Morgunblaðið - 23.06.1996, Síða 56
varða
■■■■■■
víðtæk
fjármálaþjónusta
Landsbanki
íslands
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Sprautunálar
finnast oft á leik-
svæðum barna
Skýrar leiðbeiningar um meðferð nálanna
skortir, að mati barnaslysavarnafulltrúa
TILFINNANLEGA skortir hér á
landi leiðbeiningar frá heilbrigð-
isyfirvöldum um það hvernig
fólk, börn jafnt sem fullorðnir,
eigi að umgangast sprautunálar,
sem finnast á víðavangi, að
mati Herdísar; Storgaard barna-
slysavarnafulltrúa. Herdís segir
að börn finni iðulega
sprautunálar, bæði notaðar og
nýjar, á berangri og algengt sé
að þær finnist á leiksvæðum
þeirra, faldar í sandi eða annars
staðar innan vallanna.
Hún segir að í ljósi þess raun-
veruleika að hér á landi séu til
sprautufíklar rétt eins og annars
staðar, sé nauðsynlegt fyrir heil-
brigðisyfirvöld að bregðast við
með því að leiðbeina fólki um
meðferð slíkra tóla enda geti þau
haft í för með sér alvarlega
smit- og sýkingarhættu.
„Við þurfum að fá að vita
hvernig við eigum að taka þess-
ar sprautur upp og hvað við eig-
um að gera við þetta. Það er
engin lausn að henda þessum
sprautum í ruslafötuna því þá
getur bara einhver annar komið
og stungið sig á þessu,“ segir
Herdís.
Sjö ára drengir
stungu sig
Tveir sjö ára drengir stungu
sig á fimmtudagskvöld á notaðri
sprautunál, sem þeir fundu nærri
heimilum sínum í Kópavogi.
Sævar Halldórsson, barnalæknir
á barnadeild Sjúkrahúss Reykja-
víkur, segir að stungusár hafi
ekki verið greinileg en gera verði
ráð fyrir að nálin hafi komist inn
fyrir húð drengjanna.
Sævar segir að í tilvikum sem
þessum megi helst óttast að við-
komandi hafi smitast af lifrar-
bólguvírus, en lifrarbólga getur
verið lífshættuleg. Hann telur
heldur ekki hægt að útiloka að
HlV-veiran smitist af sprautu-
nálum.
Aldrei of varlega farið
Blóðprufur voru teknar af
drengjunum en síðan verður
fylgst með því hvort mótefni
myndast, t.d. gegn lifrarbólgu.
Sævar segir að nokkur tími þurfi
að líða áður en hægt sé að úti-
loka lifrarbólgusmit.
Sævar segir aldrei of varlega
farið í umgengni við notaðar
sprautur og hvetur hann for-
eldra að brýna fyrir börnum sín-
um að snerta ekki sprautur eða
nálar sem kunna að finnast á
víðavangi.
Herdís segir mikilvægt að
hrinda umræðu af stað um þessi
mál til að vekja foreldra til vit-
undar um alvarleikann, sem
þessu getur fylgt, þannig að
þeir geti síðan frætt börnin sín.
Ekki síður væri alvarlegt þegar
fólk væri að kafa í ruslakassa
og tunnur, leitandi að flöskum
eða einhvetju nýtanlegu. Það
væri stórhættulegt enda gætu
notaðar sprautunálar leynst alls
staðar.
ftflsptegni
Morgunblaðið/Golli
SVIFIÐ UM SUNDIN
Sements-
sala eykst
um 16%
■0. .§ALA á sementi jókst um 16% á
fyrstu fimm mánuðum ársins borið
saman við sama tímabil í fyrra.
Stjórnendur Sementsverksmiðjunnar
áætluðu í upphafi þessa árs að se-
mentssala á árinu yrði 11,5% meiri
en í fyrra, en mikil sala á fyrstu
mánuðum ársins bendir til þess að
salan í ár geti orðið nokkru meiri en
áætlanir gera ráð fyrir, samkvæmt
Hagvísum Þjóðhagsstofnunar.
Sóknarfæri fyrir íslensk fyrirtæki á sviði orkumála könnuð
Möguleikar taldir á verk-
efnum í Mið-Ameríku
SÓKNARFÆRI í Mið-Ameríku eru töluverð fyr-
ir íslensk fyrirtæki á sviði raforkumála að mati
Eiríks Briem, framkvæmdastjóra fjármálasviðs
Rafmagnsveitna ríkisins. Eiríkur er nýkominn
úr kynnisferð til Haítí og Dóminíska lýðveldisins
ásamt Kristjáni Jónssyni Rafmagnsveitustjóra.
Eiríkur segir að íslensku orkufyrirtækin ættu
að huga betur að verkefnaútflutningi líkt og
allar stærstu orkuveitur Norðurlanda geri.
Alþjóðlegt fjármagn tjl landanna
Eiríkur segir sambönd við frammámenn í lönd-
unum tveimur hafa komist á að tilstuðlan Pét-
urs Guðjónssonar ráðgjafa _sem vel þekki til
mála í þessum heimshluta. I Port au Prince á
Haítí hafi þeir Kristján hitt iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra og orkuráðherra landsins og hafi þeir
verið mjög áhugasamir. Þá hafi þeir heimsótt
sendiráð ESB á Haítí og hitt þar yfirmann orku-
mála. Hann hafi sýnt mikinn áhuga og gefið
vilyrði fyrir upplýsingum og aðstoð þegar fram
í sækti.
Eiríkur segir pólitískt ástand á Haítí nú sæmi-
lega stöðugt og þangað streymi alþjóðlegt fjár-
magn, m.a. frá Sameinuðu þjóðunum, Evrópu-
sambandinu, Alþjóðabankanum og Ameríska
þróunarbankanum.
„Við vorum að kynna okkur möguleika á að
íslendingar, hugsanlega í samvinnu við aðra,
komist inn í verkefni í þessum löndum. Við höf-
um hugsað okkur að RARIK og aðrar veitur
hefðu yfirumsjón og stjórnun með þeim en
reyndu jafnframt að greiða fyrir að íslenskar
verkfræðistofur fengju verkefni. Þessir fyrstu
fundir voru til að kanna hvaða möguleikar eru
fyrir hendi,“ sagði Eiríkur.
200 milljóna kr. verkefni
í Eistlandi
Eiríkur segir ástand orkumála ekki alveg eins
bágborið í Dóminíska lýðveldinu og á Haítí.
Hins vegar sé flutningur og dreifing í molum í
báðum löndum og ekki síst hin viðskiptalega
hlið rekstrarins. Þar telur Eiríkur að að íslensk-
ir aðilar geti veitt ráðgjöf og hjálpað verulega til.
Eiríkur segir að nú séu menn að reyna að
opna augun fyrir möguleikum til verkefnaút-
flutnings. RARIK sé t.d. samstarfsaðili að verk-
efni í Eistlandi með Landsvirkjun, Vattenfall í
Svíþjóð og rafveitum í Eistlandi og Lettlandi.
Þijár íslenskar verkfræðistofur verða undirverk-
takar í verkefninu, Línuhönnun, Afl og Atorka.
Nú liggi umsókn hjá Evrópusambandinu upp
á 200 milljóna króna styrk til verkefnisins og
segist Eiríkur bjartsýnn á að það komist á.
Hann telur það vera fyrsta íslenska útflutnings-
verkefnið á sviði raforku, nokkur verkefni á
sviði hitaveitu séu hins vegar þegar í gangi.
Ekki síður mikilvægt
að selja þekkingu
Eiríkur segir ekki síður skynsamlegt að reyna
að selja þá þekkingu sem til er á sviði orku-
mála en að fá erlend stóriðjufyrirtæki hingað
til lands. Á þessum markaði sé gríðarleg velta
og miklir möguleikar sem reyna eigi að nýta.
Hann telur æskilegt að fá norræna aðila til sam-
starfs, enda standi allar stærstu orkuveitur Norð-
urlanda í verulegum verkefnaútflutningi.