Morgunblaðið - 16.06.1996, Side 28

Morgunblaðið - 16.06.1996, Side 28
28 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ1996 29 STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. ARTOL UR SJALF- STÆÐISBARÁTTU LANDNÁM Íslands er talið hefjast um 870. Land- námsöld stendur til um 930. Helztu orsakir landnáms voru ofri- ki Haralds konungs hárfagra, er hann sameinaði Noreg undir lok 9. aldar, fólksfjölgun og land- þrengsli í Noregi og Vesturhafs- eyjum [Hjaltlandi, Orkneyjum og Suðureyjum] og brottrekstur vík- inga úr Dyflinni á írlandi 902. Ari fróði Þorgilsson segir í íslend- ingabók að þegar norrænir menn námu hér land hafi verið fyrir í landinu „menn kristnir, þeir er Norðmenn kalla Papa“ og kelt- neskt fólk kom einnig í fylgd nor- rænna landnámsmanna, sem við- komu og/eða tímabundna búsetu höfðu á Bretlandseyjum. Þjóðveldisöld nefnist það tíma- í——— 1QC HEF AF löt) • tilvilj un verið að lesa bóka- flokkinn Mysteries of the Unknown sem Time-Life gefur út, hinar athyglisverð- ustu bækur. Af þessum lestri sé ég að Runólfur Runólfsson, eða Runki, sem tróð sér allt í einu gegnum Hafstein vin minn Björnsson á mið- ilsfundi á sínum tíma, er orðinn heimsfrægur, svo mjög sem hann kemur við sögu í einni þessara bóka, Search for the Soul, og einnig í miklu yfirlitsriti um dularfull fyrir- bæri og líf eftir dauðann, The Encyclopedia of Ghosts and Spirits eftir Rosemary Ellen Guily (1992), en fyrrnefndur bókaflokkur kom út 1989 og 1991. í þessum ritum er rifjað upp að Runki hafí komið gegnum Hafstein í því skyni að endurheimta lærlegg sinn sem lenti á flækingi eftir að Runólfur varð til einhversstaðar í fjörunni suður með sjó og sagði hann til um hvar lærleggurinn væri, kom það allt heim og saman og einnig við þá lýsingu að Runki hefði verið maður hár vexti. Var útför Runólfs Runólfssonar síðan gerð frá Utskálakirkju. Öll hefur þessi saga vakið mikla athygli erlendra fræðimanna um miðla og miðilssambönd, hugsana: flutning og dularfull fyrirbæri. í ritinu segir að Runki hafi haldið áfram að starfa með Hafsteini Björnssyni löngu eftir að hann hafði náð takmarki sínu. Þeir fóru saman til New York 1972 og þar var fyrir- bærið rannsakað af dularsálfræð- ingum. Ian Stevenson, prófessor í geðlæknisfræðum við háskólann í Virginíu og einn helzti sérfræðingur heims á þessu sviði, var hvattur til að fara til Islands og rannsaka fyr- irbærið; hann átti viðtöl við margt fólk sem hafði komið að málinu og kannaði sögulegar heimildir um Runka. Stevenson lýsti því yfir að niðurstaða sín væri sú að það væru fullkomnar ástæður til að ætla að hér væru sannanir fyrir því að Run- ólfur hefði lifað af líkamsdauðann enda þótt sumt benti til að Haf- steinn Björnsson hefði getað fengið hluta af upplýsingum sínum úr ís- lenzkum skjalasöfnum. Sérfræðing- urinn sagði að hvorki miðillinn né nein önnur lifandi persóna gæti búið yfir vitneskju um öll þau smá- atriði sem komið hefðu í ljós um þennan lítt þekkta mann sem hefði verið dauður í sextíu ár. Það virtist einnig ólíklegt að Hafsteinn Björns- son hafí getað búið til með svo sann- bil í íslands sögu, sem hófst með myndun allsherjarríkis og stofnun Alþingis árið 930, og stóð þar til landsmenn gengu Noregskonungi á hönd með Gamla sáttmála 1262 til 1264 og landið varð skattland konungs. Landið komst síðan und- ir Danakonung árið 1360. Allar götur síðan hefur draumurinn um frelsi lifað með þjóðinni, þótt litlar sögur fari af raunhæfri sjálfstæð- isbaráttu fyrr en um miðja síðustu öld, er mikil þjóðernisvakning varð meðal íslenzkra menntamanna í Kaupmannahöfn. Þar voru þeir eldar kveiktir, sem lýstu þjóðinni til fullveldis. Nokkur ártöl rísa upp úr í sjálf- stæðisbaráttu þjóðarinnar. Fyrst er máski að nefna ártalið 1540, er Nýja testamentið kom fyrst út færandi hætti þennan fjörlega og sérstæða persónuleika. Stevenson hefur skrifað fjölda rita og ritgerða um sálfræði og dulræn efni og þá ekkisízt allskyns dulræn fyrirbrigði í tengslum við dauðann. Það má þá einnig nefna að Erlends Haralds- sonar er getið í heimildarriti aftan við Search for the Soul og nefnd bók hans Modern Miracles, 1987. Hans er einnig getið í The Encyc- lopedia of Ghosts and Spirits, ásamt Ian Stevenson, en þar er Erlendur nefndur vegna rannsókna hans á fyrirbærum tengdum þeim sem hafa dáið líkamsdauða en snúið aftur og haldið áfram að lifa hérna megin grafar. Ef mér skjátlast ekki voru þessar athuganir Erlends Har- aldssonar gerðar í Indlandi 1972-73. í þessu sama riti, The Encyclopedia of Ghosts and Spirits er langur kafli um Runólf Runólfs- son, eða Runka, og sagt skilmerki- lega frá þeim einstæðu fyrirbrigð- um sem tengd eru honum og miðils- starfi Hafsteins Björnssonar. Á sínum tíma hugðumst við Er- lendur Haraldsson skrifa ævisögu Runka í gegnum Hafstein Bjöms- son og hófum það starf en gekk lítið. Hann nefndi einungis örfá at- riði úr lífi sínu, og ef ég man rétt var hann ættaður úr Borgarfirði en allt þetta man Erlendur Haraldsson áreiðanlega betur en ég. Af því sem segir í fyrrnefndum ritum hverfa þeir sem koma svona óforvarandis inní miðilssambönd jafnskjótt aftur, en Runólfur mun þó undantekning á því. En slík fyrirbrigði vilja helzt tala sem minnst um Iíf sitt og það átti einnig við um Runka. Hann hafði komið því til skila sem fyrir honum vakti og annan áhuga hafði hann ekki á því er varðaði hann sjálfan. En hann var þeim mun ræðnari um allt sem laut að öðru. Ævisaga Runka var því ekki rituð en ef okkur hefði auðriazt að særa hana fram væri hún nú áreiðanlega einhver merkasta ævisaga allra tíma; hin eina sem sögð væri af dauðum manni! En Runki sagði þó nóg af sjálfum sér tii þess að kom- ast í þessi miklu rit og öðlast þann- ig heimsfrægð mörgum áratugum eftir að hann var allur í fjörunni suður með sjó. Þegar ég var ungur hafði ég mikinn áhuga á dauðanum en því eldri sem ég verð hef ég meiri áhuga á lífinu. Ég hef æ minni áhuga á sálarrannsóknum þóað ég telji að þær geti verið athyglisverð viðbót HELGI spjall á íslenzku í þýðingu Odds Gott- skálkssonar, en það var fyrsta bókin prentuð á íslenzku. Þar næst ártalið 1584, er Guðbrandur biskup Þorláksson gaf út biblíuna í heild á íslenzkri tungu. Þessar útgáfur eru taldar eiga drýgstan þáttinn í því að íslenzk tunga, sem fullveldi okkar er reist á, hefur varðveizt lítið breytt til dagsins í dag. Árið 1874 endurheimti Alþingi löggjafarvald í íslenzkum sérmál- um og fjárveitingavald með stofn- un landssjóðs. Arið 1904 fengum við heimastjórn, stjórnarráð í Reykjavík. Þingræðið var og fest í sessi, þar eð ráðherra/ríkisstjórn skyldi styðjast við meirihluta þjóð- kjörins þings. Fyrsti íslenzki ráð- herrann var góðskáldið Hannes Hafstein. Árið 1918 var ísland viðurkennt fullvalda ríki. Lýðveld- ið var stofnað árið 1944 með sam- þykki 95% kjósenda í þjóðarat- kvæði. Óhætt er að bæta ártölun- um 1952, 1958, 1972 og 1975, er fiskveiðilandhelgin var færð út, við ártöl er rísa upp úr í sjálfstæð- isbaráttu þjóðarinnar. Þeim tímamótum í sögu okkar og sjálfstæðisbaráttu, sem hér hafa verið nefnd, megum við aldr- ei gleyma. Bezta leiðin til þess að þau varðveitist kynslóð fram af kynslóð er sú að efla kennslu um sögu, tungu og menningu þjóðar- innar í skólum landsins. Við meg- um aldrei glata tengslunum við þessa sögu. Morgunblaðið árnar Iandsmönnum góðrar þjóðhátíðar. við rannsóknir vísindamanna á sál mannsins og alls kyns fyrirbrigðum, hvortsem þau eru dularfull eða ekki, en nú fer ég fremur að fyrirmælum Krists og horfi til fugla himinsins og lilja vallarins og læt hveijum degi nægja sína þjáningu. Afstaða mín er þannig æ kristnari eftir því sem árin líða! Sjálfur hef ég enga dulræna hæfíleika og lítinn áhuga á því margvíslega kukli sem nú er iðkað í öllum áttum og má ekkisízt sjá þess merki í smáauglýsingum Morgunblaðsins. En vegna nýrra kynna af fyrrnefndum ritum get ég ekki látið hjá líða að nefna vini mína Runólf Runólfsson og Haf- stein Bjömsson en um þá skrifaði ég alllanga ritgerð 1969. Hvaðsem um Hafstein Björnsson má segja að öðru leyti, þá linaði hann sorgir fleiri íslendinga en nokkur annar sem ég hef haft spurnir af. Og svo mikið er víst að enginn hefur farið í fötin hans, að minnsta kosti ekki eftir lát hans þótt hitt sé rétt að í The Encyclopedia of Ghosts and Spirits sé langur kafli helgaður Indriða miðli Indriðasyni (175-176 bls.). Þegar maður eldist lygnir og úfn- ar öldur æskunnar verða að logn- hvítri kyrrð og maður hættir að hugsa um líf og dauða, ég tala nú ekki um framhaldslíf. Sannindin um það munu koma í ljós, hvortsem okkur líkar betur eða verr. Og ef það verður með þeim hætti sem Epikúrus taldi getum við dáið eins áhyggjulaus og mýið í skúr og kuli: „Dauðinn er okkur ekkert," segir Epikúrus. „Hann er ekki til meðan við lifum, og þegar hann kemur, hættum við að vera til.“ Margt bendir þó til að þessu sé öðruvísi farið. I fyrrnefndri greiri sem birtist í Morgunblaðinu og fjallar m.a. um það hvernig Runki sagði fyrir utan- landsferð okkar þá um haustið svo að ógleymanlegt var, lýsti ég hon- um með þessum hætti og skírskota til þess sem Stevenson segir um persónuleika hans, að vart komi til greina að Hafsteinn Björnsson hafi getað búið hann til með svo ein- stæðum hætti: „Snemma á fundin- um kemur „Runki“ í gegnum miðil- inn, sama tungutakið, fasið og hreyfíngarnar sem ég þekkti af öðrum fundum. Er hann raunar svo sérstæður og litríkur persónuleiki, að þeir eru harla fáir hérnamegin grafar, sem gætu keppt við hann um eftirminnilegt tungutak og markviss tilsvör“. M. REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 15. júní GALDRA-LOFTUR, hin nýja ópera Jóns Ás- geirssonar, er einhver mestu tíðindi, sem orðið hafa í íslenzkum tónlist- arheimi um árabil. Óp- eran er í senn glæsileg, kraftmikil og falleg. Flutningur íslenzku óperunnar á þessu nýja verki er tvímælalaust einn af hápunktum Listahátíðar að þessu sinni. Óperan er rammíslenzk. Hún byggir á þjóðsögunni um Loft Þorsteinsson, ungan skólapilt á Hólum í Hjaltadal og leikverki Jóhanns Siguijónssonar um hann, sem orðið hefur eitt af hinum sígildu verkum íslenzkra leikbókmennta. Tónlist Jóns Ásgeirssonar er jafn þjóðleg og hún er falleg. Og það er ekki sízt eftirminnilegt hvernig tónskáldið fléttar ljóð Jóhanns Siguijónssonar að öðiu leyti inn í verkið og sumir fallegustu þættir þess eru þannig til komnir eins og Gröf mín og vagga. Nú hafa þijár stórar íslenzkar óperur verið fluttar á listahátíðum í Reykjavík Fyrsta íslenzka óperan, sem flutt var eftir að Listahátíð í Reykjavík var sett á stofn var Þrymskviða eftir Jón Ásgeirsson. Um flutning hennar segir Jón Þórarinsson, tón- skáld í grein í leikskrá: „Sýning Þrymskviðu var á ýmsan hátt stórbrotin og áhrifamikil. Einnig var hún furðu samfelld og heild- stæð, þegar þess er gætt hvernig textinn var tekinn úr ýmsum áttum. Söguþráður- inn, frásögn kvæðisins Þrymskviðu um það hvernig Þór heimtir hamar sinn, Mjölni, úr höndum jötna, komst greinilega til skila með þeim nokkuð grófgerða húmor og háði, sem í kvæðinu felst. En tilvitnanir í önnur kvæði, svo sem nokkur erindi úr Hávamálum í upphafi skapa eins konar bakgrunn at- burðarásarinnar og fer vel á því. Tónlistin er áheyrileg og ber þjóðlegan blæ, á ein- staka stað er jafnvel beinlínis vitnað til þjóð- laga og alltaf fellur hún vel að hinum fornu textum, sem tónskáldinu eru augljóslega mjög hugstæðir. Frumsýning Þrymskviðu var mikill viðburður í sögu tónlistar og leik- húss á íslandi." Með sama hætti er flutningur Galdra- Lofts mikill viðburður. Á tímum, þegar hver holskefla erlendra menningaráhrifa af ann- arri ríður yfir hið fámenna íslenzka samfé- lag er listaverk á borð við nýja óperu Jóns Ásgeirssonar veigamikill þáttur í viðleitni okkar til þess að halda sjálfstæði okkar, tungu og tengslum við arfleifð okkar. Operan Galdra-Loftur á mikið erindi við íslenzka æsku. Raunar hafa viðbrögð áhorf- enda verið með þeim hætti að óperan höfð- ar augljóslega til allra aldursflokka. En það er ekki sízt íslenzkt æskufólk, sem mundi hafa gagn af að kynnast þessu verki og komast með því í beint samband við þjóð- lega íslenzka menningararfleifð. Við fram- haldssýningar á óperunni er sérstök ástæða til að greiða fyrir því. Óperan Galdra-Loftur vekur jafnframt upp spurningar um það, hvernig hægt er að hagnýta nýja fjölmiðlatækni til þess að koma verkum sem þessum á framfæri við allan almenning. Óperur Jóns Ásgeirssonar, Þrymskviða og Galdra-Loftur þurfa að vera til á myndböndum og geisladiskum. Hið sama á við um Silkitrommu Atla Heimis Sveinssonar, sem flutt var á Listahátíð 1982 svo og óperuverk Þorkels Sigurbjörnssonar. Slíkt á raunar við um verk helztu tónskálda okkar en á þessari Listahátíð er t.d. sýnt verk eftir Leif Þórarinsson, sem tónskáldið sjálft kallar ærslaóperu. Það kostar hins vegar umtalsverða fjármuni. Með sama hætti og sérstakar ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að tryggja útgáfu á merkum bókum, sem ekki var öruggt um að mundu standa undir útgáfukostnaði og þýðingum á erlendum heimsbókmenntum, er nauðsynlegt að huga að því, hvemig hægt er að tryggja aðgengi almennings að verkum á borð við stóru íslenzku óþerurnar þijár, sem nú hafa verið sýndar á sviði. Þar má einnig nefna klassískar tónsmíðar is- lenzkra tónskálda, sem uppi vom fyrr á öldinni, svo og merkilegan flutning ís- lenzkra tónlistarmanna á mestu verkum tónlistarsögunnar og má þar til nefna m.a. flutning Pólýfónkórsins á mörgum slíkum verkum. Nú þegar hefur sú breyting orðið á, að íslenzk atvinnufyrirtæki eiga dijúgan þátt í að tryggja fjárhagslegar undirstöður menningarstarfsemi í landinu. Nýlegt dæmi um það er, að Dagblaðið Vísir og Eimskipa- félag íslands stóðu að flutningi á nýjum tónverkum eftir Atla Heimi Sveinsson fyrir skömmu, þegar lög eftir hann við ljóð Jónas- ar Hallgrímssonar vom flutt í Skarðskirkju í Landssveit. Það er á hinn bóginn tæplega hægt að búast við því, að einkafyrirtæki geti tryggt svo viðamikla útgáfu á tónverkum og tón- listarflutningi og hér var nefnd. Þess vegna hljóta stjórnmálamennirnir að koma til sög- unnar og veita fjármunum í slík verkefni. Hér er stórmál á ferðinni, sem Morgunblað- ið hefur áður gert að umtalsefni. Galdra-Loftur Jóns Ásgeirssonar ætti að verða mönnum hvatning til þess að hefjast handa um þetta verk. Flutningur óperunnar er glæsilegur vottur um hvers íslenzk tón- skáld og íslenzkt tónlistarfólk er megnugt. Sýningar á óperunni í öðmm löndum væru líklegri en margt annað til þess að styrkja og efla þá ímynd íslands, sem við viljum byggja upp í huga annarra þjóða og jafn- framt að leiðrétta ýmsar ranghugmyndir t.d. um óhófleg amerísk menningaráhrif, sem útbreiddar eru í Evrópulöndum. í yfírliti í leikskrá er þess getið, að þegar leikrit Jóhanns Siguijónssonar var fyrst sýnt í Danmörku hafi því ekki verið vel tekið. Það er hins vegar ekki ólíklegt að Jóni Ásgeirssyni hafí tekizt að gera Galdra- Loft að útflutningsvöm! ÞAÐ ER ATHYGL- isvert að fylgjast með því, hvernig forsetakosningar endurspegla marg- vísleg breytt viðhorf í samtímanum. Forseta- kosningarnar 1952 einkenndust af hatrömmum pólitískum átökum. Reynslan af þeim gerði það að verkum, að bæði stjórn- málaflokkar og dagblöð fóru sér hægt í forsetakosningunum 1968 og úrslit þeirra voru af flesturii tálin endanlegur úrskurður um það, að kjöséndur vildu hvorki stjórn- málamenn í forsetaembætti né afskipti stjórnmálaflokka og fjölmiðla af kosninga- baráttunni. Að vísu var stjórnmálamaður í kjöri í kosningunum 1980 en baráttan stóð þó fyrst og fremst á milli annarra. Morgunblaðið, sem hafði barizt hart fyrir kjöri Séra Bjarna Jónsson 1952 og lýst stuðningi við Gunnar Thoroddsen 1968, hélt að sér höndum 1980 en síður blaðsins voru opnar fyrir stuðnings- menn allra frambjóðenda. Kosningabaráttan 1980 einkenndist af því að bæði stjórnmála- flokkar og fjölmiðlar létu kosningarnar af- skiptalausar að öðru leyti en því að fjölmiðl- ar voru vettvangur fyrir kosningabaráttuna. í forsetakosningunum nú virðast hafa orðið þáttaskil að því er stjórnmálamenn varðar. Strax sl. haust hófust umræður um hugsanlegt framboð Davíðs Oddssonar, for- sætisráðherra. Sú staðreynd, að margir voru þess hvetjandi benti til þess að neikvæð afstaða til framboðs stjórnmálamanna í for- setaembætti væri ekki lengur fyrir hendi. Umræður um hugsanlegt framboð Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrum utanríkis- ráðherra, og Friðriks Sophussonar, fjár- málaráðherra, bentu til hins sama. Undir- tektir við framboð Ólafs Ragnars Grímsson- ar, alþingismanns og fyrrum formanns Al- þýðubandalagsins, og forysta hans í skoð- anakönnunum til þessa verða að teljast vís- bending um, að sú afstaða til stjórnmála- manna, sem fram kom í forsetakosningun- um 1968 eigi ekki lengur við. Nú má velta því fyrir sér hvað hafi breytzt. Að einhveiju leyti má vera, að lok kalda stríðsins eigi hér hlut að máli. Áfdrátt- arlaus skipting þjóðarinnar í tvær fylkingar er ekki lengur til staðar. Afstaða til margra þjóðmála er orðin þverpólitísk. Gamlar flokkspólitískar línur eru ekki jafn skýrar og áður. Þetta veldur því, að andstaða við stjórnmálamenn úr öðrum flokkum er ekki jafn harkaleg og hún var. Eins og t.d. kem- ur fram í skoðanakönnunum, sem benda til þess að töluverður hópur kjósenda Sjálf- stæðisflokksins hyggist kjósa fyrrum for- mann Alþýðubandalags í forsetakosningum. ------------------------------------------ Forseta- kosningar Þá er athyglisvert, að þeir frambjóðend- ur, sem hafa ekki verið mikið í sviðsljósinu vegna starfa sinna hafa orð á því, að þeir verði að leggja meiri áherzlu á að kynna sjálfa sig en t.d. stjórnmálamenn, sem hafi verið í sviðsljósi íjölmiðla árum og jafnvel áratugum saman. Þessar athugasemdir benda til, að áralöng þátttaka í stjórnmálum kunni að skapa þeim frambjóðendum ákveð- ið forskot nú á tímum, þegar fjölmiðlun er orðin svo snar þáttur í þjóðlífinu, sem raun ber vitni um. Þá getur það líka átt töluverðan þátt í breyttri afstöðu til stjórnmálamanna sem forseta, að nú eru tæp þijátíu ár frá því, að stjórnmálamaður sat á forsetastóli á Bessastöðum. Raunar hefur stjórnmálamað- ur aðeins setið í 16 ár af þeim 52, sem við höfum búið við lýðveldi á Islandi. Starfsfer- ill Sveins Björnssonar, fyrsta forseta ís- lands, var fyrst og fremst á öðru sviði og þ.á m. í utanríkisþjónustunni, þótt hann hafí vissulega tekið þátt í stjómmálum fyrr á öldinni og setið sem ríkisstjóri og þar með umsvifamikill í stjórnmálum eftir hernám Danmerkur. Það er því einungis Ásgeir Ásgeirsson, sem settist á forsetastól með verulega stjórnmálareynslu að baki. Þótt afstaða til forsetakosninga hafí allt- af verið þverpólitísk eins og skýrt kom fram t.d. 1952 og 1968 er þó ljóst, að í öllum forsetakosningum frá 1952 hafa frambjóð- endur sem taldir voru á vinstri kanti stjórn- málanna náð kjöri. Þótt Ásgeir Ásgeirsson nyti stuðnings hluta Sjálfstæðisflokksins hafði hann árum saman starfað innan Al- þýðuflokksins og framboð hans var í ánd- stöðu við forystumenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þótt Kristján Eldjárn hefði ekki haft af- skipti af stjórnmálum og nyti m.a. stuðn- ings Péturs Benediktssonar, þáverandi al- þingismanns Sjálfstæðisflokks, voru það þó fyrst og fremst stuðningsmenn annarra flokka, sem véittu honum brautargengi. Að svo miklu leyti, sem frú Vigdís Finnboga- dóttir hafði látið til sín taka á vettvangi stjórnmála fyrir forsetakosningarnar 1980 var almennt talið að samúð hennar væri a.m.k. að einhveiju leyti með sjónarmiðum vinstri manna t.d. í afstöðu til varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Þegar horft er á þessa sögu þarf kannski engum að koma á óvart, að úr því að þjóð- in er tilbúin til að ræða framboð stjórnmála- manna í forsetaembætti af alvöru eins og bersýnilega hefur komið í ljós á undanföm- um mánuðum, skuli stjórnmálamaður af vinstri kantinum njóta svo mikils fylgis, sem skoðanakannanir benda til. Því skyldi fólk hins vegar ekki gleyma, að skoðanakannan- ir eru eitt og kosningar annað og margt getur breytzt á þeim tíma, sem eftir er til kosninga. Hitt er svo annað mál, að það getur varla gengið til frambúðar að forsetakjör sé með þeim hætti, sem verið hefur. Nýkjörinn for- seti þarf að hafa meirihluta þjóðarinnar á bak við sig. Hér er sá kosinn, sem mest hefur fylgi, þótt mikið vanti á meirihluta með þjóðinni. í Rússlandi, þar sem kosið er um þessa helgi verður nýkjörinn forseti að hafa meirihluta á bak við sig. Að þessu leyti er meira lýðræði í Rússlandi en á ís- landi. Þjóðmálabaráttan á þessum áratug eftir lok kalda stríðsins hefur einkennzt annars vegar af þverpólitískri afstöðu til manna og málefna og hins vegar af vaxandi hlut- verki fjölmiðla í þjóðmálaumræðum. Hvoru tveggja endurspeglast í kosningabaráttunni til forsetakosninganna nú. MORGUNBLAÐIÐ tók ekki afstöðu til einstakra frambjóð- enda í forsetakosn- ingunum 1980 og gerir ekki nú. Hins vegar hefur blaðið verið opið fyrir sjón- armiðum stuðningsmanna allra frambjóð- enda. Að fenginni reynslu frá forsetakosn- ingunum 1980 ákvað ritstjórn blaðsins snemma á þessu ári að finna umfjöllun um forsetakosningar ákveðinn farveg á síðum blaðsins. Markmiðið var m.a. að íþyngja lesendum blaðsins ekki um of með löngum Morgun- blaðið og forseta- kosningar Morgunblaðið/Snorri Snorrason UNDIR Eyjafjöllum. greinum um kosti og galla einstakra fram- bjóðenda. Reynslan af slíkum greinaskrifum um einstaklinga t.d. í tengslum við prófkjör stjórnmálaflokka er sú, að óánægja al- mennra lesenda verður mikil, ef of langt er gengið. Þessari afstöðu blaðsins var yfirleitt vel tekið en eftir að komið var fram í júnímán- uð hefur blaðið birt heldur lengri greinar með annars konar uppsetningu um forseta- kjör. Þegar mat er lagt á birtingu bréfa eða greina um forsetakjör reynir ritstjórn blaðs- ins að teygja sig býsna langt til þess að ekki verði sagt, að tjáningarfrelsi lands- manna sé heft eða takmarkað um of. Það er að sjálfsögðu matsatriði hvað á að birta og hvað ekki. Þeir sem gefa kost á sér til framboðs í svo virðingarmikið embætti og helztu stuðningsmenn þeirra verða hins veg- ar að taka því að gagnrýnin getur stundum verið þung. í þessu felst ekki að allt sé birt. Þvert á móti er málflutningur sumra greina- höfunda með þeim hætti að útilokað er að setja slík skrif á prent. Þess hefur gætt, að birting bréfa eða greina með harkalegri gagnrýni á einstaka frambjóðendur sé talin til marks um afstöðu blaðsins sjálfs til frambjóðenda. Það er á algerum misskilningi byggt. Mat á því, hvort bréf eða greinar skuli birtast byggist ein- vörðungu á textanum sjálfum og málsmeð- ferð greinahöfunda en ekki samúð eða and- stöðu blaðsins gagnvart einstökum fram- bjóðendum. Birting á greinargerðum frá Jóni Baldvin Hannibalssyni og Jóni Steinari Gunnlaugs- syni hefur vakið upp spurningar. Þegar Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrum utanríkisráð- herra, tilkynnti þá ákvörðun sína að gefa ekki kost á sér til forsetaframboðs sendi hann frá sér ítarlega greinargerð fyrir þeirri afstöðu. Morgunblaðið taldi það lýðræðis- lega skyldu að birta þá greinargerð í heild. Þegar Guðrún Pétursdóttir, einn frambjóð- enda til forsetakjörs, svaraði þeirri greinar- gerð voru sjónarmið hennar að sjálfsögðu birt í heild. Hið sama hefði verið gert hefðu slík svör borizt frá öðrum frambjóðendum. Þegar Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. sagði af sér sem formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík, taldi Morgunblaðið sér sömu- leiðis skylt að birta greinargerð hans fyrir þeirri ákvörðun í heild. Ef Ólafur Ragnar Grimsson, frambjóðandi til forsetakjörs, eða einhver talsmaður hans hefði svarað þeirri greinargerð hefði það svar að sjálfsögðu verið birt í heild. Þegar Jón Steinar Gunn- laugsson taldi sig knúinn til að svara ásök- unum á hendur sér vegna ofangreindrar ákvörðunar taldi Morgunblaðið sér skylt að birta þau svör í heild. Hefði Ólafur Ragnar Grímsson eða talsmaður hans svarað seinni greinargerð Jóns Steinars Gunnlaugssonar hefðu þau svör að sjálfsögðu verið birt í heild. Af hálfu Morgunblaðsins er áherzla lögð á, að fullkomið jafnræði ríki með frambjóð- endum á síðum blaðsins, hvort sem er í sambandi við birtingu greina eða bréfa frá stuðningsmönnum eða frambjóðendum sjálfum eða í fréttaflutningi blaðsins. Þess hefur orðið vart að reynt sé að lesa stuðn- ing eða andstöðu í einstaka fyrirsagnir eða fréttafrásagnir blaðsins. Allt er það á mis- skilningi byggt eins og sjá má, þegar litið er yfír meðferð blaðsins á greinum, fréttum og frásögnum í heild. Kosningabaráttan nú er þó fyrst og fremst til marks um, að auglýsingar eru með mjög afgerandi hætti orðnar ríkur þátt- ur i þjóðmálabaráttunni. Auglýsingar hafa aldrei áður verið jafn áberandi þáttur í kosn- ingabaráttu frambjóðenda til forsetakjörs. Þær kosta hins vegar mikla peninga og sá kostnaður vekur aftur upp spurningar um, hvernig framboð til forsetakjörs eru fjár- mögnuð og hvort setja eigi sérstakar reglur um það. Fréttaskýring, sem birtist hér í blaðinu sl. fimmtudag um þetta efni bendir óneitanlega til þess. öhjákvæmilegt virðist, að þetta mál verði tekið til sérstakrar um- fjöllunar m.a. á Alþingi að kosningum lokn- um, þótt reynslan sýni að langt geti orðið í næsta forsetakjör. „Á tímum, þegar hver holskefla er- lendra menning- aráhrifa af ann- arri ríður yfir hið fámenna íslenzka ^ samfélag er lista- verk á borð við nýja óperu Jóns Ásgeirssonar veigamikill þáttur í viðleitni okkar til þess að halda sjálfstæði okkar, tungu og tengsl- um við arfleifð okkar.“ l

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.