Morgunblaðið - 16.06.1996, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 16.06.1996, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ1996 37 MINNINGAR ASLA UG GUÐMUNDSDÓTTIR + Áslaug Guð- mundsdóttir var fædd í Innri- Fagradal Saurbæ, Dalasýsiu, 21. maí 1901. Hún lést á dvalarheimilinu Seljahlíð 6. júní síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Guðmundur Hann- esson póstur og Þórdís Ivarsdóttir, bæði ættuð úr Dala- sýslu og bjuggu þar lengst af að Barmi á Skarðsströnd. Ás- laug var elst 9 systkina sem nú eru öll látin. Áslaug giftist 27. mars 1927 Ásgeiri Ilalldóri Jónssyni bónda og hreppstjóra að Vals- hamri á Skógarströnd f. 25.4. 1896, d. 21.2. 1985. Börn Ás- laugar og Ásgeirs eru Kristín Erla, f. 1932, Ása Þórdís, f. 1935, Jón Valberg, f. 1939 og Gylfi Hinrik, f. 1941. Barna- börnin eru níu og barnabarna- börnin sextán. Utför Áslaugar Guðmundsdótt- ur fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þegar ég kveð í hinsta sinn tengdamóður mína Áslaugu, þá langar mig með örfáum orðum að þakka henni samfylgdina í rúm 40 ár. Okkar kynni hófust þegar ég ungur maður gekk að eiga dóttur þeirra hjóna, Erlu. Mér er það í fersku minni þegar ég kom fyrst að Valshamri, hversu vel á móti mér var tekið, sem og öllum öðrum sem þangað komu og nutu gestrisni og veitinga Áslaug- ar. Hún naut þess að taka á móti fólki, enda oft gestkvæmt hjá þeim hjónum. Hún var frjálsleg og hafði gaman af að ræða við fólk. Aslaug hafði sterkan persónuleika, hún var hreinskilin og sagði skoðanir sínar umbúðalaust, gat verið nokkuð hvöss, ef svo bar til, en undir niðri sló gott hjarta, sem öllum vildi vel, og stutt var í brosið og glettnina hjá henni á góðum stundum. Áslaug var fróð kona og las mikið og var það hennar yndi á löngum vetrar- dögum, þegar tími gafst til frá önn- um dagsins, einkum var henni hug- Opið 9-22 alla daga Lyf á lágmarksverði LYFJA Lágmúla 5 Sími 533 2300 RtómasU^a Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík • Sími 553 1099 Opið öll kvöld lil kl. 22 - einnig um hclgar. Skreytingar fyrir öll tilcfni. Gjafavörur. leikið að kynna sér ættfræði og þótti mér oft með ólíkindum hvað hún gat rakið ættir mann fram af manni, enda mjög minnug, þeirri náðargjöf fékk hún að halda til síðasta dags. Þungbært var það henni að missa sjón fyrir nokkrum árum, og geta ekki lengur lit- ið í bók. Hún hafði líka yndi af handavinnu og blómarækt á meðan hún hafði tækifæri til. Innan við fermingu varð Áslaug að fara að heiman og vinna fyrir sér á ýmsum stöðum. Leið hennar lá til Reykjavíkur eftir að hafa dvalið á Vífilsstöðum um skeið. Áslaug fluttist að Valshamri árið 1927, eftirað hafa gengið í hjóna- band með Ásgeiri Jónssyni, sem þá var að taka við jörðinni eftir for- eldra sína, Jón Jónsson hreppstjóra, sem þá var látinn, og Kristínu Daní- elsdóttur, en hún dvaldi hjá þeim meðan hún lifði. Foreldrar Áslaugar fluttu einnig til þeirra ásamt frænku Áslaugar, Ingveldi Jóns- dóttur, 4 ára, sem ólst þar upp. Valshamarsheimilið var ávallt mannmargt, þar dvöldu margir um lengri eða skemmri tíma. Þar voru mörg verkefni því tengdaforeldrar mínir lögðust á eitt að byggja upp og rækta jörðina. Árið 1980 seldu þau Valshamar og fiuttust til Reykjavíkur, þar sem þau keyptu íbúð í Vesturbergi 144 og bjuggu þar í nokkur ár. Síðustu árin dvaldi Áslaug á dvalarheimil- inu Seljahlíð þar sem hún naut góðr- ar umönnunar, og á starfsfólk þar sérstakar þakkir skilið. Blessuð sé minning hennar. Björgvin. Elsku amma og langamma okkar er dáin. Á stundu sem þessari eru þær ófáar minningar sem koma upp í huga okkar eins og þegar við vor- um litlar og fengum að klappa krumma þegar við komum í heim- sókn, og þegar hún var komin úr aðgerð á augunum og fékk smásjón og spurði hvort þetta væri Kristín sú dökkhærða og Heiðrún þessi ljós- hærða en það var einmitt öfugt, en þá hafði hún verið blind í nokkur ár. En það var ekki lengi sem hún hafði smásjón því að hún misti hana svo fljótlega alveg aftur. Hún var mjög lagin í höndunum og föndraði mikið þó svo að hún væri blind. Við erum þakklát- fyrir að hafa kynnst ömmu okkar og munum aldrei gleyma henni. Nú legg ég augun aftur 6, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson.) Blessuð sé minning ömmu okkar. Heiðrún Björk og Kristín Erla. . — ..ckfá bara Fersk blóm og 0 skreytingar við öll tœkifœri o Opið til kl.10 öll kvöld Persónuleg þjónusta Fákafeni 11, sími 568 9120 & OIOI#IO»IOIO t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR JÓNSDÓTTUR, frá Kjalvegi, Atli Snædal Sigurðsson, Stefanía Baldursdóttir, Júlíus Snædal Sigurðsson, Laufey Valdimarsdóttir, Jón Hallgrímur Sigurðsson, Maríanna Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hugheilar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför elskulegrar dóttur okkar og systur, HELGU KRISTÍNAR JÓNSDÓTTUR, Æsufelli 4. Anna G. Helgadóttir, Jón Sveinsson og systkini hinnar látnu. t Þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför INGVARS RAGNARSSONAR, frá Stykkishólmi, Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði. Sérstakar þakkirtil lækna og hjúkrunar- fólks á hjartadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, Fossvogi. Fyrir hönd fjölskyldunnar, t Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, systir, amma og langamma, FILIPPÍA KRISTJÁNSDÓTTIR (Hugrún) frá Brautarhóli, Svarfaðardal, til heimilis í Seljahlið, Hjallaseli 55, verður jarðsungin í Seljakirkju, Klyfja- seli 20, miðvikudaginn 19. júní, kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Kristniboðs- sambandið, Holtavegi 28, sími 588 8899. Einar Eiriksson, Helgi Valdimarsson, Ingveldur Valdimarsdóttir, Svanfríður Kristjánsdóttir, Lilja Kristjánsdóttir, Ásgeir Helgason, Valdimar Helgason, Birna Helgadóttir, Agnar Helgason, Kristján Helgason, Þórhallur Jónsson, Guðrún Agnarsdóttir, Ágúst Eiriksson, Sigurður Kristjánsson, Ólöf Ásgeirsdóttir Þormar, Sigrún Proppe Helena Jóhannsdóttir, Timothy Moore Anna Atladóttir, Ingibjörg Guðmundsdóttir og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, MAGNÚS ÞÓRARINSSON, Álfheimum 48, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 19. júní kl. 15.00. Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á minningarsjóð Flugbjörgunarsveitar- Guðbjörg Jónsdóttir, Þórarinn Magnússon, Sigrún Reynisdóttir, Kristinn Magnússon, Hanna Bjartmars Arnardóttir og barnabörn. t Innilegar þakkir viljum við færa öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlý- hug við andlát og jarðarför, KRISTJÁNS SIGURÐSSONAR Austursgötu 8, Hofsósi. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Sjúkra- húsi Skagfirðinga, Sauðárkróki, fyrirfrá- bæra umönnun í veikindum hins látna. Svava Sigmundsdóttir, Sigurður Kristjánsson, Kristin R. B. Fjólmundsdóttir, Aðalheiður S. Kristjánsdóttir, Fjólmundur B. Fjólmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Alúðarþakkir til ykkar allra, sem sýndu okkur vinarhug og samúð við andlát og útför HULDU JÓNSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á gjörgæsludeild Borgarspítalans fyrir einstaka góðvild og hlýju. Guð blessi ykkur öll. Jónas Þór Arthúrsson, Ólafur Jóhannsson, Jóna Maria Jóhannsdóttir, Sigurður Jóhannsson, tengdabörn, barnabörn og aðrir ástvinir. Guðbjörg Árnadóttir. t Þökkum vinsemd, hlýhug og hluttekn- ingu við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, ERLENDAR ERLENDSSONAR fyrrv. leigubifreiðarstjóra, Mávahlfð 20. Sigríður Hannesdóttir, Garðar Erlendsson, Ólafur Erlendsson, Sævar Erlendsson, Þuriður Erlendsdóttir, Hannes Erlendsson, Erlendur Erlendsson, Guðjón Erlendsson, Ragnheiður Erlendsdóttir, Jóhanna Erlendsdóttir, Sigurrós Erlendsdóttir, Jón Erlendsson, Ragnhildur Agústsdóttir, Guðjón Jónsson, Ingibjörg Bjarnadóttir, Anna Karlsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Davfð Steinþórsson, Jóhann Gylfi Gunnarsson, Kristján Jóhannsson, Ragnheiður Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.