Morgunblaðið - 23.06.1996, Síða 20
20 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
„ÁHUGINN er geysilegnr, svo mik-
ill að við vorum með tvö námskeið
í forritun fyrir 10 til 14 ára krakka
í síðustu viku auk eins fyrir yngri
börn, 6 til 10 ára, í meiri grunn-
þekkingu," segir Guðmundur Áma-
son og bætir við að námskeiðin
hafi verið skipuð ellefu og tólf
strákum hvort. Engin stelpa? „Ekki
í forrituninni. Einhverra hluta
vegna virðist áhugi stúlkna vera
minni, að minnsta kosti á þessu
aldursskeiði. Á þessu sviði virðist
vera talsverður munur á kynjunum.
Mér hefur dottið í hug að það stafi
af því að strákar hafa löngum ver-
ið meira fyrir tæki og tól ýmis kon-
ar og þeir líti í fyrstu á tölvur sem
viðbót á því sviði. Smám saman
læra þeir meira á tölvurnar og þar
reynum við að koma til skjalana.
Hvað eru eldri krakkarnir að
gera?
„Eins og nafnið bendir til, forrit-
un, þá eru krakkamir að læra forrit-
un. Þeir eru t.d. að læra að búa til
leiki. Era mikið í leikjum og í raun
miklu klárari heldur en við þeir
fullorðnu á því sviði," segir Guð-
mundur og heldur áfram:
„Það sem við erum auk þessa að
kenna þeim er meiri alhliða notkun
á tölvunni og þeim möguleikum sem
hún hefur upp á að bjóða. Að hugsa
um harða diskinn, gæta þess að
Ný kynslóð
forritara
Tölvuskóli Reykjavíkur hefur verið með
námskeið í forritun fyrir böm og unglinga
að undanfömu. Þátttaka hefur veríð geysi-
góð og segir Guðmundur Ámason skóla-
stjóri að með ólíkindum sé hversu mikla
þekkingu sum bömin hafa, sérstaklega
strákar á aldrinum 10 til 14 ára. Hafí
kennaramir vart undan á stundum.
Guðmundur Guðjónsson bað nafna
sinn skólastjórann að segja örlítið
frá gangi mála.
hann fyllist ekki, passa sig á vírusum
og að koma skipulagi á hlutina. Það
er alltaf markaður fyrir forritunar-
kennslu fyrir unglinga og til að gera
námskeiðin enn skemmtilegri blönd-
um við saman við kynningu og
kennslu á Internetið..“
Að lesa og skrifa
Guðmundur er spurður hvort að
almenningur sé vel upplýstur um
vaxandi vægi tölva og hversu æski-
legt það er að þekkja hausinn og
sporðinn á þeim tækjum. Hann seg-
ir að aðalstarfssvið Tölvuskóla
Reykjavíkur sé að kenna fólki á
tölvur, hvort heldur er ritvinnslu,
bókhald, almennt skrifstofuhald og
margt fleira. Aðsókn hafi lengst af
verið góð, en hefði dottið nokkuð
niður samhliða niðursveiflu í efna-
hagslífinu. í seinni tíð hefði áhugi
vaknað á ný með batnandi um-
hverfi og aukinni bjartsýni. „Áhug-
inn er mikill og fólk er vel meðvitað
um að það er orðið jafn mikilvægt
að kunna á tölvur og það er að
geta lesið og skrifað. Hver veit
nema að innan tíðar verði allt les-
efni inni í tölvunum. Auk þess hafa
tölvur verið mikið að breytast í
seinni tíð, þær eru vinalegri og
þægilegri en áður og fólk er fljót-
ara að ná tökum á þeim upp á eig-
in spýtur.“
Lærði að
skiljatölv-
una betur
DAGUR Eyjólfsson heitir 13
ára strákur. Hann hefur ný-
lokið 8. bekk í Réttarholts-
skóla. Heima hjá honum er
tölva sem hann fékk virkileg-
an áhuga á fyrir svona tveim-
ur árum. Aður var hann í
Breiðagerðisskóla, en þar
voru engar tölvur í tíð hans
þar.
Dagur segist vera fljótur
að læra þegar tölvur eru ann-
ars vegar. A námskeiðinu
lærði hann að búa til forrit.
Það vefst þó fyrir honum að
útskýra betur hvað fram fór
á námskeiðinu, „þetta er erfið
spurning,“ er það eina sem
togast upp úr honum. Eftir
nokkra íhugun svarar hann
þó síðan hægt og varfærnis-
lega að eftir standi að hann
hafi lært að skilja betur tölv-
una og nýta betur allt vinnu-
svið hennar. Nú sé hinum efst
í huga að læra enn meira,
halda áfram að mennta sig á
þessu sviði.
Er Dagur er spurður hvort
leiðin í eitthvert frekara nám
sé greið, eða hvort einhver
námskeið bíði innan seilingar
fyrir dreng á hans reki með
hans tölvukunnáttu, svarar
hann: „Nei, það er ekkert.
Fyrst um sinn verð ég að sitja
einn yfir tölvunni heima og
læra sjálfur á hana.“
mmm
aópftn ftSTÆP «r
Smelltu þér á miðvikudaginn.
vikan frá aðeins
Kr. 34,500 á mann
Barnaafsláttur að 16 ára!
Airline o( the Year 94/95
RATVÍS
Hamraborg 10 - S. 564 1522
V/SA
mmaasaasm
Blað allra landsmanna!
-kjarm malsms!
Með algjöra
tölvudellu
Helgi Bjarnason er
13 ára strákur úr
Arbænum. Nem-
andi í Árbæjar-
skóla. Það er ekki
nema ár síðan að
hann fór að fikra
sig áfram í leynd-
ardómum tölvunn-
ar. Þau tímamót í
lífi hans urðu þeg-
ar fjölskyldan tók
sig til og keypti
tölvu inn á heimil-
ið. Helgi var á for-
ritunarnámskeiði í Tölvu-
skóla Reylgavíkur á dögun-
um.
„Það er ár síðan að ég byij-
aði á tölvunni heima. Fyrst
fiktaði ég sjálfur og lærði svo
af strákum. Ég fékk fljótt
algjöra tölvudellu,“ segir
Helgi, en hvað segir hann um
námskeiðið, hvaða gagn hafði
hann af því?
„Okkur var kennt að for-
rita. Það er m.a. fólgið í því
að setja upp vissa takta, for-
rita þá svo að þeir virki þegar
smellt er á þá. Það
var margt þarna
sem ég þekkti ekki
áður og ég fékk
meiri alhliða þekk-
ingu á tölvunni og
hvernig hún virkar.
Þá fengum við
kennslu í að búa til
skrár í Windows.
Það var síðan að-
eins komið inn á
Alnetið. Ég hef að-
eins verið að kíkja
á það. Það er heill
frumskógur, en jafn framt
stærsta alfræðibók í heimi.
Ég reikna með því að fikra
mig meira áfram þar í náinni
framtíð," segir Helgi.
Kann hann einhverjar
skýringar á því hvers vegna
stelpur deila ekki tölvuáhuga
strákanna?
„Nei, eiginlega ekki.“
Finnst ykkur það ekki
verra að þær séu ekki í þessu
með ykkur?
„Það væri ágætt ef stelpur
hefðu líka áhuga á tölvum."