vor fyrir næsta skólaár,"
sagði hún.
Hún bendir á að skólinn sé ekki
fullbyggður miðað við upphaflegar
áætlanir. Þegar stjórnvöldum hafí
verið bent á að húsakostur væri
orðinn þröngur hafi ákvörðun
menntamálaráðuneytis verið að
flytja hluta iðngreina í burtu til
þess að auka rými í stað þess að
byggja nýtt húsnæði. „Verði mikill
hluti verklegra greina, s.s. mat-
vælasvið og tæknisvið flutt yfir í
aðra skóla eru menn hræddir um
að fjölbrautaskólarnir færist í svip-
að horf og menntakerfið var áður,
þ.e. að úr þeim verði hefðbundinn
menntaskóli, ef til vill með ein-
hveiju sérsviði.“
Ákvörðun ráðuneytisins er að
flytja málmiðnaðarbraut frá FB
yfir í Borgarholtsskóla, en óvíst er
hvort matvælasvið verður einnig
...flutt frá skólanum. Hins vegar er
stefnt að því að FB verði kjarna-
skóli í myndlist. Þegar Sigríður er
spurð hvað það þýði í reynd, segir
hún að þeirri nafngift hafi ekki
fylgt nein skilgreining. „Maður hef-
ur á tilfinningunni að ætlast sé til
að hugmyndir að uppbyggingu og
skipulag á námi komi héðan. Þann-
ig gætu aðrir skólar notið góðs af
því að við erum búin að móta náms-
braut okkar að einhverju leyti. Þeir
skólar gætu þá hugsanlega byggt
upp eitthvað svipað hjá sér. Þetta
er mín tilfinning, án þess að þessi
skilgreining hafi nokkru sinni verið
sett á prent.“
Sömu áherslur og í MHÍ
Sigríður hefur starfað við
myndlistadeildina frá árinu 1976
eða ári eftir að Fjölbrautaskólinn í
Breiðholti tók til starfa og segir að
þá hafi verið kenndar mun fleiri
greinar. „Ég kenndi til dæmis vefn-
að en einnig var kennd auglýsinga-
teiknun, textílvinna, tauþrykk,
smíðisgreinar og grafískar greinar.
Við höfum breytt þessu í tímans
rás og einbeitt okkur að sömu grein-
um og MHÍ er með í fornáminu,
þ.e. form- og litafræðinni. Þeir nem-
FYRSTA árs nemi spreytir sig við form og liti,
endur sem fara síðan í MHÍ velja
sér þar ákveðnar leiðir eins og að
fara í auglýsingadeild, textíl-, mál-
ara- eða höggmyndadeild."
Hún tekur fram að það hafi ver-
ið geysilega skemmtilegt að starfa
með þeim mikla hugsjónamanni
sem Guðmundur Sveinsson var og
móta starfsemi deildarinnar nánast
frá byijun. Guðmundur var fyrsti
skólastjóri FB og brautryðjandi
þess að tengja saman bóknám og
verknám. í fyrstu voru einingar í
listgreinum ekki eins margar og nú
þó að það hafi fljótlega breyst.
Hugmyndir Guðmundar voru að
nemendur tækju ákveðinn kjarna
af áföngum sama hvort þeir væru
á heilsugæslu-, myndlista- eða
tæknisviði. Vilji nemendur breyta
um svið eiga hvergi að vera blind-
götur heldur á að vera auðvelt að
skipta á milli með því að nýta þær
einingar sem lokið hefur verið við.
Algengt er að nemendur úr öðr-
um deildum ljúki 140 einingum til
stúdentsprófs, en nemendur af
listasviði ljúka 156 einingum, þar
af 56 einingum í verklegum grein-
um. „Það er ómögulegt að koma
öllum þessum einingum fyrir á fjór-
um árum, svo námið tekur 4'/2-5
ár af listasviði,“ segir Sigríður og
bætir við að verið sé að kanna hvort
hægt sé að fella niður einhverjar
einingar þannig að námið verði
sambærilegt að lengd við annað
nám í skólanum og þá á kostnað
verklegra tíma. „Við getum ekki
minnkað bóklega þáttinn, ef námið
á að veita réttindi inn í háskóla,"
segir hún.
skólar/námskeið
Foreldraráð er bakhjarl
skólans en án valds
nudd
■ Ungbarnanudd
veitir bornunum ró og vellíðan og for-
eidrunum ógleymanlegar samverustund-
ir með þeim.
Nánari upplýsingar í síma
554 1734 hjá Ragnheiði.
myndmennt
■ Glerbræðslunámskeið
með Krissy Ellis verða haldin 19.-21.
aprfl og 26.-28. apríl. Þetta er 4. árið
sem Krissy kennir hér.
Þeir, sem eiga pantað, eru beðnir að
staðfesta strax.
Nökkvavogi 19,
sími 553 0659.
skjalastjórnun
■ Inngangur að skjalastjórnun
Námskeið, haldið 1. og 2. aprfl (mánud.
og þriðjud.). Gjald kr. 11.000.
Bókin „Skjalastjórnun" innifalin.
Skráning hjá Skipulagi og skjöl
í síma 564 4688, fax 564 4689.
handavinna
■ Ódýr saumanámskeið
Samvinna við Burda. Sparið og saumið
fötin sjálf. Mest 4 nemendur í hóp.
Faglærður kennari.
Sigríður Pétursd., s. 5517356.
tölvur
■ Tölvunámskeið
Starfsmenntun:
- 64 klst tölvunám
- 84 klst. bókhaldstækni
Stutt námskeið:
- PC grunnnámskeið
- Windows 3.1 og Windows 95
- Word grunnur og framhald
- WordPerfect fyrir Windows
- Excel grunnur og framhald
- Access grunnur
- PowerPoint
- Paradox fyrir Windows
- PageMaker fyrir Windows
- Internet námskeið
- Tölvubókhald
- Novell námskeið fyrir netstjóra
- Barnanám
- Unglinganám í Windows
- Unglinganám í Visual Basic
- Windows forritun
Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar
kennslubækur fylgja öllum námskeiðum.
Upplýsingar og skráning
í síma 561 6699, netfang
tolskrvik@treknet.is,
veffang www.treknet.is/tr.
E3i Tölvuskóli Reykíavíkur
-HiirRamim 5tW9.:
„GRUNNSKÓLALÖGIN segja
ákveðið að foreldraráð eigi að skoða
skólanámsskrána og áætlanir
skólanefndar og hafa þannig yfir-
sýn yfír fyrirætlanir sem varða for-
eldra og börn þeirra. Þannig horfir
foreldraráðið í tvær áttir og fylgist
með báðum aðilum sem hafa ábyrgð
á skólahaldinu, þ.e. skólanum og
skólanefnd,“ sagði Hrólfur Kjart-
ansson, deildarstjóri í menntamála-
ráðuneytinu, spurður um hlutverk
foreldraráða. En nokkuð hefur bor-
ið á því að foreldrum, skólastjórn-
endum, kennurum ogjafnvel sveit-
arstjórnum sé ekki ljóst hvert hlut-
verk foreldraráða er, þrátt fyrir að
langt sé liðið á skólaárið.
Ekki til höfuðs skólunum
Hrólfur kvaðst hafa orðið var við
þann misskilning hjá sumum skóla-
stjórnarmönnum að foreldraráð
væru sett þeim til höfuðs. „Þeir
gleyma því að foreldraráðið á alveg
eins að fylgjast með áætlunum
skólanefndar, t.d. um byggingar,
skólaakstur, viðhald húsa, kaup á
kennslubúnaði o.fl. Foreldraráð er
þar með orðið bakhjarl og stuðning-
ur skólans,“ sagði hann. Skóla-
nefndir eru starfsnefndir sveitar-
stjórna. í Reykjavík heitir skóla-
nefndin Skólamálaráð.
! Hrólfur benti einnig á að skóla-
námsskrá væri eins konar rökstudd
áætlun starfsmanna skóla. Með
henni útskýri kennarar hvaða
markmiðum þeir ætli að ná og
hvernig. Hún gegni því veigamikla
hlutverki að vefa tæki til skólaþró-
unar og sé grundvöllur umbóta.
Væru einhverjar áætlanir í skóla-
námskránni sem foreldrar vildu
gera athugasemdir við ættu þeir
að snúa sér til skólans.
Hrólfur sagði hins vegar óljóst
hvenær foreldraráðin væru komin
út fyrir verksvið sitt og hvenær
ekki. „Engar haldbærar reglur eru
til um það. Hins vegar spái ég því
að reynslan verði allt önnur strax
næsta vetur þegar menn hafa feng-
ið reynslu. Ég hef þá trú að
foreldraráðin festi sig í sessi smátt
og smátt.“
Aðspurður hvort fólk hefði leitað
til ráðuneytisins, sagði Hrólfur að
aðallega hefði verið spurst fyrir um
gögn auk þess sem tilkynningar
hefðu borist um stofnun ráðanna.
„Menn báðu fyrst í haust um reglu-
gerð en ráðuneytið vildi ekkf.verða
við því. í fyrsta lagi er engin reglu-
gerðarheimild í grunnskólalögunum
og í öðru lagi er ekki heppilegt að
ráðuneytið segi foreldrum fyrir
verkum þegar skólinn er kominn til
sveitarfélaga.“
Hrólfur benti á.að greinin í grun-
skólalögum um foreldraráð væri til-
raun til að búa til formlegan vett-
vang fyrir foreldra. Síðan væri það
hlutverk foreldra að skipuleggja
starfið. „Þar hefur enn einn mis-
skilningurinn komið upp. Sumir
halda að foreldraráðin hafi völd og
geti gefið fyrirskipanir, en það er
ekki svo. Foreldraráðin hafa engin
formleg völd heldur er þetta form-
legur vettvangur til samskipta,
enda eru skólar og sveitarstjórnir
skyldug að veita upplýsingar."
Samskipti við skólanefndir
Aðspurður hvort það væri í hlut-
verki sveitastjórna að senda for-
eldraráðum hvers skóla upplýsingar
um áætlanir sínar, benti Hrólfur á
að skólastjórnendur sætu fundi
skólanefnda. „Þeir gætu því í sjálfu
sér miðlað upplýsingum til foreldra
um áætlanir. Þessi upplýsingagjöf
getur einnig verið á ýmsan annan
veg. Til dæmis eru fundargerðir
skólanefnda opinber gögn og verði
þeirri reglu komið á að foreldraráð
fái reglulega sendar fundargerðir
geta þau fylgst með því sem þar
er að gerast. Foreldrar almennt eiga
rétt til setu á fundum skólanefnda,
en í stórum bæjum, þar sem marg-
ir skólar eru, situr aðeins eitt for-
eldri fyrir hönd allra skólanna, eins
og til dæmis í Reykjavík."