Morgunblaðið - 23.06.1996, Side 24

Morgunblaðið - 23.06.1996, Side 24
24 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Kristinn HAMBORGARAR OG HÁLEITAR HUGSJÓNIR VIÐSKEFTIAIVINNULÍF Á SUNNUDEGI ►GYÐA Guðmundsdóttir og Kjartan Örn Kjartansson eru eigendur Lystar ehf., sem rekur McDonald’s-veit- ingastaðina á íslandi. Þau eru bæði fædd í Reykjavík, Vesturbæingar og gengu í Melaskóla og Hagaskóla. Gyða er fædd 1952 og Kjartan 1949. Kjartan fór í Menntaskólann á Akureyri og Gyða í Menntaskólann í Reykjavík. Að loknu stúdentsprófi fór Gyða til há- skólanáms í Frakklandi en Kjartan nam verslunar- fræði við London School of Foreign Trade í Eng- Iandi. Að loknu námi 1972 dvaldi Kjartan ár í Japan og hafði viðskiptalegt eftirlit með smíði 10 skuttog- ara fyrir íslenska útgerðarmenn. Þau Gyða gengu í hjónaband 1974 og eigatvo syni, 14 og 19 ára. eftir Guðna Eínarsson. KJARTAN Öm Kjartansson hóf störf í fyrirtæki föður síns, Asiaco hf., árið 1973 ■ o g gerðist meðeigandi hans sex árum síðar. Hann segir rekstur Asiaco hafa verið mjög far- sælan og gengið vel undir stjórn þeirra feðga. Árið 1988 veiktist Kjartan alvarlega og dvaldi á sjúkra- húsum. Á því tímabili ákváðu þeir feðgar að selja fyrirtækið og hætta afskiptum af rekstri þess. í leit að starfsvettvangi Kjartan komst til heilsu á ný og segist þá hafa þurft að leita sér að nýjum starfsvettvangi. Hann þreifaði fyrir sér á ýmsum sviðum og skrifaði meðal annars til McDonald’s, stærstu veitingahúsakeðju í heimi. McDon- ald’s-veitingastaði er nú að fínna í meira en 90 þjóðlöndum, veitinga- staðimir em yfír 19 þúsund talsins og í eigu milli 15 og 16 þúsund að- ila. Höfuðstöðvamar em í Bandaríkj- unum og í þeim vinna 1.800 starfs- menn. Kjartan segir að stór hluti þeirra séu hámenntaðir sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum sem við koma rekstri veitingahúsanna, svo sem matvælafræðingar, tæknimenntað fólk, viðskiptamenntað og margt fleira. Einn kontórinn gerir ekkert annað en að fylgjast með fjölda McDonald’s-veitingastaða, en nýir slíkir em nú opnaðir á þriggja stunda fresti, að sögn Kjartans. En hvemig fékk hann sérleyfí fyrir ísland? „Ég var kallaður í viðtal sem ieiddi til annars viðtals og í framhaldi af því var mér boðin þjálfun," segir Kjartan, þar sem við sitjum í skugga 113 ára gamals trés í garði McDon- ald’s-veitingastaðarins í Austur- stræti í Reykjavík. Meðal annars þurfti Kjartan að ganga tvisvar und- ir persónuleikapróf þar sem kannað var hvernig hann brygðist við undir miklu álagi. Allur náms- og starfsfer- ill hans var kannaður, athugað hvernig honum gengi að umgangast ungt starfsfóik og hvernig hann væri í samstarfi. Einu sinni þurfti hann að svara spumingum sjö vara- forseta McDonald’s-samsteypunnar í þrjár klukkustundir samfleytt. Eftir þessa þolraun var Kjartani boðið að setjast á skólabekk í hamborgarahá- skólanum Hamburger University og segir hann að það hafí jafngilt vil- yrði um sérleyfi fyrir Island. Samn- ingagerð og annar undirbúningur að stofnun McDonald’s-veitingastaðar hér á landi tók samtals tvö ár, að sögn Kjartans. Þau Gyða og Kjartan vom níu mánuði við nám í útibúi Hamburger University í London og Manchester í Englandi. Auk þeirra hjóna hafa rekstrarstjórar McDonald’s-veitinga- staðanna og fleiri starfsmenn sótt nám í skólanum. Kjartan segir að nafn skóians veki bros hjá mörgum, en enginn skyldi velkjast í vafa um að þetta sé alvöru skóli og á ýmsan hátt merkileg stofnun. Háskólanám í hamborgarafræðum „Þjálfunin hófst á því að ég var látinn þrífa gólf og salerni í viku á veitingastað úti i Englandi. Það var verið að kenna mér lítillæti, að virða öll störf, og svo þurfti ég að geta leiðbeint öðrum á þessu sviði síðar meir,“ segir Kjartan. „Fræðin snúast um hvernig á að reka svona veitinga- stað og í kennslunni er komið inn á mjög mörg svið. Þetta er besti skóii sem ég hef kynnst. Viðskiptafræðin, aðferðafræðin og rekstrarfræðin sem þarna er kennd tekur langt fram því sem ég áður þekkti. Ég get ekki ímyndað mér betri viðskiptaskóla. Þetta er mjög stíft nám og því iýkur í raun aldrei, við erum enn að læra.“ Kjartan segir að allir nemendur séu þarna á vegum McDonald’s-veit- ingastaða, enda komið inn á ýmis viðskiptaleyndarmál í kennslunni. Auk framantalinna greina eru nem- endur fræddir um matvælatækni, vélar og tæki sem notuð eru við reksturinn, markaðsmál, kennd starfsmannastjómun, mannaráðn- ingar og þjálfun starfsfólks, fram- koma og margt fleira. Hveijum námsáfanga lýkur með prófi. íslenskt fyrirtæki með sölumet í Evrópu Fyrsti McDonald’s-veitingastað- urinn hér á landi reis á Suðurlands- braut 56 og var opnaður 9. septem- ber 1993. Húsið er íslensk hönnun, teiknað af Ingimundi Sveinssyni arkitekt. Þakið er hins vegar hönnun McDonald’s og skráð sem vörumerki fyrirtækisins. Bæði húsið, innrétting- ar og reksturinn er í eigu Kjartans og Gyðu og því alíslenskt fyrirtæki. Fyrirtækið virðist hafa náð til land- ans því að meðaltali borðar 1% þjóð- arinnar hvern dag hjá McDonald’s og mesta söluaukning keðjunnar í Evrópu á þessu ári er á íslandi. Rúmlega 40% af veltunni á Suður- landsbraut fer um bílalúgu. Mest hafa verið afgreiddir um lúguna við- skiptavinir í 86 bílum á einni klukku- stund. Kjartan segir að réttara sé að tala um McDonald’s á alþjóðavísu sem kerfi en fyrirtæki. Rekstur veitinga- húsanna er með þrenns konar hætti. Lyst ehf., sem rekur McDonald’s- staðina á íslandi, er í eigu þeirra Kjartans og Gyðu. Þau eiga bæði húsið og reksturinn á Suðurlands- braut 56 en leigja húsnæði í Austur- stræti 20 (Hressó) og eiga reksturinn þar. Lyst ehf. kaupir leyfi til að nota vörumerki McDonald’s, þekkingu, eftirlit, þjálfun og þjónustu af McDonald’s Corporation. Á móti lof- ar Lyst ehf. að vernda vörumerkið og orðstír McDonald’s hér á landi. Þetta fyrirkomulag er það sjaldgæ- fasta þegar um McDonald’s-veitinga- staði er að ræða. Algengast er að McDonald’s Corp- oration eigi fasteignirnar og leigi þær leyfishöfum sem eiga reksturinn. Þeir greiða því bæði húsaleigu og þjónustugjald. Þriðja fyrirkomulagið er að McDonald’s Corporation eigi bæði fasteignina og reksturinn. En getur Kjartan framselt öðrum leyfí til reksturs McDonald’s-staða, til dæmis úti á iandi? „Nei, ég má ekki framselja leyfið, verð að reka staðina sjálfur,” segir Kjartan. „Það er ekki svo auðvelt að framselja þekkingu. Almennt vill McDonald’s ekki skipta við fjárfesta heldur einstaklinga sem gefa sig al- veg í reksturinn. Samningur minn er mjög ítarlegur og ég má lítið hreyfa mig annað en að sinna þessu starfí. Það er ekki svo að ég hafí tíma til neins annars! Almennt talað má maður ekki vera í öðrum rekstri og alls ekki í sambærilegum. Innan ramma samningsins erum við fijáls og eigin herrar." Áhersla á vinnusiðfræði En skyldi ekki vera erfitt fyrir mann með áralanga reynslu úr ís- lensku viðskiptalífi að beygja sig undir stranga skilmála McDonald’s? „Nei, alls ekki,“ segir Kjartan. „Stjórntæknin og aðferðirnar byggj- ast á rannsóknum og uppsafnaðri reynslu allra sem að þessu hafa kom- ið. Þetta er afskaplega aðgengilegt og mjög skynsamlegt kerfí. Eitt af því sem dró mig að fyrir- tækinu var hvað það er „móralskt" eða siðsamt. Hugsjónir þess eru há- leitar og allt aðrar en sumir illa upp- lýstir öfgahópar hafa látið í veðri vaka. Við erum hvött til að vera lög- hlýðin, breyta rétt, vinna vel og vanda okkur við allt sem við gerum. Leggja til þjóðfélagsins en vera ekki bara þiggjendur. Þetta er háþróuð vinnusiðfræði." Nýir starfsmenn gangast undir þjálfun áður en þeir hefja störf. „Við byijum á að kenna fólkinu reglur okkar og vinnuaðferðir. Ef fólk sætt- ir sig við þær þá er það ráðið. Við þjálfum starfsfólkið í öryggismálum og brunavömum, gerum til dæmis kröfur um ákveðinn skóbúnað svo fólk renni ekki og meiði sig. Við kennum réttar vinnustellingar og lík- amsbeitingu. Þetta er allt gert til að vemda starfsfólkið. Eftir mánaðar GYÐA Guðmundsdóttir og Kjartan Orn Kjartansson eig- endur McDonald’s-veitinga- staðanna á íslandi með mynd af trúðnum Ronald McDonald. Myndin er tekin í garði McDon- ald’s í Austurstræti, á gamla Hressó, en Gyða og Kjartan hafa hug á að lagfæra þennan gamalgróna garð og gera hann enn vistlegri fyrir gesti veit- ingastaðarins. reynslutíma er fólkið fastráðið, ef okkur líkar við það og því við okk- ur. Þjálfun er stöðug og lýkur aldr- ei,“ segir Kjartan. Nú eru rúmlega 80 manns á launaskrá fyrirtækisins. Þegar McDonald’s hóf göngu sína hér á landi kom upp deila við verka- lýðshreyfínguna. Kjartan segir að sá ágreiningur hafí verið jafnaður, enda á misskilningi byggður, og nú ríki gott samstarf við verkalýðsfélögin. Nýliðinn er æðstur Yfirmenn McDonald’s Corporation státa af því að hafa byijað feril sinn neðst í virðingarstiganum. Stjórnar- formaðurinn byijaði í hlutastarfi í póstdeild fyrirtækisins, forstjórinn hóf störf á matsölustað. „McDonald’s er ákaflega „flatt" í skipulagi,” segir Kjartan. „Þar er ekki yfirmaður eða undirmaður, allir hjálpast að. Sá sem meira kann hjálp- ar hinum. Það má segja að skipurit- ið sé á hvolfi. Nýliðinn er efstur og forstjórinn neðstur. Ég er á kústinum eða í eldhúsinu eftir því sem við á. Ég geng í öll störf.“ Kjartan segir að allir starfsmenn McDonald’s Corporation séu skyldir til að fara út á veitingastaðina að minnsta kosti einu sinni á ári og vinna þar einn dag öli erfiðustu störf- in. Yfirmenn fari oftar á ári. „Þeir vilja ekki láta spyijast að þeir séu svo fínir að þeir geti ekki brett upp ermar. Þeim ber að muna uppruna sinn og hvaðan tekjurnar koma,“ segir Kjartan og brosir. Heilsusamlegt hollustufæði Nú er oft talað niðrandi um ham- borgara og þeir flokkaðir sem rusl- fæði. Hvað segir þú um það? „Ég hef hvergi heyrt þetta nema á íslandi," segir Kjartan. „Að minnsta kosti er okkar matur holl- ustufæði, ég get ekki svarað fyrir aðra. Ég veit ekki hvað þeir eru að bjóða, þótt mig gruni ýmislegt! Tökum dæmi af kjötinu sem við notum. Það er sérvalið og unnið eft- ir sérstökum aðferðum. Það eru ekki bara afgangar settir í hakkavél. Hver einasta hræra er fitumæld í tækjum sem eru þau einu sinnar teg- undar á landinu. Síðan er kjötkakan mótuð og snöggfryst á augabragði í fljótandi köfnunarefni, sem er ákaf- lega dýr aðferð. Þetta er eina fryst- iaðferðin sem læsir inni ferskleikann. Þetta kemur líka í veg fyrir að bakt- eríur nái að grassera í kjötinu. Við matreiðslu er kjötkakan steikt frosin í eigin safa í tölvustýrðu grilli. Ná- kvæm mæling á gæðum kjötsins og fítumagni tryggir að kjötkakan steik- ist alltaf rétt. Kjötið gegnsteikist en verður safaríkt. Við erum með mjög strangt gæðaeftirlitskerfi og fengum strax GAMES-vottun frá Heilbrigðis- eftirliti Reykjavíkur eftir að ný reglu- gerð kom. Ánnars höfum við unnið eftir hinu alþjóðlega HACCP-eftirlit- skerfí frá upphafi. Hitastig kjötsins er stöðugt mælt og fylgst er með nákvæmni mæli- tækjanna. Allt er þetta skráð til að tryggja að maturinn sé alltaf soðinn í gegn. Frá hráefnisstigi og þar til varan er afhent gerum við allt sem í mannlegu valdi stendur til að vernda viðskiptavininn og að tryggja að hann fái heilbrigðan og hollan mat.“ Jafn strangar reglur gilda um meðferð grænmetisins. Það er þvegið og sett í kæli við mest 4C hita. Því er hent eftir að hafa staðið í eldhúsi í tvær klukkustundir. Ef eldaður matur selst ekki innan 10 mínútna er honum einnig hent. Kjartan segir að framleiðslustjórnunin felist í því að mæta eftirspurn án þess að fram- leiða of mikið. Mikil áhersla er lögð á hreinlæti. Starfsfólki er uppálagt að þvo sér oft um hendumar. Þegar skipt er um vinnustöð verður það að þvo sér. Eftir að snerta kjöt verður starfs- maður að þvo sér. Þeir sem taka við > I I í I > \ i I I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.