Morgunblaðið - 26.03.1996, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1996 37
I
I
)
)
i
\
I
I
J
>
I
5
J
i
i
4
Egils, dó árið 1980 svo hann hefur
verið ekkjumaður um fimmtán ára
skeið. Hún hafði stutt hann og
styrkt í hans erfiða starfi í nær
hálfa öld, fætt honum sex mann-
vænleg böm og búið honum fagurt
og hlýlegt heimili, var mjög dugleg
húsmóðir og natin við börnin. Frá-
fall hennar var honum því geysilegt
áfall. „Bömin og barnabömin okkar
hafa hjálpað mikið til að lífga upp
á heimilið og gleðja mig eftir að
ég missti Ástu mína,“ hefur Egill
stundum svarað mér þegar ég hef
vorkennt honum að búa einn.
Það er margs að minnast frá
okkar löngu ævi og mörgu samvist-
um. Eitt var það að við Egill tókum
upp á því ásamt nokkrum öðmm
bekkjarfélögum úr Menntaskólan-
um að hittast einu sinni á ári ásamt
eiginkonum í byrjun þorra á heimil-
um okkar til skiptis og halda kvöld-
fagnað með góðum veitingum, kvik-
myndasýningu frá síðasta fundi og
dansi á eftir.
Þar voru margar ræður fluttar.
Gestgjafinn sá hveiju sinni um að
skrifa ræðurnar, helstu viðburði og
að líma inn myndir, sem teknar
höfðu verið um kvöldið, í hina fögm
fundargerðabók okkar. Hana geymi
ég enn ásamt kvikmyndaspólunum.
Tillaga 'Egils var sú að hvort-
tveggja yrði afhent Þjóðskjala-
safni íslands til varðveislu. Fund-
irnir urðu alls 29. Sá fyrsti var
haldinn á heimili mínu árið 1951
og sá síðasti hjá Þormóði árið
1981. Á þessum 30 árum féll
aðeins einn fundur niður árið
1952, vegna veikinda.
Við höfðum mikla ánægju af
þessum gleðifundum og síðar af
bókinni og einnig af því að horfa á
kvikmyndirnar sem teknar vom.
Það er óhætt að segja að móttök-
ur og allar veitingar voru höfðing-
legar á heimili þeirra Ástu og Eg-
ils. Húsfrúin hafði alveg sérstakan
hæfileika til að hafa allt vistlegt
og framúrskarandi gott sem fram
var reitt. Ekki spillti heldur hversu
glaðvær og glæsileg hún var sjálf.
Á þessum fundum vorum við
lengst af fjórir ásamt eiginkonum:
Ásta og Egill, Sigurrós Torfadóttir
og séra Þorsteinn Björnsson, Lára
Jónasdóttir og Þormóður Ögmunds-
son bankalögmaður og við Þórdís
Todda Guðmundsdóttir eiginkona
mín.
Af þessu fólki eru nú aðeins frú
Lára og við Þórdís enn á lífi.
Við hjónin söknum Egils Sigur-
geirssonar vinar okkar mikið og
sendum öllum aðstandendum hans
innilegustu samúðarkveðjur.
Við biðjum Agli guðsblessunar á
þeim leiðum sem hann nú hefur
lagt út á.
Blessuð sé minning hans.
Erlingur Þorsteinsson.
Mig langar að minnast Egils Sig-
urgeirssonar sem ég starfaði hjá til
fjölda ára. Þegar ég hóf störf hjá
honum þá sýndi hann mikla tillits-
semi og þolinmæði gagnvart van-
kunnáttu minni. Oft var mikið að
gera og þétt setinn bekkurinn en
öllum tók hann á móti með ljúf-
mennsku og hjálpsemi og reyndi
að leysa hvers manns vanda. Hann
hafði ríka réttlætiskennd og aldrei
fór hann í manngreinarálit. Það var
því ekki að ástæðulausu að á hann
hlóðust margs konar trúnaðarstörf.
En þrátt fyrir mikið annríki og lang-
an vinnudag þá var hann alltaf
glaðsinna og hamingjusamur.
Egill var listelskur maður og var
tíður gestur á málverkasýningum
og listmunauppboðum og bar heim-
ili þeirra hjóna listfengi þeirra fag-
urt vitni. Einnig unni hann góðum
kveðskap og hafði við hvert tæki-
færi ljóð eða spakmæli á takteinum
enda með afbrigðum víðlesinn og
fróður.
Þá veitti það honum gleði að sjá
ERFIDRYKKJUR
MINNIIMGAR
afkomendur sína vaxa og komast
til manns og fylgdist hann með
þeim af áhuga og stolti.
Það eru forréttindi að hafa feng-
ið að starfa hjá slíkum mannkosta-
manni. Blessuð sé minning hans.
Sigrún Cortes.
í dag er afi okkar, Egill Sigur-
geirsson, til hvílu borinn. Það eru
rúm fimmtán ár síðan amma, Ásta
Dahlmann, yfirgaf þetta líf og nú
verða eflaust fagnaðarfundir í öðru
lífi.
Okkur langar til þess að kveðja
afa og minnast ömmu með nokkrum
minningarbrotum frá árunum á
Hringbrautinni þegar amma og afi
voru bæði á meðal okkar. Á hveiju
ári héldu þau jólaboð fyrir börnin
sín sex og öll barnabörnin, sem
urðu alls 19 talsins. Þá var nú oft
líf í tuskunum þegar saman kom
svo stór hópur barna. Hjá ömmu
og afa var veisla í hverri viku því
á sunnudögum bakaði amma og
hafði standandi kaffi ef einhveijum
dytti í hug að líta inn. Og oftast
litu fleiri en færri inn. Á þennan
hátt náðum við barnabörnin að
kynnast hvert öðru vel.
Á okkar yngri árum var afi oft
upptekinn við störf sín sem hæsta-
réttarlögmaður og kyrintumst við
honum ekki að ráði fyrr en við vor-
um komin á fullorðinsár. Afi var
dulur og flíkaði ekki tilfinningum
sínum. Oft hélt hann sig til hliðar
í fjölskylduboðum, eins og honum
fyndist hann vera fyrir. En þegar
við nálguðumst hann að fyrra
bragði komumst við að raun um
að hann var stoltur af barnabörnum
sínum og fýlgdist vel með hvernig
gekk í námi og starfi. Hann var
sérstaklega stoltur yfir því hversu
mörg barnabarna sinna gengu
menntaveginn.
Afi hélt áfram að vinna við lög-
fræðistörf löngu eftir að eftirlauna-
aldri var náð. Þegar við spurðum
hvað hann væri að fást við sagðist
hann vera aðallega í því að gera
upp dánarbú vina sinna. Æ, ég er
orðinn svo óttalega gamall, svaraði
hann þegar hann var spurður um
heilsufarið. Hann var tilbúinn að
kveðja, en eftir sitjum við og syrgj-
um sem ekki náðum að kveðja hann.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þðkk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Með þessum örfáu línum viljum
við kveðja afa Egil og ömmu Ástu
og þakka þeim fyrir allar samveru-
stundimar.
Ásta, Viktor, Anna, Linda
og Elísabet Urbancic.
Kveðja frá
Lögmannafélagi Islands
Egill Sigurgeirsson var elsti lög-
maður landsins. Hann fékk mál-
flutningsleyfi fyrir Hæstarétti ís-
lands í miðju seinna stríði, 22. júní
1942, og var sá 26. í röðinni til að
öðlast slíkt leyfi. Nokkrum dögum
eftir að Egill fékk hæstaréttarmál-
flutningsleyfi eða 4. júlí 1942 tóku
gildi fystu almennu lögin um mál-
flytjendur nr. 61/1942. Með þeim
lögum var lögmönnum gert skylt
að hafa með sér félag. Málflutn-
ingsmannafélag íslands var reynd-
ar stofnað árið 1911, en tveimur
árum eftir að nýju lögin tóku gildi,
var nafni félagsins breytt í Lög-
mannafélag íslands. Leiðir Egils og
Lögmannafélagsins áttu eftir að
liggja mikið saman næstu áratug-
ina. Egill var fyrst kjörinn í stjóm
félagsins árið 1939 og sat í stjórn
til ársins 1943, aftur árin 1944-
1945 og síðan samfellt frá árinu
1947 til 1966. Egill vann mikið og
gott starf fýrir félagið. Hann naut
virðingar sem lögmaður. Lög-
mannafélag íslands ákvað að veita
Agli viðurkenningu fyrir störf hans
í þágu félagsins og lögmannastétt-
arinnar allrar með þvi að gera hann
að heiðursfélaga félagsins árið
1986. Að Agli gengnum á félagið
nú engan heiðursfélaga. Félagið
hefur ekki verið gjöfult á slíkar
nafnbætur í gegnum tíðina, sem
segir best hversu vel metinn Egill
var.
Lögmannafélag íslands færir
fjölskyldu Egils samúðarkveðjur.
Þórunn Guðmundsdóttir,
formaður LMFÍ.
+
Ástkær faðir minn, sonur okkar og bróðir,
VILHJÁLMUR ARNARSON,
lést á heimili sínu í Kaupmannahöfn 23. mars sl.
Margrét Björk Vilhjálmsdóttir,
Örn Þór, Hrund Hansdóttir,
Hanna Rún Þór, Hans Ragnar Þór.
Bróðir okkar, + EIRÍKUR SVEINSSON,
Reykholti, Biskupstungum, fyrrv. bóndi að
er látinn. Miklaholti,
Guðrún Sveinsdóttir, Ingunn Sveinsdóttir, Magnús Sveinsson.
Erfidiykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
í síma 5050 925
og 562 7575
FLUGUEIÐIR
HÍTEL LOFTLEIMk
Erfídrykkjur
Glæsilegt kaífihlaðborð
og hlýleg salarkynni.
Góð þjónusta.
HOTEL
REYKJAVÍK
Sigtúni 38.
Upplýsingar í simum 568 9000 og 588 3550
A GOÐU VERÐI
L,5jtffthpTÍ
TIL ALLT AÐ 36 MÁNABA
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR (Gugga),
Suðurgarði 18, Keflavík,
áðurtil heimilis
á Snorrabraut 33,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi 24. mars.
Guðríður Halldórsdóttir, Vilhjálmur Arngrímsson,
Erla Hrönn Vilhjálmsdóttir, Arngrimur Vilhjálmsson,
Eva Lind Albertsdóttir.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐLAUGUR ÞORVALDSSON
fyrrv. háskólarektor
og rikissáttasemjari,
er látinn.
Kristín H. Kristinsdóttir,
Steinar Þór Guðlaugsson, Margrét Óskarsdóttir,
Þorvaldur Óttar Guðlaugsson, Arndis Tómasdóttir,
Styrmir Guðlaugsson, Thelma Hansen,
Hrafn Steinarsson, Ása Steinarsdóttir,
Kristín Lena Þorvaldsdóttir, Erna Rán Arndisardóttir.
+
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
HELGA TRYGGVADÓTTIR
frá Víðikeri,
sfðast til heimilis
íFurugerði 1,
Reykjavík,
lést sunnudaginn 24. mars.
Jón Kristjánsson, Guðrún Kristjánsdóttir,
Gerður Kristjánsdóttir, Jón Sigurðsson,
Hreinn Kristjánsson, Erna Sigurgeirsdóttir,
Tryggvi Kristjánsson, Guðrún Björk Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Otto Bumberger,
Axel Kvaran, Ósk Kvaran,
Brynjar Kvaran, Ingibjörg Fjölnisdóttir,
Svavar Kvaran, Hildur Halla Jónsdóttir,
Axel A. Kvaran, Sandra Baldvinsdóttir,
Ágúst Kvaran, Edda Jónasdóttir.
LEGSTEINAR
10% staðgreiðslu
afsláttur
Stuttur afgreiðslufrestur
Frágangur á legsteinum
í kirkjugarð á góðu verði
Eiginkona mín, dóttir mín, stjúpdóttir,
systir okkar og mágkona,
ÞÓRUNNKVARAN
BUMBERGER,
lést á heimili sínu í Hampton, Virginíu,
21. mars.
Gronít
HELLUHRAUN 14
220 HAFNARFJÖRÐUR
SÍMI: 565 2707