Morgunblaðið - 23.06.1996, Síða 31

Morgunblaðið - 23.06.1996, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996 31 Aðalverktökum gekk hann mikið og las alveg ógrynni af bókum jafn- vel fimm bækur á viku. Reyndar þekki ég engan mann sem hefur lesið eins mikið af bókum um ævina. Meðan hann var suður á velli kom hann ekki alltaf heim á kvöldin en eyddi þeim í lestur bóka. Hann nýtti bókasöfn alveg ótrúlega vel og þegar hann dó þurftu Peta og Sigga að skila 12 bókum sem hann hafði nýlega fengið hjá bókasafn- inu. Ég og öll mín systkini höfum þekkt Boga frá fæðingu. Meðan amma og afi voru á lífi hittumst við systkinin og Sigga frænka ýmist heima hjá foreldrum okkar Sigur- oddi og Fanneyju eða hjá Petrínu og Boga (Petrína og Siguroddur eru systkini). Oftast hittumst við þó sameiginlega hjá Pálínu ömmu okk- ar og Magnúsi afa á Urðarstígnum því þar voru veislur á aðfangadags- kvöldum og mörgum afmælum á ári. Bogi naut þessara samveru- stunda og þó hann tæki ekki þátt í ættjarðar- eða sálmasöng þá kunni hann urmul af kvæðum og sálmum og fylgdist vel með öllu sem fram fór. Hann var alia tíð barngóður. Bogi var hamingjusamur í sínu einkalífi. Hann dáði eiginkonu sína fyrir atorku, dugnað, myndarskap og fallega heimilið, sem hún skóp honum. Augasteinar lífs hans voru Sigga dóttir hans og hennar fögru og góðu börn sem dáðu hann og elskuðu. Þeim hefur alltaf þótt gott að koma til afa og ömmu og þau tekið á móti þeim með hlýju og umhyggju. Hann hefur líka orðið fyrir mótlæti. Kringum 1950 var hann tvisvar skorinn upp við maga- sári og maginn fjarlægður að mestu. Mig grunar að þrátt fyrir atorku og dugnað hafi hann oft verið veikur en hann kvartaði aldr- ei. Undir það síðasta var hann orð- inn mjög grannur en gekk undir uppskurð, sem líkaminn ekki þoldi, en andinn og skynsemin voru í besta lagi. Hann fylgdist með öllu fram á síðustu mínútu og þó hann væri kvöldi með fyrirbænum. Og á frels- ara sem gefur fyrirheit um endur- fundi. Eðlisþættir Axels endur- spegluðu dýpt og næmi myndlist- armannsins, dansarans og leikar- ans. Reisn og snyrtimennska herramannsins, hann var höfðingi heim að sækja. Hann var ástúðlegur vinur vina sinna, veitull og þakklátur. Það eru forréttindi að fá að eiga samleið með og kynnast manni eins og Axel. Við vottum bróður hans, mág- konu, bræðrabörnum og öðrum ástvinum samúð. Sambýlis- og samstarfsfólk í Stuðlaseli 2, Reykjavík. Kæri vinur og frændi. Þegar bróðir þinn hringdi fyrir örfáum dögum og tilkynnti mér andlát þitt, varð mér illa brugðið. Þótt við sæjumst síðast í sex- tugsafmæli þínu 15. apríl í fyrra og við töluðumst aðeins örsjaldan við í síma eftir það, var sú tíðin að við vorum nánari. Við vorum systrasynir og fædd- umst báðir árið 1935, en í þá daga voru fjölskylduböndin mun sterkari en nú er. Til marks um það vorum við skírðir saman og síðar vorum við fermdir saman. Einkennileg örlög mæðra okkar. Þær eignuðust báðar þijá syni. Fyrstu synir þeirra beggja dóu reifabörn. Þeir næstu, ég og bróð- ir þinn, erum báðir með sömu menntun og þeir síðustu, þú og bróðir minn voruð báðir öryrkjar. Ég minnist þess hvernig glað- værðin tók ætíð völdin, þegar við hittumst. Þegar þú komst í árlega nokkurra daga heimsókn í sumar- bústað foreldra minna í Hveragerði og við veltumst um í sundlauginni þar heilu dagana og áfram var haldið á nóttunni því þú varst nærri drukknaður í herberginu sem við sváfum saman í. Ég vaknaði um miðja nótt og þú gekkst með fárveikur mátti hann ekki missa af síðustu eldhúsdagsumræðum frá Alþingi. Hann hafði mörg orð um þau fullkomnu tæki sem voru á gjörgæslu spítalans og var mjög þakklátur fyrir þá umönnun sem hann fékk. Elsku Peta, Sigga og börn. Góð- ur drengur er genginn inn á nýjar brautir. Stórt skarð hefur myndast í raðir ykkar, sem aldrei verður fyllt. Ég votta ykkur mína dýpstu samúð og segi eins og Bogi sagði svo oft: Guð veri með ykkur. Magnús Siguroddsson. Afi okkar Bogi Ingjaldur Guð- mundsson er látinn, Minningin um hann mun ávallt lifa í hjörtum okk- ar barnabarnanna hans. Hann fæddist á Hellissandi og ólst upp við Breiðafjörð, sem óneitanlega mótaði alla skapgerð hans og per- sónu. Líkt og margir samtímamenn hans fór hann ungur til sjós en atvikin höguðu því þannig til að hann varð verkstjóri en lagði sjó- mennskuna ekki fyrir sig sem ævi- starf. Afi var sjálfum sér sam- kvæmur hvort heldur var um menn eða málefni. Hann hnikaði hvergi í sannfæringu sinni um að allir menn væru jafnir. Afi var bókhneigður og víðlesinn. Sú minning sem stendur okkur næst hugskotsjónum er af afa í stólnum sínum með bók í hönd. Annars lýsir Minningarljóð Þorska- bíts afa best; Þú varst prúðleiks þokka gæddur þeim sem fólkið að sér drepr. Augun frán og síung sýndust, svipurinn hreinn og karlmannlegur. Öllum vel í vanda reyndist, vildir ei af hólmi renna. Ekki síst þá aðrir brugðust, einkenni það er göfugmenna. Elsku afi. Blessuð sé minning þín. Þór, Pétur Bogit Stephanie Sunna og Allan Orn. veggjum korrandi og frussandi en steinsofandi og reynandi að kom- ast upp á bakkann, sem enginn var. Þegar ég loks áttaði mig og leiddi þig að þinni hvílu hélstu bara áfram að sofa. Það voru mörg ævintýrin sem við lentum í þegar við unnum sam- an í verkamannavinnu á sumrin á skólaárum mínum og ekki má gleyma gömlu dönsunum, sem við undum okkur við margar glaðar stundir. Þannig hefur ævin liðið, en fjöl- skylduböndin hafa gliðnað í tímans rás og við sést æ sjaldnar, og sí- fellt stijálli símtöl hafa verið látin duga. Það er eitt sem ég hef ætíð öfundað þig af, en það er hæfi- leiki þinn til að eignast góða og trausta vini. Ég kynntist að vísu mörgum þessara vina þinna, en við upprifjun á nöfnum kemur í ljós að mjög margir þeirra hafa nú þegar kvatt þennan heim. Ég ætla ekki að fara að telja upp nöfn, en get þó ekki látið hjá líða að nefna frænku okkar, Sigríði Sigurðardóttur á Káratanga, sem lést fyrir fáum dögum og Friðrik mann hennar, sem einnig er lát- inn. Ég veit að hjá þeim hjónum dvaldir þú oft um tíma og þar var löngum sungið dátt. Eg veit að bróðir þinn og mág- kona og fjölskyldur barna þeirra reyndu alla tíð að gera þér lífið bærilegt. Eins og ég sagði þér í upphafi bréfsins var mér illa brugðið við andlátsfrétt þína. Kannski er það vegna þess hve samband hefur yerið stopult síðustu árin eða vegna þess að við erum jafnaldrar og fréttin minnti mig óþyrmilega á það, en eitt er víst að kynni okkar hafa haft djúpstæð og varanleg áhrif á mig. Ég votta þínum nánustu samúð mína og kveð þig að sinni. Hittumst heilir, Bjarni Garðar Guðlaugsson. ÞORODDUR TH. SIGURÐSSON + Þóroddur Th. Sigurðsson verkfræðingur fæddist á Patreks- firði 11. október 1922. Hann lést á Landspítalanum 14. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru Sigurður Andres Guðmunds- son, skipstjóri og bóndi þar, og Svan- dís Árnadóttir, ætt- uð frá Akranesi. Systkini hans eru: Árni, sem er látinn, Sigurður, Ásta, Ingveldur, Guð- mundur, sem er látinn, Guð- ríður Soffía, Anna María, sem er látin, Rögnvaldur __ Geir, Svandís, sem er látin og Ásgeir Hjálmar. Þóroddur var stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1943. Hann lauk prófi í verk- fræði frá HÍ árið 1946 og prófi í vélaverkfræði frá DTH í Kaup- mannahöfn árið 1950. Hann starfaði sem vatnsveitustjóri í Reylqavík frá 1958 til 1993. Hinn 12. ágúst 1949 kvæntist Þóroddur Kristínu Guðmundsdóttur frá Harðbak á Mel- rakkasléttu, f. 18. júlí 1923. Börn þeirra eru: 1) Mar- grét, f. 1946, hag- fræðingur. Maður hennar er Jean- Claude Piris, lög- fræðingur. Börn hennar: Mark, fæddur 1981, og Anna Soffía, fædd 1992. Þau eru bú- sett í Brussel. 2) Sigurður Andrés, f. 1951, lögfræðingur. Kona hans er Kristín Högnadóttir hjúkr- unarfræðingur. Börn þeirra: Þóroddur, f. 1982, og Högni, f. 1989. 3) Guðmundur, f. 1957, verkfræðingur. Kona hans er Halldóra Björnsdóttir, læknir. Börn þeirra: Kristín, f. 1993, og Björn, f. 1995. 4) Þóroddur Ari, f. 1966, hagfræðingur. Kona hans er Marinella Linda Salientes, hagfræðingur. Þau eru búsett í New York. Útför Þórodds fór fram í kyrrþey. „Sá sem hefir fáar óskir, mun fá þær uppfylltar. Sá, sem girnist margt, missir af því. Þess vegna ástundar hinn vitri einfeldni og verður fýrirmynd allra. Hann býst ekki í skart, þess vegna ljómar hann. Heldur sér ekki fram og það er ágæti hans. Hann er laus við sjálfhælni og þess vegna er hann vitur. Hann er laus við sjálfsþótta og ber því af öðrum, og af því að hann keppir ekki við aðra, getur enginn keppt við hann.“ (Lao-Tse.) Mér finnast þessar setningar eiga svo vel við hann Þórodd bróður minn, að ég get ekki látið hjá líða að skreyta þessar fátæklegu línur, sem mig langar að setja á blað um hann. Systkinahópurinn á Geirseyri við Patreksfjörð var stór, sex piltar og sex stúlkur. Nú hefir fækkað í þeim hópi, svo að ekki eru eftir nema sex af tólf, þijár systur og þrír bræður. Fyrir tæpum fjórum mánuðum lézt Guðmundur bróðir okkar, og nú Þóroddur. Dauðinn er ætíð sár, þó hann sé það eina, sem við vitum með vissu að bíður okkar allra. Við dánarbeð þjóta um hugann ýmsar minningar. Hugurinn reikar til æskuáranna, ég sé fyrir mér glaðan og stóran barna- hóp í íþróttaleilqum. Þóroddur sveifl- ar sér í stangarstökki og mikið var ég hrifin og stolt af því, hve flinkur hann var. Eða æfingamar okkar á slánni, sem var í garðinum okkar. Það er margs að minnast. Þóroddur var góður bróðir, þó hann væri ekki margmáll. Ég sé fyrir mér blárósótt- an silkivasaklút, sem var jólagjöf frá honum og gladdi mig mikið, þá litla hnátu. Það var líka mikil hvatning fyrir mig, þegar hann bað mig að senda sér allar upplýsingar um námsárangur minn í bamaskólan- um, en þá dvaldi hann á Akureyri við nám í menntaskólanum. Systk- inahópurinn tvístraðist með ámnum, eins og við var að búast. Sumir fóm á SV-homið og aðrir til útlanda. Makar bættust í hópinn svo og börn. Lífsbaráttan var hafin. Þóroddur hefir skilað glæsiiegu ævistarfi, sem mun halda miningu hans lifandi um ókomin ár. Hann var sívinnandi og farsæll í starfi. Fyrir um það bil 25 ámm vomm við systkinin flest orðin búsett á höfuðborgarsvæðinu og þá bar fundum okkar oft saman. Við hittumst alltaf um hátíðamar með fjölskyldum okkar. Það vora góðar stundir. Næst mun okkur þykja komið stórt skarð í hópinn. Lífsföranautur Þórodds, Kristín Guðmundsdóttir, var honum til mik- illar gæfu. Á þeirra heimili hefur ætíð verið tekið glæsilega á móti öllum, sem þar hafa komið. í veik- indum Þórodds hefur hún staðið eins og hetja við hlið hans og hefði þó þurft að vera á tvennum víg- stöðvum um tíma. Öll vitum við að líf okkar tekur enda, en um leið og einhver manni náinn og kær er burt kallaður, finn- ur maður fyrir tómarúmi og lífs- myndin breytist. Sárastur er sökn- uður eiginkonu, barna og barna- barna. Guð veri með ykkur. Guðríður. Kær vinur og samverkamaður er nú fallinn frá. Hugurinn fyllist trega og því næst hefst upprifjun á fjölda samverustunda í leik og starfí. Þóroddur var svo leiftrandi skemmtilegur í viðkynningu, þótt ekki væri alltaf gefið eftir og hann stæði fastur á sínu, allt eftir því hvernig málefnin stóðu. Suðurnesjamönnum reyndist það mikið happ er Þóroddur var skipað- ur í fyrstu stjóm Hitaveitu Suður- nesja árið 1975. Uppbygging fyrir- tækisins var að hefjast og i mörg horn að líta fyrir stjórn fyrirtækis- ins. Lifandi lærifaðir og ómetanleg hjálparhella reyndist hann verk- fræðingi hitaveitunnar, þá nýkomn- um úr námi. Hafa verður það í huga að á þessum tíma gengu menn ekki í sjó reynslunanr um nýtingu háhita til slíkra nota á Islandi. Stjórnar fyrirtækisins, hönnuða og starfsmanna beið því verðugt verk- efni, sem tekist var á við af festu. Svo hefur reyndar verið alla tíð, því hjá hitaveitunni hefur ávallt verið tími nýjunga og uppbygging- ar. Notkun háhitans í iðnaði var mikið áhugamál Þórodds og setti hann mark sitt á stefnu fyrirtækis- ins í þeim efnum. Þóroddur Th. Sigurðsson stóð í fremstu röð þeirra sem ruddu áðumefnda braut. Af einstökum dugnaði og áhuga gaf hann sig í verkefnið langt umfram það sem hægt var að krefjast af stjórnarmanni. Hæfni hans og þekking nutu sín í hvívetna og smituðu gjarnan út frá sér til ann- arra þeirra er að verki komu. Fund- ir urðu oft langir, ekki síst fyrir það að hjá Þóroddi var ekkert til sem hét hálfur skilningur, hann var að svo lengi sem þurfti til að menn næðu innihaldinu. Stundum voru menn orðnir hálfdasaðir. En Þór- oddur var kjölfesta ákvarðanatöku verklegra framkvæmda og hefur enginn orðið svikinn af. Hann var einnig í samninganefndum við varn- arliðið um kostnaðarþætti um upp- byggingu hitaveitunnar og einnig verðlagningu vatns. Þar tókst hon- um vel upp og hefur fyrirtækið notið sannfæringarkrafts hans og hæfni við þá samninga. Við hitaveitumenn nutum einnig samskipta við Þórodd utan daglegs erils. Kynnin af honum og ínu voru öll á einn veg, ánægjuleg og gef-"* andi. Löngu eftir að Þóroddur hætti í stjórn Hitaveitu Suðumesja þótti gott að leita hollráða hjá honum. Það gaf einnig tækifæri til fleiri samvemstunda með þeim hjónum og fjölskyldu. Þær stundir em nú þakkaðar af alhug sem og allt hans uppbyggingarstarf. Kæra ína. Fyrir hönd eldri sem yngri stjómar- og samstarfsmanna hjá Hitaveitu Suðurnesja, sem og eiginkvenna, eru þér og fjölskyldu færðar innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu góðs drera-;s. Finnbogi Bjömsson, Júlíus Jónsson, Albert Albertsson. Þóroddur Th. Sigurðsson sundfé- lagi okkar lést 14. júní sl. Með honum sér 8-9 pottflokkur- inn í Laugardal á bak traustum liðs- manni til margra ára. En Þóroddur og kona hans, Kristín Guðbjörg, eða ína eins og við kölluðum hana, fylltu þann flokk með mikilli og góðri ástundan. Voru þau hjón þar aufúsugestir og lögðu sig fram um að taka þátt í því selskapslífi, sem menningar- starfsemi flokksins tilheyrir. En þar til falla heimsóknir ýmsar, bæðiHPk einkaheimili og starfsstöðvar fé- lagsmanna. Minnumst við nú slíkra stunda, bæði heima hjá þeim Þóroddi og Kristínu Guðbjörgu og í Heiðmörk meðan Þóroddur var vatnsveitustjóri í Reykjavík. En þar átti Þóroddur þátt í að skapa ein sérstæðustu verk- fræðilegu mannvirki, sem hér er að fínna. En dælustöð Vatnsveitunnar er sannkölluð álfaborg, svo dulúðug er hún og samin af list inn í berg- vegginn. Mátti finna að Þórodduí*- var stoltur af ríki sínu þar efra. í þessari hamraborg hélt Þórodd- ur upp á sjötugsafmæli sitt að okk- ur viðstöddum fyrir fjórum árum. Var það ógleymanleg stund þeim mikla fjölda sem þar var og mátti þar sjá, hversu vinmargur hann var. Þóroddur var stilltur maður í allri framgöngu og yfirvegaður. Húmor- inn var líka þeirrar ættar og var athugasemdunum gjarnan svona rennt fram góðlátlega en með hnitmiðuðum árangri. Hann var sjór af fróðleik og sér í lagi um ýmis verkfræðileg efni. Hann vissi og meira um stjóm- mál, menn og málefni, en marga granaði. Sagt var, að hann hefði*átt mikinn hlut í myndun ríkisstjómar frænda síns, Gunnars Thoroddsens. En ekki vildi hann gera mikið úr sínum hlut í því máli við okkur né ræða sérstaklega, enda málið um- deilt og pottflokkurinn auk þess heldur ódæll í pólitík. Að leiðarlokum kveðjum við Þór- odd Thoroddsen Sigurðsson og ósk- um honum góðrar vistar í hinum eilífu sundlaugum fyrir austan sól og sunnan mána, þar sem við tökum öll upp þráðinn í fyllingu tímans. Eftirlifandi ástvinum sendum við samúðarkveðjur. F.h. sundfélaganna. Halldór Jónsson.^. APÓTEK AUSTURBÆJAR Háteigsvegi 1 BREIÐHOLTS APÓTEK Álfabakka 12 eru opin tii kl. 22 — Næturafgreiðslu eftir kl. 22 annast Apótek Austurbæjar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.