Morgunblaðið - 23.06.1996, Side 8
8 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Amlóbarnir á vinnumarkabi
Afköst vinnandi fólks eru léleg hér
á landi og framleiöni lítil, því er
vinnudagurlnn langur og kaupib
lélegt. Þessi var boðskapur forsæt-
isrábherra til þjóðar slnnar þegar
'ÓAu HO
VINNA, vinna, þið þurfið ekki að bæta afköstin nema sem svarar þriggja mánaða
vinnu til að ná Danskinum...
7111/
sin
Hollensk
orkufyrirtæki í
Icenet-hópnum
Stjórnar-
menn skoða
Island
UM FJÖRUTÍU manna hópur
stjómarmanna tveggja af
þremur hollenskra fyrirtækja í
Icenet-hópnum var hér á landi
í vikunni.
Icenet er samstarfsverkefni
um flutning raforku um sæ-
streng frá íslandi til meginlands
Evrópu og hafa hollensku fyrir-
tækin þijú, sem eru tvö orkufyr-
irtæki og eitt fyrirtæki sem
framleiðir kapla og strengi, ver-
ið í samstarfi við Reykjavíkur-
borg og Landsvirkjun.
Hópurinn kom hingað til
lands á einkaþotu á fimmtudag
og voru makar stjórnarmanna
með í för. Á föstudag var m.a.
farið í skoðunarferð inn á
Fljótsdalsheiði og farið til Hafn-
ar í Homafirði.
Háskólinn á Akureyri og Háskóli íslands
Hagnr beggja af
auknu samstarfi
Morgunblaðið. Akureyri.
í UNDIRBÚNINGI er að gera
samstarfssamning milli Háskólans
á Akureyri og Háskóla íslands,
m.a. um nemenda- og kennara-
skipti.
Fram kom í ræðu Þorsteins
Gunnarssonar háskólarektors við
brautskráningu kandidata á
dögunum að samstarf háskólanna
hefði verið nokkuð í umræðu í fjöl-
miðlum síðustu misseri og sýndist
þar sitt hverjum. Fulltrúar háskól-
anna hefðu nýlega hist og orðið
sammála um að efla mjög sam-
starf háskólanna.
í undirbúningi væri að gera
samstarfssamning milli háskól-
anna m.a. um nemenda- og kenn-
araskipti og koma síðan á fót sam-
starfsverkefnum á ýmsum sviðum,
s.s. menntun kennara, fjarkennslu,
hjúkrunarfræði, sjávarútvegs- og
matvælanámi, alþjóðasamstarfi,
menntun og rannsóknum á sviði
ferðaþjónustu og byggðamálum.
„Ljóst er að hér yrði um gagn-
kvæman ávinning að ræða fyrir
báða háskólana. Það er afar brýnt
að háskólar í landinu standi sam-
eínaðir sem málsvarar vísinda og
mennta í landinu," sagði Þor-
steinn.
Hann sagði samstarf Háskólans
á Akureyri við erlenda háskóla
einnig að styrkjast, en í liðinni
viku var fundur samstarfsnefndar
háskóla á svonefndu Kalottsvæði,
sem er svæðið í Skandinavíu norð-
an og við heimskautsbaug. Á fund-
inum var samþykkt að auka sam-
vinnu milli skólanna sem eru í
Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og ís-
landi, einkum með nemenda- og
kennaraskiptum.
FORSETAKJÖR 1996
lll
OLÁFUR RAGNAR GRIMSSON
Suðurnesjamenn!
Fundur með Ólafi Ragnari
og Guðrúnu Katrínu í Stapa
kl. 20:30 í kvöid.
\\öi |). iM Íispurnii . lónlist
• Fundarstjóri: Jón Gunnar Stefánsson,
bæjarstjöri Grindavíkur.
• Kirkjukór Kefiavíkur syngur
undir stjórn Einars Arnar Einarssonar.
Allir velkomnir!
Stuðningsfólk Ólafs Ragnars Grímssonar á Suðurnesjum.
Vinnur list úr efnum og afgöngum
Hef trú á svona
listsköpun
HEIDI Kristiansen hef-
ur lagt stund á mynd-
list og kennslu í
myndlist undanfarin ár. Hún
hefur ekki farið troðnar slóðir
í efnisvali. Hún hefur nýtt tii
listsköpunar ótrúlegustu efni
og afganga, svo sem notuð
föt, t.d. gallabuxur, heima-
gerðan ullarflóka og fleira.
Hún heldur nú sýningu á
verkum sínum í Perlunni.
Heidi var áður sjúkraliði en
gerðist svo myndlistarmaður.
Hvers vegna?
„Það hefur alltaf blundað í
mér sköpunarþrá frá barn-
æsku. Þegar ég fékk í hendur
tuskur eða afganga bjó ég
alltaf til eitthvað úr þeim
efnivið. Ég hef líka verið hald-
in söfnunaráráttu. Þetta sam-
an hefur valdið því að ég fór
Heidi Kristiansen
að gera allt mögulegt úr því sem
ég safnaði. Efniviðurinn sjálfur
sem ég hafði undir höndum kveikti
jafnóðum í mér hugmyndir. Ég hef
alltaf haft gaman af að búa til
eitthvað nýtilegt eða fallegt úr því
sem aðrir álitu hreinasta rusla-
mat. Til þess þurfti ekki annað en
hugmyndaflug og kannski að
kaupa eitthvað smávegis í viðbót.
Nú er ég orðin svo reynd í þessu
að ég þarf ekki annað en sjá eitt-
hvað í umhverfinu til þess að hug-
myndir kvikni og þá veit ég líka
hvernig ég get komið þeim í fram-
kvæmd út frá því sem ég á til í
handraðanum.
- Fannst þér ekkert leiðinlegt
að hætta að starfa sem sjúkraiiði?
„Þegar ég fór í nám í myndlist
fannst mér svo gaman að ég
gleymdi öllu öðru. Ég hef aldrei á
ævinni haft það eins skemmtilegt
og þau tvö ár. Eftir að námi lauk
fór ég að vinna á sjúkrastofnunum
í Danmörku. Þá gat ég sameinað
reynslu mína sem sjúkraliði og
hina nýju menntun mína í mynd-
list. Hin síðari ár hef ég kennt
mynd- og handmennt í grunnskóla
í Borgarnesi og svo starfað við
félagsstarf aldraðra í Reykjavík.
Einnig hef ég haidið nokkur nám-
skeið, flest á Vestfjörðum.
- Hvað hefur þú kennt í félags-
starfi þínu með öldruðum?
„Ég hef kennt þar ýmiss konar
handavinnu. Ég var sú fyrsta sem
var ráðin að félagsmiðstöðinni í
Bólstaðarhiíð. Það kom því í minn
hlut að byija að móta þar starfið
og kaupa inn heppilegan efnivið.
Einnig að fá fóik til að koma. Það
er alltaf erfitt að fá fólk til að
byrja eitthvert svona starf, fólk
er svolítið smeykt fyrst, en nú er
í Bólstaðarhlíðinni blómstrandi
starf sem gaman er að fylgjast
með. Sjálf er ég hætt að kenna
þar en held sambandi við gamlar
vinkonur.
- Hvernig gengur að selja verk
eins og þau sem þú ert að búa tii?
„Ég sel alltaf eitthvað á sýning-
um en lítið sem ekkert á milli. A
síðustu sýningu í Perlunni seldi ég
nokkur verk og fleiri í kjölfarið,
þau keyptu opinberar stofnanir.
Ég legg áherslu á umhverfið í
verkum mínum, svo sem náttúruna
og það gefur mér kraft. Náttúran
er mér eilíf uppspretta
hugmynda. Ég fletti líka
stundum upp í bók um
tákn í kristilegri list og
velti fyrir mér hvernig
þau koma heim og sam-
an við það sem ég er að gera.
- Hvernig líkar þér að búa á
íslandi?
„Mér líkar vel hér, einkum af
því að hér hef ég getað fengið að
gera það sem ég hef viljað gera.
Ef ég fæ að vera „bohem“ líður
mér allra best. Þetta hef ég fengið
að vera að undanförnu af því að
► Heidi Kristiansen er fædd
í Þrándheimi í Noregi árið 1953.
Hún lauk prófi frá húsmæðra-
skóla og sem sjúkraliði árið
1972. Árin 1976 til 1978 stund-
aði hún nám í myndlist og hand-
íðum hjá Elen Ofstad skole í
Þrándheimi. Hún hefur búið á
íslandi frá 1980 en kom hér
fyrstárið 1972 ogvartil 1975
og vann þá sem sjúkraliði hjá
Barnaspítala Hringsins. Siðustu
ár hefur hún einungis lagt stund
á textíl og „Applikasjon". Hún
hefur haidið niu einkasýningar
hér og á Norðurlöndum og auk
þess tekið þátt í nokkrum sam-
sýningum. Hún er gift Matthíasi
Kristiansen kennara og þýð-
anda. Þau eiga þijú börn.
maðurinn minn er kominn í frí frá
kennslu um tíma. Þess vegna höf-
um við getað haft það mjög ftjálst
upp á síðkastið. Hér á landi er
hins vegar ekki kennt það sem ég
er að fást við nema í handavinnu-
deildinni við Kennaraháskólann.
Útlendingar sem skoðað hafa sýn-
ingu mína hafa sýnt verkum mín-
um mikinn áhuga. Einn þeirra er
textílhönnuður. Hann keypti verk
eftir mig og vill gjarnan koma mér
á framfæri í Portúgal. Hann á þar
tvær textílverksmiðjur.
- Teiur þú að það þurfi að kenna
meira um þessa grein handmennt-
ar í skólum hér
„Ég tel að það þurfi að kenna
textíl og „applikasjón" hér í skól-
um. Það þarf að leggja hér í hand-
mennt meiri áherslu á sköpun í
stað þess að láta fólk sífellt vera
að vinna eftir annarra uppskrift-
um. Það er hægt að læra svo mik-
ið í handavinnu þótt skapandi
starfið sé líka fyrir hendi. Ég er
að hugsa um að semja bók um
hvað hægt er að gera úr litlu efnj,
það sparar efniskaup. Ég ætla að
leggja áherslu á verkefni sem
gætu hentað börnum á grunn-
skólaaldri. Ég kenndi bömum fyrir
nokkrum árum að flóka ull, kenn-
ari þessara barna notar nú við sína
kennslu uppi í Kennaraháskóla þá
aðferð sem ég notaði við ullarflók-
ann og hefur þróað hana áfram.
Það er hægt að nota ótrúlegustu
efni til myndsköpunar. Vinkona
mín ein gaf mér t.d.
fimm stóra poka af
gallabuxum og öðrum
fatnaði þegar hún flutti
af landi brott í fyrra.
Ég notaði þennan
efnivið í gerð mynda og hluti af
þeim er nú til sýnis í Perlunni á
sýningu minni þar. Ég hef ekki
orðið rík að veraldlegum auði við
þessa iðju, en hún hefur gefið mér
mikið fyrir sjálfa mig, ég ætla að
sinna henni meðan mér endist líf
og heilsa. Ég hef trú á svona list-
sköpun.
Meiri
áhersla
á sköpun