Morgunblaðið - 23.06.1996, Qupperneq 42
42 SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF • FORSETAKJÖR
IDAG
Um greindarskort
og flughræðslu
Frá Hauki Helgasyni:
UMMÆLI Péturs Kr. Hafstein um
fosætisráðherra, Davíð Oddsson,
hafa vakið þjóðarathygli og hneyksl-
an. Þau hafa nú verið dregin fram
í dagsljósið í tengslum við forseta-
framboð Péturs. Umrædd ummæli
hefur Pétur bæði viðhaft í Morgun-
blaðsgrein og bætti síðan um betur
í nýlegum viðtölum á öðrum vett-
vangi. Pétur vænir Davíð Oddsson
um heimsku og hæfileikaskort og
efast um getu hans til að leiða Sjálf-
stæðisflokkinn. Pétur virðist reyndar
finna Davíð flest til foráttu. Nú er
það svo, að Davíð Oddssyni hefur
af pólitískum andstæðingum verið
kennt um flest sem aflaga hefur far-
ið í þjóðfélaginu. Það er einfaldlega
þannig með forystumenn í stjómmál-
um og þá sem eitthvað láta að sér
kveða yfirleitt, að þeir fá gjarna
óvægna meðferð og ósanngjarna
dóma. Þannig er því einnig varið um
Davíð, sem hefur unnið mörg stór-
virki fyrir þjóðina og er tvímælalaust
hæfasti stjómmálamaður sem við
eigum. Ég tel Davíð Oddsson fylli-
lega færan um að svara fyrir sig
sjálfur án minnar hjálpar eða ann-
arra. Hitt vil ég benda á, að aldrei
hef ég heyrt nokkurn mann, karl eða
konu, hvorki fyrr né síðar, væna
Davið Oddsson um heimsku. Það er
álit sem ég held að Pétur Kr. Haf-
stein standi einn að. Þvert á móti
er engum blöðum um það að fletta,
að hvar í flokki sem menn standa,
hljóta þeir að verða að viðurkenna
ótvíræða hæfileika Davíðs Oddssonar
og að þar fer stórvel gefin maður.
Þegar Pétur setur fram þessa und-
arlegu fullyrðingu um forsætisráð-
herra blöskrar flestum. Okkur sjálf-
stæðismönnum, sem þekkjum Davíð
og verk hans, verður orðfall við slík-
an hroka. Það fer ekki hjá því að
fólki verði hugsað til þess hvomm
megin greindin liggur. Annars vegar
hjá þeim manni sem hefur sem for-
sætisráðherra stjórnað ríkisstjórn
íslands af sæmd og Sjálfstæðis-
flokknum af atorku og dugnaði um
árabil, verið hörku borgarstjóri og
nýtur virðingar og trausts mikils
meirihluta þjóðarinnar. Eða hins veg-
ar hjá manni, sem hefur eytt mestum
hluta ævinnar í að naga blýanta á
bak við skrifborð. Manni sem verður
svo flughræddur í ókyrru lofti, að
hann opnar dymar í fimm þúsund
feta hæð og ákveður að ganga það
sem eftir er leiðar? Þeim sem bindur
sínar helstu framtíðar vonir við jafn
umdeilda menn og Ámunda Ámunda-
son og Hannes Hólmstein? Með þetta
í huga hefði ég haldið að eitt af skil-
yrðum fyrir forsetaframboði ætti að
vera greindarprófsmæling, en ef svo
væri, ættu þeir líklega álíka mögu-
leika Ámundi Ámundason, Hannes
Hólmsteinn og Pétur Kr. Hafstein.
HAUKUR HELGASON,
Fellsmúla 5, Reykjavík.
Kommúnista á
Bessastaði?
Frá Þorleifi Kr. Guðlaugssyni:
MIKILL skelfingar skrípaleikur eru
þessar forsetakosningar orðnar.
Ástæðan fyrir því að ég skrifa þetta
bréf er grein Jóns Steinars Gunnlaugs-
sonar í Morgunblaðinu 15. júní sl.
Eins og greinilega hefur komið
fram áður er Jón Steinar eingöngu
að segja sannleikann í umijöllun um
mál Olafs Ragnars Grímssonar en það
þola stuðningsmenn Ólafs Ragnars
bókstaflega ekki eins og vel lýsir sér
í úttekt og yfirheyrslu í útsendingu á
Stöð 2 þar sem Jón Steinar sat fyrir
svörum en fékk þó aldrei að svara
vegna ofríkis annars spyijandans sem
er á línu Ólafs Ragnars Grímssonar
og Hannes Hólmsteinn átti fullt í
fangi með að halda reglu í samtalinu.
Svona er nú staðreyndin um fram-
komu margra þeirra sem fylgdu
stefnu kommúnistanna og svo ætla
þessir menn að troða andrúmslofti
þessarar stefnu inn á Bessastaði í
forsetaembættið. Hvílík hneisa fyrir
ísland og íslendinga. Góð lýsing kom
eitt sinn nýlega frá Hannesi Hólm-
steini í yfirheyrsluþætti um sinna-
skipti Ólafs Ragnars „að Ijónið væri
orðið að lambi,“ eða eitthvað miklu
æðra. Kommúnisminn er ekki liðinn
undir lok og hefi ég oft varað við
því og ef satt reynist að sjálfstæðis-
menn veiti Ólafi Ragnari brautar-
gengi, þá álykta ég það svo, að þeir
séu svikarar við sjálfstæðisstefnuna
og frelsi þjóðar okkar.
Kommúnisminn er aftur að vinna
á og nær nú greiðum inngangi inn
í vestræna samvinnu með falsi og
fláræði svo stór áföll geta af hlotist.
Ólafur Ragnar Grímsson hefur til-
einkað sér málfutning austantjalds-
kommanna og er það augljóst að
dylgjur og tilgátur hans til annarra
eru sambærilegar við áróðurinn sem
berst austan að. Á Alþingi var orð-
bragð hans honum sjálfum til
skammar. Nú er hann auðmjúkur í
bragði og allt skal vera heiðarlegt.
Er þetta ekki þekkt fyrirbrigði
austan að meðan verið er að má
völdum og síðan tekur við einræði
og kúgun? Ólafí er ekki hægt að
treysta vegna fyrri framkomu og
hann er áður þekktur fyrir óheilindi
og ljótt orðbragð, og það er hann
sem er af sjálfsáliti yfír alla aðra
hafínn. Þetta er ekki forsetaefni fyr-
ir íslendinga, svo sannarlega. Hugsið
ykkur, frétt barst í gær um að kom-
ið geti til greina að taka rússneskan
tillitsmann inn í NATÓstöðina hér.
Ég nefni þetta hér til að sýna framm
á hve hættulegt þetta er, nú kastar
fyrst tólfunum, eins og sgat er. Hér
er augljóst hvað er verið að gera.
Kommúnisti á Bessastaði og nýjan
kommúnista á þing fyrir Ólaf Ragn-
ar Grímsson.
Þjóðin er í mikilli hættu fari sem
horfír.
ÞORLEIFUR KR. GUÐLAUGSSON,
Nökkvavogi 33, Reykjavík.
Með lögnm skal
land byggja
Frá Erlendi Guðlaugssyni:
NÚ líður óðum að forsetakosningum.
Ég vil hvetja alla að styðja Pétur
j Hafstein.
Pétur Hafstein er vel til forystu
fallinn. Pétur er löglærður, en það
tel ég góða menntun fyrir forseta
íslands, því með lögum skal land
byggja, en með ólögum eyða.
Það hefur raunar sýnt sig á um-
liðnum árum, að fyrir vopnlausa
smáþjóð eru lög og réttur okkar eina
haldreipi.
Pétur Hafstein hefur sýnt það með
sinni drengilegu framkomu við nám
og störf að þar fer meir en meðal-
maður.
Inga Ásta Hafstein er vel gefín
og vel menntuð, hún er vel mælt á
franska tungu og vel inni í hljómlist.
Þessi ungu hjón eru verðugir full-
trúar íslensku þjóðarinnar þegar 21.
öldin gengur brátt í garð.
Mætum öll á kjörstað 29. júní og
gerum sigur Péturs Hafstein glæsi-
legan.
ERLENDUR GUÐLAUGSSON,
Frakkastíg 26a, Reykjavík.
COSPER
ÉG held að mjólkin sé farin að sjóða.
BRIDS
Umsjón Guómundur Páll
Arnarson
LANDSLIÐIN stóðu í
ströngum æfingum um síð-
ustu helgi, en framundan
er Norðurlandamót í Dan-
mörku í opnum flokki og
kvennaflokki, og Evrópu-
mót yngri spilara í Eng-
landi. Við skulum líta á eitt
af athyglisverðustu spilum
helgarinnar.
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♦ 10
4 ÁK2
Ljósbrár í norður á kröfu-
grandi við spaðaopnun
Stefáns. Vitneskja um lauf-
lit í austur hafði afgerandi
áhrif á spilamennsku Stef-
áns.
Vestur kom út með lauf,
sem Stefán tók með drottn-
ingu blinds. Hann tók
spaðaás og trompaði spaða,
stakk tígul og trompaði aft-
ur spaða. Þegar austur neit-
aði að fylgja lit, var ljóst
að spilið ynnist ekki með
því að fríspila spaðann. Þá
var eina vonin að fá sem
flesta slagi með víxltromp-
un. Stefán trompaði tígul,
spaða í borði með síðasta
trompinu og tígul í þriðja
sinn. Hann átti út heima í
♦ D98632 þessari stöðu:
4 D43 Norður
Vestur Austur 4 -
♦ G9432 4 KD 4 -
4 86 ♦ KG105 ■: ar ♦ D98 4 43
♦ 85 ♦ G10976 Vestur Austur
Suður 4 G 4 -
4 Á8765 4 86 III I1094
4 DG753 ♦ K 111II1 ▲
♦ - 4 5 4 G10
4 ÁK2 Suður
Galdurinn í spilinu sýnist 4 8
vera sá að forðast hjarta- 4 DG ^ _
slemmu. Flest pörin spiluðu reyndar fjögur hjörtu, sem 4 ÁK
unnust ýmist slétt eða með
yfírslag, en Ljósbrá Bald-
ursdóttir og Stefán Jó-
hannsson í liði yngri spilara
keyrðu alla leið í sex hjörtu.
Austur hafði blandað sér í
sagnir með því að stinga inn
tveimur laufum við svari
Stefán tók DG í hjarta
og síðan héldu ÁK í laufí.
E.S. Ef ekki er vitað um
lauflit í austur, er besta
spilamennskan sennilega
sú að reyna að taka strax
þrjá efstu í laufi og leggja
svo af stað í víxltrompun.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
Tapað/fundið
Skór fannst
SVARTUR, nýlegur,
vandaður hælahár kven-
skór fannst 17. júní við
gamla kirkjugarðinn.
Upplýsingar í síma
552-9957.
GSM-sími
tapaðist
GSM síminn minn, Moto-
rola Intemational 7500,
var tekinn úr veskinu
mínu á Kaffi Reykjavík,
föstudaginn 14.6. sl.
ásamt GSM korti og
tveimur batteríum. Núm-
er á bakhlið símans er
0922WA1AB1. Þessi
sími er eini síminn sem
ég hef og skiptir hann
mig miklu máli því dóttir
mín þarf að geta náð í
mig hvenær sem er.
Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 552 9600.
Fundarlaunum heitið.
Gleraugu fundust
Gleraugu í vínrauðu
hulstri fundust á Tún-
götu 14. júní sl. Upplýs-
ingar í síma 561-1911.
Með morgunkaffinu
Ást er...
... að vera bestipabbi
í heiminum.
TM Reg. U.S. Pat. Ofl — eii righta reearved
(c) 1996 Loa Angalss Times Syndicate
ættir við þetta þegar
þú spurðir hvort þú
mættir zzmála mig.
sagt þér að þeir sem
spila á básúnuleikarar
eiga ekki að borða
hvítlauk.
Víkveiji skrifar...
SUM orð eru okkur tungutamari
en önnur. Orðið lífskjör er til
dæmis á hvers manns vörum um
þessar mundir. Menn tala gjarnan
um samanburð á lífskjörum Dana
og íslendinga, sem deildu saman
kóngi frá miðri fjórtándu öld og
fram í síðari heimsstyijöld þeirrar
tuttugustu.
í hópi ríkustu þjóða heims, sem
nýtt hafa mannauðinn betur en
aðrar, má finna nokkrar, sem státa
af betri lífskjörum en við. Þær þjóð-
ir, sem lengst hafa náð í lífskjörum,
hafa allar sett almenna og sér-
hæfða menntun og þekkingu í önd-
vegið, rannsóknir, vísindi, vöruþró-
un og markaðssetningu.
Meirihluti mannkyns býr samt
sem áður við umtalsvert lakari lífs-
kjör en við. Hundruð milljóna
manna hafa raunar ekki nauð-
þurftir. íslendingar, heimkomnir
frá svokölluðum þriðja heimi, segja
sumir hveijir, að við höfum allt til
alls.
xxx
SAMKEPPNI er eitt þeirra orða
sem skreytir mál manna þessa
dagana. Það er vert að gefa bak-
landi þess gaum. Ekki sízt fyrir
íslendinga, en fáar þjóðir, ef nokk-
ur, er jafnháð milliríkjaviðskiptum
og við, það er flytur út jafnhátt
hlutfall framleiðslu sinnar - eða inn
jafnmikið af meintum nauðsynjum.
Lífskjör okkar eru að stórum
hluta háð því verði sem við fáum
fyrir útflutningsvörur okkar - sem
og því verði sem við þurfum að
greiða fyrir innflutninginn. Verzl-
unin vegur því þungt á vogarskál-
um íslenzkra lífskjara; sú markaðs-
staða sem næst í umheiminum.
XXX
VINNUMARKAÐUR Evrópu
stendur íslendingum nú op-
inn,“ sagði forsætisráðherra í þjóð-
hátíðarræðu, „með sama hætti og
áður gilti á Norðurlöndum". Vel
menntað og hæft starfsfólk á því
fleiri kosta völ en finnast heimafyr-
ir. Samkeppnin um hæft vinnuafl
verður óhjákvæmilega hluti af
harðri fjölþjóðlegri samkeppni
næstu ár og áratugi.
Sveinbjörn Björnsson háskóla-
rektor sagði við brautskráningu
kandídata frá Háskóla íslands að
sú kynslóð, sem nú væri að útskrif-
ast, væri fyrsta kynslóðin sem
byggi sig undir að starfa erlendis,
ef henni gæfust ekki tækifæri til
að nýta menntun sína hér heima.
Rektor sagði ákveðna hættu á því
að við töpuðum hluta af menntuðu
æskufólki úr landi. Og þar með
hæfni og þekkingu sem samfélagið
þyrfti á að halda til að varðveita
góð lífskjör hér á landi.
LÍFIÐ er saltfiskur, sem fyrrum,
það er sjávarfang af ýmsu
tagi. Því megum við aldrei gleyma.
Við þurfum hins vegar fleiri horn-
steina en sjávarútveg til að vinna
okkur þann lífskjarasess, sem
væntingar standa til. Og menntun
og þekking nýtast sjávarútvegi sem
öðrum atvinnugreinum. En hveijir
sem hornsteinar lífskjara okkar
verða er fram líða stundir skarast
þeir óhjákvæmilega við stöðu okkar
í fjölþjóðlegum viðskiptum.
í Vísbendingu, vikuriti um við-
skipti og efnahagsmál, segir:
„Hagur íslendinga hefur allt frá
landnámi ráðist af því hversu öflug
viðskipti þeir stunda við önnur lönd.
Landið er lítið og býr yfír sérhæfð-
um auðlindum sem landsmenn
verða að geta komið í verð erlend-
is til að geta keypt neyzluvarning.
Þetta virðist augljós hlutur, en hef-
ur þó vafizt fyrir landsmönnum,
því jafnan hefur verið sterkur
þrýstingur á að hindra frjáls milli-
ríkjaviðskipti. - Grundvöll að hag-
sæld sinni lögðu landsmenn undir
lok síðustu aldar er þeir komust
upp á lag með að flytja út fisk og
á því hefur verið byggt síðan...“
Nú ríður á, að mati Víkveija,
að „breikka“ útflutning okkar og
ýta undir hagvöxt. Við höfum sitt
hvað að bjóða, m.a. sérhæfða þekk-
ingu ýmiss konar. Lífskjör í landinu
ráðast af menntun, fyrirhyggju og
vinnusemi okkar sjálfra.