Morgunblaðið - 26.03.1996, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996 33
AÐSENDAR GREINAR
Breyting á
bifreiðatollum
Guðmundur
Kjartansson
SUNNUDAGINN
11. febrúar sl. birtist í
Mbl. frétt af væntan-
legri breytingu á toll-
heimtu af nýjum bílum.
Af ummælum Friðriks
Sophussonar má ráða
að menn séu að velta
því fyrir sér að halda
áfram að ráðskast með
möguleika almennings
til að velja sér bifreið
eftir þörfum og smekk.
Krafan er skilyrðislaus
leiðrétting. Ofundar-
hyggjan sem beinist að
unnendum stærri og
öruggari fólksbifreiða
leggist af og markað-
urinn fái að hafa sinn gang án af-
skipta neyslustjórnar ríkisins.
Eignaupptaka
Alþingi hefur með lögum nr. 29.
frá 1993 bundið það fastmælum að
íslendingar skuli aka í smábifreið-
um. Þetta inntak laganna sést af
vörugjöldunum, en umfang þeirra
meinar fjöldanum að kaupa sér bif-
reiðar í millistærðum og stærri
flokkum að viðlagðri eignaupptöku
er ríkissjóður stendur fyrir. Þessi
upptaka er framkvæmd eftir vélar-
stærð og útilokar því t.d. bandaríska
bíla og flestar stærri gerðir evróp-
skra og japanskra bíla. Á síðasta
ári voru aðeins fáeinar fólksbifreiðar
fluttar til landsins sem lenda í
neysluhafti því er felst í hinum sví-
virðilegu vörugjöldum. Flestar þess-
ar stærri bifreiðar voru handa fólki
sem ríkið hefur velþóknun á eða
fyrir einstaklinga er vegna skatta-
reglna geta ekið í lúxusbílum á'
kostnað fyrirtækja sinna.
Hagfræðin svari
Spurningin gagnvart ríkssjóði er
hagfræðileg, ekki félagsleg. Menn
hafa haft áhyggjur af því að hol-
skeflan frá 1987-88 verði endurtek-
in. Það er eðlilegt. Vitað er að eðli-
leg endurnýjun hefur ekki átt sér
stað á bílaflota landsmanna á und-
anförnum árum. Því er óhjákvæmi-
legt að veruleg hreyfing verði á
markaðinum er saman fara vaxandi
þjóðartekjur og afnám haftastefn-
unnar. Flatur tollur eða vörugjald
upp á 40% af stærri bifreiðum mun
skila sér í hreinni aukningu tekna
í ríkissjóð. Á s.l. ári voru innan við
30 fólksbifreiðar fluttar til landsins
er lenda í 60 og 75% vörugjaldi.
Öfundarhyggjan sem réð banni á
sölu bandarískra fólksbifreiða og
stærri gerða frá öðrum löndum eyði-
lagði tekjumöguleika ríkisins af
þessum stærðarflokkum bifreiða.
Hér er ekki verið að mæla fyrir
breytingum er þýða tekjutap fyrir
ríkissjóð. Tekjurnar hafa engar ver-
ið.
Þáttur Alþingis
Vangaveltur nokkurra alþingis-
manna um að veita tollafslátt af
völdum öryggisbúnaði eins og líkn-
arbelgjum í bifreiðum eru góðar og
gildar, en þær sýna í hverskonar
ógöngur handhafar löggjafarvalds
rata er þeir fara út fyrir hlutverk
sitt. Fyrst voru okurtollarnir og
neyslustýringin lögð á. Fljótlega
komu vankantarnir og óréttlætið í
ljós. í stað þess að afnema óréttið
var fólki skipt upp í hópa: þá sem
máttu og gátu og svo hina. Einhveij-
ir þingmanna hafa heyrt um líknar-
belgi og annan öryggisbúnað sem
nú er orðinn staðalbúnaður í banda-
rískum bifreiðum og mörgum gerð-
um evrópskra og japanskra bifreiða.
Þá er rokið upp og farið að tala um
að gefa tollafslátt af þeim bifreiðum
sem innihalda þennan öryggisbún-
að. Þá skal þess getið að öryggis-
belti voru skylduð með lögum í
Bandaríkjunum 1.
mars 1966. Hér er því
heldur seint af stað far-
ið. Það er svo sér mál
ef Alþingi vill styðja
gott málefni með af-
slætti er kæmi til við-
bótar almennu afnámi
vörugjalds- eða tolla-
okurs.
Upphaf
ríkisafskipta af
bifreiðaiðnaði
Síðan bandarísku
umferðaröryggislögin
eða „National High-
way Transportation
Safety Act“ voru stað-
fest af báðum deildum Bandaríkja-
þings árið 1966 og undirrituð af
Lyndon Johnson er svonefndur ör-
yggisbúnaður orðinn nærri þriðj-
ungur af framleiðslukostnaðarverði
bifreiða. Þessi lög sem sett voru
fyrir réttum þrjátíu árum voru upp-
hafið að afskiptum ríkisvaldsins um
allan heim af bílaframleiðslu. Hefur
ástandið lagast? í Bandaríkjunum
farast 23-25.000 manns í um-
ferðarslysum á ári hveiju. Svarið
lá fyrir frá byijun: Mesta öryggið
er fólgið í efnismikilli bifreið. Þessa
skilnings gætir nú í gjöldum af bif-
Ríkisafskipti hafa leitt
til þess, segir Guð-
mundur Kjartansson,
að þessi markaður hefur
sveiflast milli hruns og
ofurþenslu á fimm til
tíu ára fresti.
reiðum þar í landi. Samkvæmt því
ættu aðflutningsgjöld að vera lægst
af stærstu og dýrustu bifreiðunum.
Um hlutverk Alþingis
Þeim alþingismönnum sem halda
að hlutverk Alþingis sé dyravarsla
í verslun landsmanna, er bent á að
kynna sér skoðun prófessors Sigurð-
ar Líndal á því hvert hlutverk Al-
þingis sé og eigi að vera. Það sé
að setja almenn lög til heilla fyrir
fjöldann. Þessa skoðun orðaði Sig-
urður á fundi er haldinn var í Lög-
bergi í nóvember sl. Efni þess fund-
ar var umræða um kjördæmaskipan
og mannréttindi á íslandi. Sigurður
lýsti því þannig að Alþingi vasist í
hagsmunagæslu fyrir einstaklinga
eða samtök. Athugasemd hans
tengdist flokkaskipaninni sem af-
leiðingu af misvægi kosningaréttar.
Það er vel til fundið því mörg þau
lög sem sett eru til verndar allskyns
sérhagsmunum væru óhugsandi ef
fullt forsvar fylgdi vegsemd þeirri
er þingmennska á með réttu að vera.
Ólögum skal eyða
Alþingi setti lög nr. 29 / 1993
án fyrirhyggju. Einu gildir hvort
menn afsaka sig með því að hafa
ekki séð afleiðingar þeirra fyrir.
Neytendum var skipt í hópa með
lögunum en afleiðingin er sú að
fólk býr við skert valfrelsi við kaup
á einkabifreiðum. Ríkið skammtar
sjálfu sér svo undanþágur frá tolla-
okrinu og reglugerðum um mengun-
arvarnir er settar hafa verið til að
stöðva innflutning á notuðum bif-
reiðum. Þessar reglugerðir voru
studdar tæknilegu fleipri um um-
hverfisvernd. Greinarhöfundur hef-
ur áður lýst þeirri skoðun sinni að
þessar hömlur sem lagðar hafa ver-
ið á frjáls viðskipti og valfrelsi ein-
Viðurkenning á
efnahagsstefnu
staklinga geti verið brot á tilteknum
ákvæðum stjómarskrárinnar. Því
hefur ekki verið mótmælt.
Er þá enn von?
íslendingar eru heppnir að eiga
nokkra vel þenkjandi ráðamenn er
vilja láta til sín taka í þjóðþrifamál-
um. En til að geta tekið á vandanum
þurfa þeir pólitískan stuðning. Ef
fjármálaráðherra vill í rauninni taka
á þessu stóra máli, á hann kröfu á
stuðningi til þess. Grein þessi er
rituð til stuðnings ijármálaráðherra
og þeim skoðunum er hann virðist
sjálfur hafa á málefninu ef marka
má ummæli hans í frétt Mbl. 11.
febrúar. Gegn þessu réttlætismáli
stendur hins vegar hópur hokur-
karla er mega ekki til þess hugsa
að amerískir bílar sjáist á vegum
landsins að nýju. Allskyns þvættingi
um mengun og orkumál er hent á
loft og ráðamenn gleypa hann hrá-
an. Þeir aðilar sem ríkið kallar til
ráðgjafar í tæknilegum málum virð-
ast upp til hópa vera þröngsýnir
menn sem engan skilning eða áhuga
hafa á afleiðingum þess að fórna
réttlætinu á altari félagslegrar
kreddutrúar.
Margt bendir til að reynt verði að
halda áfram miðstýringu á neyslunni
í einhverri mynd. Það kemur fram í
grein Morgunblaðsins hinn 11. febr-
úar sl. er fjármálaráðherra segir að
„menn hefðu rangt við í þessum
málum með að framvísa röngum
reikningum", þess vegna eigi að
hætta tollútreikningum er byggist á
innkaupsverði. Þessi röksemd geng-
ur gegn betri vitund. Fjármálaráð-
herra veit vel að tollstjóri hefur heim-
ild til að meta kaupverð upp ef reikn-
ingur þykir óeðlilega lágur. Það
tryggir fullkomlega hagsmuni ríkis-
sjóðs. Af þessum orðum ráðherrans
má hins vegar ráða að ríkið treysti
ekki sínum eigin stafsmönnum til
að meta svona tilvik. Menn verða
að skilja að vísasta leiðin til að af-
stýra misferli er að hafa lög svo al-
menns eðlis að almenningur geti lifað
við áhrif þeirra og neyðist ekki inn
á grá svæði til að geta lifað mann-
sæmandi lffi. Þetta á sérstaklega við
alla skattheimtu. Hún á sér náttúru-
leg takmörk.
Verði tekið upp gjaidkerfí sem
byggir á öðru en innkaupsverði, er
önnur afleiðingin sú að innflutning-
ur á notuðum bílum mun leggjast
af. Þetta hafa vissir aðilar verið að
reyna að leiða í lög á Islandi í ára-
tugi. Hin afleiðingin verður sú að
stærri og dýrari fólksbílar verða
áfram skrúfaðir upp í verði þannig
að almenningur mun áfram geta
látið sig dreyma um að eignast al-
mennilegan bíl á sanngjörnu verði.
Að pólitísku gildismati, öfundar-
hyggju eða öðru sé þröngvað upp á
landslýð er óþolandi. Það má ekki
standa. \
Bifreiðaumboðin styðji \
markaðslögmálin \
Þessi fásinna virðist þjóna ein-
hveijum bifreiðaumboðanna sem af
algerlega óskiljanlegum ástæðum
virðast hafa þá stefnu í markaðs-
málum að selja smábíla eingöngu.
Það er mjög skiljanlegt að menn
hafí á þeim vígstöðvum áhyggjur
af snöggum breytingum en verða
að skilja að brot á mannréttindum
má ekki í lög leiða á íslandi. Þá er
rétt að minna á afleiðingar ríkis-
afskipta af þessum markaði. Þau
hafa leitt til þess að hann hefur á
fimm til tíu ára fresti sveiflast milli
hruns og ofurþenslu. Eru þetta í
alvöru þau rekstrarskilyrði sem
menn vilja búa markaði er veltir
milljörðum á ári og veitir þúsundum
fjöiskyldna lífsviðurværi?
Friðrik Sophusson
ÍSLENDINGAR
hafa á undanförnum
árum styrkt sam-
keppnisstöðu sína
nokkuð gagnvart öðr-
um þjóðum. Bætt sam-
keppnisstaða þýðir að
fyrirtækin eru betur
fær um að skapa verð-
mæti og fjölga vel
launuðum störfum.
Okkur ber stöðugt að
vinna að því að styrkja
samkeppnisstöðu Is-
lands og bæta lífskjör
íslensku þjóðarinnar.
Fýrir skömmu fengu
íslensk stjórnvöld mik-
ilvæga alþjóðlega við-
urkenningu fyrir efnahagsstefnu
sína. Bandaríska matsfyrirtækið
Standards & Poor’s hækkaði mat
sitt á lánshæfi íslands. Er það í
fýrsta sinn í sjö ár sem breyting
verður á einkunnargjöf íslands.
Einkunn á langtímaskuldbindingum
íslands var hækkuð og einkunn á
skammtímaskuldbindingum var
einnig hækkuð og er sú hæsta sem
fyrirtækið gefur fyrir skammtíma-
lán. Alþjóðaljármálamarkaður reið-
ir sig á mat Standards & Poor’s
og því er ljóst að bætt lánshæfí
getur sparað umtalsverða ljármuni
með lægri vöxtum á lánum hins
opinbera og styrkt stöðu Islands
og íslenskra fyrirtækja á alþjóða-
markaði. Ástæða er til í þessu sam-
bandi að minnast sérstaklega á
þátt Seðlabanka íslands, sem ann-
ast erlendar lántökur og hefur milli-
göngu um upplýsingar til matsfyrir-
tækja.
í frétt frá matsfyrirtækinu kem-
ur fram að hækkunin á lánshæfis-
mati endurspegli bætta hagstjórn
sem ásamt styrkri stjórn á auðlind-
um sjávar geri þjóðarbúskapinn síð-
ur viðkvæman fyrir ytri áföllum.
Þá segir að aukinn sveigjanleiki í
ríkisfjármálum og peningamálum
ætti að mæta til þess að draga úr
HEALTHILIFE
TRYGGIR GÆÐIN
Heilsuefni sem virka
Antioxidant,
B-plvítamín,
C-vítamín,
! folinsýra,
| 4/40 ginseng,
| „hair & nailcare”
lesetin,
þaratöflur,
Q-10
BÍÓ-SELEN UMB; SÍMI557 6610
Höfundur er
rekstrarhagfræðingur.
FERMlNGi
F E R
GJAFIR
L B 0 Ð
OKI
SHERPA 65
Góður bakpoki I útilegur og t
lengri ferðir. Tvískipt
aðalhólf.tveir hliðarvasar og
: topphólf. Stillanlegt bak svo
hann passar vel á hvern sem
j er. Er úr vatnsvörðu Oxford
nyloni og cordura nyion til
styrkingar á álagsstöðum.
Þyngd: l,6kg.
TILBOÐ
6.800
IStí i
Pl-..
SEGLAGERÐIN
/EGIR
Eyiaslóð 7 Reykjavlk S.SII 2200
háu hlutfalli erlendra
skulda opinberra aðila
og um leið leggja
grunn að stöðugri hag-
vexti í framtíðinni.
Þessi viðurkenning á
efnahagsstefnu und-
anfarinna ára er viður-
kenning til aðila vinnu-
markaðarins, stjórn-
valda og landsmanna
allra. Efnahagslægðin
hefur verið djúp þar
sem allir hafa þurft að
leggja eitthvað af
mörkum til að verjast
atvinnuleysi og fjölda-
gjaldþrotum. Skilning-
ur hefur ríkt á gildi
stöðugleika og aukið svigrún fýrir-
tækjanna til verðmætasköpunar.
Nú erum við að uppskera eins og
til var sáð.
Viðurkenning Stand-
ards & Poor’s er árang-
ur erfiðis, segir Friðrik
Sophusson, og vottur
um styrkari samkeppn-
isstöðu okkar.
Ekki má við svo búið standa. Við
þurfum að halda áfram að styrkja
samkeppnisstöðu íslands. í því felst
að tryggja áframhaldandi stöðug-
leika í verðlagi og gengi, taka rík-
isfjármálin tökum, lækka erlendar
skuldir og auka samkeppni á sem
flestum sviðum, m.a. í fjármálakerf-
inu eins og matsfyrirtækið bendir
sérstaklega á.
Þessi góða einkunn Standard’s
og Poor’s kom ekki af sjálfu sér.
Hún var árangur erfiðis. Nú þurfum
við að setja markið enn hærra.
Höfundur er fjármálaráðherra.
Panasonic
HiFi myndbandstæki HD600
Nicam HiFi stereo, 4 hausa Long Play. Super Drive.
Clear view control, fjarstýringu, 2x Scart tengi ásamt
þvi að sýna allar aögeröir á skjá. HD600 fékk 10 fyrir
myndgæöi, og var valiö besta fjölskyldu- og
helmablómyndbandstækiö
Tækið endurgreitt!
Einn heppinn viðsklptavinur fær tækið endurgreittl
10 leigumyndir fré
Videohöllinni fylgja Panasonic
myndbandstækjunum I
BRAUTARHOLTl OG KRINGlUNNt