Morgunblaðið - 26.03.1996, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996 35
AÐSEIMDAR GREIIMAR
i
»
i
i
■
í
I
1
I
j
I
I
3
3
4
4
4
ú
4
4
4
4
Hvað er að gerast
á Orkustofnun?
Orkurannsóknir eru
eitt þeirra vísindasviða
þar sem Islendingar
standa framarlega og
eru á heimsmæli-
kvarða. Orkulindir
okkar eru fallvötn og
jarðhiti og orkurann-
sóknir hér á landi því
nátengdar öðrum jarð-
vísinda- og umhverfis-
rannsóknum. Á Orku-
stofnun hefur á undan-
förnum þremur ára-
tugum verið byggður
upp samstæður
þverfaglegur hópur
vísindamanna, sem
hefur öðlast mikla
færni og reynslu á sviði orkurann-
sókna. Á þessum áratugum hafa
flestar helstu stórvirkjanir landsins
verið byggðar og notkun jarðhita
til húshitunar aukist úr 40% í 86%,
sem verður að teljast umtalsverð
nýsköpun. Á síðari árum hefur þörf
fyrir vinnslurannsóknir á jarðhita-
svæðum aukist. Samhliða hafa
umhverfisrannsóknir orðið mun
stærri þáttur orkurannsókna og er
uppbygging þeirra í samvinnu við
umhverfisráðuneytið. Samhliða
orkurannsóknum hefur Orkustofn-
un sinnt rannsóknum á skyldum
sviðum eins og jarðfræðikortlagn-
ingu, rannsóknum á köldu grunn-
vatni, ýmsum jarðefnum og hafs-
botnsrannsóknum. Jafnframt
stundar stofnunin
þjónusturannsóknir og
eykur þannig sértekjur
og nær betri tækjanýt-
ingu. Þjónusturann-
sóknir hennar eru m.a.
á sviði umhverfis- og
mengunarmála, fyrir
vatnsveitur, vatnsút-
flutningsfyrirtæki og
fiskeldisstöðvar. Holl-
ustuvernd hefur í sam-
vinnu við stofnunina
verið að byggja upp
eftirlit með hugsan-
legri grunnvatnsmeng-
un frá sorpurðunar-
stöðvum víðsvegar um
landið.
Við grunnvatnsrannsóknir og
umhverfisrannsóknir þarf sam-
hæfður hópur sérfræðinga í jarð-
fræði, jarðefnafræði, grunnvatns-
fræði, jarðeðlisfræði og verkfræði
að starfa saman og sú þekking og
aðstaða hefur verið byggð upp á
Orkustofnun, en ekki hjá öðrum
aðilum hérlendis.
Fram hefur komið hjá iðnaðar-
ráðuneytinu á undanförnum árum
að draga ætti úr fjárveitingum
ríkisins til orkurannsókna og að tími
sé kominn til að orkufýrirtæki legðu
meiri íjármuni til þeirra. Ráðuneyt-
ið hefur þó ekki á neinn hátt hlut-
ast til um að svo yrði. Orkufyrirtæk-
in greiða kostnað við alla þjónustu
Orkustofnunar og rannsóknir á eig-
Það hlýtur að vera
krafa allra, segir
Hrefna Kristmanns-
dóttir, að ekki sé farið
gáleysislega með orku-
lindirnar og umhverfíð.
in virkjunarsvæðum. Hins vegar
taka þau tæplega upp á því af
sjálfsdáðum að kosta almennar
grunnrannsóknir á orkulindum
landsmanna né heldur rannsóknir á
jarðhitasvæðum fjarri eigin virkjun-
arsvæðum. Til að svo megi verða
þarf opinbera íhlutun t.d. á formi
auðlinda- eða umhverfisskatts.
Heyrst hefur sú skoðun að búið
væri að rannsaka orkulindir lands-
ins nægilega fyrir allar þær virkjan-
ir sem til greina kemur að reisa á
næstu áratugum. Því er til að svara
að rannsóknir og vísindi eru í stöð-
ugri þróun og er aldrei fulllokið.
Þannig getur t.d. hagkvæmni
ákveðinnar virkjunar gjörbreyst
með tilkomu nýrra aðferða. Við
vinnslu jarðhita er einnig nauðsyn-
legt að halda áfram rannsóknum
og þróunarstarfi til að nýta orku-
forðann sem best. Þótt orkufyrir-
tækin greiði mestan hluta slíkra
þjónusturannsókna er nauðsyn að
Böm í bílum
Hvernig má auka öryggi þeirra?
FYRIR fáeinum ára-
tugum voru fleiri börn
en bílar á Islandi. Þessi
þróun hefur snúist við
og bílarnir eru nú mun
fleiri en börnin. Það
kemur því engum á
óvart að árlega slasast
mörg börn sem eru far-
þegar í bílum. Þetta
gerist þrátt fyrir þann
áhrifaríka öryggisbún-
að sem til er.
Hvenær verða
slysin?
Flest umferðarslys
verða í dagsins önn. Á
leið í leikskóla, innkaupaferð eða í
skólann, nánar tiltekið í nágrenni
heimilisins. Við slíkar aðstæður virð-
ist fólk kærulausast að spenna bíl-
beltin og sjá um að börnin geri það
líka. Samt er það staðreynd að flest-
ir árekstrar verða í næsta nágrenni
heimilisins. Enn sjást börn laus í
bílum, þrátt fyrir ákvæði í lögum
um notkun á öryggisbúnaði fyrir
börn í bílum og stöðuga fræðslu og
áróður. Einnig eru margir sem ekki
virðast skilja að þeir sem sitja í aftur-
sæti eru ekki síður í hættu en þeir
sem sitja í framsæti. Þar við bætist
að sá sem situr í aftursæti og spenn-
ir ekki belti er lífshættuleg ógn við
þá sem sitja í framsæti.
Hve mörg börn slasast?
Á sl. ári slösuðust 49 börn, 6 ára
°g yngri, í umferðarslysum, þ_ar af
40 sem voru farþegar í bílum. í ald-
urshópnum frá 7 - 14 ára slösuðust
165 börn í umferðinni, þar af 88 í
bílum.
Ef litið er 5 ár aftur í tímann
kemur í ljós að um 85 börn, 14 ára
og yngri, slasast að meðaltali í bílum
á ári.
Hvernig getum við stuðlað
að öryggi barna í bílum?
Foreldrar fylgjast almennt vel
með þeirri þróun sem á sér stað
hvað varðar barnabíl-
stóla og annan öryggis-
búnað fyrir börn í bíl-
um. Algengt er að for-
eldrar og aðrir þeir sem
ætla að kaupa barnabíl-
stóla leiti eftir upplýs-
ingum og ráðgjöf hjá
Umferðarráði. En í dag
er á markaði hér á landi
mjög góður öryggis-
búnaður sem hentar
börnum á öllum aldri.
Öryggisbúnaður
fyrir börn
Öryggisbúnaði barna
er skipt í fjóra flokka
eftir þyngd barna.
• Yngstu börnin sitja í ungbarna-
bílstól eða liggja í ungbarnabílkörfu.
Ungbarnabílstólar eiga atltaf að
snúa baki í akstursstefnu.
Foreldrar bera ábyrgð
á, segir María Finns-
dóttir, að börn noti
öryggisbúnað.
• Þegar börnin eru orðin u.þ.b. 10
kíló er kominn tími til að huga að
næsta barnabílstól.
• Ummargastólaeraðvelja, þann-
ig að auðvelt á að vera að fá barna-
bílstól sem hentar vel, jafnt barni
sem bíl.
• Talið er öruggara að börn sitji
sem lengst með bak í akstursstefnu
vegna þess að við árekstur dreifist
höggið á stærra svæði líkamans þ.e.
á bak og hnakka barnsins í stað
þess að lenda aðallega á hálsi og
höfði.
• Aldrei á að hafa ungbarna- eða
barnabílstól í framsæti bíls með
loftpúða.
• Það er óhemju mikilvægt að
barnabílstólar séu festir samkvæmt
leiðbeiningum. llla festur stóll gerir
ekkeil gagn.
María Finnsdóttir
Hve lengi þarf barnið
sérstakan öryggisbúnað?
• Bílpúði er heppilegur fyrir barn
sem vaxið er upp úr barnabílstólnum
en er enn of lítið til að nota bílbelti
sem ætlað er fullorðnum. Barn sem
situr á bílpúða situr hærra og á því
auðveldara með að nota venjulegt
bílbelti.
• Þegar barnið er u.þ.b. 36 kg.
nýtist bílbeltið án hjálparbúnaðar.
Þar sem rannsóknir sýna að lítill
munur er á slysahættu hvort sem
farþegar sitja í fram- eða aftursæti
er mikilvægt að barnið spenni alltaf
beltið hvort sem það situr í fram eða
aftursæti, - líka í stuttum ferðum.
• Sætisbak (eða höfuðpúði) á að
vera nógu hátt til að höfuð barnsins
fái góðan stuðning.
• Mikilvægt er að bílbeltið liggi
rétt yfir mjaðmir og öxl barnsins.
• Bílbeltið á að sitja þétt að barn-
inu.
• Aldrei má bregða bílbeltinu ur.dir
hendur barns eða aftur fyrir bak.
Bílbelti sem sett er undir handlegg
barns getur virkað sem hnífur stoppi
bíllinn snögglega. Barnið kastast
fram og skábeltið skerst inn í líkama
þess.
Á hvað ber að leggja áherslu?
Foreldrar bera ábyrgð á að börn
noti þann öryggisbúnað sem hentar
hveiju sinni. Þeir bera einnig ábyrgð
á að öryggisbúnaðurinn sé rétt not-
aður, þ.e. að hann sé rétt festur í
bílinn og barnið rétt fest í búnaðinn.
Foreldrar eru líka fyrirmyndir barn-
anna, - og eiga því alltaf að spenna
bílbeltið.
Börn eiga rétt á að vera vel varin
í bílum - alltaf. Með það í huga
ætla Umferðarráð, Slysavarnafélag
Islands og „Betri borg fyrir börn“
(samvinnuverkefni Reykjavíkur-
borgar og S.V.F.Í.) að efna í samein-
ingu til átaks um öryggi barna í
bílum dagana 25. - 29. mars. í leik-
skólum, grunnskólum og á heilsu-
gæslustöðvum verður fjallað um
þessi mál og lögreglan mun beina
athygli sinni að búnaði barna í bif-
reiðum. Markmiðið er að allir í bílum
spenni beltin - sérstaklega börn, og
þar með takist að fækka alvarlegum
slysum á börnum í bílum.
Höfundur er leikskólafulltrúi.
tryggja langtímasjónarmið og þró-
un nýjunga, því um er að ræða
auðlindir þjóðarinnar allrar. Þetta
atriði er sambærilegt við það að
yfirvöld tryggja að fiskistofnarnir
séu rannsakaðir af óháðum aðilum,
en láta - ekki einstaka úvegsmenn
um hvort og hvernig sé staðið að
rannsóknum á þeim.
Við starfsmenn Orkustofnunar
höfum talið okkur vera að vinna
að þjóðhagslega mikilvægum störf-
um, nýsköpun og hagvexti í þjóðfé-
laginu og fengið fullvissu um góðan
árangur okkar bæði á innlendum
og erlendum vettvangi. Á undan-
förnum árum hafa verið gerðar
nokkrar úttektir á starfsemi Orku-
stofnunar og hafa niðurstöður
þeirra verið þær að faglega stæði
stofnunin sterkt, stjórnun verkefna
og fjármálaumsýsla væri í góðu
lagi, en bent hefur verið á að yfir-
bygging væri heldur mikil og stjórn-
ununarvandamál hafa verið nefnd.
Starfsmenn hafa vissulega vitað af
þessum agnúum í starfseminni en
talið góðar líkur á að þá mætti lag-
færa í náinni framtíð.
Fjárveitingar til Orkustofnunar
hafa á undanförnum árum verið
skornar verulega niður og hefur
stofnunin brugðist við því með
niðurskurði á starfseminni og aukn-
ingu á sértekjum og eru grunnrann-
sóknir stofnunarinnar farnar að líða
nokkuð fyrir fjárskort. Stofnunin
hefur þó alltaf haldið sig innan
ramma fjárveitinga frá ríkinu.
í sjónvarpsviðtali 13. mars sl.
skýrði iðnaðarráðherra, Finnur Ing-
ólfsson, frá niðurstöðum nefndar,
sem hann skipaði, um endurskoðun
á starfsemi Orkustofnunar og Iðn-
tæknistofnunar. í lokaskýrslu
nefndarinnar er lagt til að starfsemi
Orkustofnunar verði endurskipu-
lögð þannig að hún verði alfarið
stjórnsýslustofnun, sem afli og
varðveiti þekkingu á sviði orkumála
og jarðhita og sé ráðherra til ráð-
gjafar. Vinna við rannsóknar- og
þjónustuverkefni, sem í dag er unn-
in hjá stofnuninni fyrir ríkisfé verði
framvegis boðin út og/eða aðkeypt
á almennum markaði eins og frek-
ast er unnt. Einnig er lagt til að
látið verði reyna á hvort Orkustofn-
un eða ríkið og orkufyrirtæki lands-
ins hafi áhuga á því að stofna með
sér félag um orkurannsóknir, þar
sem orkufyrirtækin geti keypt þjón-
usturannsóknir.
Starfsmenn Orkustofnunar hafa
vitað um nokkurn tíma af þeim
hugmyndum, sem í gangi voru hjá
umræddri nefnd, en fengið sárafá
tækifæri til að tjá sig og ekki hefur
verið tekið tillit til þeirra ábendinga
og tillagna, sem frá þeim hafa kom-
ið. Þessar tillögur ganga þvert á
þróunina í öllum nágrannalöndum
okkar þar sem öflugar ríkisstofnan-
ir sinna sambærilegum rannsókn-
um. Almenn skoðun starfsmanna
er að tillögur nefndarinnar séu
óskynsamlegar og órökstuddar og
gangi þvert á þær faglegu úttektir
. sem gerðar hafa verið á stofnuninni.
Eitt alvarlegasta atriðið varðandi
téða nefnd er bakgrunnur nefndar-
manna. í nefndinni er enginn, sem
talist getur hafa reynslu af orku-
rannsóknum, né heldur grunnrann-
sóknum af neinu tagi. Það er var-
hugavert að taka ákvarðanir um
framtíðarrannsóknir á orkulindum
þjóðarinnar byggðar á mati manna,
sem engan veginn geta talist hæfir
til að Ijalla um málið. Spurningin
er hvort þarna hafi ekki ráðgjafar
ráðherra brugðist honum.
Annað varhugavert atriði er
stjórnsýslustofnunin. Sá tilgangur
að stofnunin eigi að kaupa að
grunnrannsóknir lýsir mikilli van-
þekkingu á eðli rannsókna. Flest
raímsóknarverkefni á sviði þróunar
tengjast vísindalegum vandamálum
og til'að geta skilgreint þau þurfa
menn að vera faglega virkir og
þekkja vandamálin. Sérfræðingar á
slíkri skrifræðisstofnun mundu
fljótlega komast úr .tengslum við
rannsóknir og verða ófærir um að
skilgreina nauðsynlega rannsóknar-
þætti. Önnur verkefni, sem stofnun-
in á að sinna, eru nú unnin af 4-5
mönnum á Orkustofnun og í ráðu-
neytinu. Á stofnuninni eiga hins
vegar, samkvæmt tillögunum, að
starfa 20-30 manns. Tillagan felur
því í sér stóraukið fjármagn í skrif-
ræði á kostnað mikilvægra orku-
rannsókna í þágu nýsköpunar og
hagvaxtar. Enginn rökstuðningur
hefur komið fram um nauðsyn slíkr- ^
ar skrifræðisstofnunar.
Samhæfing í þverfaglegum rann-
sóknum, sem nú er til staðar á
Orkustofnun, hefur verið byggð upp
á löngum tíma og ef hún Sundrast
mun taka langan tíma að byggja
hana upp aftur. Nánast óhugsandi
er að grunnrannsóknarþáttur starf-
seminnar geti þrifist á almennum
markaði eða í hlutafélgi í eigu orku-
fyrirtækja og ríkisins. Ljóst er að
sundrung mun ekki einungis koma
niður á orkurannsóknum á íslandi
heldur einnig grunnvatns-, jarð-
efna- og umhverfisrannsóknum.
Enginn rökstuðningur hefur heldur
komið fram um nauðsyn þess eða
hugsanlegan ávinning við að bijóta
niður þetta rannsóknarumhverfi.
Tillögur téðrar nefndar fela
hvorki í sér hagkvæmni né sparnað
í ríkisrekstri. Nánast enginn pen-
ingasparnaður verður til skamms
tíma litið. Til lengri tíma litið má
búast við kostnaðarauka í formi
óhagkvæmari og dýrari virkjana og
aukinnar hættu á umhverfisslysum.
Óviðunandi er að órökstudd henti-
stefna, hagsmunir einstakra aðila
eða skammtímasjónarmið séu látin
ráða í svo mikilvægu máli. Það hlýt-
ur að vera krafa allra að ekki sé
farið gáleysislega með fjöregg þjóð-
arinnar, orkulindirnar og umhverfið
og orkurannsóknir_ fái áfram að
þrífast og dafna á íslandi, þjóðinni
til hagsbóta.
Höfundur er deildarstjóri jarð-
efnafræðisviðs á jarðhitadeild
Orkustofnunar.
Minmngargreinar
og aðrar greinar
FRÁ áramótum til 15. febrúar sl. um aðsendum greinum. Ritstjórn
birti Morgunblaðið 890 minning-
argreinar um 235 einstaklinga.
Ef miðað er við síðufjölda var hér
um að ræða 155 síður í blaðinu á
þessum tíma. í janúar sl. var papp-
írskostnaður Morgunblaðsins
rúmlega 50% hærri en á sama tíma
á árinu 1995. Er þetta í samræmi
við gífurlega hækkun á dagblaða-
pappír um allan heim á undanförn-
um misserum. Dagblöð víða um
lönd hafa brugíHzt við miklum
verðhækkunum á pappír með
ýmsu móti m.a. með því að stytta
texta, minnka spássíur o.fl.
Af þessum sökum og vegna
mikillar fjölgunar aðsendra greina
og minningargreina er óhjá-
kvæmilegt fyrir Morgunblaðið að
takmarka nokkuð það rými í blað-
inu, sem gengur til birtingar bæði
á minningargreinum og almenn-
Morgunblaðsins væntir þess, að
lesendur sýni þessu skilning enda
er um hófsama takmörkun á lengd
greina að ræða.
Framvegis verður við það mið-
að, að um látinn einstakling birt-
ist ein uppistöðugrein af hæfilegri
lengd en lengd annarra greina um
sama einstakling er miðuð við
2.200 tölvuslög eða um 25 dálk-
sentimetra í blaðinu.
í mörgum tilvikum er samráð
milli aðstandenda um skrif minn-
ingargreina og væntir Morgun-
blaðið þess, að þeir sjái sér fært
að haga því samráði á þann veg,
að blaðinu berist einungis ein
megingrein um hinn látna.
Jafnframt verður hámarks-
lengd almennra aðsendra greina
6.000 tölvuslög en hingað til hefur
verið miðað við 8.000 slög.