Morgunblaðið - 28.07.1996, Page 18
18 B SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ATVIN N MMAUGL YSINGAR
Hjúkrunarfræðinga,
félagsmálastjóra og
kennara
vantar á Seyðisfjörð.
Hjúkrunarfræðingar
óskast til starfa við Sjúkrahúsið á Seyðisfirði
frá 01.09 eða eftir nánara samkomulagi.
Sjúkrahúsið á Seyðisfirði er 26 rúma sjúkra-
hús með 6 stöðugildi hjúkrunarfræðinga.
Sjúkrahúsið er í nýlegu húsnæði þar sem
öll aðstaða til hjúkrunar og umönnunar er
mjög góð.
Aðalviðfangsefni eru á sviði öldrunarhjúkrun-
ar, en einnig er fengist við margs konar
medicinsk vandamál, bæði bráð og langvar-
andi. Næturvaktir hjúkrunarfræðinga eru í
formi bakvakta, heima.
Hafið þú áhuga á skemmtilegu en oft krefj-
andi starfi hafðu þá samband við Sigrúnu
(hjúkrunarforstjóra) í síma 472 1406 sem
gefur nánari upplýsingar.
Félagsmálastjóri
er starfsmaður félagsmálaráðs og er m.a.
ráðgjafi um félagsþjónustu í kaupstaðnum.
Laun eru samkvæmt launataxta Félags opin-
berra starfsmanna á Austurlandi (FOSA).
Menntun í félagsráðgjöf eða önnur uppeldis-
menntun æskileg.
Starfshlutfall 50%.
Til greina kemur að félagsmálastjóri starfi
einnig sem kennari við Seyðisfjarðarskóla í
hálfu starfi.
Seyðisfjarðarskóla
vantar kennara í eftirtaldar stöður:
Almenn kennsla og íþróttakennsla, heil staða
eða almenn kennsla, heil staða.
Almenn kennsla, hálf staða.
Ennfremur er ein staða laus, vegna forfalla,
frá 1. ágúst til áramóta.
Aðalkennslugrein: Danska.
Seyðisfjarðarskóli er einsetinn grunnskóli
með um 140 nemendur og 18 starfsmenn.
Við leigjum að áhugasömum kennurum sem
eru tilbúnir að starfa með okkur að því að
gera góðan skóla enn betri.
Umsóknarfrestur er til 10. ágúst.
Við útvegum gott, ódýrt húsnæði og greiðum
flutningsstyrk.
Á Seyðisfirði er talsvert íþrótta- og félagslíf,
leikskóli, tónlistarskóli og sundhöll er á
staðnum auk öflugrar heilsugæslu.
Nánari upplýsingar veita bæjarstjóri í vinnu-
síma 472 1303 og heimasíma 472 1293,
skólastjóri í síma 472 1172 og 472 1351 og
formaður skólanefdar í síma 472 1301 og
472 1260.
FMN
Flutningamiðstöð Norðurlands
FMN óskar eftir starfsmanni með viðskipta-
menntun eða reynslu á sviði fjármála og
bókhalds.
Starfssvið viðkomandi er:
★ Fjármál.
★ Yfirumsjón bókhalds.
★ Innheimta.
★ Uppgjör.
★ Ýmis sérverkefni.
Viðkomandi verður að geta hafið störf sem
fyrst.
Áhugasamir skili skriflegri umsókn, fyrir 6.
ágúst, merktri: „Flutningamiðstöð Norður-
lands, Fiskitangi, 600 Akureyri.
flSffl
*^!..þegar þer hentar
AFGREIÐSIUSTÖRF
Hörkuduglegt og ábyggilegt starfsfólk óskast í
10-11 verslanirnar m.a. vegna opnunar nýrra
verslanna. Leitað er að starfsfólki sem getur hafið
störf strax, fljótlega eða ágúst /september.
Óskað er eftir snyrtilegu fólki sem reykir ekki,
getur unni sjálfstætt og hefur áhuga á að veita
viðskiptavinum góða þjónustu.
I hverjum mánuði eru unnir 15 langir vinnudagar
og 15 daga frf (2-3 dagar unnir og 2-3 dagar frí).
Góðir tekjumöguleikar.
Æskilegur aldur 18-26 ára.
Nánari upplýsingar eingöngu veittar hjá
Ráðgarði.
Vinsamlegast sendið umsóknir til Ráðgarðs á
eyðublöðum er þar liggja frammi merktar: „10-
11 afgreiðslustörf” fyrir 2.ágúst n.k.
RÁÐGARÐURhf
SIJÓRNUNARtXJREKSIRARRÁÐGJÖF
Furugertl S 108 Rtykl««ik Siml 533 1800
Fmí 933 1808 N*t(ang: rgmldlunOtr«kn»t.l«
H*lmn«fðnt http://ww»<.tr«kn«t.l»/r»dg«rdur
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Lögfræðingur
Embætti ríkisskattstjóra auglýsir stöðu
löglærðs fulltrúa lausa til umsóknar.
Umsóknir, þar sem fram komi upplýsingar
um menntun og fyrri störf, sendist embætt-
inu eigi síðar en 12. ágúst nk.
MENNTASKÓLINN
SUND
Laus kennsla
Vegna veikindaforfalla vantar kennara í eðlis-
fræði til afleysinga í 4-6 vikur, frá 1. septem-
ber nk. að telja. Um fulla kennslu er að ræða.
Einnig vantar stundarkennara í dönsku
(8 st/v) til afleysinga í september og október.
Umsóknarfrestur er til 7. ágúst.
Nánari upplýsingar eru veittar
í símum 431 2729 og 553 6114.
Rektor.
SJÚ KRA H Ú S
REYKJAVÍKUR
Leikskólinn Furuborg
Leikskólakennari
í leikskólanum Furuborg í Fossvogi er laus
staða leikskólakennara eða starfsmanns með
sambærilega uppeldismenntun. Nauðsynlegt
er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Upplýsingar gefur Hrafnhildur Sigurðardótt-
ir, leikskólastjóri, í síma 525 1020.
Tækifæri
Mig langar að fræða þig um
tækifæri sem við bjóðum
. . . þú ræður hversu langt þú vilt ná. Það
eru engin takmörk á tekjumöguleikum. Við
veitum þér faglega þjálfun. Þú getur unnið
þér inn spennandi bónusa. Það kostar ekk-
ert að byrja. Þér geta boðist spennandi ferða-
lög til heillandi staða. Tækin eru viðurkennd
um allan heim fyrir gæði og afköst.
Ef þú hefur bíl til umráða, pantaðu þá viðtal
í síma 555 0350.
Upplýsingar aðeins gefnar á staðnum.
ERTU ANNARS HUGAR?
Nú er tækifærl fyrir þó sem hafa metnað í að taka þótt i óframhaldandi velgengni Marel
með gerð myndbanda í markaðsdeild fyrirtækisins. Myndböndum Marel er dreift um allan heim
og gegna þau lykilhlutverki í sölu tækja og kynningum fyrirtækisins.
Umsóknum skal skilað til Marel hf., Höfðabakka 9, 11 2 Reykjavík, fyrir mónudaginn 1 2 ógúst nk.
Nánari upplýsingar veita deildarstjórar í markaðsdeild í síma 563 8000.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Marel hf • Höfðabakka 9-112 Reykjavík • Sími 563 8000 • Fax 563 8001 • Internet: info@marel.is