Morgunblaðið - 23.06.1996, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 23.06.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ1996 39 + Laufey Arn- órsdóttir fæddist í Bakka- gerði í Borgar- firði eystra 21. febrúar 1910. Hún lést á heimili I sínu í Reykjavík 15. júní síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Arn- ór Arnason, út- vegsbóndi í Bakkagerði, f. 31. maí 1863, d. 7. ■ júlí 1930, og Katr- ín María Jónat- ansdóttir, f. 10. ágúst 1874, d. 16. febrúar 1956. Hálfsystir Laufeyjar sammæðra var Jóna Baldvinsdóttir. Hinn 31. mars 1934 giftist Laufey Bjarna Lúðvíkssyni, málarameistara, f. 20. mars 1907, d. 30. júní 1982. For- eldrar hans voru Lúðvík Sig- urðsson, útgerðarmaður í Neskaupstað, f. 10.8. 1866, d. 20.1. 1941, og Ingibjörg Þor- láksdóttir, f. 13.11. 1875, d. 25.11. 1956. Börn Laufeyjar Á kyrru laugardagskvöldi 15. júní síðastliðinn lagði tengdamáðir mín Laufey Arnórsdóttir upp í sína síðustu för í fallegu hlýlegu íbúð- inni sinni í Hjallaseli 27 í Reykja- vík, sitjandi við skrifborðið sitt þar sem hún sat svo oft með útsaum- inn sinn í höndunum. Ég held að hún hafi sjálf kosið að hafa ævilok- | in á þennan veg. Allavega hafði og Bjarna eru: 1) Haukur, f. 4. maí 1934, lögfræðing- ur, kvæntur Jó- hönnu Borgþórs- dóttur kennara, f. 1.8. 1940, og eiga þau þrjá syni: Bjarna, Þór og Arnór Gauta. 2) Ingibjörg, f. 8.11. 1941, gift Einari Magnússyni tann- lækni, f. 9.5. 1943, og eiga þau fjóra syni: Bjarna, Haf- liða, Magnús Þór og Einar Inga. 3) Lúðvík, f. 14.3. 1943, d. 27.5. 1945. 4) Lúðvík Bjarni, f. 7.7. 1949, kvæntur Sigrúnu Böðvars- dóttur, f. 3.6. 1950 og eiga þau þrjú börn: Steinunni, Bjarna og Laufeyju Ingi- björgu. Utför Laufeyjar fer fram frá Seljakirkju á morgun, mánudaginn 24. júní og hefst athöfnin klukkan 13.30. Jarð- sett verður í Fossvogskirkju- garði. hún látið í ljós þá ósk að ljúka ævinni í vinalegu íbúðinni sinni. Hún hafði átt góða ævi, verið heilsuhraust mest allt sitt líf, en síðustu þijú árin hafði þó hallað undan fæti, þrekið minnkað og krafturinn til að njóta lífsins. Ég hygg að það hefði ekki farið vel í tengdamóður mína að verða al- veg ósjálfbjarga og öðrum háð. Laufey Arnórsdóttir bjó sín fyrstu æviár i Bakkagerði, en um sjö ára aldur flytur hún með móð- ur sinni til Neskaupstaðar, en móðir hennar réð sig á stórt heim- ili Lúðvíks Sigurðssonar og konu hans Ingibjargar Þorláksdóttur. Þar elst Laufey upp á mikilsvirtu heimili og verður eins og eitt af börnunum, sem voru 11. Hún hlýtur þá menntun sem börnum var búin á þeim tíma, en ekkert umfram það, þó að námshæfileika hefði hún góða. Þarna finnur Laufey einnig mannsefni sitt, því hún giftist hinn 31. mars 1934 Bjama Lúð- víkssyni. Saman byggðu þau upp fallegt og hlýlegt heimili, fyrst í Neskaupstað og síðan í Reykja- vík, en þangað flytjast þau 1959. Ég kom fyrst inn á heimili Lau- feyjar 1967, þá tiltölulega óharðnaður ungur maður sem leist vel á dóttur hennar, Ingi- björgu. Hún tók mér strax sem syni sínum og milli okkar var ávallt gott og náið samband sem aldrei bar skugga á. Fyrir það verð ég alltaf þakklátur. í mínum augum var Laufey Arnórsdóttir ein af máttarstólp- um þess þjóðfélags sem við búum í. Hún var metnaðarfull húsmóðir og móðir, samviskusöm og áreið- anleg, greind kona og skemmtileg í viðræðu. Hún bjó fölskyldu sinni mjög fallegt heimili sem ávallt var snyrtilegt og hlýlegt. Smekkvísi hennar var mikil og eftirminnilegt hvað hún hafði gaman af að klæða sig upp og eiga falleg föt. Þessi eiginleiki fylgdi henni til æviloka. Síðustu árin eftir lát Bjarna manns síns árið 1982 bjó Laufey í Hjallaseli 27 við elliheimilið Seljahlíð, þar sem nokkrar vin- konur höfðu komið sér fyrir þegar LA UFEY ARNÓRSDÓTTIR \ I ; i i í ( í ; ( a : VtlTÞÚ t>AGAN FORSFH? Eru stjómmálaöfl ogvaldaklíkur í landinu að hönla með forsetakosningamar til að tiyggjasérþæganfoisetasem undirritar hver þau óli^ sem joeim dettur í hug að leiða yfir þjóðina? Nú getur þú valið foiseta sem j»rir að tala máli þíau og verja hagtnuni fólksins í landinu. Ki Ástþór Magnússon Mtiöur sem yerir jiín bnráttumál tiö sínum STUÐNINGSMENN F R I Ð AR þessi hús voru byggð. Henni leið þar vel í þeirra félagsskap. Góð kona er horfin sjónum en minningin um hana mun lifa í hugum okkar sem henni fengum að kynnast. Ég er þakklátur fyrir samfylgd- ina. Börnum hennar, barnabörnum og öðrum þeim er henni stóðu nærri votta ég innilega samúð. Einar Magnússon. Á morgun kveðjum við tengda- móður mína, Laufeyju. Ég kom fyrst inn á heimili hennar og Bjarna tengdaföður míns í fylgd yngsta sonar þeirra, Lúðvíks, fyr- ir 29 árum. Við höfum því fylgst að í langan tíma og Laufey var okkur Lúðvík og börnunum ein- staklega góð og minnumst við allra samverustundanna með þakklæti. Hún var ein af þeim íslensku konum sem við getum verið stolt af að eiga, húsmóðirin, eiginkon- an, mamman, amman og lang- amman sem alla tíð helgaði sig heimilinu. Einstakt snyrtimenni var hún og hafði gaman af því að hafa fallega hluti í kringum sig. Ekki má gleyma fallegum fötum, en fram á síðasta dag hefði hún gaman af því að vera fallega klædd. Laufey vildi helst hvergi vera nema heima hjá sér og talaði mikið um það ef hún fór í burtu hvað það væri gott að koma heim. Okkur finnst alltaf sárt að missa ástvini okkar, en við getum verið þakklát fyrir að Laufey sofnaði svefninum langa heima þar sem hún helst vildi vera í litla fallega húsinu sínu sem henni þótt svo vænt um. Þar átti hún góðar stundir hin síðustu ár og einstaklega góðar vinkonur, þær Margréti, Sigríði og Guðrúnu, sem bjuggu allar í nálægð. Þeim skal þökkuð öll sú vinátta og umhyggja sem þær sýndu henni alla tíð. Börnum sínum og ekki síður barnabörnum sínum var hún ein- staklega stolt af. Ekki veit ég hve margar peysur, sokka og vett- linga amma Laufey prjónaði á börnin okkar. Ljóð og vísur kenndi hún þeim er þau voru minni. Laufey var einstaklega fróð, enda las hún alla tíð mikið og minnumst við bílferðanna þar sem hún fræddi okkur hin á nöfnum á öllu því sem bar fyrir augu. Einstakt samband var á milli Lúlla og mömmu hans síðustu mánuði og kemur hann til með að sakna samverustundanna. Ég kveð tengdamóður mína með þakklæti og söknuði. Sigrún. • Fleiri minningargreinar um Lauíeyju Arnórsdóttur bíða birt- ingar ogmunu birtast í blaðinu næstu daga. Abyrg þjönusta í áratugi Sími 588 9090 - Fax 588 9095 Síðumúli 21. Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali. Hraunbær 96 — OPIÐ HÚS 3ja herb. falleg 87 fm íb. á 3. hæð ásamt aukaherb. í kj. Glæsilegt útsýni. Ákv. sala. Laus fljótlega. Áhv. 4,1 millj. Hagst. kjör. Ibúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, milli kl. 14 og 16. Verð 6,9 millj. Laugarnesvegur — OPIÐ HÚS Falleg 3ja herb. 73 fm íb. í fjölbýlish. Ib. fylgir herb. í kj. (b. hefur verið standsett á smekklegan hátt. Suðursv. Lögn f. þvottavél í íb. Glæsilegt útsýni. Áhv. 3,7 millj. Ib. verður til sýnis í dag, sunnudag, milli kl. 14 og 16. Verð 6,9 millj.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.