Morgunblaðið - 16.06.1996, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 16.06.1996, Qupperneq 36
36 SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR t Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, ÖRN EIRÍKSSON loftsiglingafræðingur, Sæbraut 21, Seltjarnarnesi, lést í Landspítalanum 15. júní. Bryndís Pétursdóttir, Eirikur Örn Arnarson, Þórdís Kristmundsdóttir, Pétur Arnarson, Magnea Lilja Haraldsdóttir, Sigurður Arnarson og barnabörn. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓNAS Þ. ÁSGEIRSSON frá Siglufirði, Kópavogsbraut 1b, lést á heimili sínu föstudaginn 14. júní. Margrét Ólafsdóttir, Sólveig Helga Jónasdóttir, Einar Long Siguroddsson, Ásgeir Jónasson, Ásdis Hinriksdóttir, Margrét Einarsdóttir, Fanney Long Einarsdóttir, Jónas Ásgeir Ásgeirsson. Ástkær móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, ÁSLAUG GUÐMUNDSDÓTTIR frá Valshamri á Skógarströnd, síðast til heimilis i' Seljahlfð, Hjallaseli 55, lést 6. júní sl. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Sérstakar þakkirtil starfsfólks Seljahlíðarfyrirfrábæra umönnun. Kristín Erla Ásgeirsdóttir, Björgvin H. Björnsson, Ásta Þ. Ásgeirsdóttir, Jón V. Ásgeirsson, Valgerður Gunnarsdóttir, Gylfi H. Ásgeirsson, Sveinlaug Júlíusdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Minningarathöfn um móður okkar og systur, HALLFRÍÐI ÓLÖFU KRISTINSDÓTTUR APITZ frá Patreksfirði, fer fram í Fossvogskapellu þriðjudaginn 18. júní nk. kl. 13.30. Dorothy Ann, Teresa Kristi'n, Carolyn Helga, Erika Fríða, Brynjólfur, Kristrún, Valur, Pétur Þór og Gunnar. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, KRISTMUNDUR GÍSLASON frá ísafirði, Kirkjulundi 6, Garðabæ, sem lést 8. júní sl., verður jarðsunginn frá Vídalínskirkju í Garðabæ miðviku- daginn 19. júni kl. 15. Friðgerður Sigurðardóttir, Páll Kristmundsson, Sigurbjörg Þorsteinsdóttir, Guðrún L. Kristmundsdóttir og barnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍNBORG K. STEFÁNSDÓTTIR, Kleppsvegi 120, Reykjavik, sem andaðist sunnudaginn 9. júní, verður jarðsungin frá Áskirkju þriðju- daginn 18. júní kl. 13.30. Þórður Sveinbjörnsson, Þórarinn Sveinbjörnsson, Gríma Sveinbjörnsdóttir, Vilborg Sveinbjörnsdóttir, Stefanía Þ. Sveinbjörnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Guðbjörg Kristjánsdóttir, Þórgunnur Jónsdóttir, Stefnir Helgason, Kenneth Wilson, Raymond Dignum, ÁSLAUG VALDIMARSDÓTTIR + Guðrún Áslaug Valdemarsdótt- ir fæddist í Reykja- vík 29. september 1943. Hún lést á heimili sínu 7. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Valdemar Guðbjartsson, tré- smiður, f. 29. ágúst 1895, d. 2. septem- ber 1972, og Sigur- björg Sigurðardótt- ir, saumákona, f. 20. ágúst 1918, d. 26. maí 1993. Systk- ini hennar eru: Sigurður, f. 26. september 1941, Árni Guðbjart- ur, f. 23. janúar 1946, Sigur- björg Svala, f. 7. apríl 1950, og Valdemar Gísli, f. 5. október 1958. Hálfsystkini hennar sam- feðra eru: Magnús, f. 4. ágúst 1916, d. 7. mars 1972, Lilja, f. 10. apríl 1917, Viggó, f. 4. apríl 1924, Guðbjörg, f. 4. apríl 1926, og Bjarnfríður Oddný, f. 29. maí 1928. Hinn 10. mars 1962 giftist Áslaug Will- iam Sigurjóni Trac- ey, bifreiðasljóra á Hreyfli, f. 28. júlí 1941. Börn þeirra eru: Jón Arnar, tæknifræðingur hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, f. 29. desember 1960, eig- inkona hans er Anna F. Gunnars- dóttir, f. 27. maí 1962. Dætur þeirra eru: Aldís Jana, f. 30. september 1989, og Anna Dís, f. 7. ágúst 1993. 2) Sigurbjörg Gyða, bóndi Völlum Mýrdal, f. 22. júlí 1962, eigin- maður hennar er Einar Einars- son, f. 23. júní 1956. Dætur þeirra eru: Anna Rósa, f. 10. janúar 1979, og Elísa, f. 7. októ- ber 1986. 3) Valdemar, verk- t Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda- móðir, amma og langamma, JÓNA GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, Bakkagerði 13, sem lést 9. júní sl., verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 19. júní kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er vin- samlegast bent á að láta Krabbameins- félag Islands njóta þess. Steindór Guðmundsson, Sverrir Steindórsson, Garðar Steindórsson, Jóhanna G. Halldórsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTRÚN JÓHANNSDÓTTIR, Espigerði 4, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 19. júni kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hennar, er bent á Félag nýrnasjúkra. Sigrún C. Halldórsdóttir, Heiðar Guðmundsson, Jóhann Halldórsson, Guðrún Siguróladóttir, Halldór Halldórsson, Margrét B. Sigurðardóttir, Valgerður G. Halldórsdóttir og barnabörn. t Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, ÁSLAUG VALDIMARSDÓTTIR, Hli'ðarási 3, Mosfellsbæ, sem lést 7. júní, verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju þriðju- daginn 18. júní kl. 13.30. Sigurjón Tracey, Jón Arnar Sigurjónsson Tracey, Anna F. Gunnarsdóttir, Sigurbjörg Gyða Tracey, Einar Einarsson, Valdemar T racey og barnabörn. t Alúðarþakkir til ykkar allra, sem sýnduð okkur samúð og vinarhug við andlát og útför JÓNSF. HJARTAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu Eir fyrir frá- bæra umönnun. Ragna H. Hjartar, Hjörtur J. Hjartar, Jakobi'na Sigtryggsdóttir, Friðrik J. Hjartar, Anna Nilsdóttir, Rúnar J. Hjartar, Áslaug Arndal, barnabörn og barnabarnabörn. smiðjustjóri hjá Fóðurblönd- unni, f. 26. maí 1964. Áslaug starfaði síðustu árin hjá Heilsu- vemdarstöð Reykjavíkur sem deildarstjóri og gjaldkeri. Utför hennar fer fram frá Hall- grímskirkju þriðjudaginn 18. júní og hefst athöfnin klukkan 13.30. Amma okkar Guðrún Áslaug Valdemarsdóttir, ó hve sárt er að sjá af styrk þínum. í gegnum hugs- un og gjörðir ertu fyrirmynd okkar um stolt og atorkusemi. Barátta þín við þennan hræðilega sjúkdóm sem dró þig niður svo unga að aldri, veikindi þín settu mark á líf þitt og því meira sem nálgaðist endalok- in. Okkur sveið að sjá þig veikjast. Megi þér líða vel núna og aldrei þurfa að upplifa annað eins aftur. Við munum ávallt bera minningu þína í bijósti og varðveita sem fjár- sjóð því þú varst einstök. Síðustu stundirnar varstu þögul en styrkur þinn geislaði af þér og aldrei misst- ir þú vonina. Þegar minningarnar skjóta upp kollinum um veikindi þín stendur alltaf hæst og efst hve lífsglöð þú varst, þú fannst alltaf tíma til hlát- urs og gleði þótt sársauki þinn væri óbærilegur. Þú varst svo ró- lynd og hlý. Alla ævi þyrsti þig í menntun og lést ekkert koma í veg fyrir að þú sæktir námskeið eða færir í skóla í seinni tíð. Þitt yndi, blómin þín, döfnuðu og blómstruðu allt í kringum þig og þau sýndu umhyggju þína fyrir öllu og öllum. Elsku amma, okkur þykir svo vænt um þig og við kveðjum þig nú með sárum söknuði. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með fijóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snöggu augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, líf mannlegt endar skjótt. (Hallgr. Pét.) Anna Rósa Einarsdóttir og Elísa Einarsdóttir. Um árabil vann Áslaug Valdi- marsdóttir á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Hún réðst þar til starfa árið 1985 og vann lengst af sem gjaldkeri. Sem starfsmaður einkenndist hún af vinnusemi, vandvirkni og trúmennsku. Fyrir nokkrum árum fór Áslaug í fyrsta uppskurðinn vegna krabba- meinssjúkdómsins sem hún greind- ist þá með. Uppskurðirnir áttu eftir að verða margir og barátta hennar við þennan grimmilega sjúkdóm hörð. Lengi var vonað að hún mundi hafa sigur í þeirri viðureign því hún sýndi aðdáunarvert hugrekki og þrautseigju. Það er gott að vinna með fólki eins og Áslaugu, sem stendur sig ekki aðeins vel í starfi sínu, heldur á alltaf aukaorku til að laga það sem betur má fara í vinnuumhverf- inu. Blóm uxu hraðar og meir þar sem hún kom nálægt og jólatré urðu fallegust ef hún skreytti þau. Eg votta eiginmanni hennar, börnum þeirra og öðrum ættingjum dýpstu samúð. Svala Sigurleifsdóttir. LAUGAVEGS APÓTEK Laugavegi 16 HOLTS APÓTEK Alfheimum 74 eru opin til kl. 22 Næturafgreiðslu eftir kl. 22 annast Laugavegs Apótek

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.