Morgunblaðið - 16.06.1996, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.06.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 15 leikum, kvikmyndahúsum hefur dregist saman, en kannski haldist einna mest á bókasöfnum, sem í Rússlandi eru mörg hver mjög góð.“ Staðan er nú þannig að markaður- inn hefur að mismiklu leyti tekið við af ríkisjötunni og við það að sýning- ar og tónleikar þurfa að standa und- ir sér verða hinir efnaminni í auknum mæli að sitja heima. „Ein af skýringunum á því að aðsóknin hefur minnkað er sú að fólk hefur ekki peninga til að stunda listviðburði eins og það hafði áður,“ sagði Sveinn. „Þetta er eitt megin- vandamálið: hvort hækka eigi verðið og láta einu gilda hvað kaupmáttur er h'till." Til marks um það hvað launin geta hrokkið skammt sagði Sveinn frá för á veitingastað þar sem hver réttur kostaði sem samsvaraði meðalmánaðarlaunum, þótt ekki teldist ýkja dýr hér á landi. „Einn gárungi sagði við mig: „Unga fólkið hefur ekki tíma lengur til að fara á tóneika eða í kvikmynda- hús, það er allt á ensku- eða tölvu- námskeiði. Eldra fólkið þorir ekki út á götu á kvöldin af ótta við rán og líkamsmeiðingar“,“ sagði Sveinn. „Þegar tæplega helmingur laun- anna fer í að borga lestarkort og þá á eftir að borga nauðsynjar og húsa- leigu fæst skýringin á því af hveiju fólk, sem svo lengi hafði þráð frelsi og horft með von til þess, er orðið svona vonlaust. Þetta er skýringin á því af hveiju kommúnistar hafa feng- ið svona sterka útkomu úr kosning- um. Fólkið hafði áður atvinnuöryggi, en ekkert frelsi. Nú hefur það frelsi, en ekkert öryggi.“ Fólkið hafði ártur iirv^i, en ekkert frelsi nú hefur fólkið frclsi, en ekkert öry^i Sveinn er þó ekki þeirrar hyggju að Rússar hafi alfarið snúið baki við umbótum. „Margir segja þó enn, sem betur fer: „Við þreyjum þetta og það hlýt- ur að birta upp.“ Aðrir eru hins veg- ar örvinglaðir. Við hittum mikið af fólki og ég veit ekki hversu dæmi- gert það var fyrir hinn almenna Rússa. Okkur fannst athyglisvert hvað þeir voru opinskáir og gagnrýn- ir. Varð var við umbótavilja Maður varð var við mikinn um- bótavilja hjá þorra fólks, það fór 1 ekki á milli mála. En einnig hitti maður forstokkaða kerfiskarla og Rússar eru í vandræðum með sitt ,,embættismannakerfi því að það byggir vitaskuld á gömlu hefðinni og margir eru hinir sömu og á Sovét- tímanum og ekki hafa þeir allir til- einkað sér nýjan hugsunarhátt. Margir sögðu við okkur sem svo: þegar við höfum fóstrað upp nýja kynslóð út frá nýjum forsendum þá höfum við fólk, sem getur mótað okkar samfélag í samræmi við það, sem okkur dreymir um.“ Ein eftirminnilegasta stund Sveins í Rússlandi var heimsókn til Samtaka óháðra bókasafna. „Það gekk erfiðlega að finna sam- tökin og bílstjórar okkar námu að endingu staðar í húsagarði og sögðu að hér hlyti þetta að vera,“ sagði Sveinn. „Þetta var á milli heldur óhijálegra fjölbýlishúsa. Við stigum út og skyndilega stendur þar síð- skeggjaður maður á miðjum aldri og •segir okkur að elta sig inn í eitt þessara íjölbýlishúsa. Þar fórum við inn í lyftu, sem gafst upp milli sjöttu og sjöundu hæðar og þurftum við að klöngrast út og klifra upp á tí- undu hæð. Þar komum við inn í her- bergi á stærð við meðalstofu og það reyndist hlaðið bókum. Þá rann upp fyrir okkur að þetta var bókasafn fyrrverandi andófsmanna og er núna safn, sem sérhæfir sig í bókum og bæklingum um mannréttindamál. Áður fyrr var þarna hins vegar safn bóka, sem ekki voru leyfðar, og sagði sá, sem tók á móti okkur, að hann væri sá eini, sem ekki hefði lent í fangelsi af þeim, sem sáu um safnið." Ánægður með stöðu leikhúss Þjóðleikhússtjórinn fyrrverandi kvaðst ánægður með stöðu leikhúss- ins í Rússlandi. „Það leikhús, sem við sáum var mjög gott, en hitt er annað mál að ég vissi fýrirfram hvar ætti að leita að góðu leikhúsi," sagði Sveinn. „Leikhúsið var ekki gamaldags, en hins vegar varð maður var við að það væri viss tregða til að standa að nýsköpun eða að ekki væri komið kerfi til að styðja við það, sem er nýtt af nálinni eða ekki er sprottið úr rótgrónum stofnunum." Sveinn kvað tónleika, sem sér- fræðinganefndin sótti, einnig hafa verið í hæsta gæðaflokki. Gróin menning blómstrar áfram „Það er því gróin menning, sem heldur áfram að blómstra," sagði Sveinn. „Hið viðurkennda á auðvitað auðveldast uppdráttar í þessari pen- ingakreppu. Þetta á við um stærstu söfnin, sem eru farin að eiga sam- vinnu við vestræn söfn. Þau eiga þó erfitt með að eignast verk frá Vestur- löndum vegna þess að þau eru ekki samkeppnishæf og þegar kaupa á ný verk eftir Rússa eru meiri pening- ar í einkageiranum, til dæmis hjá bankasamsteypum, en söfnin eiga. En það er gjá milli þeirra og þess, sem er að gerast í dag. Það er leitun á nýlistasöfnum og galleríum þar sem eru til sölu verk, sem verið er að vinna, þótt það sé að koma. En það er sá hluti listsköpunar, sem er utan við almannaveg, sem á erfiðast uppdráttar.“ Höfundarréttarmál eru í ólestri í Rússlandi. „Það er viðurkennt að níu- tíu prósent af myndbanda- ___ markaði og hljómplötumark- aði eru sjóræningjaútgáfur, sem berast inn í landið frá Kína og Hong Kong,“ sagði Sveinn. „Rússarnir framleiða þetta ekki sjálfir. Þetta er selt á hálfólöglegum mörkuðum og er miklu ódýrara, en lögleg- ar útgáfur. Réttur upphafsmanna er ekki virtur. Rússar viðurkenna að þetta er vandamál en hefur ekki tek- ist að taka á því.“ Sveinn sagði að bókaforlög væru mörg og á uppleið, en hljómplötufyr- irtæki væru í vandræðum. „Til dæmis hefur útgáfa hrunið hjá Melódíu, sem var eitt stærsta útgáfufyrirtækið og hefur nú verið einkavætt. Þeir eiga einkarétt á gömlum útgáfum og gefa nú út um fimm plötur á ári. Hins vegar er kominn kippur í bókaútgáfu, en það sem háir því að koma á öflugri bókaútgáfu er að við það að hafa minni ijárráð fá menn bækur lánaðar og kaupa minna og um leið hefur prentkostnaður og dreifingarkostnaður aukist mjög mikið og víða í hinum 89 ríkjum hins rússneska ríkjasambands er ekki hægt að kaupa bækur lengur. Á móti þessu vegur að víða eru þjóðir eða þjóðarbrot, sem eru 176 í Rúss- landi, því má ekki gleyma, farin að gefa út bækur á eigin tungumálum.“ Það er sennilega sama hver til- gangur Rússlandsferðar er, sú getj- un, sem er í þjóðfélaginu og óvissa, fer ekki fram hjá neinum. Sveinn sagði að nú væru spennandi og ein- kennilegir tímar í Rússlandi: Gríðarleg umbrot „Það eru gríðarleg umbrot hjá þessari þjóð. Við fundum það í heim- sóknum okkar að Jeltsín er vinsæll og persónuleiki hans fellur mörgum í geð. Heyrðist gagnrýni beindist hún aðallega að því hvað kaupmáttur launa hefði lækkað mikið og bata- merkin, sem nú eru þó kannski að koma í ljós því að tekist hefur að ná aðeins í skottið á óðaverðbólg- unni, hafa látið bíða eftir sér. Það er þessi uggur. Fólkið er einfaldlega hrætt við að eiga ekki ofan í sig. En það gladdi okkur að finna við- leitni sterkra afla til þess að finna þjóðskipulaginu og hugsun fólksins lýðræðislegt innihald. Maður varð mjög var við sterka löngun til þess. Hins vegar kom á óvart, á hvað mörgum sviðum er langt í land þrátt fyrir góð fyrirheit og tilskipanir." Fjallað um Jón Leifs í Gramophone í JÚLIHEFTI breska tónlistar- tímaritsins Gramophone er fjallað um nýútkominn disk Sinfóníu- hljómsveitar íslands „íslands Kantata", þar sem hún leikur verk eftir Jón Leifs undir stjórn Petri Sakari. Talað er um diskinn ásamt níu öðrum sem vert er að kynna sér hafi maður gaman af píanókon- sert Griegs frá 1868. Greinin ber yfirskriftina Hvað næst? en þar er reglulega eitt verk tekið fyrir og reynt að víkka út sjóndeildarhring hlustenda á sígildri tónlist með því að stinga upp á fleiri verkum til að hlusta á. í umfjölluninni segir að líkt og fyrsta tónlistarhátíð Griegs í Bergen 1898 hafi sýnt stoltið sem bjó í afrekum lítillar þjóðar á tón- listarsviðinu, færði tónlist Jóns Leifs sjálfsöryggi og innblástur inn í vaxandi tónlistarlíf 200.000 manna þjóðar. í framhaldi er lok- ið lofsorði á verkin á disknum, sem eru sögð eitt besta dæmið um sérstöðu og framsækni tónskálds- ins Jóns Leifs, en umíjallanir um upptökur með tónlist hans hafa verið áberandi í Gramophone upp á síðkastið. Grafík- listamenn til Got- lands TVEIM íslenskum listamönnum, Grétu Ósk Sigurðardóttur og Ragn- heiði Jónsdóttur, hefur verið boðið að taka þátt í grafíksmiðju Nordgraf- ia í Gotlandi í Svíþjóð ásamt 23 öðr- um listamönnum frá löndunum sem liggja að Eystrasalti ásamt Islandi og Noregi. Ætlunin er að listamenn- irnir geri tilraunir með miðilinn og noti ýmis efni og afraksturinn á að sýna í miðbæ Visby þar sem smiðjan verður staðsett. Gréta sagði í sam- tali við Morgunblaðið að gengið hefði verið útfrá að velja einn fulltrúa af yngri kynslóð grafíklistamanna og einn sem á lengra starf að baki, en báðar hafa þær reynt að spanna út miðilinn með tilraunum. Smiðjan hefst 14. júní. Grafíksmiðjan er hluti af víðtæk- ari dagskrá sem gengur undir nafn- inu Nordgrafia og er samstarfsverk- efni Listasafns Gptlands og Grafíkfé- lagsins í Visby. Á opnunardegi dag- skránnar mun verða ráðstefna um stöðu og stefnu grafíklistarinnar og daginn eftir verður sýning lista- manna frá 12 löndum opnuð. Ingunn Eydal, Hafdís Ólafsdóttir, Lísa K. Guðjónsdóttir, Þórður Hall og Val- gerður Hauksdóttir sýna þar fyrir Islands hönd. Myndlistar- sýning í Skaftárskála á Klaustri KRAKKARNIR í Kirkjubæjar- skóla á Klaustri opnuðu nýlega myndlistarsýningu í veitinga- salnum í Skaftárskála á Kirkjubæjarklaustri. Á sýn- ingunni eru myndir sem þau hafa unnið undir leiðsögn myndlistarkennara síns. Við opnun sýningarinnar léku ungir flautuleikarar úr tónlistarskólanum á Klaustri og boðið var upp á veitingar í skálanum. Fyrirhugað er að gefa lista- fólki kost á að hengja upp verk sín í skálanum í sumar. Hermann Stefánsson Klarínett- leikari í Svíþjóð HERMANN Stefánsson var nýlega ráðinn sólóklarínettleikari Konung- legu sænsku fílharmóníuhljómsveit- arinnar í Stokkhólmi. Hljómsveitin er stærsta sinfóníuhljómsveit Sví- þjóðar og sótti ísland heim og lék á listahátíð 1972. Aðalstjórnendur hennar nú eru Englendingurinn Andrew Davis og Eistlendingúrinn Paavo Járvi. Hermann mun koma fram sem einleikari með hlómsveit- inni í klarínettkonsert Mozarts á næsta starfsári. Hermann Stefánsson er fæddur á Akranesi 1963, sonur hjónanna Stefáns Eyjólfssonar og Ragnhild- ar Hermannsdóttur. Hann hóf klarínettnám við tónlistarskólann þar hjá Þóri Þórissyni níu ára að aldri en flutti þrettán ára gamall með fölskyldu sinni til Svíþjóðar. Hermann nam við tónlistarháskól- ann í Piteá, stundaði framhalds- nám hjá Walter Boeykens í Hol- landi og síðar hjá Mitchell Lurie í Bandaríkjunum sem Fulbright- styrkþegi. Að framhaldsnámi loknu starfaði hann í fjögur ár sem 1. klarínettleikari sinfóníuhljóm- sveitarinnar í Helsingborg eða allt þar til hann tók við hinu nýja starfi. Hermann hefur undanfarin ár einnig kennt við tónlistarháskólana í Piteá og Malmö, og komið fram sem einleikari í klarínettkonsertum eftir Mozart, Weber, Crussell, Ni- elsen og Copland. Auk Hermanns starfar annar ís- lendingur við Konunglegu fíl- harmóníuhlómsveitina í Stokk- hólmi, það er Valur Pálsson kontra- bassaleikari. .♦ Frumsýning á Húsavík RÓMANTÍSKI gamanleikurinn Á sama tíma að ári verður frumsýndur á Húsavík næstkomandi miðvikudag kl. 20.30. Höfundur þess er Bernard Slade, en þýðing er eftir núverandi Þjóðleik- hússtjóra, Stefán Baldursson. Leik- arar sýningarinnar eru Sigurður Sig- uijónsson og Tinna Gunnlaugsdóttir, en leikstjóri er Hallur Helgason. Verkið var sýnt við miklar vinsældir í Þjóðleikhúsinu fyrir tæplega 20 árum og nú stendur til að fara hring- ferð um landið, þangað til í júlí, þeg- ar það verður tekið til sýninga í Loftkastalanum. Nýjar bækur Meðan þú gefur KOMIN er út ný bók eftir Gunnar Dal, skáld og heimspeking. Er það vísnabálkur sem hann kallar Meðan þú gefur, dregið af einu erindinu sem hljóðar svo: Meðan þú gefur — Á lífið alltaf eitthvað — Til að gefa þér. Ljóðin eru ort í hinum svo- nefnda japanska „hæku“-stíl sem hefur að undanförnu breiðst út um heiminn og orðið alþjóðlegt ljóðaform. Allmörg íslensk skáld hafa glímt við hækuna, en Gunnar telur að þetta sé fyrsta samfellda frumorta hækubókin á íslensku. Hann nefnir þær þríhend- ur,_því að línurnar cru þijár. í formála lýsir Gunnar Dal jap- önskum ljóðformum, svo sem choka, tanka og sedaka, en geta má þess að Vilborg Dagbjartsdóttir skáldkona hefur nokkuð glímt við tönkuna „að vera í japönskum þönk- Gunnar Dal Sveinn um“. Og loks koma hækan (haika) og rengan, sem náð hafa hvað mestri útbreiðslu á alþjóðavettvangi. Rekur Gunnar þetta í stuttu máli og segir að þessi skáldskaparform muni hafa komið upp í Japan fyrir meira en tvö þúsund árum og getur nokkurra helstu japanskra þjóðskálda. Fjölvaútgáfan hefuv gefið þessa bók Gunn- ars út í sérstöku skrautformi. Lista- maðurínn Snorrí Friðriksson myndskreytir bókina að eigin vali og er hún að fullu litprentuð. Sigurlaugur Þor- kelsson samdi atríðaorðaskrá. Bók- in er unnin hjá PMS, Súðaivogi og GBen. Eddu Grafík, 96 bls. inn- bundin. Fjölvi býður bókina á sér- stöktí voiiilboði, 1.260 krónur fyrsta mánudinn, en eftirþað kost- ar bókin 1.580 krónur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.